Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. 33 Lflsstfll Þakkantar eru tákn um velmegun Þaö er með ólíkindum hve frágang- ur á þakköntum er mismunandi hér á landi. Þykkir og viöamiklir þak- kantar sjást nú víða. Hér er oft um að ræða miklar smíðar sem ekki þjóna neinum sérstökum tilgangi, nema hvað útlit varðar. Yfirleitt ráða húseigendur því sjálf- ir hvernig þakkantur á húsum þeirra lítur út. Arkitektar koma gjaman með tillögur og útfæra samkvæmt því. En það er langt í frá að þeir ráði útliti bygginga. Á síðustu árum hefur mikið verið byggt af húsum í ólíkum byggingastíl. En smekkur íslendinga og fjárhagur er misjafn. Þaö sést glöggt þegar þakkantar svipaðra húsa í nýjum hverfum eru bornir saman. Undir þessu þaki bý ég „Fólk er oft miklu hrifnara af því að búa í húsi með svipmiklum þak- kanti," segir Guðmundur Gunnars- son arkitekt. „Það er eins og það vilji geta sagt: Undir þessu þaki bý ég. Það þykir heimilislegt að hafa frá- ganginn þannig að hann sé sem viða- mestur í útliti. Þetta er ekki spurning um nota- gildi. Og það skiptir í rauninni litlu máli hvort arkitektinn teiknar þykk- frjálslega er gengið frá húsum - hvað „eins hús eru ólík“, ef svo mætti að orði komast. í nýjum hverfum er auðveldast að koma auga á þetta. 3-4 hús, sem standa saman, eru gott dæmi. Þar getur kennt ýmissa grasa - sambærileg hús að utan og innan geta verið ákaflega ólík við fyrstu sýn - vegna frágangs þakkanta. Stundum eru þeir svo þykkir að halda mætti að þakið eigi að standast sprengjuár- ás. Tekur meiri vind í sig Guðmundur segir að svo virðist stundum sem meiri vinna sé lögð í útlitsþætti sem þakkantafrágang en alhliða frágang hússins. „Stór og viðamikill þakkantur skýhr engan veginn betur fyrir veðri. Hins vegar taka svona smíðar meiri vind í sig en aðrir kantar. Og það má líka segja að ef þetta skýldi betur fyrir veðri og vindum þá væru gömiu húsin svona. Á þeim eru kantarnir mjög einfaldir. Burð- arbitar sjást á gömlu húsunum. En þá var reynt að koma í veg fyrir að þær tækju of mikinn svip frá húsiriu sjálfu. Það var gert með því að hafa skrautlínur í þeim - áhersla þeirra var minnkuð. Nú á dögum er þak- „Þakkantur Kjartan“. Á kanta sem þessa eru listar settir að ofan- og neðan- verðu og rásaður krossviður hafður á milli. Þakrennan er svo „fa!in“ á bak við. Að neðanverðu eru gjarnan innbyggð Ijós. Tvö álíka hús, hlið við hlið, verða mjög ólik vegna mismunandi þakkanta. En þeir gera sama gagn. an eða þunnan þakkant. Verðið er þaö sama hvað teiknivinnu snertir. Spurningin er aðeins: Vill viökom- andi eyða meiri peningum í að hafa húsið þannig aö þakið hti út fyrir að vera þykkt, ef svo má segja. Þarna ræður þakkanturinn öllu. Kostnaöur við efni og vinnu getur í þessum til- fehum verið mjög mikill - mörg hundruð þúsund jafnvel. Að þessu leyti eru kantamir auðsjáanlegt merki um velmegun. Byggingarstíll torfundinn Tiltölulega stutt er síðan íslending- ar bjuggu í sveitasamfélagi. Miðað við nágrannalönd okkar gengur okk- ur oft erfiðlega aö halda í hreinan byggingarstíl. Hönnun híbýla ákvarðast því gjarna af tískufyrir- brigðum. Okkar saga tengist torf- bæjum sem fáum hefur dottið í hug að stílfæra nútímabyggingar eftir. Við erum að mörgu leyti í lausu lofti og fáum raunverulega að gera það sem okkur langar til eða fjárhagur- inn leyfir. Sé keyrt um götur bæjarins rennur fljótlega upp fyrir manni hversu kanti hins vegar leyft að taka svip frá húsinu sjálfu. Mér finnst þetta bagalegt og í rauninni óþarfi.“ Innbyggðar rennur og Ijós Á Laugarásveginum eru nokkur Á eldri húsum standa burðarbitar þaksins út fyrir. Áhersla á þá var gjarnan minnkuð með skrautlínum. Skyldu þessir þakkantar standast sprengjuárás? Hér hefur vafalaust verið varið miklu fjármagni í „sterkan svip". DV-myndir KAE. hús sem eru dæmigerð fyrir þykkan og viöamikinn þakkant. Hér er um að ræða svokallaðan „þakkant Kjart- an (Sveinsson)“. Á þeim eru listar að ofan og rásaður krossviður eða panell hafður standandi þar á milli. Að ofan er svo innbyggð renna og að neðanverðu eru svo gjarna höfö ljós. Svona kantar eru mikh smíði og standa sumir um metra út frá húsinu. Einn tilgangur með þykkum og miklum þakkanti er sjálfsagt að fela þakrennuna. Hún sést ekki á þessum húsum - í rauninni er smíðað utan um hana. Einn ókostur fylgir inn- byggðum þakrennum - viðgerð á þeim. Verra er að komast að þeim ef skemmdir verða. En það er alltaf spurning um það hvað hverjum finnst. Hús verða „kúbískari“ - meira kassalaga sé þakkanturinn einfaldur. Reyndar eru svo mörg afbrigði af þessu fyrir- bæri að um nóg er aö velja. Smekkur og fjárhagur segir til um útkomuna. -ÓTT. Á ÖLLUM HÚSGÖGIMUM 30% AFSLÁTTUR jiii rA AA ▲ ▲ A X*—< C3 ú— fZ-1 133' cj c i: c L_xaaoa33íí t—j uiw dt^UOQjJ H»m( ia»«mK.rsjtM **tn, Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 Húsgagnadeild, 2. hæð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.