Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. T iffegHll Hægt er að vinna 15 þúsund krónur ef maður kaupir súkk- ulaðistykki frá þýska fyrirtæk- inu Zentis. Þetta er happdrætti og skýlaust brot á verðlagslög- um. Fyrirtækið auglýsir að 15 þús- und króna vinning sé aö frnna í súkkulaðistykki. Súkkulaðið kostarkr. 71. í 33. grein laga um verðlag, samkeppnishömlur og ólög- mæta viðskiptahætti segir svo: „Óheimilt er í því skyni aö örva sölu á vöru, þjónustu eða öðru því sem í té er látið og lög þessi taka til, að úthluta vinningum með hlutkesti, í formi verðlaun- asamkeppni eða á annan hlið- stæðan hátt, þar sem tilviijun Neytendur ræður að öllu leyti eða að hluta hver niðurstaðan verður. Útgefendum blaða og tímarita er þó heimilt að úthluta vinn- Þannig er súkkulaðið auglýst. ingum með hlutkesti í sambandi við lausn verðlaunasam- keppni.“ Brot á öllu ofansögðu Þarna er um happdrætti að ræða og því skýlaust brot á 33. grein verðlagslaga. Að auki er Happdrætti Háskólans eina Lög um verðlag, samkeppnishömlur og ólögmæta viðskiptahætti eru sett neytandanum til verndar. Kolólöglegt - segir Jóhannes Gunnarsson hjá Verðlagsstofnun „Þetta er kolólöglegt, það er eng- in spufning," sagði Jóhannes Gunnarsson hjá Verðlagsstofnun er DV bar undir hann lögmæti þess að bjóða 15 þúsund króná vinning með súkkulaðimola. Jóhannes sagði að ekki léki nokkur vafl á því að um happdrætti væri að ræða. Hins vegar fellur þetta ekki undir lög um kaupbæti þar sem aðeins eiim molinn hefur að geyma kr. 15 þúsund. Um þetta sagði Jóhannes: „Þetta er vissulega góður kaup- bætir fyrir þann sem vinnur en ekki alla. Þetta er því happdrætti, ekki kaupbætir.“ Jóhannes sagði að stofnunin myndi kanna málið strax. Þá er málið komið á skrið. Næsta skref verður líklega það að Verðlags- stofnun býður innflytjanda súkkul- aðisins að fella málið niður hætti hann happdrættinu. Ef hann held- ur uppteknum hætti og lætur ekki segjast kærir stofnunin líklega. Þar með er máhö komið fyrir dómstóla og innflytjandinn situr í súpunni. -PLP - happdrættið sem má veita pen- ingaverðlaun. Fyrirtækið er því brotlegt gegn þessum lögum líka. Þar með er það Verðlags- stofnunar að fá innflytjandann til að láta af leiknum. Að sögn Gísla ísleifssonar, lögfræðings Verölagsstofnun- ar, er allt of mikið um að lög þessi séu brotin. „Það er spum- ing hvort ekki sé réttast að end- urskoða lögin,“ sagði Gísli. Málið er nefnilega að tíð brot á lögunum hafa í för með sér þverrandi siðgæðisvitund. Neytandinn hættir að skilja til- gang laganna. Af hverju má ekki gefa eitthvað í kaupbæti eða halda úti happdrætti? Tilgangur laganna Tilgangurinn með þessum lögum er sá að fólk kaupi vöm vegna eiginleika hennar eða verðs. Þegar farið er að fá fólk DV-mynd S til að kaupa vöm vegna kaup- bætis eða happdrættis er verið að róa á önnur mið. Þá er verið að fá fólk til að kaupa vöruna vegna kaupbætisins eða happ- drættisins en ekki vegna vö- runnar sjálfrar. Það er því verið að ginna fólk til að kaupa vöm á fölskum forsendum. Happ- drætti á heima á öðrum vett- vangi. Þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á um happdrætti og kaupbæti í verðlagslögum hafa margir reynt að fara fram hjá lögunum að undanfömu. Er þar skemmst aö minnast stríðs Verðlags- stofnunar við gosdrykkjafram- leiðendur nýlega. Því stríði lauk með því að framleiðendur undirrituðu yfirlýsingu þar sem þeir lofuðu að virða lögin framvegis. Spumingin er bara, hvað verður gert næst? -PLP U pplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnað- ar Qölskyldu af sömu stœrð og yðar. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks _ Kostnaður í júlí 1988: Matur og hreinlætisvörur Annað kr. kr. Alls kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.