Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Blaðsíða 44
44 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. Andlát Halldóra (Dóra) Lindal, Haukanesi 20, Garðabæ, lést í Landspítalanum í. 1. febrúar. Hlif Hjábnarsdóttir, Noröurbrún 1, áður Bergstaðastræti 30, lést í Vífils- staðaspítala 3. febrúar sl. Guðrún Jónsdóttir frá Holtakoti, Austurbrún 6, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 4. febrúar. Jarðarfarir Einar Leó Guðmundsson lést 26. jan- úar. Hann fæddist 4. desember 1928 á Hólmavík. Foreldrar hans voru Sigríður Sigurðardóttir og Guð- mundur Jónsson. Einar var skó- smiður að mennt og vann við þá iðn af og til til dauðadags. Einar giftist Margréti Erlu Einarsdóttur sem þá átti þrjú ung böm og gekk Einar þeim í fóðurstað. Þau hjónin eignuð- ust tvær dætur saman. Einar og Margrét shtu samvistum. Útfór hans • verður gerð frá Langholtskirkju í dag kl. 13.30. Lovísa Jóhanna Ragna Jónsdóttir, Hraunbrún 25, Hafnarfirði, lést 26. janúar sl. Útforin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðný Valmundardóttir Guðjohn- sen, Rauðalæk 15, er látin. Utförin hefúr farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sveinn Magnússon loftskeytamaður, Hrafnhólum 6, áður Víghólastíg 12, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 7. jan- úar kl. 13.30. Kristján Albertsson rithöfundur verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.30. Jarðarfor Eggerts Loftssonar, Kleppsvegi 6, sem andaðist á EUi- og hjúkrunarheimihnu Grund 27. jan- úar, fer fram frá Neskirkju í dag, 6. febrúar, kl. 13.30. Petrína Halldórsdóttir Kohlberg, sem lést í New York 30. janúar sl., verður jarðsungin frá nýju Fossvogskapell- unni þriðjudaginn 7. febrúar kl. 10.30. Bálför Stefáns Pálssonar frá Ásólfs- stöðum, Þjórsárdal, Gnúpveija- hreppi, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 15. Jóhannes Jóhannsson frá Bæ, Mela- braut 23, Hafnarfirði, verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 15. Tilkyimingar Framkonur Fundur í kvöld kl. 8.30 í Framheimilinu viö Safamýri. Heiöar Jónsson snyrtir mætir á fundinn. Mætiö tímanlega. Stjómin. Kvennadeild Barðstrendingafélagsins heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 7. fe- brúar kl. 20.30 aö HaUveigarstöðum. Gestur fundarins veröur Friðgerður Friögeirsdóttir. Safnaðarfélag Ásprestakalls Aöalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20.30 í félags- heimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Frú Ragna Jónsdóttir kemur á fundinn og segir frá kvennaráðstefhu í Osló sl. sum- ar. Bolludagur, sprengidagur og svissnesk sælkeravika á Hótel Borg Vikuna 6.-12. febrúar er svissnesk sæl- keravika á Hótel Borg. Þá gefst gestum færi á að kynnast svissneskri matargerö- arlist og hlusta á tónlistarmenn sem hingað eru komnir beint úr flallahéruð- um Mið-Evrópu. í hádeginu á bolludag- inn og í hádeginu á sprengidaginn verður matseldin þjóðleg. A bolludaginn verða Fréttir__________________dv Brunabót - Samvmnutryggingar Stofnuðu Vátrygginga- félag íslands hf. í gær fiskibollur og Kjötbollur af ýmsum gerð- um í hádeginu og standandi rjómabollu- hlaðborð allan daginn. Á sprengidaginn verður saltkjöt og baunir