Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
Fréttir
Gjaldþrot Miðfells:
Skuldir umfram eignir
nærri 200 milljónum
- sýnt að ekkert fæst upp 1 almennar kröfur sem eru 180 miUjónir
Gjaldþrotameðferð á þrotabúi
verktakafyrirtækisins Miðfells er
langt komin. Þegar er sýnt að ekk-
ert fæst upp í almennar kröfur í
búið en þær eru alls um 180 milljón-
ir króna. Ekki þótti ástæða til að
meta rétthæfni þeirra né fjárhæðir
þar sem sýnt var að ekkert fengist
upp í kröfurnar. Einni kröfu frá
tollstjóra var hafnað þar sem gögn
skorti en hún nam 30 milljónum
króna.
Veðkröfur í þrotabúið voru um
60 milljónir og forgangskröfur um
12 milljónir. Fasteign og lausafé
Miðfells gera ekki meira en að
nægja upp í forgangs- og veðkröfur.
Alls voru því kröfur í þrotabúið
282 milljónir króna.
Útvegsbankinn á hæstu kröfuna
í búið, eða 95 milljónir króna. Krafa
Útvegsbankans flokkast meö al-
mennum kröfum. Bankinn á einnig
veð fyrir skuldinni í eignum
Hvammsvíkur, sem er dótturfyrir-
tæki Miðfells, en búast má við að
það veð sé lítils virði. Fátt getur
bjargað Hvammsvík frá sömu ör-
lögum og urðu hlutskipti móður-
fyrirtækisins, það er gjaldþrot.
Skuldir Hvammsvikur munu vera
töluvert meiri en eignir.
Skiptafundur í þrotabúi Miðfells
verður haldinn í september.
-sme
Mikill (ögnuður var meðal þeirra þúsunda ungmenna sem sáu og hlýddu
á hina heimsfrægu rokkhljómsveit Kiss I Reiðhöllinni i gærkvöld. Og svo
ört slógu hjörtu hinna fjölmörgu aðdáenda að kæla varð liðið með þvi að
sprauta yfir þaö vatni. DV-mynd J.Hansen
6000 á hljómleikum Kiss:
Fóru vel fram
en ólæti í strætó
Hjómleikar með rokksveitinni um allan miðbæ fram eftir nóttu.
KissíReiðhölhnniígærkvölditókust Reiðhölhn h/f hélt hljómleikana.
vel og fóru vel fram. Ahs mættu um Þessi góða aðsókn mun væntanlega
6000 manns, mest unghngar. bæta stöðuna frá hinu mikla tapi sem
Ólæti urðu í strætisvögnum að varð á hljómleikum með hljómsveit-
loknum hljómleikum. Unghngarnir . inni Status Quo fyrr í sumar.
rifu setur úr sætum strætisvagn- -sme
anna. Seturnar fundust á víð og dreif
Fyrsti fundurinn
Ásmundur Stefánsson, forseti hvaöa form yrði á viðræðum ríkis-
Alþýöusambandsins, hitti Þorstein stjórnarinnar við Alþýöusamband-
Pálsson forsætisráðherra í morg- ið í tengslum viö könnun á niður-
un. Á fundi þeirra var rætt um færsluleiðinni. -gse
Guömundur Sigurðsson, viðskiptafræömgur Verðlagsstofhunar:
„Davíð Scheving brann
inni með hækkanimar"
„Við höfum farið fram á að Sól hf.
og Smjörlíki dragi hækkanir sínar til
baka,“ sagði Guðmundur Sigurðs-
son, yfirviðskiptafræðingur Verð-
lagsstofnunar, og játaði um leið að
þessar aðgerðir sýndu vel þá hörku
sem stofnunin verður að beita th að
tryggja framgang verðstöövunarinn-
ar.
„ Þetta tilvik er líklega mest á jaðr-
inum því að í júní kom hækkunar-
beiðni frá fyrirtækinu vegna verð-
hækkana erlendis. Gerðum við ekki
athugasemd við það. Nú höfum við
hins vegar tilkynnt Davíð Scheving
aö hann hafi brunniö inni með þess-
ar síðustu hækkanir.“
Guðmundur sagði að þetta væri
vissulega alveg á mörkunum en
öðruvísi hefði ekki verið hægt að
standa að þessu máh - verðstöðvun
væri í gangi. Hann sagði að sams
konar mál hefði komið upp varðandi
hækkunarbeiðni frá málningarverk-
smiðjunni Hörpu sem heföi orðiö að
draga hækkun sína til baka.
-SMJ
Sól hf. skikkað til að lækka vörur sínar:
„lög eru lög og við hlýðum þeim“
- segir Davíð Scheving. íscola áfram á kynningarverði
„Lög eru lög og við hlýðum þeim,“
sagði Davíð Scheving Thorsteinsson
hjá Sól hf. en í gær var hann skikkað-
ur til aö lækka vörur sínar aftur til
samræmis við það sem þær voru fyr-
ir 19. ágúst þegar hækkanir, á mihi
5 og 10%, áttu sér stað hjá honum.
