Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 42
42
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989.
Sviðsljós
Iinda Evans
lítur ekki glaðan dag um þessar
mundir. Kærastinn, Richard Co-
hen, labbaði út og flutti inn til
bestu vinkonu Lindu. Linda segir
öllum sem heyra vilja að vinkon-
an hafi rænt frá sér eina mannin-
um sem hún hafi elskað um
ævina. Jafnframt lýsir hún því
yfir með harmþrunginni röddu
að við vinkonuna tali hún sko
ekki meir. Það ætti engan að
undra - það hefur nú slest upp á
vinskap af minna tilefni.
Margir eldri borgarar lögðu leiö sína í Geröuberg þegar Unnur kom þar
við. Hún sýndi einnig í flestum af níu félagsmiðstöðvum borgarinnar.
Nýbreytni í félags-
starfi eldxi borgara
Að undanfomu hefur Unnur Guð-
jónsdóttir ballettmeistari heimsótt
félagsmiðstöðvar Reykj avíkurborg-
ar og sýnt eldri borgurum kínverska
dansa og búninga. Auk þess hefur
hún kynnt tónlist og sýnt litskyggnur
frá ferðum sínum í Kína. Eldri borg-
ararnir tóku Unni, sem er búsett í
Svíþjóð, mjög vel. Á undanfórnum
árum hefur hún m.a. komið heim til
íslands og lagt hönd á plóginn við
ballettsýningar Þjóðleikhússins. Al-
talaö var aö þessi nýbreytni hafi ver-
ið kjörin tilbreyting í starfi eldri
borgara. Þrátt fyrir slæma færð að
undanförnu kom fjölmargt fólk á
þessa sýningu í flestar af þeim níu
félagsmiðstöövum sem Reykjavíkur-
borg starfrækir. Anna Þrúður Þor-
kelsdóttir, starfsmaður hjá félags-
starfi eldri borgara, segir að víöa í
borginni sé gróskumikið félagsstarf
sem eldra fólkið tekur virkan þátt í.
Ólyginn
sagði...
Mjög góð þátttaka var á námskeiðinu fyrir knattspyrnuþjálfara sem var
haldið í Garðaskóla. Þarna voru saman komnir allir bestu þjálfarar landsins.
um. Erling Ásgeirsson, formaður skeiðsins fengu allir viðurkenning-
æskulýðs- og tómstundaráðs Garða- arskjal auk bolta og penna sem Sanit-
bæjar, kynnti tómstunda- og æsku- as gaf ölium þjálfurunum.
lýðsstarf Garðabæjar. í lok nám-
Skagamennirnir hlustuðu af athygli á leiðbeiningarnar. Fremstur situr Guð-
jón Þórðarson, þjálfari KA, næstur honum Hörður Helgason, þjálfari Vals-
manna, þá Sigurður Lárusson, þjálfari ÍA, en fjærst situr Jóhannes Atla-
son, þjálfari Stjörnunnar. Skyldi fótboltinn verða betri í þeirra herbúðum i
sumar? DV-myndir Aöalsteinn
Það var „stut|ermapeysuveður“ þegar þessi mynd var tekin. Hér getur
að lita friðan hóp Vestfirðinga. Þetta eru blaðberar DV sem sjá um að
koma blaðinu til lesenda á Bíldudal. Þama skipar kvenfótkið veglegan
sess - sex stelpur og einn strákur. Þau heita, talið f.v. að ofan: Edda,
Hjörtur og Jóna. Að neðan: Anna Vilborg, Peta, Klara og Dagbjört.
Myndina sendi Helga Gisladóttir, umboösmaður DV á Bildudal.
Greta Garbo
hefur í tæp fimmtíu ár forðast
sviðsljósið og fjölmiðlana. Þegar
hún dró sig í hlé stóð hún hátindi
frægöar-sinnar og var virt og dáö
af almenningi. Öðru hveiju hafa
sprottið upp sögur um þessa
sænskættuðu leikkonu. Hún hef-
ur alltaf neitað að ræða líf sitt
opinberlega og gerir enn. Nú
stendur til að gera sjónvarps-
myndaflokk um ævi þessarar
dularfullu konu. Hún hefur neit-
að framleiðendum um samstarf
og fjölmiðlar ná ekki orði frá
henni. Greta Garbo er nú rúm-
lega áttræð og sennilega alveg
sama hvernig ævi hennar verður
matreidd fyrir sjónvarpsáhorf-
endur.
lisa Bonet
og eiginmaðurinn Lenny Kravitz
defia nú stíft um framtíð dóttur-
innar, Zoe. Ágreiningsmálið er
af trúarlegum toga því hjónin játa
ekki sömu trú. Lisa er áhangandi
búddisma en Lenny er gyðingur
í húð og hár. Bæði halda sinni trú
að baminu sem skilur hvorki upp
né niður. Blanda af þessu tvennu
getur að sögn trúspekinga ekki
gengið til lengdar.
Knattspyrnuþjálfarafélag íslands
hélt nýlega námskeið fyrir þjálfara á
vegum félagsins. Þátttaka var mjög
góð og mættu um 50 manns í Garða-
skóla í Garðabæ. Menn voru ánægðir
með útkomuna og minnast menn
ekki að hafa séð svo marga fyrstu
deildar þjálfara saman komna á
námskeiði.
Lögð var áhersla á kennslu í
sprengikrafts- og hraðaþjálfun.
Knattspyrnumenn leituðu til Þráins
Hafsteinssonar, fyrrum landsliðs-
þjálfara í fijálsum íþróttum, um leið-
sögn við þetta verkefni, en hann hef-
ur m.a. aflað sér þekkingar á þessu
sviði í Austur-Þýskalandi og Frakk-
landi. Þráinn leiðbeindi þjálfurum
bæði bóklega og verklega með við-
fangsefnið - hann naut aðstoðar sex
drengja úr 2. flokki Stjörnunnar við
verklegar æfingar.
Garðaskóli bauð KÞÍ alla aðstöðu
að kostnaðarlausu á meðan á nám-
skeiðinu stóð. Góð aðstaða er til
funda- og námskeiðahalds í skólan-
Sigurður Lárusson fró Akranesi og Marteinn Geirsson, þjálfari Fylkismanna,
ræðast hér við i kaffihléi. Viö hliðina spjallar Guðni Kjartansson, liösstjóri
landsliðsins í knattspyrnu, við Þráin Hafsteinsson, leiðbeinanda á námskeið-
inu.
Á námskeiðinu var lögð áhersla á
kennslu í hraða- og sprengikrafts-
þjálfun. Þráinn Hafsteinsson nýtur
hér aðstoðar nokkurra stráka úr 2.
flokki Stjörnunnar með verklega
þáttinn.
Sú nýbreytni var nýlega tekin upp hjá félagsstarfi aldraðra að fá Unni
Guöjónsdóttur ballettmeistara til að sýna kínverska dansa o.fl. sem tengist
þessu framandi landi. DV-myndir S
Knattspyrna:
Bestu þjálfarar landsins
á námskeiði