Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. Iþróttir i - alls 32 keppendur Sex Islenskir sundmenn verða meðal þátttakenda á ólympíu- leikunum í Seoul í haust. Ólymp- íunefnd íslands hefur tekið þá ákvörðun að senda Ragnar Guð- mundsson, Bryndísi Ólafsdóttur og Arnþór Ragnarsson á leikana þótt þau hafl ekki náð tilsettum lágmörkura. Eðvarð Þór Eðvarðsson, Ragn- heiður Runólfsdóttir og Magnús Már Ólafsson höfðu náð lágmörk- unum og Sundsamband Islands mælti með að þau færu ásamt Ragnari sem var örskaramt frá lágmarki. Nokkuð vantaði hins- vegar upp á að Bryndís og Am- þórs næðu sínum viðmiðunar- tölum. Þar með liggur loksins fyrir endanlegur fjöldi íslenskra íþróttamanna sem keppir í Seoul en þeir veröa 32 talsins. Þar af 15 handboltamenn, 7 frjáls- íþróttamenn, 6 sundmenn, 2 júdó- menn og 2 siglingamenn. -VS Vætutið á ÓJafsftröi: Völlur Leifturs á kafi I kjölfar mikilla rigninga á Ól- afsfirði undanfama daga fór knattspyrnuvöllur Leifturs- manna á bólakaf. Leiftursmenn glíma nú við ’/iðkvæma stöðu í 1. deildinni í knattspyrau og mega ekki við því að knatt- spymuvöllur þeirra hverfl undir vatn. „ Ástandið hefur batnaö nokk- uð síðustu dagana en ennþá er einn fjóröi hluti vallarins undir vatni. Völlurinn er mjög fljótur að jafna sig. Ef hann hangir þurr næstu daga ættum við að geta leikið hér gegn KR á laugardag- inn. Við treystum á veðurguð- ina,“ sagði Þorsteinn Þorvalds- son, formaður knattspyrnudeild- arLeifturs, í samtali við DV í gær. Ólafsfirðingar treysta sem sagt á veöurguðina en ef áframhaid- andi rigningar verða á Ólafsfirði næstu daga má fastlega reikna með því aö leik Leifturs og KR verði frestaö. -SK UrsJKakeppni 4. deildar: Dýrmætt stig Hver- - náðu jöfnu gegn SR Skotfélag Reykjavíkur geröi 1-1 jafntefli við Hveragerði í úrslita- keppni 4. deildar á gervigrasinu í Laugardal i gærkvöldi. Ólafur Jósefsson náði forystunni fyrir Hvergerðinga en undir lok leilcs- ins jafnaöi Hrafn Loftsson metin fyrir Skotfélagsmenn. Eftir þessi úrslit em Hvergerð- ingar meö 4 stig en Skotfélags- menn liafa aöeins hlotið eitt stig og þurfa að sigra Badmintonfélag ísafiaröar til aö eiga möguleika á sæti i 3. deild. Badmintonfélagiö er aö öllura líkindum búiö aö tryggja sér sæti i 3. deild og Hver- geröingar standa einnig vel aö vigL -RR HM-leikur íslands og Sovétríkjanna á LaugardalsveUinum kl. 18 í dag: Mikilvægt að byrja vel - voná að Sovétmenn þurfi að hugsa mikið um vamarleik, segir Sigfried Held „Það er þýðingarmikið að byrja vel í þessari heimsmeistarakeppni og eitt eða tvö stig gegn Sovétmönnum væri mjög gott fyrir liðsandann og framhaldið hjá okkur í keppninni,“ sagði Sigfried Held, landsliðsþjálfari íslands, þegar DV ræddi við hann í gær um stórleikinn sem hefst á Laug- ardalsvellinum kl. 18 í dag. „En úrslitin í þessum leik gera þó ekki útslagið um hve langt við náum. Við gætum unnið Sovétmenn og samt lent í neðsta sæti og gætum líka náð langt þótt við töpum fyrir þeim. íslenska hðið þarf að verjast vel í þessum leik og trufla sóknaraðgerðir Sovétmanna frammi á vellinum. Síð- an vonast ég eftir því að við verðum sem mest með