Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1989, Side 43
MÁ'NUDAGUR 6. FEBRÚAR 1989. 43 Fólk í fréttum Hrafnkell Helgason Hrafnkell Helgason, yfirlæknir á Vífilsstöðum, hefur verið í fréttum vegna þekkingar sinnar á Sturl- ungu. Hrafnkell er fæddur 28. mars 1928 á Stórólfshvoli í Hvolhreppi og lauk læknisfræðiprófi í HÍ1956. Hann var í framhaldsnámi og við lækningastörf á sjúkrahúsum í Sví- þjóð 1958-1963. Hrafnkell var deild- arlæknir á lyfjadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri 1963-1964, aðstoðarlæknir á sjúkrahúsum í Svíþjóð 1964-1967 og aðstoðaryfir- læknir þar 1967-1968. Hann hefur verið yfirlæknir á Vífilsstöðum frá 1968 og lektor og síðan dósent í lungnasjúkdómum í HÍ frá 1969. Hrafnkell var gjaldkeri félags yfir- lækna 1971-1973, Hjartasjúkdómafé- lags ísl. lækna 1973-1975 og ritari Félags ísl. lyflækna 1974-1976. Hrafnkell kvæntist 17. júní 1957 Helgu Lovísu Kemp, f. 17. júní 1925. Foreldrar hennar voru Lúðvík Kemp, vegaverkstjóri á Illugastöð- um í Skagafirði, og kona hans, Elísa- bet Stefánsdóttir. Böm Hrafnkels og Helgu em Helgi, f. 25. febrúar 1952,1. stýrimaður á Ögra, kvæntur Önnu Kristínu Gunnlaugsdóttur þroskaþjálfa; Stella Stefanía, f. 20. desember 1955, hjúkrunarfræðing- ur í Garðabæ, gift Einari Sigurgeirs- syni, skipstjóra í Þorlákshöfn, og Hrefna Lovísa, f. 6. október 1964, vinnur á ferðaskrifstofu, sambýhs- maður hennar er Gunnar Karl Guð- mundsson hagfræðingur. Bræður Hrafnkels em Jónas, f. 5. október 1924, bifreiðarstjóri á Hellu, kvænt- ur Guðrúnu Ámadóttur póst- og símstjóra; Helgi, f. 26. september 1926, d. 1. apríl 1984, lögfræðingur, og Sigurður Helgi, f. 22. mars 1929, skrifstofustjóri ríkisspítalanna, kvæntur Stefaníu Kemp. Foreldrar Hrafnkels voru Helgi Jónasson, læknir og alþingismaður á Stórólfshvoh, og kona hans, Oddný Guðmundsdóttir hjúkrunar- kona. Föðursystm- Hrafnkels voru Sigríður, móðir Einars Ágústssonar utanríkisráöherra, ogGuðrún, móð- ir Ingva Ingvasonar, sendiherra í Washington. Helgi var sonur Jónas- ar, b. á Reynifelh á Rangárvöhum, bróður Guðríðar, langömmu Gunn- ars Ragnars, forstjóra Útgerðarfé- lags Akureyringa. Jónas var sonur Árna, b. á Reynifelh, bróður Jóns, afa Jóns Helgasonar, skálds og próf- essors. Systir Áma var Ingiríður, langamma Sigurðar, afa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar. Ami var sonur Guð- mundar, b. á Keldum, Brynjólfsson- ar, b. á Vestra-Kirkjubæ, Stefáns- sonar, b. í Árbæ, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ætt- föður Víkingslækjarættarinnar. Móðir Áma var Guðrún, systir Magnúsar, langafa Gunnars Berg- steinssonar, forstjóra Landhelgis- gæslunnar. Guðrún var dóttir Guð- mundar, b. í Króktúni, Magnússon- ar, bróður Þorsteins, langafa al- þingismannanna Þórhildar Þor- leifsdóttur, Eggerts Haukdals og Benedikts Bogasonar. Móðir Guð- rúnar var Guðrún Pálsdóttir, b. á Keldum, Guðmundssonar og konu hans, Þuríðar Jónsdóttur, systur Páls skálda, langafa Ásgeirs Ás- geirssonar