Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1989, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1989. Fréttir Ef Flugieiðir leggja leiguflug niður: ftntnm InitaA til WlrHIIII WrliCWi Ul erlendra aðila rr *• /*.• *| « j i • / ♦ r* « i *r* i r> „Viðhöfumalltafáttvöláleigu- sagðist ekki sjá nein afgerandi flug þó aö það hefði verið dýrara. reynd að Flugleiöir voru hér til flugi með erlendum flugfélögum og áhrif af því þó að Flugleiðir hœttu Hann hafði þó ekki trú á því að staöar hafl oröiö til þess að erlend þar að auki er Amarflug áfram á leiguflugienhugmyndirþaraölút- þótt Flugleiðir hættu leiguflugi flugfélög buöu lægra,“ sagði Karl markaðnum þannig að viö þurfúm andi hafa verið kynntar innan fé- hefði þaö áhrif til lækkunar á verði en Pólaris hefúr samning viö Flug- ekki að örvænta þó að Flugleiðir lagsins. feröaskrifstofanna. leiðir fram á haust. hætti leiguflugi sínu,“ sagði Karl Karl sagöi að ferðaskrifstofúmar „Þaö getur nú aldrei orðið um -SMJ Sigurhjartarson hjá Pólaris og for- heföu yfirleitt valiö þann kost að neina verulega lækkun á verði að maöur Félags feröaskrifstofa. Karl semja við íslenska aðila um leigu- ræða. Það er hugsanlegt að sú staö- Eldvamaöryggis gætt með hótfun Húsið að Rettarhálsi 2 endurbyggt: og að auki traustari eldvamaveggjum Hús Gúmmívinnustofunnar að Réttarháisi 2. Það brann til grunna í janúar í einum mesta bruna sem orðið hefur á íslandi. Vonir standa til að starfseml hefjist að fullu í húsinu í september. DV-mynd GVA „Húsiö að Réttarhálsi var teiknað á ný og þá með hliðsjón af öryggis- ráöstöfunum sem taldar voru nægi- legar. Nú veröa í þvi traustari hólf- unarveggir og traustari samskeyti veggja og þaks. Það ætti því ekki að fara eins illa ef kviknaði í húsinu aftur. Minni og traustari eldvama- hólf, meiri reykútloftun upp úr þaki og fleiri betrumbætt atriði eiga að tryggja þaðsagöi Gunnar Ólason hjá Eldvamaeftirlitinu við DV. Húsiö að Réttarhálsi 2 brann til gmnna í byijun ársins í einum mesta bruna sem orðiö hefur á íslandi. Kviknaði í húsnæði Gúmmívinnu- stofúnnar og æddi eldurinn stjóm- laust um allt húsiö. Mikfll dekkjalag- er var í kjallaranum og var eldhafið upp úr honum gifurlegt. í umræðum eftir brunann var frammistaða slökkviliðs nokkuð til umræðu og ekki síst lélegar eldvamir í húsinu. Vom eldvamaveggir ófullnægjandi og fáir þannig að þetta stóra hús var eitt risastórt eldhólf sem slökkviliðið réð engan veginn við. Lék DV því forvitni á að vita hvort fylgst væri með eldvömum við endurbyggingu hússins. Byggingafulltrúi hefur samþykkt breytingar á teikningum og þær munu hafa verið samþykktar hjá Brunamálastofnun. Þegar endur- byggingu hússins verður lokiö síðar í sumar veröur endanleg úttekt gerð á húsinu með tflliti tfl eldvama. Gunnar Ólason sagði að dekkjalag- er yrði leyfður í kjallara hússins en harm hólfaður betur niður og ein- angraður frá gólfhæðinni. Að sögn þeirra hjá Gúmmívinnu- stofúnni er ætlunin að hefja sólningu um miðjan ágúst og hefja aðra starf- semi fyrirtækisins í húsinu skömmu síðar. -hlh Evrópumót í bridge: Svíar eru efstir en íslendingar neðarlega Evrópumótið í bridge hófst í Turku í Finnlandi síðastliðinn sunnudag. íslenska liðið, sem skipaö er 6 spilur- um, byrjaði vel í tveimur fyrstu leikj- unum og vermdi áttimda sætið af 25 þjóðum eftir fyrsta keppnisdaginn. í fyrsta leiknum var spilað gegn Vest- ur Þjóðverjum og vannst þar naum- ur sigur, 16-14. Síöan kom sigur gegn Sovétmönnum, 17 'A-12. í fyrri leikn- um á mánudaginn kom slæmt tap gegn Hollendingum, 8-22 og datt landinn við það niður í 17. sæti. Næstu leikir eru gegn fyrrum heimsmeisturum ítala, og síðan gegn írlandi og Tékkóslóvakíu. Að þremur umferðum loknum er sveit Svía efst með 62 stig, Hollendingar í öðru sæti með 61, Austurríkismenn 5714, Tékk- ar og Bretar með 57 stig. íslendingar voru með 41 14 stig í 17. sæti. Mótinu lýkur um miðjan júlímánuð. í íslenska landsliöinu eru Guð- mundur Páll Amarson-Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen- Ragnar Magnússon og Valur Sig- urðsson-Jónas P. Erlingsson. Fyrir- liði án spflamennsku er hinn gamal- reyndi spflakappi, Hjalti Elíasson. -ÍS Húsavík: Víðförult þrast- arhreiður Jóhannes Siguijánsscm, DV, Húsavík; Þrestir virðast vera með meiri bíla- dellu en aðrir fuglar. Það var frægt fyrr í sumar þegar þröstur gerði sér hreiður í fólksbíl austur í Keldu- hverfi og umboð viðkomandi bíls skaffaði eigandanum bifreið tfl af- nota þar til þrösturinn hefði komið ungum sínum á