Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Síða 30
30-
Lífsstm
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER1988.
Landssamband hjálparsveitanna:
Langstærstir á
markaðnum
- 400 tegundir í boði
„Við byrjuðum á ílugeldasölu fyrir
22 árum og það má segja að hjálpar-
sveitirnar hafi kennt fólki að nota
flugeldana," sagði Björn Hermanns-
son hjá Landssambandi Hjálpar-
sveita skáta í samtali við DV.
Landssamband hjálparsveitanna
er með 60-70% af heildarsölu flug-
elda á landinu um hver áramót.
Til marks um úrvalið má geta þess
að tæplega 400 vörunúmer eru á lista
hjálparsveitanna.
Fjöldi söluaðila um land allt selur
flugelda frá Landssambandinu og
m taldi Björn að það væru um 60 aöilar
alls með rúmlega 100 útsölustaði.
Flugeldasalan er óhemjumikilvæg
fyrir starfsemi björgunar- og hjálpar-
sveita því þetta er stærsti liðurinn í
árlegri íjáröílun þessarar starfsemi.
Björn lagði í samtali við DV ríka
áherslu á mikilvægi þessa. „Fólk get-
ur verið öruggt um að hver króna
rennur til styrktar lífsnauðsynlegri
starfsemi."
Það þýöir að verð, sem Lands-
sambandið gefur upp hér í blaðinu,
-♦er viðmiðunarverð og gildir ekki
nauðsynlega alls staöar á landinu.
Það sama á við um uppröðun í fjöl-
skyldupakka sem er trúlega eitthvað
misjöfn eftir söluöaðilum.
Neytendur
Stjórnmálamenn
í loftið
Það eru hjálparsveitirnar sem selja
hina sívinsælu ílugelda með mynd-
um af stjórnmálamönnum. Það er
hægt að velja úr meira en tíu tegund-
um og geta menn því valið sína menn
og sent þá upp á stjörnuhimininn upp
á eigin spýtur. Verðið er á bilinu frá
300-400 krónur.
Helstu
útsölustaðir
Helstu útsölustaðir í Reykjavík og
Kópavogi eru í Skátabúðinni Snorra-
braut, Framtíð í Skeifunni, Segla-
gerðinni Ægi á Granda, við hús Bif-
reiða og landbúnaðarvéla í Ármúla,
við Kaupstað í Mjódd, við Bílaborg á
Fosshálsi, við Toyota í Kópavogi,
Kaupgarð viö Engihjalla og í Skáta-
heimilinu við Borgarholtsbraut.
Verðlagning
og sértilboð
Verð á fjölskyldupökkunum er 990
kr., 1.790 kr„ 2.700 kr. og 4.900 krónur
en það er risapakki fyrir skotglaða.
Sérstök tilboð eru á pökkum með
fjölda stjörnuljósa og blysa fyrir þá
yngstu. Pakkinn kostar 400 krónur.
-Pá
ÖÉÉÍ
'-j(L EHh"!
Lúvs. J H.»AS *HAW
»— fe* ' ■ * ‘Sm i
Fjölskyldupakkar LHS eru afar vel útilátnir
DV-mynd KAE
Tívolíbombur bannaðar
Tívolíbomburnar, sem nutu mik-
illa vinsælda á síðasta ári, eru nú
bannaöar nema sem sýningargrip-
ir.
Þessar kraftmiklu bombur höfðu
veriö seldar um nokkurra ára skeið
og nutu vaxandi vinsælda.
Um síöustu áramót uröu eins og
eflaust flestir muna nokkur alvar-
leg slys við notkun og meöhöndlun
þeirra. Vegna þessa hefur nú verið
lagt bann viö sölu þeirra til al-
mennings. Áfram má flytja þær inn
og nota á flugeldasýningum sem
eru fastur liöur um hver áramót.
-Pá
Fýrverk í meira en fimmtíu ár
„Við höldum okkar hlut þrátt fyrir
vaxandi samkeppni," sagði Ragnar
Engilbertsson hjá Verslun O. Ell-
ingsen í samtali viö DV. Ellingsen
hefur selt neyðarblys og flugelda frá
stofnun fyrirtækisins eða í 73 ár.
