Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
Spumingin
Hvað finnst þér um sölu
Reykjavíkurborgar
á hiutabréfum sínum
í Granda hf.?
Kristín Magnúsdóttir: Nú veit ég
ekki. Ég er ekki frá Reykjavík, en
mér fmnst kvótinn hafa sitt aö segja
og Reykvíkingar eiga aö hafa eitt-
hvaö af þjóðarframleiðslunni.
Hróbjartur Lúthersson: Ég var alltaf
á móti því aö bærinn ætti Granda.
Það á að vera einkafyrirtæki. En
kannski var þetta ekki nógu há upp-
hæö, þó að þeir sem best þekkja til
segi annaö.
Eyþór Benediktsson: Mér fmnst rétt
aö selja Granda vegna þess aö þaö
verður lægð í fiskveiöunum og verö
lækkar erlendis.
Guðný Kristinsdóttir: Ég hef eigin-
lega ekkert hugsað um þetta. Er ekki
samt ágætt aö selja Granda?
Steinar Erlendsson: Mér finnst þetta
vel eiga rétt á sér. Ég held aö verðið
sé ágætt vegna þess aö fyrirtækið er
mjög skuldugt.
Gunnar Jónasson: Mér er alveg
sama. Ég hef engan áhuga á þessu.
Lesendur
DV
Landbúnaðurinn
er bölvaldurinn
Skattpíndur neytandi skrifar:
Undanfama daga hefur mikið
verið rætt um efnahagsvanda okk-
ar íslendinga og þær leiðir sem við
sjáum upp úr feninu. Blessaðir
stjórnmálamennirnir eru loksins
komnir á þá skoðun að ekki þýði
lengur að rúlla boltanum á undan
sér, fella gengið, líta undan og von-
ast svo eftir kraftaverki. Þetta
hefðu nú margir getað bent lands-
feðrunum á fyrir aUmörgum árum.
En batnandi mönnum er best að
lifa og ber okkur að gleðjast yfir
því aö kjörnu leiðtogarnir okkar
skuli nú loks hafa komið auga á
það sem lengi hefur blasað við
hveiju mannsbarni.
Fjármálaráðherrann og aðrir
ráðherrar tala nú um að skera
verði á ríkisútgjöld og reka ríkis-
búskapinn hallalaust á næsta ári.
Meðal annars á að fækka ríkis-
starfsmönnum um eitt þúsund og
er þaö vel, og þaö þótt fyrr heföi
verið og í meira mæli. Aðhald er
þaö sem koma skal. Gott og vel.
Mér er hins vegar fyrirmunað að
skilja hvernig koma á lagi á rekstur
ríkissjóðs, ef menn humma alltaf
ff am af sér stærsta efnahagsvanda-
mál íslensku þjóðarinnar. Hér á ég
aö sjálfsögðu við landbúnaðarvit-
leysuna sem allir stjórnmálaflokk-
ar virðast hafa lagt blessun sína
yfir. Hve lengi á að skattpina ís-
lensku þjóðina til að halda uppi
botnlausum taprekstri í landbún-
aði á þessu landi sem alls ekki hent-
ar til landbúnaðar? Það er tími til
kominn að gefa íslenskum neyt-
endum kost á að kaupa ódýra og
aíbragðsgóða landbúnaðarfram-
leiðslu frá nágrannalöndum okkar.
Við getum ekki rekið þjóöfélagið á
óskhyggjunni einni saman til
lengdar. Ef við afnemum niður-
greiðslur á landbúnaðarafurðum
og gefum innflutningfrjálsanþýðir
það að við rekum ríkissjóð ekki
aðeins hallalausan á næsta ári
heldur mun hann skila hagnaði.
Einnig munu kjör íslenskra neyt-
enda batna til muna því að innflutt-
ar landbúnaðarafuröir veröa mikl-
um mun ódýrari en niðurgreidd
íslensk framleiðsla.
Reiður bifreiðareigandi skrifar:
Það er gleðilegt til þess að vita að
hækkunin gífurlega, sem varð á ið-
gjöldum bifreiðatrygginga um síð-
ustu áramót, skuli hafa bætt hag
tryggingafélaga svo mikið sem raun
ber vitni. í þaö minnsta virðist Sjóvá
ekki á flæöiskeri statt.
Það kom mér og fleirum mjög á
óvart þegar tilkynnt var í síðustu
viku að' Sjóvá hefði ásamt þremur
öðrum fyrirtækjum gert tilboð í að
kaupa hlut Reykjavíkurborgar í
Granda hf. fyrir hálfan milljarö.
Sjóvá hefur, eins og önnur trygginga-
félög, veriö sívælandi um bágborinn
hag og fengið hækkanir á iðgjöldum
langt umfram verðbólgu á undan-
förnum árum af þessum sökum. Nú
ber svo við að fyrirtækið stendur svo
Reiðum bifreiðareiganda finnst gleðilegt að Sjóvá skuli svo vel statt að það
geti keypt fiskvinnslufyrirtæki sem rekið er með tapi.
vel að það veit ekkert hvað það á að
gera viö tugi eða jafnvel hundruð
milljóna. Til að gera eitthvað þá
kaupa þeir fiskvinnslufyrirtæki sem
er rekið með tapi og kalla það fiár-
festingu.
