Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Jarðfræðingar hressir þrátt fyrir veltuna:
Tuttugu halda íslands-
ferðinni ótrauðir áfram
„Það er gott hljóð í fólkinu og þaö
líður öllum þokkalega vel þrátt fyrir
veltuna í fyrradag. Við höldum
ótrauð áfram þessari jarðfræðiferð
um landið sem lýkur í Reykjavík á
laugardaginn," sagði Guðmundur
Sigvaldason, fararstjóri Norrænu
jarðfræðinganna sem lentu í rútu-
slysinu á Möðrudalsöræfum í fyrra-
dag.
Hópurinn gisti á Hótel Eddu á Hali-
ormsstað nóttina eftir slysið. Daginn
eftir var haldið áfram suður á bóginn
og gist í Nesjaskóla í nótt. Næstu
nótt gistir hópurinn á Kirkjubæjar-
klaustri, síðan Hvolsvelli og Laugar-
vatni.
Þegar lagt var upp í þessa íslands-
ferð voru 25 jarðfræðingar í hópnum.
í morgun voru 19 eftir en í dag var
von á einum með flugvél frá Akur-
eyri þar sem hann hafði verið undir
læknishöndum. Einn jarðfræðing-
anna er enn á sjúkrahúsi. Fjórir á-
kváðu að fara heim þar sem óþægi-
legt heföi veriö fyrir þá að hristast
meira í rútu.
Jarðfræðingarnir eru frá öllum
Norðurlöndum, 10 frá Svíþjóð og
fimm frá öðrum löndum. Þátttakend-
ur sækja um að komast í ferðina og
eru valdir af sérstökum nefndum.
Þetta er í 24. skipti sem jarðfræðiferð
um ísland er farin á vegum norræns
samstarfs. -hlh
Bifreiðaskoðun
vill skoða rútuna
„Þetta fyrirtæki á að vera leiö-
andi í öryggismálum ökutækja. Við
höfum áhuga á að vita af hverju
slys eins og þetta verða og nota þá
vitneskju, sem úr slíkri athugun
kemur, til að draga ályktanir sem
aftur verða til að koma í veg fyrir
slys. Þarna erum við að tala um
virka slysarannsókn. Slys sem má
rekja til tæknilegra galla mega ekki
fara óskoðuð fram hjá okkur þann-
ig að ekki sé hægt að draga af þeim
einhvern lærdóm," sagði Jón Bald-
ur Þorbjömsson hjá Bifreiðaskoð-
un íslands hf. við DV.
Bifreiðaskoöun íslands hefur far-
ið fram á að skoða rútu Guðmund-
ar Jónassonar sem valt á Möðru-
dalsöræfum í fyrradag. Átti Jón
Baldur von á að fá rútuna til skoð-
unar áður en hreyft yrði við henni
en rútan mun eiga að fara til
Reykjavíkur með skipi í dag.
Rútur eru nú skoöaðar eins og
önnur ökutæki en með nýrri skoð-
unarstöð og reglugerð á skoðun
þeirra að verða mun nákvæmari.
-hlh
Kenningar forsvarsmanna loödyrabænda um vanda greinarinnar:
Kalla í raun á 90
prósent
Með sömu rökum ogforsvarsmenn
loðdýrabænda hafa beitt um mis-
gengi á verðþróun hér innanlands
og gengisþróun frá 1981 má halda því
fram aö miöað við þróunina frá 1939
þyrfti aö fella gengi íslensku krón-
unnar um 90 prósent gagnvart þeirri
dönsku. Danska krónan kostaði þá í
dag um 82 krónur en ekki 7 krónur
og 85 aura.
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttasambands
bænda, hefur settfram þá kenningu
að ein helsta ástæða þess að loödýra-
ræktin sé gjaldþrota sé misgengi á
verðlagsþróun og gengisskráningu.
