Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Qupperneq 39
MÁNUDAGUR 6. 'FEBRÚAR T989:
39
Jökull Úlfsson við nýja bílinn með nýja númerinu. DV-mynd BB, ísafirði
ísaJöörður:
Fékk upphafsstafina
sína og 007 á bílinn
Sguijón J. Sgurðssan, DV, ísafirði:
Þessa dagana sjást æ fleiri bílar
hér með bílnúmerum samkvæmt
nýja fastnúmerakerfinu. Hver bíll
fær sitt númer við skráningu og held-
ur því síöan. Einn hinn fyrsti á Vest-
fjörðum til að fá nýtt númeraskilti
var Jökull Úlfsson, verslunarmaður
á ísafirði. Hann var svo heppinn að
fyrir tilviljun fékk hann númerið JU
007 - sem sagt bæði upphafsstafina
sína og hið fræga númer James
Bond, 007.
Hofsósingar æfa Leynimel 13
Þórhallur Ásmundsson, DV, Skagafirði:
Æfingar eru hafnar hjá leik-
klúbbnum á Hofsósi á gamanleikn-
um Leynimel 13 eftir Þridrang og er
stefnt að frumsýningu í Höfðaborg
fyrstu eða aðra helgina í mars. Leik-
stjórann sóttu Hofsósingar véstur
fyrir Vötn, Hilmi Jóhannesson, en
hann leikstýrði einnig Jörundi í
hittifyrra, seinasta verkefni klúbbs-
íns.
Samlestur á leikritinu hófst fyrir
nokkru að sögn Svandísar Ingi-
mundardóttur, stjómarmanns í leik-
klúbbnum, og er reiknað með að leik-
urinn verði að nokkru leyti stað-
færður. Hlutverk em 17, þrettán full-
orðnir og fjórir strákar. Leynimelur
hefur verið sýndur víða um land við
góðar undirtektir.
Átak hjá Jökuldælingum að stunda félagslíf:
Sextíu kflómetrar
eru á milli efsta
býlis og neðsta bæjar
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööurru
Jökuldalur er ein af efstu sveitum
á Héraði og sú vestasta. Eftir dalnum
fellur Jökulsá á Dal, lengstum í
þröngu gljúfri og ófrýnileg mjög,
ströng og koldökk. Jökuldalur er
fremur þröngur en langur og eru um
60 km milli efsta býhs, Aðalbóls, sem
reyndar er í Hrafnkelsdal, inn af
Jökuldal, og neðsta bæjar í hreppn-
um. Auk þess tilheyrir Möðradalur
á Efra-FjalU hreppnum og bæjargat-
an sú er einir Utlir 45 km.
Dalbúar þurfa því ærið á sig að
leggja til að hittast á einum og sama
stað til að stunda félagslíf. Þeir líta
þar af leiðandi fjarlægðir öðmm aug-
um en margir aðrir, eða svo virðist
oft og tíðum. Sem dæmi um það má
nefna að fyrir tveimur árum eða svo
var haldið enskunámskeið í sveit-
inni, nánar tíltekið á Skjöldólfsstöð-
um sem er samkomustaður og skóla-
staður sveitarinnar. Þeir sem lengst
sóttu þetta námskeiö óku 30 km
hvora leið tvisvar í viku og þótti ekki
tiltökumál þar í sveit.
Sveitungar heiðraðir.
Jökuldælir halda það sem þeir kalla
uppskemhátíð um jólaleytið. Þar
heiðra þeir sveitunga sem til þess
þykja hafa unnið á einn eða annan
hátt. Að þessu sinni var hátíð þessi
haldin 29. des. Þar var hjónunum á
Hákonarstööum veitt viöurkenning
fyrir snyrtilega umgengni. Bræðurn-
ir á Giljum þóttu hafa bætt sína
umgengni mest á árinu og voru fyrir
það verðlaunaðir. Þá hafði verið kos-
inn íþróttamaður ársins og var hon-
um veittur veglegur farandbikar. Sá
var Vilhjálmur Vemharðsson frá
Möðrudal, en hann er 12 ára, og hafði
m.a. unnið langstökk í sínum aldurs-
flokki á sumarhátíð UÍA sl. sumar.
Vilhjálmur hafði einnig hlotið þenn-
Vilhjálmur Vernharðsson, Möðru-
dal. DV-mynd Sigrún
an bikar í fyrra og á nú möguleika á
að vinna hann til eignar haldi hann
sætinu næsta ár.
