Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Síða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
Andlát
Jóhanna María Jóhannsdóttir,
Miklubraut 88, lést 29. ágúst.
Guðmundur Steindórsson frá Stóru
Ávík andaðist í sjúkrahúsinu á
Hólmavík 29. ágúst.
Glúmur Hólmgeirsson, Vallarkoti, er
látinn.
Guðjón E. Guðmundsson lést á
Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn
29. ágúst.
Jona Olsen, Jagtvej 51, Kaupmanna-
höfn, andaðist 26. ágúst.
Sigurbjörn V. Þorsteinsson húsa-
smiöur, Skarðshlíð 25a, Akureyri,
lést 29. ágúst sl.
Tapað fundið
Veski tapaðist
Rautt veski úr tauefni tapaðist á Lækjar-
torgi mánudaginn 22. ágúst sl. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 673137.
Jarðarfarir
Marjorie Ann Sæmundsson, Arnesi,
Gnúpverjahreppi, andaðist í Land-
spítalanum sunnudaginn 21. ágúst
sl. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Ástríður Guðrún Beck, Flyðru-
granda 10, sem andaðist 24. ágúst,
verður jarðsungin fimmtudaginn 1.
september kl. 10.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Guðlaug Margrét Þorsteinsdóttir,
Goðabyggð 1, Akureyri, lést í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Ákureyri mánu-
daginn 29. ágúst. Jarðarförin fer
fram frá Akureyrarkirkju mánudag-
inn 5. september kl. 13.30.
Sigutjón Guðjónsson frá Melkoti,
Akranesi, lést í Dvalarheimilinu
Höfða 22. ágúst. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey aö ósk hins
látna.
Innilegar þakkirtil allra sem glöddu
mig á afmæli mínu.
Guð blessi ykkuröll.
Herborg Ólafsdóttir
Öllum þeim sem sýndu mér hlýhug með
kveðjum og gjöfum á sjötugsafmæli mínu
hinn 20. ágústsl. sendi ég hinarbestu kveðj-
ur.
Lifið heil.
Hallur Guðmundsson
Kirkjustíg 4
Eskifirði
Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, á neðangreindum tíma: Merkigerði 10, þingl. eigandi Jens I. Magnússon, föstudaginn 2. september ’88 kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Sigurður G. Guðjónsson hdl., Guðjón Ármann Jónsson hdl., Magnús Norðdalil hdl. og Veðdeild Lands- banka íslands.
Merkigerði 6, neðri hæð, þingl. eig- andi Rósa M. Salómonsdóttir, föstu- dag 2. september ’88 kl. 14.30. Upp- boðsbeiðendur eru Tryggingastoihun ríkisins og Veðdeild Landsbanka ís- lands. Presthúsabraut 24, talinn eigandi Jó- hann Haraldsson, föstudaginn 2. sept- ember ’88 kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Verslunarbanki Islands hf., Veð- deild Landsbanka íslands, Sigríður Jósefsdóttir hdl., Baldur Guðlaugsson hrl., Andri Ámason hdl. og Lands- banki íslands.
Vesturgata 115, þingl. eigandi Jóhann Jensson, föstudaginn 2. september ’88 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Sigríður Thorlacius hdl.
Garðalóð 33, hesthús, talinn eigandi Kristján Leósson, föstudaginn 2. sept- ember ’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em Landsbanki íslands, Sigríður Thorlacius hdl, Landsbanki íslands, Othar Öm Petersen hrl. og Jón Sveinsson hdl.
Jörundarholt 103, þingl. eigandi Sig- urður J. Halldórsson, föstudaginn 2. september ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeið- andi er Landsbanki íslands.
Mánabraut 11, neðri hæð, talinn eig- andi Guðrún Sumarliðadóttir, föstu- daginn 2. september ’88 kl. 13.15. Upp- boðsbeiðendur eru Útvegsbanki Is- lands, Jón Sveinsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Stiliholt 18, þingl. eigandi Akraprjón h£, föstudaginn 2. september ’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em Iðnþró- unarsjóður, Iðnlánasjóður, inn- heimtumaður ríkissjóðs og Ákranes- kaupstaður.
BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI
Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57 á Akranesi, á neðangreindum tíma: Jörundarholt 230, þingl. eigandi Guð- brandur Þorvaldsson, föstudaginn 2. september ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeið- endur em Steingrímur Eiríksson hdl, Landsbanki íslands, Útvegsbanki ís- lands, Jón Sveinsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Vallabraut 11, 3.h.t.v., þingl. eigandi Grétar Sigurðsson, föstudaginn 2. september ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeið- andi er Tryggingastofiiun ríkisins. Vallholt 13, kjallari, þingl. eigandi Guðni Jónsson, föstudaginn 2. sept- ember ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Akraneskaupstaður, Guðmundur Markússon hrl., Veðdeild Lands- banka Islands, innheimtumaður ríkis- sjóðs, Akraneskaupstaður og Veð- deild Landsbanka Islands. Vesturgata 78brþingl. eigandi Hjörtur Júlíusson, föstudaginn 2. september ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Ami Einarsson hdl., Jón Sveinsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og Landsbanki íslands.
Akurgerði 4 (kjallari), talinn eigandi Hjörtur Líndal Guðnason, föstudag- inn 2. september ’88 kl. 11.15. Upp- boðsbeiðandi er innheimtumaður rík- issjóðs.
Einigrund 9 (02,02), þingl. eigandi Þórir Axelsson, föstudaginn 2. sept> ember ’88 kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka íslands, Tryggingastofiiun ríkisins, Guðmund- ur Kristjánsson hdl., Akraneskaup- staður, Guðmundur Þórðarson hdl., Ævar Guðmundsson hdl., Veðdeild Landsbanka Islands og Lögmenn Hamraborg 12.
Heiðargerði 24 (neðri hæð), þingl. eig- andi Steinunn Eldjámsdóttir, föstu- daginn 2. september ’88 kl. 11.15. Upp- boðsbeiðendur eru Tryggingastofnun ríkisins, Jón Sveinsson hdl. og Veð- deild Landsbanka íslands.
BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI
Lilja Steingrímsdóttir frá Hörgs-
landskoti, Bugðulæk 11, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag,
miðvikudaginn 31. ágúst, kl. 13.30.
Jarðarför Hólmfríðar Björnsdóttur,
frá Nesi í Loðmundarfirði, fer fram
frá Fossvogskirkju flmmtudaginn 1.
september kl. 15.
Þorbjörg Ingimundardóttir Lausten
lést 24. ágúst sl. Hún var fædd 11.
ágúst árið 1900 á Kletti í Gufudals-
sveit, dóttir hjónanna Sigríðar Þórð-
ardóttur og Ingimundar Þórðarson-
ar. Þorbjörg fór til Reykjavíkur þegar
hún var 18 ára gömul og hóf nám í
sjúkranuddi og síðan lá leiðin til
Kaupmannahafnar til frekari náms.
í Danmörku giftist hún Peter Laust-
en en hann lést eftir skamma sam-
búð. Þau eignuðust tvo drengi. Útför
Þorbjargar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Gunnlaugur G. Björnsson Skipulags-
stjóri lést 26. ágúst sl. Hann fæddist
í Reykjavík 7. mars 1912. Foreldrar
hans voru Guðmundur Björnsson og
Margrét Magnúsdóttir. Gunnlaugur
lauk stúdentspróti frá MR 1931, nam
síðan stærðfræði við háskólann í
Berlín 1931-1934, hóf störf í Lands-
banka íslands 1935 og starfaði þar
allt til þess að hann réðst í þjónustu
Útvegsbanka íslands 1. október 1942.
Hann var lengi forstöðumaður spari-
sjóðsdeildar bankans og síðar skip-
aður forstöðumaður sjávarútvegs-
lánadeildar bankans. Hann kvæntist
Margréti Jónsdóttur en hún lést fyrir
allmörgum árum. Þau eignuðust
tvær dætur. Útför Gunnlaugs verður
Leifur Miiller lést 24. ágúst sl. Hann
fæddist í Reykjavík 3. september
1920, sonur Maríu og Lorens MiiUer.
Eftir lát föður síns tók Leifur við
verslun hans, herra- og sportfata-
verslun í Austurstræti 17, og rak
hana þar til húsið var rifið. Síðan rak
hana saumastofu og heildverslun.
