Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Blaðsíða 11
11
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
Útlönd
Filarnir í Afríku eru nú í útrýmingarhættu vegna ágangs veiðiþjófa.
Hætta á útiýmingu
Landadeilur Dana og Kanadamanna
Þjóögarðsverðir í Kenýa berjast nú
hatrammri baráttu gegn ágangi
veiðiþjófa sem drepa fíla í tugatali
vegna beinanna. Nú er svo komið að
dýrin eru í útrýmingarhættu og telja
sérfróðir menn að helmingur allra
fíla í Austur- Afríku verði dauðir
innan sex ára.
Verð á fílabeini er gífurlega hátt í
dag. Fimm kíló eru seld á eitt þúsund
dollara miðað við 50 dollara árið 1971.
Samkvæmt upplýsingum ferða-
mannaráðs Kenýa hafa fílabeins-
þjófar drepið 92 fíla síðasthðna íjóra
mánuði. Þar af voru 64 drepnir í
Tsavo þjóðgarðinum þar sem fjöldi
þeirra er mestur.
Richard Leakey, formaður dýra-
vemdunarsamtaka Kenýa, hefur
sagt að spilhng og skrifræði innan
ríkisstjómarinnar ásamt nýtísku-
lega vopnuðum veiðþjófum sé um að
kenna að fjöldaslátrun stefni öllu
dýralífi í hættu.
Fjöldi fíla í Kenýa árið 1982 var
tuttugu og tvö þúsund. Leakey telur
að nú hafi stofninn minnkað um
a.m.k. helming og það stefni í frekari
fækkun. í talningu, sem gerð var fyrr
á þessu ári, fundust aðeins 5.700 fÖar
í Tsavo þjóðgarðinum í Kenýa en þaö
er meira en helmingi minna en þjóö-
garðsverðir bjuggust við. Leakey
boðaði víðtækari talningu þegar í
stað til að komast að raunverulegum
íjölda dýranna í öhum þjóðgörðum
landsins.
Veiðiþjófar skutu th bana þrjá
þjóðgarðsverði síðasthöinn laugar-
dag í norðausturhluta Kenýa. Þjóö-
garðsverðir eru fáir og hafa ekki roð
við vel vopnuðum veiðiþjófum.
Stjómvöld hafa gripið til sinna ráða
og em verðir í þjóðgörðum Kenýa
nú þjálfaðir í notkun nútímavopna
th að reyna að hefta framgang veiði-
þjófanna.
Tuttugu og sjö opinberum starfs-
mönnum hjá ferðamálaráði Kenýa
var sagt upp störfum í janúar sökum
ásakana um spihingu og sölu á fíla-
beini. En þrátt fyrir þessar aðgerðir
er hætta á að stjómvöld hafi gripið
í taumana of seint.
Reuter
Sumarliði ísleifsson, DV, Árósum:
Danir eiga í deilum við fleiri en
Norðmenn og íslendinga um yfir-
ráðasvæði. Bæði Danir og Kanada-
menn gera kröfu um yfirráð yfir
Hans-eyju sem er norðan við Thule
á Norður-Grænlandi.
Hingað til hefur stríðið um Hans-
eyju tekið á sig þá mynd að báðar
þjóðir hafa sent leiðangra th eyjar-
innar til þess að ítreka eignarrétt
sinn á henni. Aö sögn danska blaðs-
ins Information gerði fyrrum Græn-
landsmálaráöherra, Tom Höyem, sér
ferð til eyjarinnar árið 1984, reisti þar
danska fánann og skhdi eftir flösku
af góðu koníaki th sannindamerkis
um að hann hefði verið á eynni. Jafn-
framt var Kanadamönnum ritað bréf
sem var skhið eftir á eynni þar sem
sagði að þeim væri velkomið að koma
th hinnar dönsku eyjar.
Sögunni fylgdi reyndar aö koníaks-
flaskan hefði ekki legið lengi niðui»
grafin. Hún hafi verið grafin upp um
leið og ráðherrann var úr augsýn og
innihaldið notað th þess að slökkva
eðlhegan danskan þorsta. Var það
gert að sögn Information með þeirri
röksemd að það væri synd að láta
gott koníak eyðileggjast í Pólarkuld-
Nú fjórum árum síðar var aftur
danskur leiöangur á Hans-eyju. Við
komuna þangað var leiðangurs-
mönnum ljóst að Kanadamenn höföu
fært sig upp á skaftið. Þeir höfðu
komið upp htlum kofa þar sem unnt
var að sofa og elda sér mat. Önnur
merki voru þó ekki um nágrannann
í vestri.
Dönsku leiðangursmennimir sáu
að brýn nauðsyn var á að svara fyrir
sig. Enn á ný var grafin niður flaska,
að þessu sinni ekki koníak heldur
Gammel-dansk. Og danski fáninn
var dreginn að húni á ný. í kanadíska
kofanum var skihn eftir orðsending:
„Við vorum hér í dag og reistum fán-
ann okkar á eyjunni okkar.“
Þetta friösamlega stríð hefur leitt
th þess að skipuð hefur verið dönsk-
kanadísk nefnd til þess aö reyna að
leysa málið. Eru umræður nefndar-
innar hafnar og gert ráð fyrir að þær
haldi áfram á næsta ári.
anum.
Danir og Kanadamenn deila nú um yfirráðarétt yfir Hans-eyju sem er norð-
ur af Thule á Grænlandi.
Framköllun
imiimmiiiinillllllillll
ILJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF
Laugavesi 178 - Reykjavik - Simi 685811
nmmmmmnnmnirn
Dulinn hæfileiki
mun blómstra
Sælir eru
hljómglaðir
ef hljóðfæri