í mínum huga er engin spurning
um það að fyrirtæki, sem hefur efni
á að fara svona með peninga, er vel
statt og þarf ekki á hækkun iðgjalda
að halda, og þykir mér sérlega
ánægjulegt aö sjá fVam á það að ekki
skuli þurfa að hækka iðgjöld hjá
tryggingafélögum á næstunni.
Ef farið verður fram á hækkun á
iðgjöldunum þykir mér eðlilegt að
gerð verði rannsókn á bókhaldi og
rekstri tryggingafélaganna því að þá
er greinilega eitthvað athugavert á
þeim vígstöðvum.
SAS til fyrirmyndar
Víðir hringdi:
Mig langar til að vekja athygli á
lélegrí þjónustu Flugleiða. Ég þarf
að ferðast um það bil fiórum sinn-
um á ári til Kaupmannahafhar. í
lok júh flaug ég frá Kaupmanna-
höfh til Keflavíkur með Flugleiö-
um. Með mér var dóttir mín, fiög-
urra og hálfs árs. Fyrir einhvern
misskiining var ég meö miða á Saga
Class, en dóttir mín ekki. Ekki
fékkst leyfi til aö við sætum bæði
á Saga Class og vorum viö sett aft-
ast, í reykingar, sem við ekki vild-
um.
Nú þarf ég að senda dóttur mína
til Danmerkur og hjá Flugleiðum
fæ ég þau svör að vegna þess að
hún er ekki orðin fimm ára þurfi
einhver fullorðinn að ferðast með
henni. Öh þjónusta Flugleiða í
þessu máli var slök og óliðleg og
finnst mér félagiö hafa versnað á
undanförnum árum.
I þessum vandræðum mínum
sneri ég mér th SAS. Þar kvað við
annan tón og vildu þeir allt fyrir
mig gera. Þeir höfðu uppi á farþega
sem getur haft auga meö dóttur
minni á leiöinni svo að ég þarf ekki
að fara sjálfur. Ég þarf ekki aö taka
það fram að þetta mun ég hafa í
huga næst þegar ég þarf að fljúga
til Kaupmannahafnar.
Lítilmannleg
aðför að mink
J.P. á Sauðárkróki hringdi:
Ég sá í sjónvarpsfréttum í síöustu
viku fiahað um minkadráp í Reykja-
vík, inni í íbúðabyggö, að ég held, á
svæði þar sem ætla mátti að börn
væru að leik. Það var haft viðtal viö
veiðimennina og veiðivopnið sýnt,
htil blóðug steinvala. Bráðin var líka
mynduð, htih minkræfill, sem virtist
vera ungi. Og ég sem haföi haft
áhyggjur af því aö í Reykjavík byggju
menn sem ekki kynnu að bregðast
rétt við á hættustund. Þessi frétta-
flutningur minnti mig nefnilega
óneitanlega mjög mikið á það þegar
ísbjörninn var drepinn hér norður í
Skagafirði í vetur. Hvers vegna í
ósköpunum slepptu mennirnir ekki
litla greyinu einhvers staðar, eða
fóru með hann til mömmu sinnar,
sem átti jú greni þarna rétt hjá.
Þetta er líka mál fyrir dýravini.
Þettá mál ætti að koma þeim við
vegna þess að ef einhvers staðar hef-
ur verið notaö undirmálsvopn þá er
það þarna, í þetta skipti. Svona
óargadýr á ekki að drepa með lítilli
steinvölu heldur með stórum og
öflugum riffii, af manni sem kann til
verka. Annað er ekki samboðið virð-
ingu þess.
Misnotkun gang-
brautarljósa
Reiður ökumaður hringdi:
Ég hef orðiö mjög var við það aö
krakkar misnoti gángbrautarljós
gegndarlaust. Vegna atvinnu minnar
eyði ég megninu af vinnudeginum
undir stýri, og það er mjög hvimleitt
að lenda í því aftur og aftur á hverj-
um degi að þurfa að bíða á rauðu ljósi
við gangbrautir þegar enginn gang-
andi vegfarandi er að fara yfir. Oftar
en ekki sér maður krakka hlaupa í
burtu frá ljósunum. Ég vil biðja for-
eldra um að brýna þaö fyrir börnum
sínum að misnota ekki gangbrautar-
ljós. Fyrr eða síöar sýöur upp úr hjá
ökumönnum og þeir hætta að virða
þessi ljós, og hver er þá tilgangurinn
með þeim?
Umferðaryfirvöld mættu taka það
til athugunar að setja göng eða brýr
fyrir gangandi vegfarendur á mikl-
um umferðaræðum. Þetta er víða
gert erlendis, og það segir sig sjálft
að því kerfi fylgir miklu meira ör-
yggi en næst með gangbrautarljós-
unum.
Lesanda finnst mikið um að krakkar
misnoti umferðarljós við gangbraut-
ir.
Hringið í síma
27022
milli kl. 13 og 15,
eða skrifið.