Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Síða 34
54 MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988. Lífsstm 15 þúsund tonna flokkunarstöð fyrir sorp myndi skila hagnaði - hagkvæmt að brenna úrgangstimbri í Jámblendiverksmiðjunni Járnblendiverksmiðjan að Grund- artanga getur notað mest allt það timbur, sem fellur til á höfuöborgar- svæðinu, við framleiöslu sína. Til þess að það sé nothæft verður að hakka timbrið niður í tiltekna ílísa- stærð. Fjárfestingar í tækjabúnaði til þess teljast ekki miklar og sú vinnsla myndi borga sig. Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun sem Skúli Þór Ingimundar- son viðskiptafræðingur gerði um vinnslu úrgangsefna á íslandi. Skúli gerði einnig athugun á arð- semi móttöku og flokkunarstöðvar fyrir sorp í Reykjavík. Hann ílutti erindi um þessi mál á aðalfundi Landverndar árið 1987. Hagnaður miðað við 8 klst. á dag 5 daga vikunnar . Samkvæmt niðurstöðum Skúla myndi slík stöð skila hagnaði miðað við starfrækslu 8 klst. á dag, 5 daga vikunnar. Til hliðsjónar var höfð nýleg sorp- greiningarstöð í Frederikssund í Danmörku. Hún getur afkastað 15 þúsund tonnum á ári í úttekt Skúla á rekstrargrundvelli flokkunarstöðvar sem þessarar var gert ráð fyrir að hin ýmsu efni, sem flokkuð væru, yrðu seld úr landi til endurvinnslu. Mest myndi falla til af pappír í lágum gæðaflokkum. Forsendur um verö fyrir afurðirn- ar eru taldar raunhæfar því þegar könnunin var gerð var verð mjög lágt á úrgangsefnum af þessu tagi í Evrópu. Einnig fór höfundur mjög varlega í að áætla seljanlegt magn frá flokkunarstöðinni. Verð á pappírsúrgangi hefur hækkað „Ég tel að forsendur þessar séu lítt breyttar í dag,“ sagði Skúli Þór Ingi- mundarson í samtali við DV. „Verð á pappírsúrgangi hefur frekar hækk- að ef eitthvað er. Hins vegar eru gefnar þær forsend- ur að við rekstur slíkrar stöðvar myndi sparast fé sem annars er var- iö til að urða sorp.“ Kostnaður við að urða sorp af Reykjavíkursvæðinu er nú um 7-800 krónur á tonn. Sá kostnaður kemur til með að hækka þegar sorphaug- arnir verða fluttir úr Gufunesi eins og fyrirsjáanlegt er. -Pá Á síðasta ári var safnað 60 tonnum af ónýtum rafhlöðum í Gautaborg í Svíþjóð. Það jafngildir 369 kílóum af kvlkasilfri og 207 kílóum af kadmíum sem annars hefði mengað umhverfið. 75 þúsund tonn af timbri og pappír urðuð árlega: Yerdmætum fleygt - endurvinnsla sorps arðbær Á Reykjavikursvæðinu falla tll 120 þúsund tonn af sorpi á ári. 63% af þvi eða 75 þúsund tonn myndu henta til endurvinnslu. Sú hugsun hefur ríkt hér á landi að allt sorp sé einskis virði. Með hverju ári eykst það sorp sem hver íslendingúr kastar frá sér. Mestöllu sorpi er ekið á hauga til urðunar eða brennslu án þess að nokkur sjái sér hag í að nýta það. Pappír, timbur, gler, málmar, gúmmí og plast, allt þetta er flutt til landsins og greiddur fyrir það dýr- mætur gjaldeyrir. Á árinu 1987 féllu til rúmlega 120 þúsund tonn af sorpi á Reykjavíkur- svæðinu. Um 63% þess eða rúm 75 þúsund tonn voru pappír og timbur. Hvort tveggja hefði hentað vel til endurvinnslu. Er ekki kominn timi til að snúa þessari þróun við og hefja endur- vinnslu sorps hér á landi? Getum lært af grannþjóðum okkar í Svíþjóð er notuðum pappír safnað um land allt. 200 sveitarfélög hafa sett upp móttökustöðvar þar sem al- menningur getur losnað við úrgangs- gler. Um síðustu áramót gengu í gildi lög í Svíþjóð sem skylda sveitarfélög til þess að gangast fyrir söfnun á ónýt- um rafhlöðum. Margar rafhlöður innihalda kvikasilfur og eru því mik- ill mengunarvaldur ef þær eru brenndar. Endurvinnsla sorps hefst í eldhúsinu í Noregi gilda svipuð lög um raf- geyma. í Svíþjóð og Noregi taka apó- tek á móti gömlum lyfjum. Á nokkr- um stöðum í Svíþjóð