Frá 1981 til 1988 hafl lánskjaravísital-
an hækkað um 28 prósent umfram
hækkun á dönsku krónunni en loð-
dýrabændur fá greitt fyrir afurðir
sínar í þeirri mynt. Að sögn Hákonar
fá loðdýrabændur því um 500 millj-
ónum minna fyrir afurðir sínar í dag
en þeir hefðu fengið ef gengisskrán-
lækkun
ingin hefði fylgt lánskjaravísi-
tölunni.
Eftir að Hákon birti þessa kenn-
ingu hafa margir talsmenn loðdýra-
ræktarinnar tekið hana upp; nú síð-
ast Stefán Valgeirsson, stjórnarfor-
maður Stofnlánadeildar landbúnað-
arins.
Nú er það svo að þegar til lengri
tíma er htið tekur gengisskráning
mið af mismun á verðlagsþróun hér-
lendis og erlendis. Ef verðbólga er
hér um 20 prósent en ekki nema 5
prósent erlendis kallar það á gengis-
felljngu. Hún verður þó ekki 20 pró-
sent eins og hún þyrfti aö vera sam-
kvæmt kenningu Hákonar heldur
um 14,3 prósent.
Gengisstefna stjómvalda hefur
ekki fylgt þessu jafnvægi á milli
verðbólgu hér og erlendis frá degi til
dags. Hagfræðideild Seðlabankans
gefur því út vísitölur raungengis ís-
lensku krónunnar til þess að gefa til
gengis
kynna hvort misræmi sé orðið í
gengisskráningunni. Þessi vísitala er
miðuð við 100 stig árið 1980 og var
102,3 stig á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs. Með miklu gengissigi að undan-
fómu má búast við að þessi vísitala
hafi lækkað og sé jafnvel komin nið-
ur í 100 stig. Það er því fráleitt að
raungengi krónunar sé um 28 pró-
sent hærri en 1981 eins og talsmenn
loödýrabænda gera.
Ef gengi íslensku krónunnar hefði
veriö skráð samkvæmt kenningu
þeirra frá því áreiöanlegar mæhngar
á innlendri verðlagsþróun hófust
árið 1939 væri danska krónan í dag
seld á 81,95 krónur en ekki 7,85 krón-
ur. Til þess að ná því marki í dag
þyrfti að fella gengi íslensku krónun-
ar um 90 prósent.
Á sama hátt kostaöi Bandaríkja-
dollar 423,83 krónur en ekki 58,42
krónur og breska pundið kostaði
1.664,72 enekki 93,77 krónur. -gse
Samnlngar flugfreyja samþykktir:
Sokkar fyrir flugþjóna ekki með
„Þetta er nú í fyrsta sinn í sögu
Flugfreyjufélagsins sem samið er
fyrir aðeins annað kynið,“ sagði Sig-
urhn Scheving hjá Flugfreyjufélag-
inu en félagiö samþykkti nýgerðan
kjarasamning í gær. Sem kunnugt
er uröu sokkabuxur ásteytingar-
steinn í samningunum við Flugleiðir
en eftir sáttatiUögu Rikissáttasemj-
ara var samið um eitt par á mánuði.
Flugþjónar verða hins vegar afskipt-
ir því ekki tókst að semja um sokka
fyrir þá. Gerð var krafa um að þeir
fengju tvö pör á mánuði.
„Flugleiðamenn kusu að leysa mál-
ið á þennan hátt með því aö láta flug-
þjóna verða afskipta," sagði Sigurlín.
Einn flugþjónanna, Stefán G. Þórs-
son, sagði að flugþjónar hefðu vita-
skuld samúð með flugfreyjum sem
heföu þurft að eyða 2000 krónum á
mánuði í sokkabuxur en hann játaöi
jafnframt að það heföu verið von-
brigði að sokkamir hefðu ekki náðst
með í samningunum. Ekki átti hann
von á að leitað yrði til Jafnréttisráös
út af málinu.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafuUtrúa Flugleiða, kom krafan
um sokka handa flugþjónum ekki
fram fyrr en eftir að sáttatiUaga hafði
verið lögð fram. Þá sagði Einar að
líklega yrði leitað tilboða varðandi
sokkabuxnakaup fyrirtækisins.