Þá var til skemmtunar spiluð fé-
lagsvist á 15 borðum og áður en
lengra er haldið er rétt að geta þess
að á Jökuldal, sem í mörgum sveit-
um, koma allir, ungir og gamlir, á
samkomu sem þessa. Jafnvel eru
smábörnin höfð með svo enginn
þurfl að sitja heima að gæta þeirra.
Því er það að mörg börn, allt niður
í sjö - átta ára, spila með. Og af því
að þau hafa ekki jafna möguleika á
að vinna til verðlauna eins og þeir
fullorðnu var þátttakendum skipt í
tvo flokka eftir aldri og 14 ára og
yngri einnig veitt verðlaun. Er ekki
að orðlengja það að fyrmefndur Vil-
hjálmur hlaut verðlaun í þeim flokki
og raunar var hann með flesta slagi
allra spilaranna. Það má því segja
að hann hafi ekki til einskis ekið
þessa 45 km fram og til baka.
Fréttir
60 manns voru á atvinnuleysisskrá á Hvammstanga:
Versta atvinnu-
ástand í áratugi
Þórhallur Asmundss. DV, Norðurl. v.:
„Atvinnuástand hér á staðnum
hefur ekki verið jafnslæmt í ára-
tugi,“ sagði Helgi Ólafsson, formaður
atvinnumálanefndar Hvammstanga.
Væntanlegur er til Hvammstanga
maður á vegum Byggðastofnunar til
að gera úttekt á möguleikum til að
auka fiskveiðar og fiskvinnslu. Menn
binda mestar vonir við þær greinar
til aö bæta atvinnuástandið.
Um áramót voru 60 manns á at-
vinnuleysisskrá á Hvammstanga og
eru þaö þrisvar sinnum fleiri en voru
á skrá um áramótin í fyrra. Þriðjung-
urinn af þessu fólki er starfsfólk hjá
Meleyri hf. en rækjuvinnsla lá niðri
fram undir miðjan janúar.
„Þrátt fyrir þessa erfíðleika er ekki
kominn alvarlegur uppgjafartónn í
íbúa hér en því er ekki að leyna að
mikhr erfiðleikar eru í atvinnulífinu
eins og víða á landsbyggðinni," sagði
Helgi.
Hreinn Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Meleyrar, segir ástandið dökkt
um þessar mundir. Hjá fyrirtækinu
er ekki trygg framleiðsla nema út
febrúar. Þá er reiknað meö að
Hvammstangabátar verði búnir með
kvóta sinn á innfjarðarrækju. Hvað
þá tekur við fer allt eftir hvemig út-
hafsveiðar ganga en kvóti þar hefur
verið skertur stórlega. Þá er enginn
grundvöllur fyrir skelfiskveiðum og
vinnslu og engar líkur á að þær veið-
ar fari í gang.
Vor og sumar '89
1113 síður.
Frægustu merkin
í fatnaði.
Búsáhöld,
sportvörur,
leikföng o.fl
Kr. 190
án burðargjalds
dragast frá
fyrstu pöntun.
B.MAGNUSSONHF.
Hólshrauni 2, Hafnarfirði
sími 52866
SPARIÐ TÍMA - SPARIÐ FYRIRHÖFN
Renníð bílntim í gegn hjá Bón- og þvottastöðínní, Sígtúní 3.
Óhreinn bíll er Ieiðinlegur - hreinn bíll er augnayndí. Margir bíleigendur hafa ekki
tima til þess að þvo og bóna bila sina en flestir hafa 12-15 mín. aflögu (sem þarf tíl
að fara með bíl gegnum Bón- og þvottástöðina, Sigtúni 3). Bilarnír eru tjöruhreinsað-
ir, síðan háþrýstiþvegnir og um Ieið fer fram undirvagnsþvottur. Þessu næst er bill-
inn þveginn með mjúkum vélburstum og einnig fer fram handþvottur sem er nauð-
synlegur (hægt er að fá bilínn eingöngu handþveginn). Síðan fer billinn gegnum
bónvélína og loks fer hann gegnum heítan blástur og er snyrtur.
Það tekur ekki mikínn tíma að láta þvo og bóna reglulega en það eykur endingu
bilsins og ánægju bíleigandans.
Ath. Vegna afkastagetu stöðvarinnar, sem er yfir 40 bilar á klst., er bíðtími stuttur,
nánast engínn. Tima þarf ekki að panta.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8.00-18.40.
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9.00-16.40.
I5Ó.\- OG ÞVOrrASTÖÐWí
SIGTÚNI 3 - SÍMI 14820