legg. Enn meiri bíladelluþröstur skaut upp kollinum á Húsavík á dögunum. Sá hafði gert sér hreiður á grind undir palli á Volvo-vörubifreiö í eigu Skipaafgreiöslu Húsavíkur. Og raun- ar hafði hreiðrið verið á ferð, ef ekki flugi, því daginn áður en hreiðrið fannst með fjórum eggjum hafði umrædd bifreið veriö í notkun. Þetta virtist ekki hafa haft nokkur áhrif á útungunartflraunir þrastar- ins sem lá á eins og ekkert hefði í skorist þegar að var komið. Spámenn í útlöndum Eins og Dagfari gerði að umtals- efni í gær hefur Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins og núverandi utanríkis- ráðherra, verið skipaöur formaður í sérstakri viðræðunefnd EFTA landanna við Evrópubandalagiö. Jóni Baldvin er sýnt mikið traust og hann ætlar að sanna að hann sé traustsins verður, með því að helga sig þessu mikflvæga starfi næstu sex mánuðina. Jón Baldvin veröur að sækja á milli tuttugu og þijátíu fundi á hálfu ári. Þessi fúndaherferð er svosum ekki mikið mál fyrir Jón Baldvin sem er fundavanur maður og hélt hundrað fundi hér um árið þegar hann var að spyija íslendinga hver ætti landið. En hundrað fundir á íslandi eru ekki það sama og tuttugu fundir í útlöndum og þess vegna verður Jón Baldvin að fá sér ráðherra í utan- ríkisráðuneytiö af því að hann má ekki sjálfúr vera aö því að vera ráðherra. Þaö er virðingarvert þeg- ar ráðherrar viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum aö þeir megi ekki vera að því að vera ráðherrar og gætu ýmsir aðrir ráðherrar margt lært af Jóni í þessu sam- bandi. Islendingum er mikill heiður aö því að Jón Baldvin skuli vera settur í forsæti fyrir EFTA löndunum og sannast enn einu sinni að enginn er spámaöur í sínu föðurlandi. Jóni og Alþýðuflokknum hefur gengiö erfiðlega að leiöa íslensku þjóðinni það fyrir sjónir hversu merkflegir þeir eru. Samkvæmt síðustu skoð- anakönnunum er fylgi kratanna komið niður í átta prósent og ríkis- stjómin, sem þeir mynduðu með Framsókn og kommum, er óvin- sælasta ríkisstjóm sem nokkm sinni hefur setið hér á landi og er þá langt til jafnaö. En eftir því sem vinsældunum hrakar á heimavelli, eykst hróöur þeirra kratanna á erlendum vettvangi. Annaðhvort er þjóðin ekki nægflega stór fyrir Alþýðuflokkinn eða þá að Alþýðu- flokkurinn er of stór fyrir þjóðina. Enda hafa þeir alltaf sagt að jafnað- arstefnan væri alþjóðleg manngild- ishugsjón sem ætti sér engin landa- mæri. Þeir spjara sig í útlöndum, meðan íslenskir kjósendur kunna ekki gott að meta. Það er ekki aðeins Jón Baldvin sem öðlast frama á erlendri grund. Fráfarandi formenn Alþýðuflokks- ins hafa allir gert það gott 1 útlönd- um og miklu betra en hér heima. Kjartan Jóhannsson hefur verið settur sem sérstakur fastafulltrúi í Brassel eftir að hafa verið hrakinn úr formennskunni í krataflokkn- um hér upp á ísaköldu landi. Þar fyrst nýtur Kjartan sín. Sömu sögu er að segja af Bene- dikt Gröndal. Effir að kratamir höfðu sparkað honum og talið hann hundónýtan formann gerðist Bene- dikt sendiherrá í Svíþjóð og stóð sig svo afburðavel aö hann var gerður sendiherra með aðsetri hér heima. En þá var hann settur í ferðabann af Jóni Baldvin og aum- ingja Benna leiddist -svo rosalega að vera hér heima innan um alla Islendingana sem ekki kunna að meta hann aö svo fór að Benedikt sagði upp. Sem betur fer var Jón Baldvin formaður Alþýðuflokksins þegar Benedikt sagði upp og Jón sá strax að hér færi dýrmætur starfskraftur tfl spillis fyrir umheiminn og snar- aði sér samstundis heim tfl að skipa Benedikt sendiherra hjá Samein- uðu þjóðunum. Þá tók Benni gleði sína á nýjan leik enda þarf hann ekki að hanga hér heima á Fróni og getur nýtt hæfileika sína eins og Kjartan og Jón Baldvin í útlönd- um þar sem fólk er ekki að ónotast út í Alþýðuflokkinn. Þannig er formennska í Alþýðu- flokknum augljós trygging fyrir alþjóðlegum hæfileikum og nú er bara að vona að Alþýðuflokkurinn skipti nógu ört um formenn á næstu árum svo við eignumst fleiri frammámenn í útlöndum. Enda þótt alþjóðahyggja jafnaö- armanna falli í grýttan jarðveg hjá afskekktri þjóð og fái lítið sem ekk- ert fylgi er það deginum ljósara að íslenskir jafnaðarmenn era mis- skildir og vanvirtir þangað til þeir komast í útlönd. Við eigum að flytja þessa menn út en ekki að vera að ergja þá og þjóðina með því aö hafa þá í innanlandspólitík sem engum gerir gagn. Jón Baldvin á það vel skilið að fá sér ráðherra á meðan hann má ekki vera að því að vera ráðherra sjálfur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.