Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1988, Page 4
4 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1988. Fréttír Lánaö gegn viðskiptum úr atvinnutryggingasjóði? „Nær engri átt ef satt er“ - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „Þaö getur enginn aflað sér við- skipta eða gefið nokkur loforð um afgreiðslu eöa fyrirgreiðslu úr at- vinnutryggingasjóði þannig að þetta er í sjálfu sér fáránlegt. En ef ein- hver maður hefur gert það þá hefur hann bara gert sjálfan sig aö flfli," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra um fullyrðingar þess efnis að veriö sé að bjóða lán úr at- vinnutryggmgasjóði gegn viðskipta- vildum. Fullyrðingar þess efnis birt- ust meðal annars í viðtali við Ingva Hrafn Jónsson, fyrrverandi frétta- stjóra Sjónvarps, í DV um helgina. Hefur verið gefið í skyn aö menn á vegum Stefáns Valgeirssonar eigi þama hlut að máli. Forsætisráðherra sagöist hafa heyrt þessa kviksögu og næöi auðvit- aö engri átt ef sönn væri. En þetta væri í sjálfu sér svo langsótt fuhyrð- ing að hann hefði ekki séð ástæöu til að skoöa þetta nánar og hann hefði ekki rætt'þetta við Stefán. „Ég hef ítrekað það við þá menn sem að sjóðnum standa að vitaskuld komi ekkert slíkt til greina og má aldrei ljá máls á neinu slíku. Þetta vita allir og engum þeirra hefur dott- ið neitt slíkt í hug ,“ sagði forsætis- ráðherra. -SMJ Höfuðborgarsvæðið: Stórar breytingar á fyrir- komulagi sorpeyðingar Húsasorp I 45.000 t Iðnaðarsorp Hey, garöarusl ili Bílar - málmar Aígangur 4 75.000 t > Jaröefni i TTi Baggað sorp Kompost Bílhræ - Hættuleg Tréflís + Jámusnsiéugið málrnat úrgangsefni kögglafi ÍSF eldsne/ti Þar sem sorp hötuðborgarsvæðisins verður urðað mun böggum verða komið fyrir og grafið yfir jafnóðum. Baggarnir munu ailir verða unnir und- ir sama þaki annars staðar. Meö þvi móti verður mengun af völdum „bagga- vinnslunnar" í algjöru lágmarki. „Það verður bylting í vinnubrögð- um hvað snertir vinnslu sorps og umhverfisvernd,“ segir Ögmundur Einarsson, formaöur sorpeyöingar höfuðborgarsvæðisins. Á aöalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu' flutti Þórður Þ. Þorbjam- arson borgarverkfræðingur erindi um hvemig meðhöndlun á sorpeyð- ingu höfuðborgarsvæðisins verður háttað í framtíðinni. Mikil breyting mun verða á sorpvinnslu miðað við núverandi fyrirkomulag. T.a.m. verður nú sorp flokkað og endurunn- ið í samvinnu við fyrirtæki. Ætlunin er að tekiö verði á móti öllu sorpi höfuðborgarsvæðisins á einum stað - í móttökustöð í Fífu- hvammslandi. Þar hefur verið sótt um land hiá Kópavogskaupstað. Þar mun sorpið verða unnið. Því verður þjappað saman í eins rúmmetra bagga og bundið saman með vír. Að Stefan Valgeirsson alþingismaður: Þetta er tilhæfulaust „Þetta er alrangt, fullkomlega til- ins sé úr mínum samtökum þýöir hæfulausL Ég hef ekki rætt viö það ekkert alræði. Auk þess má einn einasta loðnusjómann, hvorki benda á að sjóðurinn er myndaður um þetta né annað. Þar að auki er aðeins fyrir útflutningsfyrirtæki það ekki í minu valdi aö lofa ein- en ekki fiskiskip," sagði Stefán hverju eins og þessu. Það er fimm Valgeirsson alþingismaður þegar manna stjóm fyrir atvinnutrygg- fullyrðing Ingva Hrafhs Jónssonar ingasjóði og þó að formaður sjóðs- var borin undir hann. -S.dór í framtíðinni standa vonir til að hægt verði að endurvinna þriðjung sorps frá höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við ýmis fyrirtæki. Með því móti verð- ur hey og garðarusl endurunnið sem mold, tréflísar og kögglað eldsneyti verður unnlð í samvinnu við Járnblendigfélagið o.s.frv. því loknu verður sorpinu komið á urðunarstaði. Aö sögn Þórðar mun ekki vera ákveðið að sinni hvar það verður. Um vinnsluna sagði Þórður að hún muni fara fram að öllu leyti undir þaki. „Svo verður önnur lína í sorp- vinnslunni, vinnsla iðnaðarsorps," segir Þórður. „Þar verða málmar, bílliræ og annað slíkt skilið frá og því komið í vinnslu á vegum íslenska stálfélagsins. Við höfum gert samn- ing við íslenska málmblendifélagið og fleiri fyrirtæki." Auk þess verða hey og garðaefni ásamt timburefnum endurunnin. Aðspurður um urðun- arstaði sagði Þórður að aðalatriöið með þessari tillögu væri að leggja áherslu á að undirbúningsvinnsla færi fram undir þaki í Fífuhvamms- landinu. „Viö viljum síðan geta urð- að sorpiö í friði. Tíminn verður að leiða í ljós hvar þaö veröur.