boltann þannig að þeir sovésku verði að hugsa mikið um eigin varnarleik. íslenska hðið verður aö leika af skynsemi, beita snöggum skyndisóknum þegar möguleikinn gefst en annars að byggja upp sóknir á yfirvegaðan hátt. Það er ekki spurning að hð Sovét- manna er eitt þeirra fimm bestu í heiminum í dag. í úrslitaleik Evrópu- keppninnar gegn Hollendingum í sumar hefðu þeir alveg eins getað sigrað, fengu færin til þess en höföu ekki heppnina með sér,“ sagði Held. Liðið kynnt í gær Held tilkynnti í gær hvaða leik- menn hæfu leikinn í dag en það eru nákvæmlega þeir sömu sem DV leiddi getum að í gær. Bjarni Sigurðs- son, Guðni Bergsson, Sævar Jóns- son, Atli Eðvaldsson, Ólafur Þórðar- son, Gunnar Gíslason, Sigurður Jónsson, Pétur Ormslev, Ásgeir Sig- urvinsson, Sigurður Grétarsson og Arnór Guðjohnsen. Varamenn eru Friðrik Friðriksson, Guðmundur Torfason, Ómar Torfason, Pétur Arnþórsson og Viðar Þorkelsson. „Þetta er sterkasti hópur sem hefur leikið undir minni sfióm og það sést best á því hve góðir og reyndir leik- menn sifia á varamannabekknum. Það er gott að hafa þá innan handar, venjulega þarf maður á fleiri en 11 leikmönnum að halda í leik,“ sagði Sigfried Held. Vörnin ekki í teljandi vand- ræðum síðast „Síðast þegar við lékum við Sovét- menn, í Simferopol í fyrrahaust, átt- um við ekki í miklum vandræðum með að halda aftur af sóknarmönn- um þeirra,“ sagði Guðni Bergsson, aftasti maður í vörn íslenska liðsins. „Þeir fengu engin afgerandi færi í þeim leik og skoruðu tvö frekar ódýr mörk. Ég er hvergi banginn fyrir leikinn, viö erum með sterkan hóp og ég vona bara að áhorfendur fiöl- menni og stemmningin verði í góðu lagi,“ sagði Guöni. Baráttan númer eitt „Við þurfum aö berjast mjög vel sem ein heild og koma Rússunum úr jafnvægi með því að taka fast á móti þeim úti á vellinum," sagði Ar- nór Guðjohnsen, sem leikur í fram- línu íslenska liðsins í dag. „Ég á von því að þeir reyni að keyra upp hraðann og setja meiri pressu á okkur en síðast þegar við mættum þeim hérna á Laugardalsvellinum,“ sagði Arnór, sem skoraði einmitt gegn Sovétmönnum þegar hðin gerðu jafnteíli, 1-1, í Evrópukeppn- inni í Laugardalnum haustið 1986. -VS DV kynnir íslensku OL-farana Nafn: Gunnlaugiu- Jónasson. Fæðingardagur/ár: 9. april 1962. Hæð: 1,70 m. Þyngd: 60 kg. Félag: Siglingafélagið Ýmir. Nafn: íslcifur Patrick Friðriksst m. Fœðingardagur/ái 30. júli 1956. Hæð: 1,80. Þyngd: 73 kg. Félag: Siglingafélagið Ýr nir. Það er góður hugur í mér Siglum vel í hvassviðri „Það er góður hugur í mér varð- andi ólympíuleikana en ég á von á því að þetta verði erfið keppni. Þaö er rætt um að þarna blási mikið og þá er alltaf meiri áhætta í siglingunni. Það er ekki óal- gengt að mastur bogni eða brotni í rokinu enda er stundum sagt í gamni að ef hlutirnir brotna ekki á seglbátnum þá séu þeir einfald- lega of þungir." Þetta segir ólympíufarinn Gunnlaugur Jónasson sem hélt utan til Seoul í dag ásamt félaga sínum, ísleifi Friðrikssyni. Þeir hafa æft af miklum krafti síðasta árið og náð jákvæðum árangri í keppni í sumar: „Það hefur verið stígandi í þessu hjá okkur í sumar þótt viö höfum óneitanlega orðiö fyrir vissum áföllum í keppni. Núna eigum við þó að vera komnir yfir þau atriði sem hafa haldið aftur af okkur síðustu vikur og mán- uði.