í hádeginu. í hádeginu aðra daga vikunnar er boðiö upp á 10-12 rétta hlaðborð með svissnesk- um uppáhaldsréttum, sniðið að þörfúm þeirra sem vinna í miðbænum. Verðið er 890 krónur. Á kvöldin alla vikuna verður opnað fyrir svissneska gnægta- homið svo út úr flóir og borðið hlaðið stórsteikum, svissneskum sérréttum, eplaréttum, salötum og margs konar öðm svissnesku góðgæti fýrir kr. 1.500 á mann. Bæði í hádeginu og á kvöldin skemmta tónlistarmenn með hefðbund- inni tónlist úr fjallahéruðum Mið-Evr- ópu. Borðapantanir á Hótel Borg í síma 11440. Erindi um beitarrannsóknir Á vegum Rannsóknastofnunar land- búnaðarins og Búnaðarfélags íslands em hér staddir tveir sérfræðingar á sviði beitarrannsókna. Þeir munu halda erindi á vegum Líffræðifélags íslands í kvöld, 6. febrúar, kl. 20.30 í stofu 101 í Odda, húsi Félagsvísindadeildar Háskóla ís- lands. Allt áhugafólk velkomið. Kvenfélag Háteigssóknar heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Að loknum fundarstörfum verður borið fram kaffi. Tryggingafélögin Brunabótafélag íslands og Samvinnutryggingar stofnuðu nýtt hlutafélag í gær kl. 17. Nýja tryggingarfélagið hlaut nafnið Vátryggingafélag íslands hf. og mun að verulegu leyti taka yfir rekstur stofnenda sinna. „Það þurfti dirfsku til að standa fyrir þessu. Félögin tvö voru erki- fjendur til skamms tíma,“ segir Ingi R. Helgason, forstjóri Brunabótafé- lags íslands. Fulltrúaráðsfundur Bnmabótar samþykkti á laugardag að ganga til samstarfs við Samvinnutryggingar. Á fundinum sannfærðu forsvars- menn Brunabótar sveitarstjórnar- menn um að viðskipti við Brunabót yrðu með sama hætti og áður. Sveit- arfélögin eru stærstu eigendur, Brunabótar og óttuðust sumir að sveitarfélögin myndu ekki fá sömu þjónustu og áöur eftir að nýja félagið er stofnað. Hlutafé nýja félagsins skiptist jafnt á milh Brunabótar og Samvinnu- trygginga. Öllu starfsfólki fyrirtækj- anna tveggja er sagt upp frá og með í dag. „Það verða flestir endurráðnir, en á þessari stundu get ég ekki sagt til um hve margir missa vinnuna," sagði Ingi R. Helgason, forstjóri Brunabótar og stjómarformaður Vátryggingafélags íslands hf., í morgim. -pv Tónleikar I Garðakirkju Listasjóður Tónlistarskóla Garðabæjar heldur tónleika í Garðakirkju þriðjudag- inn 7. febrúar kl. 20.30. Á tónleikum þess- um koma fram þeir Kristján Stephensen óbóleikari, Þröstur Eiríksson orgelleik- ari og Gunnar Kvaran sellóleikari, en þeir eru allir kennarar við Tónlistarskóla Garðabæjar. Þröstur og Kristján leika saman Partítu í C-dúr og Partítu í d-moll eftir Johann Wilhelm Hertel (1727-1789), Þröstur leikur Prelúdu og fúgu í h-moll eför Johann Sebastian Bach (1685-1750) og Gunnar leikur Svitu fyrir einleiksselló eftir Johann Sebastian Bach. Allur ágóði af tónleikum þessum rennur í listasjóð Tónlistarskóla Garðabæjar en sjóðurinn veitir ferðastyrki til nemenda sem huga á framhaldsnám erlendis, til kennara sem sækja endurmenntunamám erlend- is og kaupir listaverk til þess að prýða húsakynni tónlistarskólans. Krof ur aðalsfjórnar voru ekki virtar - seglr Ingi Biöm Albertsson „Ég gat ekki verið í þessum við- ræðum áfram á þeim grundvelli sem lagður var fyrir okkur í gær. Aðal- stjórn