Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Qupperneq 33
MIÐVIKUDApUR 28. DE^SEMBE^ ip8^
33
Lífestm
Leiga á borðbúnaði:
Þegar vanda skal til veislu
Þegar halda skal veislu fyrir fjöl-
skylduna eða marga vini lendir
heimilisfólk oft í því að útvega sér
borðbúnað fyrir alla gestina. Algengt
er að meðalfjölskylda ráði yfir borö-
búnaði fyrir 6-12 manns. Þegar gest-
ir verða fleiri en sem þessu nemur
er gott að geta leitað til annarra til
aö útvega fullnægjandi borðbúnað.
Hins vegar leysa sumir þennan
vanda með.því að fara út í búð og
kaupa sér pappadiska, glös og til-
heyrandi.
Borðbúnaðarleiga er starfrækt þar
sem hægt er að leigja sér það sem til
þarf í veisluna ef margir ætla að safn-
ast saman. Auk þess er hægt að fá
aðstoð hjá nokkrum fyrirtækjum
sem selja út mat - aðilar úr þeim
röðum kappkosta að veita viðskipta-
vinum sínum ókeypis borðbúnaðar-
þjónustu.
DV haíöi samband við fyrirtækið
Matborðið þar sem þær upplýsingar
fengust að þar væru allir af vilja
gerðir: „Við reynum að gera við-
skiptavinum sem best til hæfis og
lánum borðbúnað ef þess er óskað
og fólk kaupir mat til veislu hér á
annað borð. Ég þykist líka vita aö
fyrirtæki, sem selja út mat, reyni oft
að hlaupa undir bagga með við-
skiptavinum hvað þetta snertir,"
sagði Sigurður Jónsson hjá Mat-
borðinu.
1.300 krónur
fyrir lOmanns
Hjá Borðbúnaðarleiguni er hægt aö
leigja það sem óskað er til borðhalds.
Þar er visst verð reiknað á stykki.
Sem dæmi um verð skulum við
reikna með að haldin sé tíu manna
veisla. Gerum ráð fyrir að notuð séu
tvenns konar glös, steikar- og súpu-
diskar, hnífapör, kaffibollar, undir-
skálar og kökudiskar, teskeiðar og
kökugaffiar. Verðið fyrir þennan
pakka er 1.300 krónur og þá er reikn-
að meö leigu fyrir búnaðinn í sólar-
hring.
-ÓTT
Ekki er nauðsynlegt að kaupa sér borðbúnað ef á að halda veglega veislu
á nokkurra mánaða fresti.
Hægt er að fá ýmsa hatta á mismunandi verði til að setja upp um áramót-
in. Hattarnir á myndinni kosta allt frá 80-770 króna. Ýluranarnir kosta 38
krónur og litlu trompetarnir kosta 50 krónur, grimurnar kosta 14 krónur og
nefin 50 krónur. Borðarnir, sem eru seldir í sivalningum, kosta 82 krónur.
Þessar vörur fást í Pennanum. DV-myndir KAE
Við áramótaborðhaldið er við hæfi að hafa knöll og ekki sakar að finna
málshátt þegar búið er að sprengja. Þá er gott að finna einhver mann-
bætandi skilaboð til að fara eftir.
Grímur eins og þessar með óskaútliti hvers og eins kosta 990 krónur. Mennirnir á myndinni heita f.v.
Til að sleppa við uppvask á gamlárskvöld er heppilegt að kaupa sér bara
pappadiska og glös. Diskarnir (8 stk.), glösin (8 stk.) og servíetturnar (20
stk.) kosta 150 krónur hver pakki. Borðsprengjurnar kosta 3 í pakka 380
krónur.
I AKIB K*ÁTT I
JOU-
(inriaix
Síðasti skilafrestur
er i kvöld.
Sendið inn alla 10 seðlana í einu umslagi.
Glæsilegir vinningar.