Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. Fréttir Útgerðarfélag Akureyringa og kvótaskerðingin: Getur þýtt um tvö þús und tonna fyrir okkur - segir Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastj óri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Ég hef ekki nákvæmar tölur um hvað þessar skerðingar á veiðum geta þýtt fyrir okkur en það er ekki ósennilegt að þetta þýði 2000 tonna minni afla fyrir okkar skip,“ segir Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf„ um skerðingu á kvóta og úthalds- dögum sóknarmarksskipa á þessu ári miöað við sl. ár. „Þaö er fátt til vamar þegar svona staða kemur upp,“ segir Vilhelm. „Það er til sú leið að fækka skipum og ná samt sem áður sama afla á land en það er margt sem tengist þessu máh öllu.“ Samdráttur á aflakvóta og úthalds- dögum sóknarmarksskipa nemur 10% miðað við fyrra ár. Undir lok þess árs kom sú staða upp að togarar ÚA voru búnir með kvóta sinn, en þá gekk erfiðlega að fá keyptan við- bótarkvóta. „Það verður án efa erf- iðara núna því að þessi aflaminnkun gildir að sjálfsögðu um allt land. Á sama tíma krefjast allir aukinnar verðmætasköpunar svo hægt sé að eyða meiri peningum, en þessi verð- mætasköpun hefur aðallega farið fram í þessari atvinnugrein," sagði Vilhelm. Gísli Konráðsson, hinn fram- kvæmdastjóri ÚA, sér um vinnslu fyrirtækisins á afla togaranna, og hann sagði við DV um kvótaskerð- inguna: „Það er ósköp einfalt að þetta þýðir minnkandi framleiðslu en við getum unnið miku meiri afla en við fáum að veiða. Þetta þýðir að við munum minnka saltfiskverkun og reyna að setja sem mest af aflanum í frystihúsið. Það var eins gott að vera vel búinn í Bláfjöllum á laugardaginn. Yfir tíu stiga frost var og hvasst. Á myndinni má sjá hvernig best er að búa sig í slíku veðri, hylja andlitið helst að öllu leyti og vera með hlífðargleraugu. Þeir sem ekki voru þannig útbúnir voru fljótir frá að hverfa. Alltaf má bú- ast við svona veðri I byrjun skíöatímabilsins. DV-mynd KAE Enginn halli á vöruskiptum Vöruskiptuíöfnuður á fyrstu ell- efu mánuðum síðasta árs var já- kvæöur um 67 milljónir króna. Það er hagstæðari útkoma en í fyrra þegar halli var á vöruskiptum upp á 247 miUjónir á fyrstu ellefu mán- uöunum. Almennur innflutningur dróst saman ura 2,7 prósent frá fyrra ári. Innflutningur á skipum jókst hins vegar um helming. Saradrátt- ur varð upp á 7,3 prósent í útflutn- ingi sjávarafla en afurðir stóriðj- unnar jukust umtalsvert -gse Er steinull sjúkdómavaldur? - von á skýrslu frá Vinnueftirlitinu Líkur eru á að steinull valdi sjúk- dómum berist fíngerðir þræöir ullar- innar í miklum mæli í öndundarfæri manna. Hins vegar er ekki hægt aö sanna samhengið á milli sjúkdóma eins og krabbameins og steinullar. „Um sambandiö milli steinullar og krabbameinssjúkdóma er ekkert sannaö en heldur er ekki hægt að þvertaka fyrir tengsl þar á milli,“ segir Víðir Kristjánsson, deildar- stjóri Vinnueftirlitsins. Á næstunni er von á skýrslu frá Vinnueftirlitinu þar sem metin er hættan á heilsutjóni af völdum stein- ullar. Tilefni skýrslunnar er efa- semdir um að steinull skuli notuð í einangrun nýja sjúkrahússins á ísafirði. Víðir sagði að engar mælingar, sem hann þekkti til, hefðu sýnt fram á að steinullin mengaði frá sér í húsum sem væru einangruð meö henni. Helsta hættan á heilsuskaða af völdum steinullar er annars vegar við framleiðslu hennar og hins vegar við vinnu með steinull. Víðir sagði brýnt að iðnaðarmenn notuðu sér- stakan hlífðarfatnað þegar þeir ynnu með steinull. Um starfsmenn stein- ullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki sagði Víðir að þeir væru í reglulegri læknisskoðun og ekkert hefði komið fram sem benti til að þeir bæru heilsutjón af starfa sínum. -pv Ölvun 1 Keflavík: Margir í fangageymslu Fangageymslur lögreglunnar í gesta var hleypt út, fylltust strax þau Mikil ölvun var í Keflavík og ná- Keflavík voru mikið notaöar um rúm sem losnuöu. Fullsetið var í grenni um helgina og erfíl því mikfíl helgina. Aðfaranótt laugardagsins fangageymslunni fram á miðjan hjá lögreglu. voru tíu manns í fangageymslunni. laugardag. Aðfaranótt sunnudagsins -sme Um morguninn, þegar hluta nætur- voru tveir í fangageymslunum. í dag mælir Dagfari Ekki benda á mig Fjármálaráðuneytið hefur upp- götvað að hallinn á ríkissjóði reyn- ist tíu sinnum meiri en ráðuneytið hélt fyrir nokkrum vikum. Reynd- ar lágu fyrir rökstuddar grunsemd- ir um að ríkissjóðshallinn væri ekki allur þar sem hann er séður, því í hvert skipti sem Ólafur Ragn- ar Grímsson opnaði munninn í þinginu í haust, tfíkynnti hann nýja tölu um hallareksturinn. Þett var orðið eins og á kosninganótt, nýjar tölur á klukkutíma fresti og allir biðu spenntir, þegar nýi fjár- málaráðherrann tók tfí máls. Fjármálaráöuneytið lætur sér fátt um finnast, þótt áætlanir standist ekki. Hvað er einn millj- arður á milli vina, hvað þá ein milljón tfí eða frá? Menn hugsa ekki svo smátt í ráðuneyti, þar sem peningar eru bara leikur með tölur og fólkiö úti í bæ borgar hvort sem er. Ef eitthvað vantar upp á, má alltaf gefa út gúmmitékka á Seðla- bankann, sem prentar seðlana og íjármálaráðuneytið hefur ekki frekari afskipti af. Auk þess eru þetta ekki reikningar fjármála- ráðuneytisins. Þetta eru reikningar frá ríkisstofnunum og ríkisfyrir- tækjum og ríkisstarfsmönnum, sem eru að vinna þjóðþrifastörf sem ekki verður hjá komist ef ríkið á að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til þess. Þetta eru reikn- ingar frá lífsnauösynlegum at- vinnugreinum sem ekki bera sig og eiga hvergi höfði að halla nema hjá hinu opinbera sem greiðir nið- ur framleiðsluna og borgar með rekstrinum til aö fólkið hafi at- vinnu. Það er í hæsta máta ósanngjamt að velta ráðuneytinu upp úr því að þaö viti ekki hvað það kostar að reka ríkið. Það má ekki gleyma því aö yfir fjármálaráðuneytinu trónar fjármálaráðherra sem ræður stefn- unni og segir til um það hvað á að borga og hvað ekki. Það sem flækir málið er að á síðasta ári voru tveir fjármálaráöherrar. Jón Baldvin stjómaði fram í október, Ólafur Ragnar fram að áramótum. Þeir muna ekki sjálfir hvaö þeir leyfðu og hvað þeir leyfðu ekki og hvemig á þá ráðuneytið að muna það? Nú eru þeir Jón Baldvin og Ólaf- ur Ragnar komnir í hár saman um hver hafi skrifað upp á hvað. Sjálf- sagt gleymt þessu smáræði með milljarðana þegar þeir fóm um á rauðu ljósi og skemmtu landslýö með bröndurum um alla hina pólit- íkusana, sem ekki réðu yfir neinum milljörðum. Svo hafa þeir sjálfsagt sagt brandara af sjálfum sér í leið- inni, enda hefur Ólafur Ragnar upplýst það í viötali að kímnigáfa þeirra félaga sé með afbrigðum góð og brandaramir fjúka yfir borðið þegar landstjórnin situr og ræður ráðum sínum. Það er nú aldeilis munur fyrir þjóðina að vita hvað það er skemmtilegt á fundunum í ríkisstjóminni og gott að vita að ráðherrar hafi ekki teljandi áhyggj- ur af því þótt nokkra milljarða vanti upp á ríkisreksturinn. Það er ekki fyrr en Ólafur Ragnar er hættur á rauðu ljósi sem hann læðir því út úr sér að hallinn hjá Jóni hafi verið sjö milljarðar. Þetta hefur sennilega átt að vera nýjasti brandarinn hjá Ólafi Ragnari. Jón Bcfídvin lætur ekki segja sér svona brandara tvisvar og minnir Ólaf Ragnar á að hann eigi líka sinn skammt af mfíljörðunum. Ekki bend’á mig, segir Jón. Ekki bend’á mig, segir Ólafur og maður sér ekki betur en að þeir félagarnir verði að fara í aðra fundaherferð til að útskýra fyrir almenningi hvað sé fyndið við þennan brandara. Kímnigáfa ráðherranna er ber- sýnfíega ekki alveg í takt við þjóð- arhúmorinn. Ríkissjóðshallinn er ekki stór- vægilegt vandamál. Sennilega að- hlátursefni f ríkisstjórninni, miðað við kímnigáfuna á þeim bæ. Vanda- málið snýst um það, hver eigi heið- urinn af þessu afreki í ríkisfjármál- unum. Mikið var það heppfíegt að nýr fjármálaráðherra skyldi skip- aður á árinu. í stað þess að benda á einn sökudólg geta sökudólgarnir bent á hvorn annan og enginn þarf að játa á sig sök. Hvernig væri að leyfa Borgaraflokknum að taka við fjármálaráðuneytinu eftir helgi? Þá má aftur deila um næsta ríkissjóðs- halla og enginn þarf að taka á sig sökina. Og allir geta skemmt sér í ríkistjóminni og sagt brandara af ríkissjóðshalla, sem enginn ber ábyrgð á. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.