Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 19
citi vlll teggur mál dómstóla þeir hjá Moss ætla sér að verða ríkir, segir Gurrnar Gíslason ....verði að vera 12 raánuði í KR áður „Það er greinilegt að þeir hjá Moss ætla sér að verða ríkir á þessu máli. En þeir eru orðnir tvöfaldir í roð- inu því á sama tíma og þeir heimta 8,9 milljónir fýrir mig eru þeir að fá leikmann frá sænsku liöi og vilja aðeins borga 800 þúsund krónur fjTir hann en S víarn- ir hyggjast fá 4,7 milljónir,“ sagði Gunnar Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu, í samtali við DV í gær. Eins og DV sagöi írá á föstudaginn hefur norska liðiö Moss krafist þess að fa 8,9 míUjónir ki’óna frá sænska félaginu Hácken fyrir Gunnar Gíslason, en hann fór til Hacken í vetur eftir aö hafa leíkiö meö Moss síðustu tvö keppnistímabU. Rætt um sama verð , ,Þegar ég ræddi við forráðamenn Moss eftir að Ijóst var orðið að ég færi til Svíþjóðar, kom aldreiannað fram en að Hácken myndi greiöa svipaö verð og þegar Moss fékk mig frá KR eða um 900 þúsund krónur. Þess vegna kemur mér mjög á óvart sú harka sem Moss hefur sett í þetta mál J fyrrasumar fékk félagið 8,9 milljónir þegar þaö seldi Erland Johnson til Bayern Miinchen og mér þykir skjóta skökku við þegar það fer fram á sömu upphæð fyrir raig frá áhuga- mannafélagi,“ sagði Gunnar. Vil fá málið fyrir dómstól Gunnar tilkynnti félagaskipti úr Moss yfír í KR fyrir helgina og hyggst síðan skipta þaðan yfir í Hácken. „Ég held að það sé alger- lega úr lausu lofti grlpið hjá Norð- mönnunum þegar þeir segja aö ég en ég geti afiur skipt um félag. Eg er búinn að vera í sambandi við knattspymusamböndin heima og hér í Svíþjóð og næsta skref hjá mér er að ráðgast við lögfræðing. svo ég fari ekki aö gera einhver mistök. Síðan vU ég að málið komi fyrir dómstóla sera aUra fyrst en í samningi minura viö Moss var tek- ið fram að ef til deUna kæmi raiHi mín og félagsins yrðu þær leiddar fyrir dómstól í Reykjavík. Ég þarf að vera skráður í KR í einn raánuð og síðan taka félagaskiptin til Sví- þjóðar hálfian mánuð tíl viöbótar. Keppnistíraabilið hér i Svíþjóð hefst ura miðjan aprö þannig að þetta má ékki dragast mikiö,“ sagði Gunnar. Ágústi Má gengur vel Hácken hefur undanfarið leikið i „Hall-svenskan*', innanhússmóti raeð ll manna liðum sem jafnan er leikið í Svíþjóð yfir vetrarmán- uðina. Liðið náöi ekki að komast áfram úr sínum riðh og Gunnar gat ekki leikið meö því vepayandræð- anna með félagaskiptin. Ágúst Már Jónsson, fyrirliði KR-inga á siðasta sumri, sem einnig er kominn til Hácken, spilaöi hlns vegar með og að sögn Gunnars var hann besti raaður liðsins. -VS Stefnt að pressu- leik á föstudag - leikið 1 Lúxemborg um næstu helgi „Við höfum mikinn áhuga á pressuleik og hann fer að öllum lík- indum fram á föstudag. Það er verið að vinna í þessu máh núna,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, í samtaii við DV í gær. „Þá ætlum við einnig að leika í Lúxemborg en viö dveljum þar á leið okkar tU Frakklands. Við munum spUa einn leik við heimamenn en sá leikur verður opinber landsleikur milh þjóðanna," sagði Jón Hjaltalín. Formaðurinn kvað aUt tíðindalaust í landsliðsþjálfaramálinu, aðspurður um það efni. -JÖG Skarphéðinsmenn voru sigursælir -1 fimmtarþrautinni innanhúss HSK átti þijá efstu menn í karla- flokki á íslandsmótinu í fimmtar- þraut innanhúss sem fram fór um helgina í Baldurshaga og á Laugar- vatni. Auðunn Guðjónsson sigraði, hlaut 3.425 stig, Jón Arnar Magnús- son varð annar með 3.375 stig og Ólaf- ur Guðmundsson varð þriðji með 3.179 stig. Jón Arnar setti í leiðinni tvö Skarp- héðinsmet, 7,0 sekúndur í 50 metra grindahlaupi og 5,8 sekúndur í 50 metra hlaupi, og Auðunn eitt þegar hann fór yfir 4,30 metra í stangar- stökki sem er sjötti besti árangur ís- lendings innanhúss. Berglind Bjarnadóttir, UMSS, sigr- aði í kvennaflokki með 3.395 stig, Guðbjörg Svansdóttir, ÍR, varö önn- ur með 3.188 stig en hún var efst fyr- ir síðustu grein og þriðja varð Þuríð- ur Ingvarsdóttir, HSK, með 3.000 stig. -ÓU/VS Axel heldur áfram Ægir Már Káiason, DV, Suöumesjum’ Axel Nikulásson hefur ákveðið að leika áfram meö körfuknattleikshði Keflvíkinga út þetta keppnistímabfi, og er byijaður að æfa með því á nýj- an leik. Eins og áður hefur komið fram íhugaði hann að hætta eftir að Lee Nober, þjálfara ÍBK, var sagt upp störfum á dögunum. Keflvíkingum er mikiU akkur í að hafa Axel áfram innanborðs í þeim átökum sem framundan eru í úrslita- keppninni um íslandsmeistaratitU- inn, enda er hann fimasterkur og reyndur leikmaður. Þau Þórdís Edwald og Broddi Kristjánsson urðu íslandsmeistarar í gær í einliðaleik í badmin- ton. Fjallað er um íslandsmótið, sem fór fram í Laugardalshöll, í miðopnu blaðsins. DV-mynd Brynjar Gauti Pétur aftur í uppskurð? - M vegna meiðsla í minnst mánuð 1 viðbót Þaö verður enn biö á því að Pétur Guðmundsson körfuknattleiks- maður geti farið að leika með liöi sínu, San Antonio Spurs, í banda- rísku atvinnudeUdirmi. Hann hef- ur verið frá vegna meiðsla á hné frá 28. desember og nú eru horfur á að hann verði fjanærandi í a.m.k. einn mánuð í viðbót. Pétur var skorinn upp vegna þessara meiðsla seint á síðasta ári og þau tóku sig upp á ný fljótlega eftir að hann byijaði aftur að spila. „Hnéð veröur speglað á þriöju- daginn og þá kemur Hjós hvort ég þarf að fara i annan uppskurð eða hvort ég get byxjaö að þjálfa mig upp á nýjan leik. Ef seinni kostur- inn verður ofan á geri ég ráð fyrir að það taki mig mánuð að komast i gang. Ég er óánægður með þá lækna og sjúkraþjálfara sem ég hef verið bjá og líka með sjálfan mig - að ég skyldi láta pressa mig í að fara að spUa aftur í desember, aö- eins þremur vikum eftir uppskurö- inn,“ sagði Pétur í samtah við DV í gær. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.