hefur verið reynt að fá sorpið flokkað inni á heimilunum. Pappír, gler, járn og plast er greint í spndur og sótt í endurvinnslu. Ann- að er sett í rotþró og verður að mold. Þessi greining sorps gerir neytendur að virkum þátttakendum í endur- vinnslu sorps og er ódýrari fyrir samfélagið. Aögreint sorp er sótt heim til neyt- enda. Víða á Norðurlöndunum er sá háttur hafður á að gjald fyrir að- greiningu er látið renna til líknar- mála. Áldósirnar má endurvinna í Sviþjóð skila 75% af einnota ál- dósum sér aftur inn til endurvinnslu. Þar er greitt skilagjald. í Bandaríkjunum eru framleiddar tvær milljónir tonna árlega úr end- urunnum áldósum. Hérlendis er talið að árleg sala á gosdrykkjum verði rúmlega 30 millj- ónir áldósa. Það samsvarar um 400 tonnum af áli. í hreinsunarátaki, sem nú stendur yfir í Reykjavík, er miklu magni af áldósum safnað. Þeim er engu að síð- ur ekið á haugana. Áhugaleysi stjórnvalda íslensk stjómvöld hafa fram að þessu sýnt endurvinnslu á sorpi lít- inn áhuga. Þrátt fyrir stöðuga umræðu meðal almennings um bætta umgengni verður ekki vart neins frumkvæöis frá stjómvöldum. Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af vaxandi notkun einnota umbúða sem valda mikilli umhverf- ismengun. Á vegum iðnaðarráðu- neytisins starfar nefnd um endur- vinnslu. Hún á að gera tillögur um hvernig staðið skuli að söfnun ein- nota umbúða. Árangur næst ekki nema með skipulegri söfnun sorps til endur- vinnslu. Slikt yrði að vera með virkri þátttöku almennings. Þannig færi til dæmis frumflokkun sorps til endur- vinnslu fram í eldhúsinu á hverju heimili. Pappír unninn úr sorpi Shk söfnun fer þegar fram í ná- grannalöndum okkar sem lengst eru komin í endurvinnslu úrgangsefna. ísland er snautt af flestum þeim efnum sem hér er ekið á haugana. Fleiri þjóðir standa í svipuðum spor- um. Danir og Hollendingar framleiða allmikinn pappír til útflutnings og er hráefnið að mestu leyti pappírsúr- gangur bæði frá þeim sjálfum og frá öðrum þjóðum. Pappír er lítillega endurunninn hér á landi, framleiddir eggjabakkar og blómapottar. Bíldekk eru í vaxandi mæh endurunnin til framleiðslu á mottum, gúmmíbobbingum fyrir sjávarútveginn og nú síðast gang- stéttarhellum úr gúmmíi. Brotajárnsvinnsla hefur ekki geng- ið sem skyldi vegna mikils kostnaðar við söfnun jámsins. Sóun er til skammar Á móti öllum kostnaði við flokkun og endurvinnslu sorps kemur sparn- aður við eyðingu og bætt landnýting og umgengni. Það er siðmenntaðri þjóð til skammar að sóa verðmætum sem eru fólgin í úrgangsefnum, í stað þess aö stuðla að endurvinnslu þeirra. -Pá Enn um kartöfluverð Fræðist um frvstincu • ^4^ Kartöfluverð er afar breytilegt pokabeintfrábóndanumá80krón- vegna geysiharörar samkeppni. í ur kílóiö. Kílóið af þvegnum gull- lauslegri könnun hér á síðunni á augakartöflum kostar 100 krónur dögunum var Fiskbúrið Langholts- hjá Snæbirni. vegi sagt selja tveggja kflóa poka Svo virðist sem kartöfluverð af kartöflum frá Ágæti á 270. Hið breytist frá degi til dags í sumum rétta er að pokinn kostar 263. verslunum. Kannanir af því tagi, Hjá Snæbimi kaupmanni í Fisk- sem DV birti, hafa sín áhrif í þá átt búrinu er einnig hægt að fá 5 kg -Pá „Frysting matvæla" heitir bækl- Leiðbeiningarstöð heimilanna er ingur sem Kvenfélagasamband ís- opin alla virka daga frá kl. 14.00 til lands gaf út síðast 1983. Þar er að 16.00 í húsakynnum Kvenfélagasam- finna allt sem neytendur fýsir að vita bandsins að Hallveigarstööum. um frystingu og geymslu hvers kyns Síminn er 12335 og þar má einnig matvæla. kaupa áðurnefndan bækling á aðeins Þessa dagana em eflaust margir 100 krónur. aö vinna að sláturgerð og frágangi -Pá matvæla til vetrargeymslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.