Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. Fréttir Verktakastarf á Keflavlkurflugvelli: Aðalverktakar eru ís- lenskt feimnismál Er bandaríski herinn á Miönes- heiöi til að hagnast á eða er hann til aö verja landið? Þessi spurning er sem undirleikur við umræðuna um framtíð verktakastarfseminnar á Keflavíkurflugvelli og víðar um land þar sem herinn stendur fyrir fram- kvæmdum. Utanríkisráherra, Steingrímur Hermannsson, kynnti í síðustu viku skýrslu um stöðu íslenskra aðal- verktaka sf. í skýrslunni er gerð grein fyrir núverandi stöðu verktaka í Keflavíkurherstöðinni og mögulegu framtíðarskipulagi. Skýrslan var samin af nefnd sem utanríkisráðherra skipaði og það stóð upphaflega ekki til að birta hana almenningi. Utanríkisráðherra kynnti skýrsluna á fundi ríkisstjórn- arinnar á þriðjudaginn í síðustu viku. Fréttastofa Sjónvarpsins komst yfir efni skýrslunnar og fjallaði um hana í kvöldfréttum. Áður en vikan var úti boðaði Steingrímur blaða- mannafund og hóf hann með þeim orðum að fjölmiölar fréttu einatt af lesefni sem lagt væri fyrir ríkis- stjórnina og því væri best að láta skýrsluna milliliðalaust í þeirra hendur. Steingrímur Hermannsson er sá ráðherra sem hvað best orð hefur á sér fyrir að gefa fjölmiðlum greiöan aðgang að upplýsingum. Engu að síð- ur vakti það nokkra athygli að skýrslan um Aðalverktaka skyldi vera afhent fjölmiðlum í heild sinni. Hvers vegna? Kaltstríð Aðalverktakar voru stofnaðir þeg- ar kalda stríðið var í algleymingi. Veröldinni var skipt í austur og vest- ur, ranglát samfélög og réttlát. Sérís- lenskar aðstæður gerðu kalda stríðið að sumu leyti hatrammara hér á landi en víða annars staðar. Sjöunda maí 1951 lentu 13 banda- rískar herflugvélar fullhlaðnar her- mönnum á Keflavíkurflugvelli. Rík- isstjórnir íslands og Bandaríkjanna gerðu með sér samkomulag sem fól í sér viðvarandi setu bandarísks her- hðs í landinu. Bandaríkjaher og vera hans hér á landi klauf þjóðina í tvennt. Afstaða manna var ekki síst byggð á tilfinningasemi þar sem ís- lenska lýðveldið var ekki orðið tíu ára gamalt þegar bandaríski herinn bjó um sig á Miðnesheiði. Fréttaljós Páll Vilhjálmsson Ári eftir að Kóreustyrjöldinni lauk, 1954, var gengið formlega frá stofnun íslenskra aðalverktaka sf. Pólitísk spenna og tortryggni hefur alla tíð fylgt þessu fyrirtæki. Lítið verksvit íslendinga Eigendur Aðalverktaka eru Sam- einaðir verktakar sem eiga helming og samvinnufyrirtækið Reginn og íslenska ríkið sem eiga hvort um sig fjórðung. Sameinaðir verktakar voru stofn- aðir 1951 til að annast undirverk- takastarfsemi fyrir bandaríska verk- taka á Keflavíkurflugvelli. Iðnaðar- menn úr Reykjavik stofnuðu Sam- einaða verktaka og gerðu verksamn- inga við bandarísku verktakana. Bandarísk hemaðaryflryöld voru full efasemda um hæfni íslendinga til að smíða og reisa þau mannvirki sem herinn þurfti á að halda. íslend- ingar þekktu lítið til nútímalegra vinnuvéla og voru óvanir stærri verkefnum. Bandaríkjamenn sannfærðust samt fljótlega um að íslendingar gætu unnið þau verk sem varð að vinna. Sama ár og Aðalverktakar voru stofnaðir gerðu bandarísk og íslensk stjórnvöld með sér samning um að íslenskir verktakar sætu einir að verklegum framkvæmdum fyrir herinn. Dulbúin gjaldtaka Aðalverktakar eru ríkasta fyrir- tæki á íslandi. Hreinn hagnaður fyr- irtækisins í fyrra var hálfur milljarð- ur. í skjóh einkaréttar á hemaðar- framkvæmdum hafa Aðalverktakar malað eigendum sínum gull í þrjá áratugi. Einkaréttur Aðalverktaka er að sumu leyti Utt dulbúin gjaldtaka af bandaríska hernum. Ef bandaríski herinn viU láta byggja fyrir sig hér á landi er aðeins einn aðili sem her- inn getur leitað til til að annast fram- kvæmdir. Aðalverktakar eru