Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1988, Blaðsíða 36
56
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Daryl Hannah
er haldin sjaldgæfum sjúkdómi
sem margir vildu þjást af. Þaö er
nefnilega þannig aö eftir því sem
hún borðar meira af sætum og
feitum mat grennist hún meira
og meira. Hún segir að líkami
hennar hafi öfug efnaskipti sem
lýsi sér svona. Læknar hafa enga
skýringu á þessu ástandi og yppta
aöeins öxlum. Eina leiöin fyrir
hana til aö horast ekki niður úr
öllu valdi er aö borða mat sem
inniheldur mikiö salt. Ó, ef bara
Madonna
er aö leika í leikriti á Broadway
þessa dagana og hefur hlotið mik-
ið lof fyrir leik sinn. Þetta er al-
varlegt leikrit og þótt hlutverk
hennar sé ekki stórt er leikhúsið
troðfullt á hverju kvöldi og allir
koma til að sjá Madonnu. Hún
þykir oft nokkuð glæfraleg í
klæöaburði, stúlkan, og um dag-
inn yar hún í svo efnislítilli hlýra-
blússu að þegar hún varð vör við
ljósmyndara reyndi hún að hylja
líkama sinn eins og hver sóma-
kær stúlka hefði gert. Ljósmynd-
arinn var heppinn að Sean Penn
var ekki nálægur.
Richard Pryor
er nú að gera alla vini sína grá-
hærða af áhyggjum. Maðurinn
hefur lést um fjölda kílóa og er
nú aðeins rúm fimmtíu kíló en
það getur ekki talist mikið fyrir
mann sem er 178 cm á hæð. Vinir
hans hafa áhyggjur af því að
hann sé með eyðni en hann vísar
því á bug og segir að hver mað-
ur, sem hafi lent í þeim ósköpum
sem hann hefur lent í, mundi líka
tapa vigt. Hann segir að ef menn
vilji létta sig eigi þeir að verða
ástfangnir af tveimur konum í
einu.
Má
bjóða
þér
sætí?
var hæsti stóll í heimi, áður en þessi varsmíð-
aður, 12,7 metrar á hæð. Stóllinn, sem vegur
meira en eitt tonn, er á húsgagnasýningu í
Tel Aviv í ísrael. Eini gallinn, sem sjáanlegur
er við þennan stói, er að það þarf körfubíl til
að lyfta sér upp í hann og frekar virðist hann
vera plássfrekur.
Foxtrot
Tveir rebbar að dansa. Það getur
ekki verið neitt annað en foxtrot.
! *"!.J • jt. , ••• / .'/ . - •/' . '■ ;•/«'" ».,* ' «» ^ "'C- - *■/■■';.■ *.,!■...—. ^rt', X"!■'!■/» *t"": '■'/».'?«-» ......»"■ ■.*. •** /. •;«,* ■&,,:■ *■* •*» •". . *• Y"... ... •••» ••
Hraðskreiðasta límósína heims
Fyrir um sextán milljónir íslenskra
króna getur maður leyft sér þann
munað að bruna um götur á hrað-
skreiðustu limósínu, sem til er í heim-
inum. Það er 1988 árgeröin af Lam-
borghini Countach, „lengri gerðin",
sem nær um 300 km/klst.
í bílnum eru að sjálfsögðu öll helstu
þægindi eins og sjónvarp, mynd-
bandstæki, bar, tveir símar og tvær
sóllúgur, svo eitthvað sé nefnt.
Undir afturstuðaranum er mynda-
vél, sem getur fylgst með umferð fyr-
ir aftan bílinn. Myndin kemur síðan
fram á litlum skjá, sem er rétt við
hliðarspegilinn. Þetta er mjög þægi-
legt, því að það sést ekki svo vel út
um afturgluggann úr bílstjórasætinu.
Þessi bíll myndi líklega kosta gott
betur en sextán milljónir kominn á Hér er hann í öllu sinu veldi, tilbúinn fyrir sunnudagsbíltúrinn.
götuna hér á landi.
Hér sést munurinn á venjulegum Lamborghini Countach og þeim lengda.