forseta. Móðir Helga var Sigríður Helga- dóttir, b. í Árbæ í Holtum, Jónsson- ar, b. í Árbæ, Runólfssonar, prests á Stórólfshvoli, Jónssonar, bróður Jóns, langafa Brynjólfs, afa Gauks Jömndssonar, umboðsmanns Al- þingis. Móðir Jóns var Guðrún Þor- steinsdóttir, systir Bergljótar, langömmu Páls, afa Hjörleifs Gutt- ormssonar alþingismanns. Móðir Sigríðar var Helga Sigurðardóttir, b. á Barkarstöðum í Fljótshhð, ísleifssonar og konu hans, Ingi- bjargar, systur Tómasar Fjölnis- manns og Jómnnar, ömmu Áma Þórarinssonar, prests á Stóra- Hrauni. Ingibjörg var dóttir Sæ- mundar, b. í Eyvindarholti, Ög- mundssonar, prests í Krossi, Högna- sonar, prestaföður, prests á Breiða- bólstað, Sigurðssonar. Móðir Sæ- mundar var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Oddný var dóttir Guðmundar, b. Hrafnkell Helgason. á Bakka í Landeyjum, Diðrikssonar, bróður Þórðar mormónabiskups. Móðir Oddnýjar var Kristín, systir Lopts mormónabiskups og Sigríðar, langömmu Ólafs W. Stefánssonar, skrifstofustjóra í dómsmálaráðu- neytinu. Kristín var dóttir Jóns, b. á Bakka, Oddssonar, b. í Þykkvabæ, Jónssonar, b. og hreppstjóra á Kirkjubæjarklaustri, Magnússonar, langafa Jóhannesar Kjarvals og Jóns, afa Jóns Helgasonar, fyrrv ráðherra. Kristín var dóttir Sigríðar Jónsdóttur, b. á Kanastöðum, Áma- sonar, bróður Ólafs, langafa Sigrún- ar, móður Ragnheiðar Helgu Þórar- insdóttur borgarminjavarðar. Aftnæli Asdís Anna Johnsen Ásdís Anna Johnsen hjúkranar- fræðingur, til heimihs að Freyju- vöhum 10, Keflavík, er fertug í dag. Ásdís fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún lauk námi frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja og hjúkrunarprófi frá Hjúkranarskóla íslands 1972 en hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur síðan. Ásdís flutfi frá Eyjum til Hafnar- fjarðar 1972 og síðan til Reykjavík- ur. Hún flutti til Njarðvíkur 1982 en hefur búið í Keflavík frá 1988. Ásdís hefur starfað við Sjúkrahúsið í Kelfavík frá 1982 og hún er trúnað- armaður Hjúkrunarfélagsins í Keflavík. Maður Ásdísar er Bjöm Blöndal fréttamaður, f. 14.5.1946, sonur - Björns A. Blöndal og Kristbjargar Gísladóttur. Ásdís og Björn eiga fiögur böm. Þau eru: Margrét Blöndal, f. 7.2. 1971; Kristín Blöndal, f. 10.1.1972; FriðbjörgBlöndal, f. 18.4.1973, og Gísli Friðrik Blöndal, f. 19.10.1977. Bræðður Ásdísar: Hrafn Johnsen tannlæknir, f. 6.1.1938, kvæntur Sig- urrós Skarphéðinsdóttur, en þau eru búsett í Hafnarfirði, og Öm Tryggvi Johnsen, f. 30.5.1944, d. 9.10. 1960. Foreldrar Ásdísar: Gísh Friðrik Johnsen, f. 11.1.1906, fv. ljósmynd- ari og útgerðarmaður, og Friðbjörg Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur, f. 25.5.1907. Þau bjuggu lengst af í Vestmannaeyjum en eru nú búsett í Hafnarfirði. Gísh fæddist í Vest- mannaeyjum, sonur Gísla John- sens, stórkaupmanns í Vestmanna- eyjum, og Ásdísar Gísladóttur, kaupmanns í Vestmannaeyjum. Friðbjörg er dóttir Tryggva Sig- urðssonar, b. á Jórunnarstöðum í