Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Side 7
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. 7 EGILL VILHJALMSSON HF. Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202 Fréttir Lánskjaravísitalan sem gjaldmiðill: Hugtakarugl hjá Steingrími - segir aðstoðarbankastjóri Seðlabankans „Forsætisráöherra er þama aö bera saman gengisvísitölu og verö- lagsvísitölu. Það vita allir að þaö er efcki það sama. Það er algjört hug- takarugl aö tala um lánskjaravístölu sem einhvern gjaldmiðil. Eina mein- ingin sem þetta getur haft er aö ver- iö sé að bera saman lánskjör. En þá vantar nafnvextina ofan á erlendu gjaldmiölana og raunvextina ofan á íslensku krónuna," sagði Bjarni Bragi Jónsson, aðstoöarbankastjóri Seölabankans. Bjami Bragi húðskammaði Stein- grím Hermannsson forsætisráð- herra á morgimverðarfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í síðustu viku fyrir að flagga línuriti þar sem gengi ýmissa gjaldmiðla var borið saman við verðbætta íslenska krónu yfir árin 1979 til 1988. Ef línuritið hefði tekið tillit til láns- kjara hér heima og erlendis, eins og Bjarni segir eina vitið, snýst línuritið við. Nafnvextir á íslenskum lánum hér hafa verið það lágir á þessum tíma að þeir ná ekki að viðhalda raungildi höfuðstólsins. Þó tekið sé tillit til verðbættra lána með raun- vöxtum þá eru íslensku lánin á svip- uðu róh og vestur-þýsk lán en lán í flestum öðrum löndum bera mun hærrivexti. -gse TIL SÖLU M/20% LÆKKUN MMC LANCER GLX 4x4, árg 1988, ekinn aðeins 10 þús. km. Verð kr. 945.000,- Álafoss og Hilda: Viljayfirlýsing um sam- einingu á Bandaríkjamarkaði Forsvarsmenn Álafoss hf. og Hildu hf. undirrituðu viljayfirlýsingu á laugardaginn þar sem segir að unnið verði að sameiningu fyrirtækjanna á Bandaríkjamarkaði. Talið er að talsverður sparnaður fáist með sameiningunni, sérstak- lega á fostum kostnaði. Þá verður ekki um undirboð að ræða þar sem þessi fyrirtæki verða nánast ein um bandaríska markaðinn á íslenskum ullarvörum ef af sameiningu verður. Sala þessara tveggja fyrirtækja á íslenskum ullariðnaðarvörum er á bihnu 5,5-6,5 milljónir dohara í Bandaríkjunum. íslenski uhariðnað- urinn hefur átt erfitt uppdráttar er- lendis og með sameiningu þessari er talið að eitt voldugt fyrirtæki geti staðið betur að vöruþróun fyrir Bandaríkjamarkað. -HK Nú er M/s Rollnes við bryggju á Raufarhöfn eftir áreksturinn. A myndinni má sjá gatið á stefni skipsins. DV-mynd Hólmfríður Fékk gat á stefni í samstuði við bryggju Hólmfriður Friðjónsdóttir, DV, Rau&rhöfri: Það óhapp varð þegar flutninga- skipið m/s Rollnes var að leggjast að bryggju hér á Raufarhöfn að það rakst utan í hafnarbryggjuna með þeim afleiðingum að skemmdir urðu bæði á skipi og bryggju. Gat kom á stefni skipsins en skemmdir á bryggjunni eru ekki miklar. Óhappið átti sér stað þegar snúa átti skipinu við suðurenda bryggj- unnar - akkeri fór ekki út á réttum tíma og er talið að myrkur, þrengsh og of mikil ferð hafi átt þátt í hvern- ig fór. M/s Rohnes er um 5000 tonn að stærð, skráð í Lundúnum og var í sinni fyrstu ferð th Raufarhafnar. Hér lestaði skipið loðnumjöl th Finn- lands. Grímsey: Miklar ógæftir og Gyifi Kristjánsson, DV, Akareyri: „Aflabrögð hafa verið mjög léleg hér i vetur enda veöráttan hryhheg bæði í desember og í janúar," segir Ólafur Jóhannesson, sjómaður í Grímsey, um sjósókn og aflabrögð þar undanfama mánuöi.- Frá Grímsey er geröur út einn 50 tonna bátur og 4 bátar sem eru 11 tonn aö stærö. Á sumrin bætast síöan trihumar við og fjölmargar trhlur eru gerðar út frá Grímsey á sumrin. Ólafur sagði aö þeir bátar, sem væru með línu, hefðu fiskað þokka- lega þegar gefið hefði á sjó en það hefði verið afar sjaldan. Hins vegar hafa netabátarnir nánast ekkert fengið nema sel í net sín. , ,Þaö er mikið um það að selurinn komi í netin ogþeir hafa verið mjög stórir innan um. Viö á bátnum, sem ég er á, fengum t.d. fimm seh nú á mánudaginn og tveir þeirra voru um 300 kg að þyngd og þessirselir skemma netin mikið.“ Ólafur sagði að selnum vær i safn- að í frystigám og þegar hann væri orðinn fuhur væri selurinn seldur til fóðurstöðvar fyrir loðdýr á Dal- vik, og hefði hringormanefnd greitt 25 krónur fyrir hvert khó. réttí tíminn! fyrír sjónvarpsefni frá gervihnöttum Tilboö 1: Diskur 1,5 m, ESR-324 mono móttökutæki, SPC LNB 1,3 dB nemi, Polarotor umpólari, disk- og veggfesting á aðeins 129.985,-eða Tilboö 2: Diskur 1,5 m, Uniden UST- 7007 stereo móttökutæki, SPC LNB 1,3 dB nemi, Polarotor umpólari, disk- og veggfesting á aðeins 163.522,- eða LADA 1500 stw., árg. 1988, ekinn aðeins 960 km. Sumar- og vetrardekk. Bíllinn er sem nýr. Verð kr. 310.000,- 123.486,- stgr. 155.346,-.,, Við útvegum leyfi frá Samgönguráðuneytinu og sjáum um uppsetningu búnaðarins greiöslukjör til allt aö 11 mán. eöa 3 ára kaupleigukjör ASlRA EUTELSAT1F4 *%S3ES' 16 SJÓNVARPSSTÖÐVAR 10 SJÓNVARPSSTÖDVAR MÓTTOKUDISKAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.