því ekki í neinni samkeppni eins og venja er milU verktaka utan Miðnes- heiðar. Gjaldtaka af Bandaríkjaher er eitt af feimnismálum íslenskra stjórn- mála. Meginástæðan fyrir því er að fylgjendur vem hersins hér á landi skiptast í tvo hópa í afstöðu sinni. Annars vegar eru þeir sem vilja láta Bandaríkjamenn borga fyrir aðstöðu sína hérlendis. Þeirra sjónarmið er að herstööin hafi minna gildi fyrir íslendinga en Bandaríkin. Hins veg- ar eru það þeir sem telja herstöðina fyrst og fremst til að veija ísland óvinaárásum. Að þeirra mati er gjaldtaka af hernum siðlaust athæfi. Bandaríkjamenn hafa oft kvartað undan miklum kostnaði við fram- kvæmdir Aðalverktaka. Bandarísk yfirvöld eru hins vegar í mjög erfiðri aöstöðu sem verkkaupi. Andstaðan við Bandaríkjaher er landlæg á ís- landi og það torveldar bandarískum yfirvöldum að gera kröfur um hag- stæðari viðskipti. Titringurinn, sem varð þegar hval-: veiðar Islendinga voru ofarlega á baugi, sýnir að ekki má mikið út af bregða í samskiptum þjóðanna til að vera hersins á KeflavíkurflugveUi Það er bitist um milljarða þegar framkvæmdir fyrir bandaríska her- inn eru annars vegar og færri kom- ast að en vilja. Myndin er frá olíu- birgðastöðinni í Helguvík. komist í brennidepil. Bandaríkja- menn vilja ekki gefa færi á sér og eru tilbúnir að fórna nokkrum dollurum til að sleppa við umræðu sem er skaðleg aö þeirra mati. Stjórnkænska Aðalverktaka Stjórnendur Aðalverktaka gerðu sér snemma ljóst að þeir voru í forrétt- indastöðu og áttu sér marga öfundar- menn. Þess vegna hefur fyrirtækið ekki staðið gegn því að aðrir verktak- ar kæmust í KanagulUð. Þvert á móti hafa Aðalverktakar átt frum- kvæðið og boðið öðrum verktökum að gerast undirverktakar, núna síð- ast þegar hver landsfjórðungur fékk sína ratsjárstöð. Suðurnesjamenn fengu hlutdeild í framkvæmdum fyrir herinn þegar Keflavikurverktakar voru stofnaðir árið 1957. Keflavíkurverktakar eru hvort tveggja sjálfstæðir verktakar og undirverktakar Aðalverktaka. Þegar ákveðið var að byggja höfn og olíubirgðastöð í Helguvík fengu verktakar eins og Hagvirki, ístak og Loftorka samning upp á nokkur hundruð miUjóna króna. Molarnirduga ekki Þrátt fyrir aukna hlutdeild margra íslenskra verktakafyrirtækja í fram- kvæmdum fyrir herinn eru þeir hvergi nærri ánægðir. Verktakasam- band íslands hefur þá afstöðu að öll verk á vegum hersins skuii boðin út og íslenskir verktakar hafi jafna að- stöðu til að bjóða í verkin. í skýrslu utanríkisráðherra eru til- lögur Verktakasambandsins reifað- ar. Verktakasambandið viU að sett verði á laggirnar sérstök stofnun, innkaupastofnun varnarUðsfram- kvæmda, sem hefði umsjón með út- boði og framkvæmd verktakavinnu fyrir varnarhðið. Efþessi hugmynd yrði að veruleika myndi hún koUvarpa því fyrirkomu- lagi sem nú er á verktakastarfsemi á KeflavíkurflugvelU. Eftirlit með hemaðarframkvæmdum myndi að miklu leyti færast frá utanríkisráöu- neytinu til innkaupastofnunar vam- arliðsframkvæmda. Það eitt er lík- lega stærri biti en nokkur íslenskur stjómmálaflokkur treysti sér fyUi- lega tU að gleypa. Litlar breytingar og hægar Aðalverktakar em og verða póh- tískt hitamál. Stjórnmálaflokkar veigra sér við að taka eindregna af- stöðu til verktakastarfsemi á Kefla- víkurflugvelU. Líkur eru á að breyt- ingar verði Utlar og hægar á þessum þætti samskipta íslendinga og bandaríska hersins. I dag mælir Dagfari Almennilegt alþýðusamband Þaö verður ekki annað sagt um Alþýðusambandið en að þetta séu vinsamleg samtök og viðmótsþýð. Nú er ríkisstjórnin búin að frysta umsamda launahækkun fyrsta september og hefur hafiö ítarlega könnun á því hvemig lækka megi launin í landinu um níu til tíu pró- sent seinna í haust. Ríkisstjómin kaUaði miðstjóm Alþýöusam- bandsins á sinn fund fyrir síðustu helgi og ráðherrarnir voru svo himinlifandi eftir þann fund að þeir ákváðu launafrystinguna strax um kvöldið. Var ekki annað að heyra af þessum fundi en mið- stjóm ASÍ hefði kokgleypt launa- frystinguna og samþykkt að ræða síðan við ríkisstjómina eftir helg- ina hvemig best væri að standa að launalækkuninni. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, hefur ekki haft tíltakanlegar áhyggjur af þessum ráðagerðum. Hann hefur aðallega tjáð sig um verðlagsmáUn og leggur á það höf- uðáherslu að verðstöðvunin miðist við fimmtánda ágúst en ekki tut- tugasta og níunda ágúst og manni finnst sjálfsagt að verða við þessum óskum mannsins, enda ekki tíl mikfis mælst miðað við þau elsku- legheit að sleppa því að minnast á launin. Ef Ásmundi er það kapps- mál að verðstöðvun miðist við miöjan ágústmánuð ætti það að vera bæði ríkisstjóm og verslunum að meinalausu enda er enginn sjá- anlegur munur á verðhækkunum fyrir fimmtánda og eftir fimmt- ánda. Ef verkalýðsbarátta Alþýðu- sambandsins snýst nú um þaö hvort verðstöðvun skuli byija hálf- um mánuði fyrr eða seinna þá er sjálfsagt mál að virða það stefnu- mál svo eitthvað sé eftir fyrir ASÍ að státa sig af. Stöku lapnamenn hafa verið að ergja sig út af þessari afstöðu Al- þýðusambandsins, segja að verka- lýðshreyfingin verði að standa vörð um umsamin laun og að verkalýðsforystan geti aldrei léð máls á því að laun lækki. En þetta eru hjáróma raddir og tilheyra for- tíðinni. Bjargráðanefnd ríkis- stjórnarinnar, ríkisstjórnin sjálf og svo auðvitað stjórnarílokkarnir em þeirrar skoðunar að laun séu alltof há í landinu. Þau þarf aö lækka með niðurfærslu. Þingflokki sjálfstæðismanna brá lítið eitt í brún þegar niðurfærsla launa kom inn á borðið hjá flokknum og þing- mennirnir ákváðu að bera launa- lækkunina undir Alþýðusamband- ið. Það ber vott um nýtt hugarfar og breyttar baráttuaðferðir hjá ASÍ að miðstjórn sambandsins tók vin- samlega í niðurfærsluhugmynd- irnar og samþykkti að ræða málið áfram. Miðstjórnin hefur skilning á því aö með breyttum tímum koma breytt viðhorf í verkalýðsbarát- tunni. Nú er ekki lengur slegist um það að fá hækkuð laun heldur um hitt hvemig best verði staðið að lækk- un launa. Þetta viðfangsefni er nú rætt af miklum móði í stjórnarráð- inu og miðstjórn ASÍ hefur ein- dregið mælst til þess að fá að taka þátt í þeim viðræðum. Þetta stafar- auðvitað.af því að bæði stjórn- málaflokkum og verkalýðsforingj- um er ljóst að kjaraskerðing er óhjákvæmileg og tímaskekkja aö heimta bætt kjör undir slíkum kringumstæðum. Almenningur á íslandi hefur það of gott, laun eru allt of há, einka- neysla of mikil og launþegar hafa ekki efni á að fá alla þá peninga sem verið er að borga þeim. Um þetta eru allir málsmetandi menn sam- mála og miðstjórn Alþýðusam- bandsins vill líka láta líta á sig sem málsmetandi menn og getur ekki verið þekkt fyrir annað en að taka ábyrga afstöðu til kjaraskeröingar- innar. Það er launþegum fyrir bestu að launalækkunin komi sem fyrst, höggið verði nógu fast, sem verkafólkið fái í skallann, til að það skilji í eitt skipti fyrir öll að lífskjör- in verða að versna til að þjóöin nái sér á strik. Það er slæmt fyrir þjóðina ef fólk- ið hefur það of gott og það er einn- ig slæmt fyrir verkalýðshreyfing- una ef launþegar hafa það of gott. Hin góðu kjör hafa leitt til þess að Alþýðusambandið getur ekki leng- ur barist fyrir bættum kjörum og verður þess vegna aö berjast fyrir versnandi kjörum til að hægt sé aö berjast seinna fyrir bættum kjör- um. Þetta skilja allir, einnig mið- stjórn Alþýðusambandsins. Þess vegna er hún svona almennileg. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.