“ -ÓTT. Guðmundur Oddsson: „Jákvætt málefhi“ Guðmundur Oddsson, formaður ar? Ótti fólks vegna mengunar er bæjarráös Kópavogsbæjar, sagði í ástæðulaus þvi þarna verður sorp samtali við DV að sorpvinnslustöð unnið undir þaki og af þessu á ekki sé jákvætt málefni. „Ég sé ekkert aö stafa nein lykt Hins vegar bendi því til fyrirstöðu aö þetta verði égáaðviðhöfumengaafstööutek- framkvæmt meö þessu móti - þetta iö enn varðandi staðsetningu sorp- veröur allt í huggulegum pakkn- vinnslustöðvarinnar,“ sagöi Guð- ingum. Afhvetjuekkiaðhafastöð- mundur. ina í Kópavogi eins og annars staö- ÓTT í dag mælir Dagfari Svona eiga sýslumenn að Jón ísberg heitir sýslumaður þeirra Húnvetninga. Hann er bú- inn að vera lengi sýslumaöur, ís- berg, og staðið í mörgum málunum. Bjöm á Löngumýri gerði hann landsfrægan í Skjónumálinu á sín- um tíma, en embættisverk Jóns eru bæði skrautleg og skemmtileg eins og vera ber hjá góöum verði réttví- sinnar. Það er nefnilega þannig með Jón ísberg, að hann hefur rétt- vísina að leiðarljósi en ekki alltaf lögin en þetta tvennt fer ekki alltaf saman í huga yfirvaldsins á Blönduósi. Sagt er að Jón hafi manna oftast komist í hæstaréttar- dóma fyrir dóma sína, sem urðu afturreka heim í hérað vegna þess að þeir fylgdu ekki laganna bókstaf í einu og öllu, og hefur Jón haft það á orði að þar hefði Hæstarétti orðið á í messunni, þegar hann tók lögin fram fyrir réttlætiö. Nema hvað. Nú er búið að kæra Jón sýslumann eina ferðina enn og þaö út af allsérstöku máh. Þann- ig var mál með vexti að lögreglan á staönum hafði lagt hald á smygl- að brennivin og bjór um borð í nýsmíðuðum bát, sem er skráður á Blönduósi. Þessi upptaka áfengis- ins kom skipvetjum og útgerð flla, því ætlunin var að bjóða til vígslu- hátiðar og kneyfa þar varninginn að sjómanna sið. Sýslumaður sá að við svo búið mátti ekki standa, enda verða nýir bátar og ný áhöfn að fá að halda sínar vígsluhátíðir meö pompi og pragt. Rauf hann því innsiglið á smygUnu og afhenti það skipveijum til afnota með loforöi um að afganginum yrði skilað, eins og gert var. Einhver lögreglumaður á staðn- um, sem hefur misskilið tilgang laganna, eins og Hæstaréttur gerir stundum þegar Jón ísberg á í hlut, kærðí þetta góðverk sýslumanns- ins og málið komst í {jölmiðla. Þeg- ar DV spurði sýslumann um mál- avöxtu, svaraði hann því til að svona mál „eigi ekki erindi í blöð- in, vegna þess að það er ólöglegt." Gerði hann sitt til að þagga málið niöur, en lögreglumaðurinn hélt fast við kæru sína og nú er búið aö taka sýslumanninn til opin- berrar rannsóknar. Hér er illt í efni. Það er auövitað engin hæfa í því að refsa Jóni sýslu- manni fyrir það gustukaverk aö leyfa nokkrum sjómönnum aö drekka sitt brennivín. Jafnvel þótt það hafi verið innsiglað og tekið til málamynda sem smygl. Lögin og réttvísin eru til þess að koma í veg fyrir að almenningur brjóti af sér og steli eða sviki aðra. En lögin eru ekki til þess að koma í veg fyrir að menn geri sér glaðan dag með brennivíni sem búið er að flytja til landsins í þeim eina tilgangi að drekka það. Hvaða gagn er að brennivíni og bjór sem liggur inn- siglað og ódrukkið inn á sýslu- mannsskrifstofum? Auk þess lof- uðu skipverjarnir að skila afgang- inum, hvað þeir gerðu af fullko- minni samviskusemi. Greiðasemi sýslumanns var sprottin af ríkum skilningi hans til að taka mannlega á þessu máli og gefa skipsáhöfninni tækifæri til að fagna nýjum báti í byggðarlagið. Nauösyn brýtur lög og Jón sýslu- maður er sjálfum sér samkvæmur í því aö túlka lögin í samræmi við góða og gegna siði og menn eiga ekki að vera tala um mál sem eru ólögleg, þegar það kemur sér illa. vera Þaö sýnir og göfugmennsku sýslu- mannsins aö hann rauf innsiglið og afhenti vínið, þótt hann hafi ekki sjálfur verið boðinn til vígslu- hátiðarinnar um borð. Þetta kallar maður nú skilningsríkt yfirvald og mættu þau vera fleiri hér á landi. Nú er hins vegar allt eins líklegt að Jón sýslumaöur verði flæmdur úr embættinu fyrir þetta góðverk og er þá næsta víst að réttvísin lýt- ur í lægra haldi fyrir lögunum, bara fyrir það eitt aö vera ólögleg. Jón sýslumaður lætur það ekki þvælast fyrir sér hvort embættis- verkin eru lögleg eða ólögleg. Vandamálið er hitt, þegar það kemst í blöðin að löggæslumaður- inn á Blönduósi virðir löggæsluna að vettugi. Það getur orðið til þess aö hann verði í framtíöinni að halda sér við lögin og þaö yrði slæmt fyrir réttvísina og réttlætið. Jón ísberg sýslumaður virðir bæöi réttlætið og brennivínsþarfirnar án þess að velta fyrir sér lagabók- stöfum og viö skulum bara vona að saksóknari verði ekki jafnvit- laus og Hæstiréttur með því að setja ofan í við sýslumann sem er eins og sýslumenn eiga að vera. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.