Ellingsen býður þrjár gerðir fjöl-
skyldupakka. Sá ódýrasti er á 1.200
krónur, sá í miðið á 1.800 krónur og
sá stærsti er á 2.500 krónur. Það er
að jafnaöi 10% ódýrara að kaupa blys
og flugelda hjá Ellingsen í pökkum
miðað við verð í lausu.
Ellingsen býður neyðarblys og
handblys á 50 krónur og allt upp í
425 krónur. Kökurnar svokölluðu,
sem verða trúlega vinsælastar af fýr-
verki í ár, kosta hjá ELlingsen frá
100 krónum og upp í 1.250 krónur
Ellingsen býður stakar rakettur á
fjölbreyttu verði eða frá 485 fyrir ís-
lenskan Tivoli flugeld og upp í 1.400
fyrir þýskan Strato flugeld.
-Pá
Verð á flugeldum hefur nánast staðið i stað. DV-mynd KAE
Svipað eða sama
verð og í fyrra
Verð á flugeldum virðist vera rnjög
svipað og var í fyrra. Lækkun á toll-
um og afnám vörugjalds á þeim veg-
ur upp á móti erlendum hækkunum
og gengisbreytingum. Verð til neyt-
enda ætti því að verða mjög svipað
þó vart verði við litlar hækkanir í
örfáum tilfellum.
Tollur á flugeldum lækkaði á þessu
ári úr 15% í 10%. 30% vörugjald var
fellt alveg niður en 3% jöfnunargjald
er á þeim áfram. Verð á fjölskyldu-
pökkum ætti því að vera á bilinu
1.600- 2000 krónur eftir stærð.
Síðastliðið ár voru seldir flugeldar
og annað fýrverk fyrir alls tæplega
120 milljónir króna á landinu öllu.
Magniðvar92,6tonn. -Pá
Víkingur:
Selt á sex
stöðum
Víkingur verður með höfuðbæki-
stöðvar flugeldasölu sinnar í Vík-
ingsheimilinu við Hæðargarð. Auk
þess verða útsölustaðir í Kringlunni,
viö Austurver, við veitingahúsið
Sprengisand og við sjoppuna á Soga-
vegi.
Víkingur kaupir sína flugelda frá
ýmsum aðilum en mest frá Lands-
sambandi Hjálparsveita skáta. Boðið
verður upp á þrjár gerðir fjölskyldu-
pakka á hagstæðu verði og óteljandi
stakar rakettur og fjölbreytt úrval
af skotkökunum vinsælu.
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri flugeldasölunnar,
sagði í samtali við DV að hann gerði
ráð fyrir að kökurnar tækju það
sæti á vinsældalista skotglaðra sem
tívolíbomburnar skipuðu áður.
-Pá
Valur:
Fáð'ér flugeld
„Dýrasti flugeldurinn okkar heitir
Strato og kostar 1.520 krónur stykk-
ið. Við búumst við að hann taki sess
tívolíbombanna í vinsældum,“ sagði
Óskar Traustason Valsari í samtali
viðDV.
Valur verður með sínar höfuð-
bækistöðvar í Valsheimilinu við
Hlíðarenda en einnig verða útsölur
í Scania húsinu við Skógarhlíð 10 og
í skúr við Menntaskólann í Hamra-
hlíð. Valur býður fjórar gerðir fjöl-
skyldupakka á 990 kr„ 1.790 kr„ 2.700
kr. og 4.900 krónur en það er risa-
pakki fyrir kröfuharða tundurunn-
endur. Á boðstólum verða 6 gerðir
stórra flugelda, þar á meðal stjórn-
málamannaflugeldar, og er verðið á
þeim frá 330 krónum og upp í 1.520
eins og áður segir.
Valur býður fjórar gerðir af tertum
á 230 kr, 490 kr, 940 kr og 1.340 krón-
ur. Sölustaðir Vals verða opnir frá
10 á morgnana til 10 á kvöldin til
áramóta og til kl 16.00 á gamlaársdag.
-Pá