Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. 35 Afmæli Snæbjöm Pétursson Snæbjörn Pétnrsson, Reynihlíð í Mývatnssveit, verður sextugur í dag. Snæbjöm er fæddur í Reynihlíð í Mývatnssveit og ólst þar upp. Hann varð garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi 1948, var farkennari veturna 1951-1965 og vann við móttöku gesta í Hótel Reynihlíð á sumrin. Snæ- björn tók þátt í stofnun Léttsteyp- unnar hf. í Mývatnssveit upp úr 1963 og var fyrsti stj órnarformaður hennar. Hann tók mikinn þátt í upp- byggingu Kísiliðjunnar hf., fyrst við rannsóknir á námum með Baldri Líndal 1952-1965 og síðan við bygg- ingu verksmiðjunnar. Snæbjörn hefur verið gæðamatsstjóri Kísiliðj- unnar frá því að framleiðslan hófst 1967 og verið stjómarformaður Hót- el Reynihlíðar frá 1972. Hann hefur ætíð verið mikill áhugamaður um útivist og eyöir stærstum hluta frí- tíma síns til fjallajafnt sumar sem vetur. Snæbjörn kvæntist 28. apríl 1951, Guðnýju Halldórsdóttur, f. 2. mars 1930, starfsmanni í Hótel Reynihlíð. Foreldrar hennar eru Halldór Óla- son, b. á Gunnarsstöðum í Þistil- firði, og kona hans, Þuríður Árna- dóttir. Börn Snæbjamar og Guðnýj- ar eru: Þuríður, f. 10. ágúst 1952, gift Agli Steingrímssyni, verkstjóra í Kísiliðjunni, og eiga þau þrjú börn; Þórunn, f. 19. febrúar 1953, póstfull- trúi í Rvík, og á hún eina dóttur; Pétur, f. 29. desember 1959, hótel- rekstrarfræðingur, hótelstjóri á Húsavík, kvæntur Maríu Rúriks- dóttur viðskiptafræðingi og eiga þau eina dóttur; Halldór, f. 19. mars 1966, starfsmaður í Hótel Reynihlíð, og Bryndis, f. 25. janúar 1968, nemi. Systkini Snæbjarnar eru: Gísli, f. 10. maí 1922, d. 25. apríl 1950, gisti- hússtjóri í Reynihlíð; Ármann, f. 24. maí 1924, b. í Reynihlíð; Hólm- fríður, f. 17. júlí 1926, gift Sverri Tryggvasyni, b. í Víðihlíð við Reykjahlíð, og Helga Valborg, f. 26. júni 1936, starfsmannastjóri í Hótel Reynihlíð, gift Arnþór Björnssyni hótelstjóra. Foreldrar Snæbjarnar voru Pétur Jónsson, b. og vegaverkstjóri í Reynihlíð, og kona hans, Þuríður Gísladóttir, hótelstýra í Reynihlíð. Pétur er sonur Jóns, b. í Reykjahlíð, Einarssonar, b. í Reykjahlíð, Frið- rikssonar, b. í Hrappsstaðaseli í Bárðardal, Þorgrímssonar, b. í Hraunkoti, Marteinssonar. Móðir Friðriks var Vigdís Hallgrímsdóttir, b. íHraunkoti, Helgasonar, ætt- fóður Hraunkotsættarinnar. Móðir Jóns var Guðrún Jónsdóttir, b. í Baldursheimi, Illugasonar, b. í Bald- ursheimi, Hallgrímssonar, bróður Vigdísar. Móðir Péturs var Hólm- fríður Jóhannesdóttir, b. á Krákár- bakka við Mývatn, Jóhannessonar, b. á Geiteyjarströnd, Þorsteinsson- ar. Móðir Jóhannesar var Þóra Jónsdóttir, b. í Reykjáhlíð, Einars- sonar og konu hans, Bjargar Jóns- dóttur, prests á Völlum í Svarfað- ardal, Halldórssonar. Þuríður er dóttir Gísla, b. í Prest- hvammi í Aðaldal, Sigurbjörnsson- ar, b. á Hömrum í Reykjadal, Hjálm- arssonar, b. á Brettingsstöðum, Kristjánssonar, b. á íshóli, Jónsson- ar, b. á Mýri, Halldórssonar, ætt- Snæbjörn Pétursson. föður Mýrarættarinnar. Móðir Þur- íðar var Helga, systir Sigtryggs, afa IngaTryggvasonar, fyrrv. formanns Stéttarsambands bænda. Helga var dóttir Helga, b. á Hallbjarnarstöðum í Reykjadal, Jónssonar. Móöir Helga var Herborg Helgadóttir, b. á Skútu- stöðum við Mývatn, Ásmundssonar, ættfóður Skútustaðaættarinnar. Guðmunda Haraldsdóttir Guðmunda Haraldsdóttir, hús- freyja á Sandhólum í Bitrufirði, er sextugídag Guðmunda fæddist í Reykjavík og ólstþarupp. Eiginmaður Guðmundu er Kjart- an Ólafsson, b. á Sandhólum, f. 27.1. 