Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. Uflönd Umbætur í efnahags- og stjórnmálalífí Líbýu Muhammar Gaddafi, hershöföingi og leiðtogi Líbýu, hefur tilkynnt um róttækar umbætur í efnahags- og stjómmálakerfi landsins í von um að endurvekja stuðning almennings við byltingarstjórn sína. Á morgun, þann 1. september, verða nítján ár síðan Gaddafi og her- inn tóku völdin í sínar hendur. Þar með var konungdæmið, sem verið hafði í Lábýu frá sjálfstæði þess árið 1951, afnumið. Með valdatökunni hét Gaddafi byltingu sósialisma í Líbýu. í Grænu bókinni svokölluðu, sem er hin opin- bera stefnulýsing stjórnar hans í efnahags- og stjórnmálum, eru lín- urnar lagðar fyrir stjórn landsins. Með tilstuðlan sósíalismans var byltingunni ætlaö að stuðla að rétt- læti, jafnari skiptingu auöæfa lands- ins milh íbúanna og að stéttaskipt- ingunni, sem verið hafði við lýði, yrði rutt úr vegi. Framkvæmd þess- ara stefnumiöa hefur ekki séð dags- ins ljós enn sem komið er. Einkaréttur rikisins heftur Ríkið hefur haft einkarétt á rekstri efnahagslífsins og hafa verslunar- menn verið í þjónustu hins opinbera. Með þeim umbótum, sem Gaddafi boðar nú, verður fjölskyldum leyft að setja á laggimar fyrirtæki. Þau fyrirtæki verða að vera rekin í formi fjölskyldufyrirtækja, eingöngu með vinnukrafti fiölskyldumeölima. Rík- isreknar verslanir skulu og látnar í hendur verslunarmanna sem fá ákveðinn hluta teknanna, um 25 pró- sent að tahð er, í sinn hlut. Inn- og útflutningur verður einnig gefinn frjáls að einhverju leyti. Hinn almenni borgari getur nú sótt um leyfi th að flytja inn ýmiss konar tækjabúnað og vélakost en innflutn- ingur ahra vara hefur.alfarið verið í höndum ríkisins síðan árið 1981. Hvort almennum borgurum verður einnig leyft að sækja um útflutnings- leyfi fyrir vörur sínar er óljóst. Pólitískar breytingar Umbætur í stjórnmálum eru tak- markaðar. Stjórnmálaflokkar eru ekki leyfðir í landinu og samkvæmt lögum th vemdar byltingunni, sem samþykkt vom árin 1%9 og 1971, er aðild að stjórnmálaflokki í raun talin glæpur gegn stjórnvöldum. Gaddafi telur að stjórnmálaflokkar geti ekki í eðli sínu verið fulltrúar fólksins í landinu þar eð þeir séu sérhagsmunahópar. í stað þeirra kom hann á kerfi þjóðþinga og nefnda sem ríkja með hagsmuni fólksins að leiðarljósi. Æðsti handhafi valdsins er Gadd- afi. Löggjafarþing hefur verið starf- andi i nafni fólksins í landinu síðan árið 1976 og skal það vera æösti hand- hafi bæði framkvæmdar- og löggjaf- arvaldsins. Það sitja fuhtrúar hér- aðsþinga. Þingið á að koma saman árlega og samþykkja setningu póh- tískra ákvarðana. í raun hefur þingið afsalaö miklu af valdi sínu í hendur stjómardehdar framkvæmdastjóra þingsins sem sett var á laggimar á áttunda áratugnum. Stjórnardehdin sér um að velja ráð- herra ríkisstjórnarinnar sem sam- anstendur af framkvæmdastjóra þingsins ásamt nítján öörum ráð- hermm. Hver ráðherra skal sitja í eitt kjörtímabh sem er þrjú ár. Róttækustu breytingar á póhtísku kerfi landsins með þeim umbótum, er Gaddafi boöar nú, er að í fyrsta sinn verður leyfilegt að setja á stofn verkalýðsfélög og önnur samtök. Og í orði kveðnu er nú komið málfrelsi i Líbýu. Það frelsi, er mestu máh skiptir, tjáningarfrelsið, hefur, í orði, verið gefiö fijálst. Hinn almenni borgari getur tjáð trúarlegar og pólitískar skoðanir sínar fijálslega. Erlend blöð og tímarit fást nú í mun ríkara mæh í landinu en áður en erlendir stjóm- arerindrekar benda þó á að allir fjöl- miðlar em enn ríkisreknir. Dómskerfinu breytt Umbætur Gaddafis kveða á um breytt og sjálfstætt dómskerfi. Fréttaskýrendur telja að með þess- um breytingum sé Gaddafi að reyna að hefta völd byltingarráðanna. Ráðin hafa handtekið, tekið af lífi eða vísað úr landi andófsmönnum án þess að th réttarhalda hafi komiö yfir þeim og í gær ásakaði Gaddafi þau opinberlega um 'morð. Sam- kvæmt umbótalögum Gaddafis verð- ur refsikerfinu breytt þannig að fangelsun og dauðadóma skuh ein- göngu nota gegn þeim sem sannaö þykir að era hættulegir ríkinu eða niöjum þess. Gaddafi kvaðst hafa lagt th að dauðarefsingin yrði lögð niður en löggjafarþingiö hefði hafnað þeirri tillögu. Byltingarráðin hafa einnig gert upptækar eigur almennra borgara og er tahð að umbætur Gaddafis eigi að koma í veg fyrir slíkt. Frelsun nokkurra andófsmanna úr fangelsum síðustu daga hafa vakiö nokkra bjartsýni meðal stjórnarand- stæðinga í Líbýu. Að sögn erlendra íréttaskýrenda hafa margir andófs- menn, sem verið hafa í útlegð, snúið heim á nýjan leik. Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hefur kynnt umbótatillögur sínar. Simamynd Reuter Leiðtogi Libýu hefur lengi haft það að leiðarljósi að sameina alla araba undir eina stjórn og hefur ítrekað reynt að fá nágrannaríki sin til aö samein- ast. Herinn slakar á Umbótaaðgerðir Gaddafis eiga sér stað samhhða nokkurri slökun yfir- ráða hersins. Þaö var herinn sem stóð fyrir byltingunni árið 1969 og þaö var hann sem réð lögum og lofum í Líbýu fyrstu árin. Uppþot hersins gegn ríkjandi stjóm Gaddafis hafa verið fá. Nokkr- ar thraunir th valdaráns hafa verið gerðar, sérstaklega í kjölfar hvatn- ingar Gaddafis th þjóövarðhösins að það rísi th mótvægis viö völd hers- ins. Einnig hefur ákvörðun leiðtog- ans um aö konur skuh gegna her- þjónustu th jafns við karlmenn mætt nokkurri mótspymu meðal her- manna. En þessar róstur innan hers- ins hafa ekki ógnaö Gaddafi svo telj- andi sé. Fréttaskýrendur telja þó að ef um varanlega andspymu verði að ræða innan Líbýu komi hún úr röðum hermanna. Önnur stjómarandstaða í landinu, s.s. stúdentar og bændur sem og andófsmenn sem eru í útlegð erlendis, á viö ramman reip aö draga. Gaddafi hefur barið aha mótspymu niður af hörku og einnig er tahð að ungir, vel menntaðir Líbýumenn styðji aðgerðir Gaddafis. Tími efnahagsaðgerða Umbætur Gaddafis em th þess gerðar að auka stuðning við bylting- arstjóm hans og tilraunir Líbýu til aö sameina alla araba undir eina stjóm en það var einmitt eitt af stefnumiðum byltingarinnar. Efnahagslíf landsins hefur versnað mjög, sérstaklega eftir að verð á hrá- olíu á heimsmarkaði hrapaöi árið 1982. Tekjur Líbýu af olíuútflutningi, sem gefa ríkissjóði ríflega 90 prósent tekna sinna, vom 22 milljarðar árið 1980. Sex árum síöar höfðu þær hrap- aö niöur í 5 mhljarða. Styrjöldin við nágrannaríkið Chad, sem lauk í fyrra, hefur einnig tekið sinn toh og aukið við óánægju fólks- ins. Fréttaskýrendur era tregir til aö tjá sig um umbótathraunir Gaddafis. Þeir segja þær pólitiskan biðleik leið- togans. Hversu víðtæk framkvæmd þeirra verður er of snemmt að spá um en aö sögn stjórnarerindreka telja margir íbúar landsins sig betur stadda nú en áður. Reuter Martróð stórborgarinnar Taipei, höfuðborg Taiwan, er að drukkna í bifreiðum. í þessari borg, sem breyst hefur á tuttugu árum úr Ifijóðlátu þorpi í stórborg nútím- ans, era 360 þúsund bifreiöar og hálf milljón biihjóla. íbúar Taiepi eru tvær og hálf miUjón og getur borgin nú státað af meiri umferðarómenningu en Los Angeles sem hingað th hefur verið talin versta martröð öku- manna. Efnahagslífið i Taiwan varð fyrir eins kónar sprengingu á sjöunda áratugnum. Fyrir tuttugu árum ræktuðu bændur hrísgijón þar sem nú standa nútíma skrifstofu- byggingar og verslanasamstæöur. Borgin er óðum að fá á sig yfir- bragð nútímalegra stórborga og helsta vandamálið, sívaxandi um- ferðarþunginn, er skammt undan. Vegir í Taipei era ekki gerðir fyr- ir bifreiðar. Vegir era þröngir og hlykkjóttir, hannaðir með reiöhjól og léttivagna í huga. Yfirvöld í Taipei standa ráöþrota gagnvart þessu vandamáli. Th stendur að ráöast í byggingu neð- anjarðarlestarkerfis, sem áætlað er að kosti hátt í níu milljarða doh- ara, en framkvæmdir verksins munu að öhum líkindum ekki hefj- ast fyrr en árið 1990. Sérfræöingar telja að borgin þarfnist a.m.k. þrjátíu þúsund bif- reiðastæða th að leysa brýnasta vandann. Bhstjórar leggja bifreið- um sínum ólöglega hvar sem er, á gangstéttum og í görðum og hafa yfirvöld íjölgað stöðuvörðinn sín- um margfalt th aö reyna aö ráða viö þennan vanda. Ekkert gengur. í borginni era nú 40 þúsund leigu- bifreiðar og strætisvagnakerfið hefur ekki undan. Borgin brá á það ráð nýverið að ráða sjálfboðaliða til að stjóma umferöinni á mesta annatímanum og öllum á óvart virðist það hafa dugað einna best af þeim ráðstöf- unum sem geröar hafa veriö th að berjast við umferðina. Rcuter Umferðarþunginn á götum Taipei, höfuðborgar Taiwan, hefur margfald- ast á nokkrum árum. Sfmamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.