Eyjafirði, og konu hans, Lilju Frí- mannsdóttur Tryggvi var sonur Sigurðar, b. á Jórunnarstöðum, Jó- hannessonar, b. í Torfufelh, Bjama- sonar, b. í Leyningi, Flóventssonar, á Hrísum. Bróðir Tryggva var Magnús á Grund, sá er byggði Grundarkirkju. Móðir Tryggva var Ragnheiður Magnúsdóttir, hrepp- stjóra að Öxnafehi, bróður Ásgríms, langafa Áslaugar, móður Friðriks Sophussonar. Magnús var sonur Árna prests að Tjöm í Svarfaðar- dal. Systir Áma var Sigríður, lang- amma Valgerðar, ömmu Valgerðar Ásmundur Jósefsson Ásmundur Jósefsson, fyrrv. b. og verkamaður, Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki, er níræður í dag. Ásmundur fæddist að Stóru- Reykjum í Flókadal og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði öh almenn sveitastörf frá unga aldri og tók við búi foreldra sinna sautján ára en faðir hans hafði þá verið heilsulítíll um árabh. Ásmundur bjó á Stóra-Reykjum fram yfir seinna stríð en flutti þá að Sjöundastöðum í Flókadal og bjó þar th 1964. Þá flutti Ásmundur á Sauðárkrók og hefur búið þar síðan. Á Sauðárkróki vann Ásmundur almenn verkamannastörf, m.a. starfaði hann í fiölda ára hjá Hita- veitu Sauðárkróks við lagnir, við- hald ogviðgerðir. Kona Ásmundar var Ambjörg Ei- ríksdóttir ljósmóðir, f. 27.12.1896, d. 1988, dóttirEiríksÁsmundssonar, b. á Reykjalóni á Bökkum, og Guð- rúnar Magnúsdóttur. Bróðir Am- bjargar var Ásmundur Eiríksson, trúboði og forstöðumaður Hvíta- sunnusafnaðarins. Ásmundur og Arnbjörg eignuðust fióra syni en dóttur sína misstu þau unga. Börn þeirra: Guðrún, f. 1.10. 1925, d. sama ár; Eiríkur, f. 22.1.1927, fyrrv. kaupfélagsstjóri í Króksfiarð- arnesi, nú starfsmaður hjá KEA á Akureyri, kvæntur Huldu Magnús- dóttur, þau búa á Svalbarðseyri og eiga sjö böm; Guðmundur, f. 18.2. 1929, starfsmaður á Keflavíkurflug- velli, kvæntur Thoru Pribe, þau eiga fiögur börn; Heiðar, f. 18.2.1929, pípulagningameistari í Reykjavík, kvæntur Gyðu Svavarsdóttur, þau eiga fimm börn, og Lúðvík, f. 17.11. 1931, b. á Sigríðarstöðum í Fljótum, kvæntur Grétu Jóhannsdóttur, þau eigasjöbörn. Ásmufidur var þriðji yngstur tíu systkina. Eitt systkina hans lést í barnæsku en hiq komust öll th full- orðinsára. Ásmundur er nú einn systkinannaálífi. Foreldrar Ásmundar voru Jósef Bjömsson, f. 26.3.1854, d. 31.5.1932, b. á Steinavöhum og síðar Stóra- Reykjum, og kona hans, Svanfríður Sigurðardóttir, f. 20.12.1861, d. 30.5. 1922. Jósefvar sonurBjörns, b. að Hvanndölum, Gíslasonar, b. í Saurbæ í Siglufirði, Hinrikssonar, b. á Auðnum í Ólafsfirði, Gíslason- ar, b. á Fíalh í Sæmundarhhð, Þor- Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þéirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Sverrisdóttur alþingismanns. Árni var sonur Snorra, prest í Hofstaða- þingum, Björnssonar, bróður Jóns, langafa Páíínu, móður Hermanns Jónassonar forsætisráðherra, föður Steingríms forsætisráðherra. Móðir Magnúsar var Guðrún Ásgríms- dóttir af Ásgeirsbrekkuættinni, systir Gísla, langafa Sigurbjamar, prests