1931, sonur Ólafs Elíasar Einarsson- ar, b. á Þórustöðum í Bitrufirði, en hann lést 15.7.1973, og Friðmeyjar Guðmundsdóttur sem lést 23.2.1969. Guðmunda og Kjartan hafa búið á Sandhólum allan sinn búskap en þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: Óla Friðmey sem býr á Þórustöðum en sambýlismaður hennar er Gunn- ar Sverrisson og á hún tvö börn; Ólafur Haraldur, en hann lést af slysfórum tuttugu og fimm ára; Ein- ar Ingvar býr á Sandhólum, ókvæntur, og Gísli Kristján býr í Reykjavík, ókvæntur. Guðmunda átti þijú systkini en á nú einn bróður á lífi. Systkini henn- ar: Hafdís, f. 16.2.1926, d. 13.121967, en hún var gift Magnúsi Tómassyni frá Helludal í Biskupstungum og eru börn þeirra Ólaíia, ðsk og Lára; Samúel, f. 12.4.1932, d, í apríl 1968, en hann var kvæntur Kristínu Sig- ríði Guðjónsdóttur frá Fremstuhús- um í Dýrafirði og eignuðust þau tíu börn, Harald Guðjón, Guðrúnu Ól- afíu, Borgnýju, ArnlaugKristján, Dreng Helga, Jónínu Ingibjörgu, Gísla Sigurjón, Samúel er dó ungur, bam er lést nýfætt og Gauk sem varð kjörbarn Guðrúnar, systur Kristínar, en auk þess átti Samúel Kristínu Björk u'tan hjónabands; Harald, f. 8.12.1933, kvæntur Elísa- betu Ólafsdóttur frá Þórustöðum í Bitrufirði, systur Kjartans, en þau eiga þijú börn, Harald, Hafdísi og BrynjuÁstu. Systir Kjartans auk Elísabetar er Ásta Kristjana sem gift var Brynj- ólfi Kristjánssyni frá Hólslandi á Snæfellsnesi en hann lést 1960. Börn þeirra em Ólafur Friðmar og Dan- fríður Kristín. Sambýlismaður Ástu Kristjönu varð síðar J.ens Guð- brandsson frá Höskuldsstöðum í Laxárdal en hann lést 15.4.1988, en börn þeirra eru Brynjólfur Bjarki og Ingibjörg. Guðmunda Haraldsdóttir. Foreldrar Guðmundu voru Har- aldur Guðjónsson stýrimaöur, f. í Reykjavík 24.4.1904, en hann fórst með togaranum Jóni Ólafssyni 23.10.1942, og kona hans, Ólafía Samúelsdóttir húsmóðir, f. í Reykja- vík 20.10.1904, d. 1967. Foreldrar Haraldar voru Guðjón Knútsson skipstjóri, f. 26.10.1898r og kona hans, Jónína Jónsdóttir, f. 23.10.1879. Guðmunda verður ekki heima á afmælisdaginn. Sigríður Jóhannesdóttir Sigríður Jóhannesdóttir húsmóð- ir, Álftröð 5, Kópavogi, er sjötug í dag. Sigríður fæddist að Lokinhömrum í Arnarfirði en ólst upp að Bessa- stöðum í Dýrafirði og á Flateyri. Hún var búsett á ísafirði frá 1942-63 er hún flutti í Kópavoginn þar sem hún hefur átt heima síðan. Sigríður hefur ætíð verið heimavinnandi húsmóðir á barnmörgu heimili. Maður Sigríðar er Jón H. Guö- mundsson, fyrrv. skólastjóri á ísafirði og í Kópavogi, f. 3.12.1913, sonur Guðmundar Einarssonar, b. á Brekku á Ingjaldssandi, og konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur. Böm Sigríðar og Jóns eru Sverrir, kvæntur Rannveigu Guðmunds- dóttur; Jóhannes, kvæntur Sigrúnu Sigurðardóttur; Jóna Elísabet, gift Úrik Arthúrssyni; Önundur, kvænt- ur Gróu Stefánsdóttur; Guðrún Helga, gift Baldvini Erlingssyni; Erlingur, kvæntur Sigrúnu Sigurð- ardóttur; Halldóra, gift Edvard Sverrissyni, og Kristín Sigríður, gift Jóni Sigurði Ólafssyni. Barnabörn Sigríðar eru nú orðin átján og langömmubörnin orðin þrjú. Foreldrar Sigríðar: Jóhannes Andrésson, sjómaður