Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1988, Side 15
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988. 15 ,4 að láta þau „Sama magn af fiski og nú er veitt væri hægt að veiða með færri skip- um og minni mannafla", segir greinarhöfundur m.a. Nær daglega birtast fréttir í fjöl- miðlum um greiðslustöðvanir og gjaldþrot fyrirtækja og þykir það bera vott um slæmt efnahags- ástand. En hvað er svona slæmt við þetta? Það er kunnara en frá þurfi að segja að óhagkvæmni og þar af leið- andi htil framleiðni eru aðalsmerki margra íslenskrafyrirtækja. Fyrir- tækip eru mörg hver of smá til þess að sú hagkvæmni og um leið það kostnaðarstig náist sem til þarf til að standast vaxandi alþjóölega samkeppni bæði ínnanlands og ut- an. Afleiöingin verður minni fram- leiðni og þar af leiðandi lakari lífs- kjör í framtíðinni en þyrftu að vera. Ekki ein skýring Það er talað um að ísland sé „dýrt“ land. Eitt af því sem veldur þessu er lítil framleiðni. Með stærri fyrirtækjum og betri rekstri mætti auka framleiðnina og grundvöllur skapaðist fyrir lægra verði á vörum og þjónustu. Ekki er þó við eigend- ur og stjórnendur fyrirtækja eina að sakast. Bein og óbein afskipti ríkisvaldsins af efnahagslífinu gera hka sitt til að draga úr framleiðni. Góð dæmi eru offjárfestingar í sjávarútvegi og landbúnaði. Sama magn af fiski og nú er veitt væri hægt að veiða með færri skipum og minni mannafla. Og jafnmikinn fisk mætti verka í færri frystihús- um og með minni mannafla. í land- búnaðinum væri hægt að ná sömu framleiðslu með færri búum, minni vélakosti og færri bændum. Loka- niðurstaðan væri í báöum tilfellum meiri framleiðni og þar af leiðandi minni tilkostnaður á hverja fram- leidda einingu og bætt samkeppnis- staða bæði innan lands og utan. Lítil framleiðni er þó að sjálf- sögðu ekki eina skýringin á háu Kjallarinn Friðrik Eysteinsson rekstrarhagfræðingur verðlagi á íslandi. Hátt raungengi íslensku krónunnar síðasta árið gerir það að verkum að íslensk vara og þjónusta er nú hlutfallslega dýrari en áður, það er að segja að innlendar vörur og þjónusta hafa almennt hækkað meira í verði en innfluttar vörur og þjónusta. Með því að aðstoða útflutnings- greinar og samkeppnisiðnað sér- staklega í stað þess að nota almenn- ari aðgerðir eins og niðurfærslu eða gengisfelhngu, sem hefðu lækkað raungengið og gert íslensk- ar vörur og þjónustu samkeppnis- færari, er ríkisstjórnin beinhnis að knýja fram gjaldþrot og/eða sam- runa fyrirtækja. Ef ríkisstjórnin heldur áfram á braut fastgengisins verður verðlag á innlendri framleiðslu að lækka, nema gripið sé til innflutnings- hafta. Markaðsöflin myndu þá leika stærra hlutverk en áður hefði þekkst á íslandi. Langtímaávinningur Þess sjónarmiðs gætir mjög á ís- landi að allt fari í bál og brand við gjaldþrot fyrirtækja. Að vísu má búast við skammtíma atvinnuleysi á meðan nýir eigendur eru að taka við eða fyrirtæki, sem fyrir eru, eru að stækka við sig. En langtímaá- vinningurinn ætti líka aö vera öflugri fyrirtæki, aukin framleiðni og bætt lifskjör. Með „gjaldþrota- leiðinni", sem ríkisstjórnin valdi, nást þessi markmið að hluta. Það má búast við stærri og öflugri fyrir- tækjum í þeim atvinnugreinum sem ekki njóta sérstakrar velvildar stjórnvalda. Merki þessa eru þegar farin að sjást í íslensku atvinnulífi. Aukinni framleiöni í sjávarútvegi og landbúnaði gætu stjórnvöld svo náð með því að gera „kvótana" varanlega og að fullu framseljan- lega eins og aðrir hafa bent á. í samkeppnisiðnaðinum verða síðan sjónarmiðin um „rekstrargrund- vöh“ að ráða ferðinni. Einungis þær atvinnugreinar, sem geta stað- iö sig í samkeppninni við innfluttar vörur, fengju að lifa. Sjálfstýring markaðarins Spurningin, sem ég varpaði fram í upphafi greinarinnar, var hvort láta ætti fyrirtækin rúha. Hug- myndin að baki spurningunni er hvort ekki eigi að láta sjálfstýringu markaðarins sjá um að koma hér upp öflugri fyrirtækjum í gegnum samruna og/eða nýja eigendur og stjórnendur. Ef ríkisstjórnin held- ur fast við núverandi stefnu hefur hún svarað þessari spurningu. Með hliðarráðstöfunum eins og breyt- ingum á kvótareglum í sjávarút- vegi og landbúnaði myndi þessi ríkisstjórn hiklaust teljast mesta frjálshyggjuríkisstjórn sem þessi þjóð hefði átt og ekki nóg með það heldur gæti niðurstaðan