á Grund, fööur Gísla, for- stjóra Grandar. Systir Gísla Friðrikssonar er Sig- ríður, móðir Gísla Ástþórssonar blaðamanns. Önnur systir Gísla er Soffía, móðir Gísla lögfræðings og Áma hljóðfæraleikara ísleifssona. Bróðir Gísla eldri var Árni, faðir Ingibjargar, móður Árna Johnsens, fv. alþingismanns. Bróðir Ingibjarg- ar er Sigfús, faðir Áma borgarfuh- Asdís Anna Johnsen. trúa og Þórs, ritsfióra Stefnis. Ann- ar bróðir Gísla eldri er Láras, afi Ríkarðs Pálssonar tónskálds. Þriðji bróðir Gísla er Sigfús, faðir Baldurs Johnsens, fv. forstöðumanns Heh- brigðiseftirlits ríkisins, föður Skúla borgarlæknis og Önnu, konu Vil- hjálms Vhhjálmssonar borgarfull- trúa. kelssonar. Móðir Jósefs var Arn- björg Þorvaldsdóttir, b. á Frosta- stöðum, Ásgrímssonar, b. á Minni- Ökrum, Dagssonar Péturssonar. Svanfríður var dóttir Sigurðar, b. á Stóra-Grindh og víðar, Sigmunds- sonar, b. á Krossi á Akranesi, Snorrasonar, b. í Andakíl, Magnús- sonar. Móðir Svanfríðar var Margr- ét Jónsdóttir, systir Jóns Norð- manns, prests á Barði, afa Katrínar, móður Jórannar Viðar tónskálds, móður Katrínar Fjeldsted, læknis og borgarfuhtrúa. Margrét var dótt- ir Jóns, b. á Krakavöhum, Guö- mundssonar, bróður Vatnsenda- Rósu og Sigríðar, langömmu Sigurð- ar Nordals og Valtýs Stefánssonar. Móðir Jóns var Guðrún Guðmunds- dóttir, b. í Lönguhhð, ívarssonar, bróður Bjöms, afa Bjargar, ættmóð- ur Kjamaættarinnar, langömmu Friðriks Friðrikssonar æskulýðs- leiðtoga. Björn var einnig langafi Stefáns, afa Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Móðir Jóns Norðmanns var Margrét sem tahn var laundótt- ir Jóns, skálds og prests á Bægisá, Þorlákssonar. 90 ára Páhna Konráðsdóttir, Skarðsá, Staðarhreppi. Guðmundur Sigurjónsson, Vesturbergi 38, Reykjavík. Sigufión Guðmundsson, Eiríksstöðum n, Jökuldalshreppi. 85 ára 50 ára Magnea Jóelsdóttir, Grandarstíg 12, Reykjavík. Sólveig D, Jóhannesdóttir, Brekkuseh 29, Reykjavík. Reynir Einarsson, Gufunesvegi 3, Revkjavík. Sigurður Hahdór Olafsson, Unufelh 31, Reykjavik. örn Gislason, Hafnarbraut 6, Suðurfiarðar- hreppi. 70 ára 40 ára Guðrún V. Jónsdóttir, Stóra-Sandfehi I, Skriödalshre Rós Óskarsdóttir, PPÍ- Vatnshóh, Austur-Landeyjum. Þorsteinsstöðum, Lýtingsstaöahreppi. öignour buömunasaottir, Hálsaseh 4, Reykjavík. Unnur Hauksdóttir, 60 ára Bólstaðarhhð 62, Reykjavík. Margrét Helgadóttir, óuuui iiuiuiii i\cyi\j«vuv. Gunnar Sigurjónsson, Sigrún Franzdóttir, Sólvöhum 9, Selfossi. T^nfási 6, Eghsstöðum. Leiðrétb'ng Pétur Kr. Árnason Munið að senda okkur myndir. í afmæhsgrein um Pétur Kr. Árnason múrarameistara, í helg- arblaðinu 4.2. sl., féh niður nafn eins sona Péturs, Guðmundar. Pétur á átta syni. Þeir era Ómar, f. 25.8.1946; Hlyni, f. 8.5.1949; Guö- mundur, f. 29.1.1950; Hólmsteinn, f. 25.2.1951; Ingibert, f. 19.3.1952; Ámi, f. 13.6.1953; Logi, f. 17.9.1958, og Lýður, f. 28.3.1960. Þetta leiðréttist hér með um leið og viðkomandi aðhar era beðnir velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.