-SMJ
Það þótti kraftaverki likast að flestir norrænu jarðfræðinganna skyldu sleppa
litið meiddir eftir að þessi rúta frá Guðmundi Jónassyni hafði oltið 40 metra
niður í gilskorning á Möðrudalsöræfum.
Loðdýrabændur fá
bráðabirgðastyrk
Ríkisstjómin samþykkti í gær 38 ur.
milljón króna framlag úr ríkissjóði Þessi aðstoö á að halda Ufl í loð-
tilniöurgreiðslnaáfóðrihandaloð- dýraræktinni eitthvaö fram á
dýrum. Þessi niöurgreiðsla bætist haustið. Hún er ætluð Ul þess að
viö 55 mUJjón króna niöurgreiöslu gefa tíma tU víðtækari aðgerða sem
sem samþykkt var snemma á þessu fela i sér afskriftir skulda greinar-
ári. innar við StoflUánadeUd land-
Auk þessa munu loðdýrabændur búnaðarins, Byggðastofnun og við-
og fóðurstöðvar fá endurgreiddan skiptabankanna. Vegna andstööu
söluskatt. Forsvarsmenn greinar- Alþýðuflokksins við víðtækar að-
innar og landbúnaðarráðuneytið gerðir nú var ákveðið að bíða með
hafa gert kröfu um endurgreiðslu þær þar til þing kemur saman. Þá
á um 70 til 100 milljónum. Ágrein- mun landbúnaðarráöherra freista
ingur er innan ríkisstjómarinnar þess að ná stuöningi þingraanna
um hvort þessi upphæö er rétt SjálfstæðisflokksinsogKvennalist-
Fjármálaráöuneytið mun reikna ansviðvíðtækaraðgerðir.
út hversu há endurgreiðslan verð- -gSe
Nýja lánskjaravísitalan:
Hækkar enn minna en sú gamla
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkar um 0,7 prósent í næsta mán-
uði. Þessi hækkun er jöfn hækkun
framfærsluvísitölu en lítið eitt meiri
en hækkun launavísitölu. Láns-
kjaravísitalan hækkar því örlítið
minna en sem nemur hækkun fram-
færslu- og byggingarkostnaðar.
Nýja lánskjaravísitalan hefur
hækkað 12,2 prósent frá áramótum.
Eldri grunnur vísitölunnar hefði
hins vegar hækkaö um 15,0 prósent
ef hún væri enn í gildi. Mismunurinn
er 2,8 prósent.
Ef gert er ráð fyrir að heildarskuld-
bindingar landsmanna, sem bundnar
era lánskjaravísitölu, nemi um 200
milljörðum hafa um 5,6 milljarðar
verið fluttir frá sparifjáreigendum til
skuldara það sem af er þessu ári.
Verðbólga er minni milli júní og
júli en hún hefur verið frá því í verð-
stöðvun. Á mælikvarða framfærslu-
vísitölu og vísitölu byggingarkostn-
aðar jafngildir hún um 8,7 prósent
árshækkun. Hækkun undanfarna
þrjá mánuði jafngildir liins vegar um
20 tfl 25 prósent hækkun. Hækkun
lánskjaravísitölunnar undanfarna
þrjá mánuði liggur þarna mitt á milli.
-gse
Jarðskjálfti austur
af Vopnafirði
Vart varð við jarðskjálfta við land- skjálftans í morgun að sögn Gunnars
grunnsbrúnina beint austur af Guðmundssonar. Eldd kemur oft
Vopnafirði. Var skjálftinn 4,2 á Rich- fyrir að skjálftar verði við landgrun-
ter. nið,enþóafogtil,sérstaklegaaustan
Jarðeðlisfræðideild Veðurstofunn- til.
ar hafði ekki nákvæma staðsetningu -GHK