Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1988, Síða 40
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Ráðherrafund-
ur um Arnar-
flugsmálið
í dag verður haldinn fundur fjög-
urra ráðherra sem falið hefur verið
aö fjalla um fjárhagserfiðleika Arn-
arflugs hf. Þetta eru ráðherrarnir
Steingrímur J. Sigfússon samgöngu-
ráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra, Jón Sigurðsson
viöskiptaráðherra og Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
Málefni Arnarflugs hf. voru til
umræðu á ríkisstjórnarfundi í gær
en þar voru engar ákvarðanir teknar
en ákveðið að ráðherrarnir héldu
með sér þennan fund í dag.
Rætt hefur verið um að Flugleiðir
hf. kaupi hlutabréf í Arnarflugi fyrir
100 milljónir króna en vitað er að
'Arnarflugsmenn eru lítt hrifnir af
því. Þeir telja að þá væri allt sem
heitir samkeppni úr sögunni. Þá er
einnig inni í myndinni að ríkið breyti
skuld Arnarflugs hf. viö það í hluta-
bréf. Ekki er talið víst að þetta tvennt
dugi til að bjarga rekstri félagsins og
er talið aö aukið hlutafé fyrir utan
þetta verði að koma til. -S.dór
* Læknamáliö í Grindavík:
Hæstiréttur
felldi úrskurð-
inn úr gildi
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úr-
skurð héraðsdóms vegna kröfu Rík-
isendurskoðunar um nðgang að
sjúkraskrám Heilsugæslu Suður-
nesja í Grindavík. Niðurstaða
Hæstaréttar er byggð á því að úr-
skurðurinn, sem var kærður til
Hæstaréttar, er víðtækari en krafa
Ríkisendurskoöunar.
k Ríkisendurskoðun mun leggja
fram aðra kröfu - sama efnis. Ur-
skurður héraðsdóms, vegna þeirrar
kröfu, mun liggja fyrir snemma á
næsta ári.
-sme
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIRMENN
LOKI
Máekkisetjafarbann
á þá félaga?
Formenn A-flokkanna
hyggja á fundaherferð
- hefur veríð rætt en ekkert ákveðið, segir Ólafur Ragnar
í undirbúningi er að þeir Ólafur
Ragnar, formaður Alþýðubanda-
iagsins, og Jón Baldvin, formaður
AlþýðuQokksihs, leggist í sameig-
inlega fundaherferð vítt og breitt
um landið eftir áramótin.
„Það er rétt að við höfum rætt
um að fara í fundaherferð um
landið en það hefur ekki verið
gengið endanlega frá því," sagði
Ölafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, aðspurður
um þetta mál.
Ólafur var spurður hvort þeir
færu í fundaferðina formlega sem
ráðherrar eða sem formenn A-
flokkamia. Hann sagði að ekki
væri hægt að greina þar í milli og
menn yrðu að hafa sína skoðun á
því hvort þeir litu á þá sem tvo
ráðherra úr ríkisstjóminni eða
sem formenn A-flokkanna.
Það kom fram í haust, í kringum
ríkisstjómarmyndunina og eftir
lifrarmáltíð þeirra Ólafs Ragnars
og Jóns Baldvins, að áhugi væri á
að skoða sameiningu A-flokkanna.
Samkvæmt heimildum DV er
þessi fyrirhugaða fundaherferð
þeirra tvímenninganna, ef af verð-
ur, liður í þeirri viðleitni að aukin
samvinna eða sameining eigi sér
stað hjá A-flokkunum.
-S.dór
Mikil hálka var á götum Reykjavíkur í morgun. í Ártúnsbrekku varð harður árekstur þriggja bíla á áttunda timan-
um. Einn maður var fluttur slasaöur á slysadeild. Bilarnir skemmdust allir töluvert. DV-mynd S
Aöalstjómarfundur Borgaraflokksins:
Ekki kosið um varaformanninn
Að sögn Júlíusar Sólnes, formanns
Borgaraflokksins, verður ekki kosið
um varaformann flokksins á aðai-
stjórnarfundi í kvöld. Júlíus, sem er
einnig formaður aðalstjórnar, ræður
dagskrá fundarins.
Júlíus sagði að málin yrðu rædd
„vítt og breitt“ og jafnvel yrði ein-
hver umræða um varaformannsem-
bættið. Þá sagði Júlíus að formlega
yrði gengið frá formannsskiptunum
á fundinum.
Ingi Björn Albertsson sagði í sam-
tali við DV í morgun að hann teldi
nauðsynlegt að ganga frá kjöri nýs
varaformanns strax. Hann sagðist þó
varla eiga von á því að um þaö yrði
kosið á fundinum í kvöld. -SMJ
Ríkisstjómin:
Ný lánskjara-
vísitala
sett í salt
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum
í gær að fresta ákvörðun um upptöku
nýrrar lánskjaravísitölu um þrjá
mánuði. Gamla lánskjaravísitaian
mun því gilda áfram auk þess sem
heimilt verður að miða verðtrygg-
ingu við gengi.
I stjórnarmyndunarviðræðunum í
haust var ákveöið að nýr grundvöll-
ur lánskjaravísitölu tæki við um ára-
mót. Sá grunnur átti að vera samsett-
ur úr launavísitölu til helminga á
móti framfærsluvísitölu og bygging-
arvísitölu.
Þessar hugmyndir hafa frá upphafi
mætt harðri andstöðu Seðlabankans,
embættismanna og forsvarsmanna
viðskiptabankanna. Meðal annars
hefur verið bent á að nær útilokað
sé að reikna út launavísitölu svo
nákvæmlega að forsvaranlegt sé að
leggja hana til grundvallar um helm-
ings af öllum flárskuldbindingum
landsmanna.
Frá og með áramótum verður
heimilt að miða verðtryggingu viö
tvær svokallaðar myntkörfur en
gengisbinding hefur verið heimil frá
1979. Heimilt verður að miða annars
vegar við myntkörfu Evrópubanda-
lagsins (ECU) og hins vegar við svo-
kölluð sérstök yfirdráttarréttindi
(SDR) sem eru samsett úr myntum
sjö iðnríkja.
Frá miðju ári 1986 hefur ECU
hækkað um 29,6 prósent en SDR um
28,7 prósent. Lánskjaravísitalan hef-
ur hlns vegar hækkað á sama tíma
um 56,4 prósent. Frá miðju ári 1986
hefði því þessi gengisviömiðun gefið
sparifjáreigendum og lánveitendum
tæplega 18 prósent lakari ávöxtun en
lánskjaravísitalan.
-gse
Evrópumótið 1 skák:
Jafnt hjá
Þresti
Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli
í skák sinni við Manca frá Ítalíu í 8.
umferð Evrópumeistaramótsins í
skák. Þröstur er nú í 8.-14. sæti meö
4,5 vinninga. í mótinu verða tefldar
13. umferðir. Efstir eru Gelfand og
Dreev frá Sovétríkjunum og Fabrego
frá Spáni. -SMJ
Veörið á morgun:
Hvöss
norðan-
átt
Á morgun verður allhvöss
norðanátt með éljum á Norður-
og Norðvesturlandi en hægari og
úrkomulaust í öðrum landshlut-
um.