Leifur stofnaði Skíðafélag Reykja-
víkur árið 1914. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Bima Sveinsdóttir. Þau
hjónin eignuðust fimm börn. Útför
Leifs verður gerð frá Fossvogskirkju
í dag kl. 13.30.
Kvikmyndir
Háskólabíó:
Áferð
og flugi
- kostuleg kvikmynd
Bandarisk 1988
Pianes, Trains & Automobiles
Leikstjóri: John Hughes
Aðalhlutverk: Steve Martin og John
Candy
Maður nokkur ætlar heim til sín,
til Chicago, til að eyða þakkar-
gjörðardeginum með fjölskyldu
sinni. Fljótlega fer óheppnin að elta
hann er hvert farartækið bregst á
fætur öðru. Hann tefst hvað eftir
annað ásamt hræðilegum ferðafé-
laga sínum.
Eftir langa hrakfallasögu kemst
hann loks heim en uppgötvar þá
að hann á erfitt með að skilja við
ferðafélagann.
í þessari makalausu mynd er lög-
mál Murphys í fullu gildi. Allt fer
úrskeiðis hjá félögunum og meira
til. í henni gerist nákvæmlega allt
sem ferðalangurinn óttast. Þægi-
legt ferðalag breytist í martröð.
Þarna hafa handritshöfundar sýnt
hreint ótrúlega útsjónarsemi í ill-
kvittni sinni.
Leikur Martin/Candy tvíeykisins
er í sérflokki. Árangurinn er fyrsta
flokks gamanmynd og tveggja tíma
hláturkast. Sérstaklega er minnis-
stætt atriði þar sem félagamir eru
á ferð í bíl. Martin reynir að sofa
en Candy hlustar á Ray Charles
með þvílíkum tilþrifum að áhorf-
endur liggja í hláturkrampa í stóln-
um.
Tvímælalaust fyndnasta myndin
í bíóhúsum borgarinnar um þessar
mundir.
-PLP
Helga Pálsdóttir Geirdal lést 22. ágúst
sl. Hún var fædd á Melum í Mela-
sveit þann 21. október 1911, dóttir
hjónanna Páls Guðmundssonar og
Sigurlaugar Ólafsdóttur. Helga gift-
ist Braga S. Geirdal en hann lést árið
1967. Þau hjónin eignuðust sex dæt-
ur. Útför Helgu verður gerð frá Akra-
neskirkju í dag kl. 14.15.
Tilkynningar
Nordisk Forum
Fimmtudaginn 1. ágúst kl. 17 ætla konur
úr Hafnarfirði og Garðabæ, sem tóku
þátt í kvennaráðstefnunni í Osló, að hitt-
ast í kaftistofunni í Hafnarborg. Takiö
með ykkur myndir og minjagripi. Frek-
ari upplýsingar hjá Hjördísi í s. 53510 og
Ásthildi í s. 651511 og 52911.
Ferðalög
Félag eldri borgara I
Reykjavík og nágrenni
fer í skemmtiferð að Gullfossi og Geysi
laugardaginn 3. september. Lagt verður
af stað frá Umferðarmiðstöð B.S.Í. kl. 10.
Leiðin liggur um Selfoss, Skeið og Hreppa
að Gullfossi síðan að Geysi og matast
þar. Heimleiðis verður keyrt um Laugar-
vatn, Gjábakkaheiði og Hveragerði.
Komið til Reykjavíkur um kl. 18. Upplýs-
ingar í s. 28812 eða 25053.
Hjónaband
I DomkirKjumu voru gefrn saman i
hjónaband 23. júlí sl. Lísa Björk Ingólfs-
dóttir og Theodór Barðason. Sr. Lárus
Halldórsson gaf brúðhjónin saman.
Heimili þeirra er að Austurströnd 4, Sel-
tjamamesi.
ffɧf||||lfj§|g|§
Rammamiðstöðin stækkuð
og endurbætt
Rammamiðstöðin, Sigtúni 10, sem er
bæði fyrsta flokks innrömmunarverk-
stæði og verslun með alls konar plaköt,
hefur nýlega stækkað og endurbætt hús-
næðið á mjög smekklegan hátt. Á efri
myndinni sést hluti verslunarinnar og á
neðri myndinni sjást eigendur, þau Sig-
urður Ingi Tómasson og Hjördís Haralds-
dóttir.