“ Þeir félagar, Gunnlaugur og ísleifur, skipta með sér verkum á seglbátnum sem er fisléttur og losar aðeins hundrað kíló. ísleif- ur er jafnan í svonefndri rólu - þ.e. hann hangir út yfir borö- stokkinn og spymir við fótum í lunninguna til að vinna gegn ágangi vindsins. Gunnlaugur sit- ur hins vegar nær stjómvelinum en teygir sig þó gjarnan út yfir borðstokkinn til að vinna gegn strekkingnum á svipaðan hátt og ísleifur. „Á leikunum stefnum við að því að gera okkar besta... og aðeins meira.. „eins og þeir segja,“ sagðí Gunnlaugur í spjallinu við DV. „Viö félagarnir höfum vissu- lega ákveðnar væntingar varö- andi þessa leika en látum þær ekki uppi heldur höldum þeim fyrir okkur sjálfá.“ Þess má geta aö Gunnlaugur hefur hlotiö sína eldskírn á ólympíuleikum en hann sigldi í Los Angeles áriö 1984. Þá hreppti hann fremur óhagstæöa vinda og varð ásamt félaga sínum, Jóni Ólafi Péturssyni, í 23. sæti af 28 keppendum. „Eg ætla rétt að vona að við ísleifur verðum ofar. Við emm nokkuð jafnir á vind en þó bestir í mjög hvössu," sagði Gunnlaug- ur sem var að gera „sjóklárt" í gær fyrir hina löngu ferð til Suð- ur-Kóreu. -JÖG „Þetta er fmmraun mín á ólymp- íuleikum og ég get ekki neitað því að ég er mjög spenntur. Það er mjög ánægjulegt aö fá að keppa á sjálfum ólympíuleikunum áður en ferillinn er úti.“ Þetta segir ísleifur Friðriksson, annar tveggja siglingamanna sem héldu utan til Seoul í dag, en þeir siglingamenn fara fyrir hópi íslenskra ólympíufara aö þessu sinni. ísleifur hefur lagt hart að sér á þessu ári til að standa sig í einni erfiðustu siglingakeppni sem háð er. Hann hætti vinnu fyrir tæpu ári og hefur síðan þá stundað æfingar og keppni bæði hérlendis og erlendis. Hæst hefur ísleifur komist í annað sæti á móti erlendis á þess- um tíma ásamt félaga sínum, Gunnlaugi Jónassyni. Þeir fóst- bræður hafa hins vegar unnið öll þau mót hér heima sem þeir hafa tekið þátt í. „Við höfum verið að keppa við aðalkeppinautana á þessum er- lendu mótum og þurfum ekkert að skammast okkar fyrir árang- urinn. Á sjálfum ólympíuleikun- um eru vitanlega margir óvissu- þættir og við getum nefnt þau atriði er varða vind og öldulag. Við Gunnlaugur siglum til dæmis mjög vel í hvassviðri en verr í litlum byr. Þar ræður þyngdin miklu en við erum þyngri en margir mótherjar okk- ar. Af þeim sökum náum viö ekki alltaf nægjanlegum hraöa þegar lítið blæs,“ segir ísleifur. Þess má geta aö ísleifur meidd- ■ ist alvarlega á dögunum en hann reif þá hðbönd á ökkla. Mikið mæðir á siglingamönnum í keppni en í spjallinu við DV sagði ísleifur að meiðslin hefðu engin áhrif á framgang þeirra Gunn- laugs á leikunum: „Ég hef enga trú á því að meiðslin hafi áhrif á framgöngu okkar. Ég beiti vissulega fótunum mjög mikið í keppni en stíg aldrei í báöar lappir samtímis þegar ég þarf að stjórna bátnum," segir Isleifur sem er bjartsýnn á góðan árangur þrátt fyrir þetta áfall sitt. -JÖG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.