Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Page 5
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. 5 dv Fréttir Akureyri: Stúdent- arnir fá að velja um lóðir Félagsstofnun stúdenta á AkUreyri hefur fengið jákvæða afgreiðslu hjá byggingamefnd Akureyrarbæjar, en Félagsstofnunin hefur sótt um lóðir til að byggja á tvö fjölbýlishús fyrir námsmenn. Byggingamefnd hefur ákveðið að gefa Félagsstofnuninni kost á eftir- tölduin lóðum enda falhst skipuiags- nefnd á þær hugmyndir: Lóðir við Vestursíðu, við Skarðshlíð vestan Hörgárbrautar, við Grenilund aust- an götu og lóð á Kjamasvæði í Inn- bæ. Áformað er að byggingarfram- kvæmdir hefjist fyrir 15. apríl og hægt verði að taka íbúðimar í notk- un í haust. Ábyrgðartryggingar: Fatlaðir fá end- urgreiddan söluskatt Tryggingastofnun ríkisins hefur ákveðið að endurgreiða söluskatt af iðgjöldum af ábyrgöartryggingu bif- reiða í eigu fatlaöra. Ellilífeyris- þegar, sem voru örorkulífeyrisþegar (75% örorkumat eöa meira) eða ör- orkustyrkþegar lífeyristrygginga (50-74% örorkumat) áður en þeir urðu ellilífeyrisþegar, skuiu eiga rétt á endurgreiðslu samkvæmt reglum no. 423/1988. Gildir þetta um umsóknir sem ber- ast eftir 8. desember 1988 og þurfa þeir sem hafa fengið synjun að end- umýja umsóknir sínar. -SMJ Akureyri: Bæjarráð vill lækka kostnað við dagvistun Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyxi: Jón Bjömsson, félagsmálastjóri á Akureyri, hefur kynnt félagsmála- ráði bæjarins tillögur meirihluta bæjarráðs um lækkun rekstrar- kostnaðar á dagvistum og leikvöllum í bænum um 2,5 milljónir króna. í framhaldi af því varð það niður- staða félagsmálaráðs að engin leið sé að lækka rekstrarkostnað í dag- vistarmálum nema skerða þjón- ustuna um leið. í bókun ráðsins seg- ir að ef niðurstaða við afgreiðslu fjár- hagsáætlunar bæjcuins verði sú að lækka samt sem áður þennan rekstr- arkostnað muni ráðið leggja til að Gerðavelh verði lokað sem gæslu- velli frá 1. sept., sumarstarfsfólki verði fækkað um 25% á gæsluvöllum og leikskólunum Iðavelli, Lundarseli og Árholti verði lokað kl. 17 á daginn frá 1. júní í stað kl. 18 eins og gert er í dag. Samþykkja Landakot Öryggisverðir páfa hafa komið tvi- svar hingað til lands til að kanna aðstæður fyrir heimsókn páfa þriðja og fjórða júní. Þeir munu hafa mælt mjög ákveðið með því aö messa páfa í Reykjavík verði við Landakot og að sögn séra Georgs, fulltrúa ka- þólsku kirkjunnar, þá er það ekki rétt sem haldið hefur verið fram í DV að öryggisverðimir hafi áhyggjur af nálægðinni við sendiráðin þar. Er gert ráð fyrir að milli 7.000 og 10.000 manns mæti á morgni sjó- mannadagsins og hlýði á messu páfa á Landakotstúni. -SMJ Vi SNORRABRAUT 29 SÍMI 62-25-55 FENGUM AUKASENDINGU AF HINUM FRABÆRU BONDSTEC ÖRBYLGJUOFNUM OG GETUM ÞVÍ BOÐIÐ TAKMARKAÐ MAGN Á SÉRSTÖKU KJARAVERÐI. BT-101 EINN ALLRA FULLKOMNASTI OG HÆFASTI ÖRBYLGJUOFNINN SEM VÖL ER Á í DAG. 10 ORKUSTIG, ELDUNARPRÓGRÖM, 28 LÍTRA INNANMÁL, PRÓGRAMMAMINNI, SJÁLFVIRK AFFRYSTING, HITASTÝRÐ ELDUN, BARNALÆSING, MINNI FRAM í TÍMANN, HITAMÆLIR, SJÁLFVIRK UPPHITUN SEM HELDUR MATNUM Á RÉTTU HITASTIGI EINS LENGI OG MENNVIUA. NÁKVÆMUR ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR FYLGIR. RÉTT VERÐ 38.650,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 27.900,- BT-112 MJÖG FULLKOMINN OG ÖFLUGUR TÖLVUSTÝRÐUR ÖRBYLGJUOFN. 650 VATTA ELDUNARORKA, 32 LÍTRA INNANMÁL, 10 ORKUSTILLINGAR OG ELDUNARPRÓGRÖM. ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR FYLGIR. RÉTT VERÐ 31.800,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 22.500,- BT-612 HINN SÍVINSÆLI FJÖLSKYLDUOFN. 500 VATTA ELDUNARORKA 18 LÍTRA INNANMÁL, AFFRYSTING, SNÚNINGSDISKUR OG AÐ SJÁLFSÖGÐU FYLGIR ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR. RÉTT VERÐ 16.980,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 13.600,- T ♦ HEIMILANNA ♦ FRÁ OPUS ♦

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.