Borgaraflokksins hafði sam- þykkt tvær meginkröfur - að matar- skatturinn yrði felldur niður og að Borgaraflokkurinn sæti við sama borð og hinir flokkarnir við skipt- ingu ráðuneyta. Ég gat ekki séð að þessar kröfur yrðu virtar," sagði Ingi Björn Albertsson, þingmaður Borg- araflokksins, en hann sagði sig úr viðræðunefnd flokksins við ríkis- stjórnina í gær. Ingi Björn sagðist hins vegar ekki vera á leiöinni úr Borgaraflokknum. -SMJ Ferðalangar úr Þórsmörk: 30 mínútna ferðalag tók tólf tíma Hópur fólks sem dvaldi í Þórsmörk um helgina er á leið til byggða. Fólk- ið er á 15 bílum og hefur ekki óskað aðstoðar. Um hádegi í gær lagði hóp- urinn af staö. Um miðnætti var hann við Jökulsárlón. í björtu og góðu veðri tekur um 30 mínútur að aka þessa leiö. Ekki er vitað til að fólkið eigi í telj- andi erfiðleikum - öðrum en þeim að ferðin sækist mjög seint. -sme -> Meiming DV Tveggja heima sýn Það er áberandi tveggja heima sýn í þessum ljóðum. Annars vegar er grámyglulegur hversdagurinn, hins veg^r heimur þjóðsagna, ridd- arasagna, ævintýra. En sá síðar- nefndi er aUs ekki settur fram sem uppbót á hversdaginn heldur not- aður til að afhjúpa að slíkt sé ekki til. gyllt snið útigangshrossin þá leitar fjársjóða í sandinum bak við myndhvarf bolabítsins nýfarinn lappabrotinn hrafnétinn með kjaftrifna marhnútnum til guðs og englanna bísperrt fjöllin brunandi yfir fjörðinn með skitna spjóskafla farfugla á herðunum en risaeðlan sem fannst hér í fyrra er endanlega horfin enn ein sönnunin enn ein sönnunin (hér er orðið „endanlega" leiðrétt- ing á prentvillu skv. viðtali við skáldið). Hér er talandinn staddur á strönd, sér til fjalla, sem eru ekki tignarleg - þótt þau hreyki sér eins og menn - heldur hálfhuhn skítug- um spjó. í þá mynd faUa vel farfugl- ar og útigangshrossin, táknmynd vanvirðu. En talandinn er að leita andstæðu þessa, fjársjóða! Af því tagi, þ.e. annarlegt í þessu um- hverfi, er bolabítur. En það er þá bara Ula farið hræ sem þar að auki er horfið ásamt öðru hræi sem að vísu er af algengum fiski, en sér- kennfiegum. Þó munar mest um þriðja hræið, forsögulegt og ipjög sjaldgæft, en líka horfið. Hið ann- arlega er sem sagt aUt hrakið, sUtið Bókmenntir Örn Ólafsson og horfið. Það er gegnumgangandi einkenni á þessum ljóðum, sýnist mér, álfakóngurinn hefur sagt af sér, Rauður ráögjafi lagstur í drykkjuskap, englarnir „líkjast mest úrvinda leðurjakkagæjum hángandi á hlemmi fá aldrei drátt né dóp og lángar ekki leingur í“. En ofangreint ljóð er margrætt í lokin, var risaeðlan sönnun ein- hvers eða er hvarf hennar það? Sönnun fyrir hveiju? í rauninni má einu gilda hvort er, aðalatriðið er hugarástand þessa tautandi tal- anda sem leitar merkingar í náttúr- unni, m.a. með því að persónugera hana. Gagnvart þessu hugar- ástandi verður náttúran enn meira yfirþyrmandi óviðkomandi þeim sem í ljóðinu talar. TitUUnn táknar það hlutfall sem fegurst hefur þótt, hæð 2 á móti grunnlínu 3. Þá er talandinn aö íhuga einhvers konar mælikvarða á fegurð gagnvart umhverfi sínu, e.t.v. er hér um að ræða hlutfaU ímyndunar og veruleika, annarlegs og hversdagslegs. Nýtttrúarskáld? Islensk þjóðtrú og frásagnarhefð er áberandi í þessum ljóðum, t.d. er