á Flateyri, og kona hans, Jóna Ágústa Sigurðar- dóttir. Sigríður tekur á móti gestum á heimili sínu, Álftröð 5 í Kópavogi, Sigríöur Jóhannesdóttir. laugardaginn 3.9. milli klukkan 15 og 18. Friðný Sigurbjorg Sigurjónsdóttir Friðný Sigurbjörg Sigurjóns- dóttir, Fjöllum 2 í Kelduhverfi, er níræð í dag. Friðný Sigurbjörg er fædd á Grashóli á Melrakkasléttu en fluttist að Ærlæk í Öxarfirði á fyrsta ári. Þá missti hún föður sinn og var síðan á fleiri bæjum í Öxar- firði. Friðný giftist Ólaii Jónssyni, f. 21. nóvember 1881, d. 19. maí 1953, b. á Fjöllum. Foreldrar Ólafs voru Jón Jónsson, b. á Fjöllum, og kona hans, Anna Sigurðardóttir. Börn Friðnýjar og Ólafs vom sex og eru fimm á lífi: Héðinn, f. 14. janúar 1918, rafvirki á Fjöllum, kvæntur Sjöfn Jóhannesdóttur; Ragnheiður, f. 23. ágúst 1920, gift Þorgeiri Þórarins- syni, b. á Grásíðu í Kelduhverfi; Jón, f. 1. janúar 1925, b. á Fjöllum, kvæntur Jófríði Vigfúsdóttur; Jó- hanna, f. 4. febrúar 1927, gift Sigurði Jónssyni, b. í Garði í Kelduhverfi, og Anna Guðný, f. 5. desember 1930, gift Friðrik Jónssyni, verslunar- manniáKópaskeri. Foreldrar Friðnýjar vo'ru Sigurjón Pétursson, b. á Grashóli í Keldu- hverfl, og kona hans, Rósa Jóns- dóttir. Sigurjón var sonur Péturs, b. á Hvappi, Guttormssonar. Rósa var dóttir Jóns, b. í Árholti í Öxarfirði, Jónssonar og konu hans; Jóhönnu Jónsdóttur, b. á Hafursstöðum í Öxarfirði, Brynjólfssonar. Friðný býr nú hjá Héðni syni sínum og tengdadóttur á Fjöllum 2. Friðný tekur á móti gestum í fé- lagsheimilinu Skúlagarði laugar- daginn 3. september. Friðný Sigurbjörg Sigurjónsdóttir. Til hamingju með daginn Emmy Magda Hansson, Hjallavegi 48, Reykjavík. Guðlaugur Magnússon, , Dalbraut 27, Reykjavík. 50 ara 90 ára Guðrún Guðmundsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 85 ára Friðlaug Guðmundsdóttir, Mánagötu 5, ísafirði. Guðrún Sigurjónsdóttir, Karlagötu 9, Reykjavik, 80 ára Ásgeir Samúelsson Brekkubraut 23, Akranesi. Ósk Jóhannesdóttir, Garðabraut 18, Akranesi. Þór Rúnar Þorsteinsson, Nýbýlavegi 26, Kópavogi. Kolbrún Ingjaldsdóttir, Húnabraut 11, Blönduósi. Anna Margrét Þóroddsdóttir, Bekansstöðum, Skilmannahreppi. 40 ára Þorbjörg Líkafrónsdóttir, Sundstræti 21, ísafirði. 70 ára Guðfinna Kristjánsdóttir, Jakobshúsi, Svalbarðsstrandar- hreppi. Ástvaldur Tómasson, Hólavegi 5, Sauðárkróki. 60 ára Þorvarður Guðmundsson, Vesturbergi 86, Reykjavík. Ólafrn G. Jóhannsson, Brekkulandi 1, Mosfellsbæ. Guðrún Friðriksdóttir, Strandgötu 15A, Eskifirði. Valdemar Bragason, Grashaga 6, Selfossi. Páll Ólafsson, Orrahólum 7, Reykjavík. Ingibjörg Jónsdóttir, Ólafsvegi 17, Ólafsfirði. Egill Hjartar, Ásbúð 54, Garðabæ. PáU Dagbjartsson, Skógarstíg I, Seiluhreppi. Hallur Leopoldsson, Hringbraut 119, Reykjavík. Leiðréttingar í grein um Björgu ívarsdóttur komu fyrir nokkrar rangfærslur. Valgarður Valgarðsson er fæddur 1. febrúar 1960. Yngsta systir Bjarg- ar er Svala ívarsdóttir og Leifur Ivarsson á einn kjörson. Þess skal getið aö Sigurjóna Jak- obsdóttir, langamma Magnúsar Gauta Gautasonar, verður níutíu og sjö ára 16. september. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og að- standendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frænd- garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkurmyndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.