orðið meiri framleiðni og stórbætt lífs- kjör í framtíðinni. í ljósi þess að samkeppni fer harðnandi og verður sífeht alþjóð- legri sýnast arðsemis- og hag- kvæmnissjónarmið, samfara nú- tíma viðhorfum í rekstri fyrir- tækja, eina ráðið sem dugar ef viö ætlum ekki að láta kafsigla okkur í samkeppninni við erlenda aðha. Gjaldþrot fyrirtækja hafa kannski verið óeðlilega fá hingað tíl. Óhag- kvæmnin var fahn með neikvæð- um raunvöxtum, óðaverðbólgu, samkeppnishömlum og erlendum lántökum. Ríkisstjómin sýnist vera að ná fram langþráðri grisjun í íslenska fyrirtækjastofninum. Friðrik Eysteinsson „Það er kunnara en frá þurfi að segja að óhagkvæmni og þar af leiðandi lítil framleiðni eru aðalsmerki margra ís- lenskra fyrirtækja.“ Asmundur! - Eg skora a Asmundur Stefánson, forseti ASÍ. - „Hann telur að samninga beri að virða og að launafólk eigi að njóta samningsréttar," segir i greininni. í Morgunblaðinu 30. september síðastliðinn birtist ræða sem Ás- mundur Stefánsson flutti við setn- ingu 16. þings Sjómannasambands- ins. Ásmundi virðist mikið niðri fyrir og engan skyldi furða. Það er ekki nema von að verkalýðsleiðtogan- um bregöi í brún þegar flokkur hans fer í stjórn og tekur þátt í að taka samningsréttinn af umbjóð- endum Ásmundar. Ásmundur segir í ræðunni að hann sé sannfærður um að efna- hagsvandinn sé ekki launafólki að kenna. Hann segir líka að þó svo að „flokkurinn hans“ sé í stjórn þá sé hann sömu skoðunar. Hann tel- ur að samninga beri að virða og að launafólk eigi að njóta samnings- réttar. Ásmundur hefur tapaö áttum Einu ber sannarlega að fagna í ræöu Ásmundar því þar kemur nefnilega fram að hann telur sig þurfa tíma til að hugsa sitt mál og ná áttum. Það verða áreiðanlega fleiri en ég sem gleðjast yfir því að Ásmundur hafi loks áttað sig á því að hann hafi tapaö áttum. Öllum þorra landsmanna hefur lengi ver- ið ljóst að Ásmundur tapaði áttum fyrir löngu. Til dæmis þegar hann skrifaði undir þjóðarsáttina hér um árið („dekkjasamningana") - og núna í síðustu forsetakosningum þegar Sigrún Þorsteinsdóttir bauð sig fram og sagöist ekki mundu skrifa undir nein lög sem fælu í sér afnám samningsréttar. Kjállariim Áshildur Jónsdóttir í landsráði Flokks mannsins Þá skrifaði Ásmundur stuönings- grein við frú Vigdísi, þó svo að hún hefði verið búin að lýsa því yfir að hún myndi skrifa undir hvaða lög sem væri gagnrýnislaust - af því að hún treysti ríkisstjórninni. Ef Ásmundi væri raunverulega eins annt um að fólk héldi samn- ingsrétti sínum og ætla mætti af ræðunni hefði hann að sjálfsögðu lýst yfir stuðningi við framboð Sigrúnar og hvatt fleiri til að gera slíkt hið sama, en þar sem hann var orðinn áttavilltur fyrir þann tíma og ekki búinn að átta sig á villunni var ekki von á að hann gripi til réttra aðgerða til þess að vernda samningsréttinn. Ásmundur - f lokkurinn er þú En batnandi mönnum er best að lifa og mikið væri það til bóta fyrir þessa þjóð ef Ásmundur áttaði sig á því að það er ekki bara flokkurinn hans sem er að brjóta mannréttindi heldur er það hann sjálfur og fólk sem hugsar eins og hann og sem lætur það líðast að flokkurinn, sem það styður, starfi í mótsögn við hugsjónir sínar. - Vegna þess að „flokkurinn" er fólkið sem er í hon- um og styður hann. Nú vita allir íslendingar að flokk- ur Ásmundar og aörir þingflokkar láta sig ekki muna um að bijóta mannréttindi þegar því er að skipta. Það er ljóst aö innan allra flokka er fólk sem er tilbúið að brjóta mannréttindi og vega að þeim sem minnst mega sín. Þetta eru engin ný sannindi. Það sem hins vegar vekur athygh er það fólk sem hður ekki mann- réttindabrot, svo sem afnám samn- ingsréttar, og líður ekki að flokkur- inn þess svíki hugsjónir sínar held- ur segir sig úr flokknum og ef fólk eins og Ásmundur gerði það væri ekki um svona aðgerðir að ræða, þá væri ekki hægt að framkvæma þær. Asmundur, segðu þig úr flokknum! Ég skora á þig, Ásmundur Stef- ánsson, að þú sýnir það í verki að þér þyki samningsrétturinn ein- hvers virði og segir þig úr Al- þýöubandalaginu því orð eru lítils virði ef gjörðin fylgir ekki með. Áshildur Jónsdóttir „Einu ber sannarlega að fagna 1 ræðu Asmundar því þar kemur nefnilega fram að hann telur sig þurfa tíma til að hugsa sitt mál og ná áttum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.