Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Side 22
22 MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. TÆKIFÆRIÐ! BANKAR Okeypis upplýsingar um hugmyndir, for- múlur og framleiðslu sem þú getur notfært þér, ef þú hefur áhuga á að reka þitt eigið fyrirtæki, með því að byrja smátt í frístundum!!! Áhuga- samir vinsamlegast hafi samband Við auglýs- ingaþjónustu DV í síma 27022. H-1234 Bolholti 6 Septembernámskeiðin voru fullsetin. Innritun hafin á öll námskeið sem hefjast 3. okt. • Litgreining - 5 í hópi. • Stutt snyrtinámskeið - 5 í hópi. • Almenn námskeið í snyrtingu, framkomu, siðvenjum, borðsiðum, göngu og mannlegum samskiptum. Ath! Þær sem eru á biðlista hafi samband sem fyrst. Innritun í símum 687580 og 687480 frá kl. 16-19. Unnur Arngrímsdóttir, sími 36141. DULUX® S FRÁ OSRAM - Ljóslifandi orku- sparnaður. - 80% lægri lýsingar- kostnaður miðað við glóperu. 5 W = 250 Im = 25 W (^\ 7 W = 400 Im = 40 W \ ) 9 W L = 600 Im = 60 W \ ( " w f = 900 Im = 75 W 'fcj' - Fimmföld ending á við venjulega peru. - Pjónusfa í öllum helstu raftækja- verslunum og kaupfélögum. Heildsölubirgðir: JOHANN QLAFSSON & CO.HF. 43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588 Fréttir Mikið fjölmenni hefur að jafnaði sótt Skaftholtsrétt í Gnúpverjahreppi. DV-myndir Flóki Kristinsson Rettað i Gnup- verjahreppi Flóki Kristmsson, DV, Gnúpveijahreppi; Fimmtudaginn 15. sept. var rétt- að í Skaftholtsrétt í Gnúpverja- hreppi. Eins og jafnan var margt um manninn í réttunum og glatt á hjalla, ekki síst þegar líða tók á daginn enda veður ágætt, stillt og úrkomulítið. Hrynjandi lífsins er með öðrum hætti í sveitinni en í þéttbýlinu. Þrátt fyrir mikla vinnu sveitafólks á sumrin fylgir hún hægum breyt- ingum árstíðanna og hvert verk er markviss áfangi að því að þúa sig undir óhjákvæmilegan vetur. At- burðir sveitalífsins eru hversdags- legir og árvissir en þó í senn nýir í hvert sinn og þar ber ef til vill hæst réttirnar af því að í þeim sjá menn árangur starfs síns og er létt í sinni eftir að hafa komið heyjum sínurn í hús í sumarlok. Eftir ágætt heyskaparsumar bjuggu fjallamenn í Gnúpverja- hreppi sig undir að smala afréttinn. Þeir sem lengst fóru til að smala fóru norður undir Arnarfell í Hofs- jökli og voru 10 daga í leitinni. Þeg- ar nær dró byggð fjölgaði leitar- mönnum en hver bær verður að leggja til smala í leitir svo að íjár- safnið komist allt til skila. Þrjú nýleg leitarmannahús eru á afrétt- inum og er liöin sú tíð er menn urðu að leggja á sig vosbúö og harð- ræði á íjallinu. Nú er svo komið aö utansveitarmönnum og borg- arbúum þykir orðið eftirsóknar- vert að komast í leitir og kynnast fjallakyrrðinni og komast færri að en vilja þegar leitum er úthlutað. Komið var með safnið til byggða á miðvikudag og það haft í nætur- högum ofarlega í sveitinni. Snemma á fimmtudagsmorgun var það svo rekið í réttirnar. Það fylgir því ætíö mikil eftir- vænting þegar von er á safninu í þyggð. Margir taka sig upp eld- snemma á réttardaginn og ríða á móti safninu eða láta aká sér til móts við þaö og fá lánaða hesta leit- armanna til þess að geta tekið þátt í rekstrinum síðasta spölinn. Þegar komið er með féð í réttina er líkast því að hátíð sé gengin í garð og í raun og sannleika er þetta ein elsta, alþýðlegasta og þjóðleg- asta hátíð hér á landi. Það yljar mörgum bóndanum um hjarta- ræturnar að sjá réttina fulla af lagðprúðu fé, nýrunnu af íjallinu. Þetta er náskylt frumstæðri gleði hirðingjans sem á allt sitt undir hjöröinni sinni og þeim verömæt- um sem hún ávinnur honum. AUir sem vettlingi geta valdið koma saman á réttardaginn til að líta þessa fógru sjón og í Skaftholtsrétt mátti sjá jafnt hina elstu og yngstu íbúa sveitarinnar. Svo á hver sveit sína tryggu velunnara sem gera sér ferö í réttirnar á hverju hausti til þess að taka þátt í gleði heima- manna. Þetta kunna að vera sum- arbústaöaeigendur, brottfluttir íbúar eða fyrrverandi kúasmalar sem enn bera taugar til sveitarinn- ar sem þeir kynntust sem þörn. Þarna koma líka aö jafnaði stjórn- málamenn, alþingismenn og fyrr- verandi og núverandi ráðherrar sem telja sér hag í aö láta sjá sig og blanda geði við sveitamennina á góðri stundu. í Skaftholtsrétt mátti m.a, sjá Árna Johnsen, sem kemur á hverju ári með gitarinn með sér, Eggert Haukdal og Guðna Ágústsson alþingismenn, Kristján Guðmundsson, þæjarstjóra í Kópa- vogi, Guðrúnu Ásmundsdóttur og Kjartan Ragnarsson leikara, séra Gylfa Jónsson og séra Baldur Kristjánsson á Höfn sem var meðal leitarmanna. Þegar líða tekur á réttirnar og þúiö er að draga verulegan hluta fjárins í dilka er siöur aö taka fram réttarpelann og fer þá mönnum aö hlýna verulega um hjartaræturn- ar. Blíöleg orð falla, menn faðmast og heita hver öðrum ævilangri vin- áttu og fóstbræöralagi og að lokum, þegar féð er allt gengið út, taka menn til við aö rifja upp gömlu góðu lögin og syngja tví- og þrí- raddaö á meðan nokkuð gutlar á pelanum. Eins og gengur verða menn misjafnlega á sig komnir en það lagast þegar heim er komið. Þegar réttum er lokið tínast menn heim á leið, hver bóndi með sinn rekstur og er þá ekki greið- fært þílum um sveitir. Heima bíður rjúkandi heit kjötsúpa og er gjarn- an þröngt setinn bekkurinn yfir réttardagssúpunni. Þá er vaninn að menn bæti svolítið á sig og sitji að spjalli eða söng fram eftir kvöldi. í ár var féð í meðallagi vænt er það kom af fjalli enda spretta ágæt í sumar og afréttinum fer fram. Fé hefur líka hægt og sígandi verið að fækka. Talið er að í ár hafl 6-7 þúsund íjár verið á fjallinu frá Gnúpverjum en hefur verið um 8 þúsund undanfarin ár. Þegar best lét fyrir allnokkrum árum voru 10 þúsund fjár á afrétti Gnúpverja. En nú eru tímar samdráttar í land- búnaði og ekki útlit fyrir aö breyt- ing verði á í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er því uggur í bændum og sveitarstjórnarmönnum þó þeir kunni aö gleöjast af hjarta á réttar- daginn. Pyttlan var að sjálfsögðu með í för.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.