Þessar aðgerðir eru dæmigeröar
fyrir þá hörku sem verðlagsyfirvöld
beita nú en Davíð sagði að hann hefði
haft leyfl frá verðlagsstjóra fyrir
þessum hækkunum.
„Þetta leyfl hefur verið afturkallað
en það hefur ekki gerst í 37 ár hjá
verðlagsyfirvöldum. Verölagsstjóri
tjáði mér að heimild um hækkun,
sem ég hafði fengið, stæðist ekki
lagalega, og því hefði hún verið aftur-
köhuð. Við munum því lækka allar
okkar vörur sem áður höfðu hækkað
samkvæmt heimild verðlagsyflr-
valda.“
Davíð sagði að fyrst og fremst heföi
verið um að ræða hækkun á vörum
unnum úr jurtaohum en uppskeru-
brestur í kjölfar þurrka i Bandaríkj-
unum hefði stuðlað að verulegri
hækkun á heimsmarkaðsverði. Þá
veröur Davíð að lækka verð á íscola
sem hann segir að hafi verið á lág-
marksverði vegna kynningar. Sagði
Davíð að verð á því ætti að vera
áfram um 22 til 24 kr. út úr búö.
„Við verðum bara að selja flmm
sinnum meira til að ná þessu inn.“
Hjá Verðlagsstofnun fengust þær
upplýsingar að dæmið með íscola
væri sérstaklega erfitt viðureignar
og játaöi Guðmundur Sigurðsson
yfirviöskiptafræðingur að hart væri
fyrir Davíö að þurfa að selja áfram á
kynningarverði en viö núverandi
kringumstæður færi best á því að svo
yrði.
- En hvað segir Davíð um þessa
lagasetningu?
„Ég held ekki aö þessi lög séu hugs-
uð th enda. Þau eru svo götótt að það
er varla heh brú í þeim. Hvað verður
t.d. um verðhækkanir úti á landi en
þangað eru veröbreytingar lengur að
berast. Þá verður þeim refsað núna
sem ekki hafa hækkað lagera sína.
Ég held að menn hafi ekki hugsað
um svona tilvik.“
-SMJ
Verðlagseftirlit:
Flestir svörtu
sauðanna hafa
tekið við sér
Njarðvlk:
Bruggarar
stöðvaðir
Tveir menn hafa játað hjá rann-
sóknarlögreglunni í Keflavik að
hafa eimað og lagað rúmlega eitt
hundraö htra af áfengi. Mennim-
ir voru stöðvaðir af lögreglu. í
sendiferðabfl, sem þeir voru á,
fannst rnjööurinn og tæki th
framleiöslunnar.
Að sögn Jóhanns Jenssonar
rannsóknarlögreglumanns hefur
ekkert komiö fram viö rannsókn
málsins sem bendir th þess að
mennimir hafi ætlaö aö gera
mjöðinn að söluvöru. Þeir munu
hafa ætlaö hann th einkaneyslu.
Ekkert bendir th annars en aö
um frumraun mannanna hafi
verið að ræöa. Rannsókn málsins
er lokiö.
-sme
Mikið af athugasemdum streymdu
inn th Verðlagsstofnunar í gær þó
að sértengdur sími stofnunarinnar
væri ekki kominn í gagniö. Þeir hjá
Verölagsstofnun vonast th að hann
verði tengdur í dag. Þá munu verka-
lýðsfélög taka þátt í verðgæslunni og
er Dagsbrún meðal annars með þjón-
ustu á þessu sviði. Er ætlunin að efla
enn frekar það samstarf.
Að sögn Guömundar Á. Sigurös-
sonar hjá Verölagsstofnun hafa flest-
ir svörtu sauðanna, sem em á skrá
hjá þeim, lagað verð hjá sér. í dag
veröur þó gengiö af meiri hörku að
þeim sem eftir eru.
Nokkur iðnfyrirtæki hafa orðið að
lækka vöm sína. Eru það meðal ann-
ars Akra, Flóra, Smjörlíki, Sól og
Harpa.
Nokkrir bakarar hafa orðið að
lækka vömr sínar og sömuleiðis
framleiðendur franskra kartaflna.
Þá ætlaöi Sölufélag garðyrkju-
manna aö fresta söluuppboðum og
taka upp lágmarksverð en Verðlags-
stofnun hefur kraflst þess að miðað
sé viö verð síðasta föstudag.
Þá er Ijóst að ein hækkun mun bíða
við næstu mánaðamót, þegar verð-
stöðvuninni lýkur, en það er hækkun
á húsaleigu. Hún hækkar 1. október.
-SMJ