í eftirfarandi ljóði tekin Uking af manni sem rekur kindur með hund sér til hjálpar. Þeir fara um snjó í nótt, hundurinn gjammar að bágrækum kindunum. En um hvað er verið að tala? Hundurinn er tunglið, kindumar stjömumar, en hver er þá fjármaðurinn? Við fáum bara neikvæðar upplýsingar um það, og allt innan ramma þjóð- trúarfyrirbæra. Þá er jafnt afneitað viðkunnanlegum jólasveininum, háskalegri fegurð Áífakóngsins eft- ir Goethe og Schubert, og óhugnaði íslenskra draugasagna. Hvert stefnir þessi fjármaður eða „hirð- ir“? Ferðin er takmark í sjálfu sér, sbr. 9.-10. línu. Altént sýna lok ljóðsins að það er ekki Djákninn á Myrká sem leiðir okkur. Það mælir þá gegn örvæntingu, en ekki verð- ur meira vitað. Hér er eins og glímt við aö ná einhveiju, sem mannleg- ur hugur grípur varla, kannski er þetta þá guð, það hggur í hlutarins eðh að hann er óþekkjanlegur. fylgd einhver á ferð gegnum nóttina hundur hans túnglið hríngsnýst um latrækar stjömur gjammandi túngl á ferð gegnum nóttina leiðin öil leiðarendi marrar í nýsnæinu einhver á ferð ekki jólasveinninn álfakóngurinn sér hvergi í hvítan blett í hnakka Sem sjá má era ljóðin ekki torskh-. in, þau em sögð með hversdagsleg- um orðum, og stríða ekki gegn rök- hugsun, eins og oft er með nútíma- ljóð. Hins vegar eru þau tálguð mjög, til að einbeitingin verði sem mest, sleppt óþörfum orðum, og einkum orðinu ég, enda þótt þau séu ævinlega persónuleg í þeim skilningi að þau eru hnitmiðuö að tilfinningu. Til er fom saga af illum gestgjafa í Grikklandi, sem sneið af ferða- mönnum eða teygöi þá, til að þeir pössuðu í gistirúmið. Ahtaf er nokkur hætta á að skáld hljóti þessa meðferð hjá gagnrýnendum, jafnvel í mestu vinsemd. Th að forðast það ætla ég að enda þennan pisth á ljóði sem ég botna ekki al- mennilega í. Þaö rís á andstæðum, annars vegar er fom munaður Faraóa, sem var eilífgjörður í veg- legum grafhýsum þeirra, hins veg- ar er íslenskur einbúi, á sinn hátt líka „grafinn niður" í greni sínu vanhirtu. Honum gæti virst að tíminn stæði kyrr, hann býr við súmaða mjólk, andstætt því að ujóta ávaxta og ambátta svo sem Faraóar foröum. Ennfremur em smyrlingar eða múmíur í gervi sí- ghdra bókmennta í hihum hjá hon- um, andstæöan væri andlegt líf hð- andi stundar. Þvi endar ljóðið á sömu spumingunni og það hófst á, en snýr nú að nútíð í stað fortíö- ar. Þannig tengjast andstæðumar í stöðnun. En, sem sagt, vonandi komast einhveijir lesendur þessa lengra en ég: pýramídar hví reistu þeir pýramída faróinn íbygginn leit inn lagði sig á bekkinn hæddi myndimar á veggnum bragðaði ávextina valdi sér ambáttir snýr lyklinum í skránni grafarfnykurinn velkunnur leiðist myndin sem hékk hjá ömmu gleymist að búa um mjólkin súr í ísskápnum smurð orð í bókahhlunni hví reisa þeir pýramida Þetta er áttunda ljóðabók Geir- laugs á 15 ámm, og munu flestar ófáanlegar. Það hefur flogið fyrir að í undirbúningi væri hehdarút- gáfa, og er vonandi að af verði hið fyrsta, svo fólk geti kynnst vönduð- um ljóðum þessa skálds sem nýtur vaxandi virðingar og vinsælda meðal þeirra sem kynnst hafa. Geirlaugur Magnússon: itrekað Norðanniður 1988, 43 bls. Ö.Ó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.