Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 29
MíÐVIKUÐÆGUR 28. DESEMBER '1988'.
29
Ltfsstm
DV prófar flugelda:
Fínar tertur og
fjölskyldupakkar
Þaö var Kjörið flugeldaveður þegar
DV-menn héldu upp í Rauðhóla til
þess að prófa flugelda og annað púð-
urverk sem tilheyrir áramótum.
Leikurinn hófst með því að skjóta
stórum og millistórum flugeldum.
Þeir sem þóttu bestir í þeim flokki
voru Stern Feuer flugeldur frá skát-
um, Strato flugeldur og Gigantraket
einnig frá skátum. Einnig líkuðu
Duplex flugeldar vel. Þeir eru frá
skátum en seldir líka hjá Ellingsen
og fleiri aðilum.
í þessum flokki þóttu Schweifraket
og Teufelsraket frá KR gefa góðan
hvell. Verðið 1.200 og 600 krónur.
Næst var tekinn risaflugeldurinn
Super Pro frá KR. Hann þótti harla
góður, gaf glæsilegt ljóshaf og háan
hvell. Þá fór og í loftið Megarocket
frá KR sem gerði stormandi lukku.
Ekki voru tök á aö prófa alla flug-
elda sem í boði eru á markaðnum en
virðist ljóst að vilji menn fá verulega
glæsilegar bombur þá þarf að greiða
hátt verð fyrir það.
kannar
Áramótatertur
1600
1400
1200
1000
800
600
400
200
Bouqct
1510
Purple Ball
~~$ilveíly
swallow
Birds
1100
Blossom
1250
o)> Report
Red
Flying
Dragon
Celebration
Skotkökur
og tertur
Gosin eru alltaf jafnvinsæl og fást I
miklu úrvali. DV-mynd KAE
Ymsar gerðir af tertum og kökum
eru að mati flestra flugeldasérfræð-
ingá það sem vinsælast er í ár. Kök-
urnar eru öruggar í notkun og eru
meira augnayndi en venjulegir flug-'
eldar vegna þess að þær endast mun
lengri tíma en hefðbundnar rakettur.
Mjög misjafnt var hversu glæsileg-
ar þær þóttu en samdóma álit viö-
staddra var að Silvery Swallow, sem
skátar flytja inn, væri glæsilegust.
Henni fylgir mikið geislagos eins og
úr gosbrunni. Verulega glæsileg
terta á 980 kr.
Birds terta frá KR þótti einkar
glæsileg og entist mjög lengi. Úr
henni gusu litlir flugeldar í öllum
regnbogans litum. Hún kostar 1.100
krónur.
Tertur eru tvímælalaust bestu
kaupin í ár.
Þreytulegir
stjómmálamenn
Skátar selja flugelda með myndum
af stjórnmálamönnum. Við bárum
eld að Jóhönnu Sigurðardóttur en
þótti ekki sérlega mikið til hennar
koma. Frekar dauflegur flugeldur.
) 22 28 30 40 44 80 106
Tími í sekúndum
DVJRJ
Hjá KR og LHS má nú fá hreinustu
risarakettur sem komu vel út í próf-
uninni. DV-mynd KAE
Næst var kveikt í nokkrum jarð-
gosum sem hvæsa úr sér neistagosi
og ljúka svo sýningunni með dálitl-
um hvelli og smáflugeldi. Skástir
þóttu Bumper Harvest frá skátum,
Purple Ball frá Ellingsen og
Groundmine frá skátum.
Neopolitan gos, Saturn Missile og
Reporting Red kökur og gos gerðu
einnig góða lukku.
Fjölskyldupakkar
Við tókum með millipakka frá
skátum, Ellingsen, Siysavarnasveit
Reykjavíkur, Fram og KR. Verðið er
á bilinu frá 1.800 krónum upp í 3.000.
S.kemmst er frá því aö segja að
pakkinn frá skátunum líkaði best.
Sá pakki sem við vorum með var ríf-
lega útilátinn og með fjölbreyttu
innihaldi. Verðið var 2.700.
KR-pakkinn, sem heitir Baejarins
besfl, þótti og harla góður. Úrvaliö
var fjölbreytt og eitthvað við hæfi
allra aldursflokka. Verðið var 1.800
kr.
Ellingsen og Fram buðu fram ágæt-
is pakka með sæmilega fjölbreyttu
innihaidi.
Það var ljóst með pakkana eins og
flugeldana að ef menn vilja fá al-
mennilega flugeldasýningu þá þarf
að reiða fram allnokkurt fé.
í sambandi við tímatöku í töflu,
sem birtist hér í blaðinu, er rétt að
geta þess að á flugeldum var mældur
tíminn frá því að skeytið fór á loft
og þar til síðustu leifar hans dóu út
á himninum. Tími á tertum var tek-
inn frá því að gos hófst úr hverri
tertu og þar til allt var útdautt.
-Pá
2000
1500
1000
500
kannav ~J Stórir og meðalstórir flugeldar
Gigantraket B Strato Super Pro Royal superclass A A
Duplex raket Schwcifraket I 1
Gold-Karat Stern Feuer A * Sur:sZ" A 1 I Tornado 4 A Tívoli- £ flugeldar x 1 *
í f I ! ! í !'■ /!i íi í!l i í fl /!# Ji .. jf. i S-i Li í t !i a i í •*> !
1 —i BW—1—I BflB|||HM| —M—— —— —i
Tími í sekúndum m jÉHHi
Terturnar eru nú til í meira úrvali
en áður og gerðu mikla lukku við
prófunina. DV-mynd KAE"