Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Qupperneq 5
5
- i .1.
MIÐVIKUDAGUR 19. JULÍ 1989.
Fréttir
Deilt um skilrdng á nýrri reglugerð fl ármálaráðuneytisins:
Hagvirki verður að
leggja fram bankaábyrgð
- segir Lárus Ögmundsson skrifstofustjóri
í ^íðustu viku breytti fjármála-
ráðuneytið reglugerð sinni um inn-
heimtu á vangoldnum söluskatti.
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri tekju- og lagasviðs fjármála-
ráðuneytisins, sagði að ástæða þess
væri sú að láðst hefði að geta þess
í fyrri reglugerðinni að banka-
tryggingarákvæði ættu einnig við
um áfrýjun til almennra dómstóla.
Viðbótin, sem kom í reglúgerðina,
er því: „Beri gjaldandi ágreining
undir dómstóla getur innheimtu-
maður þó samþykkt nýja banka-
ábyrgð þar til endanlegur dómur
hefur gengið í málinu.“
Forstjóri Hagvirkis, Jóhann G.
Bergþórsson, hefur haldið því fram
að þetta ákvæði gerði það að verk-
um að fyrirtækið gæti áfram látið
duga þá ábyrgð sem fyrirtækið hef-
ur veitt meðan á málmeðferð fyrir
ríkisskattanefnd stóð. Semsagt að
fyrirtækið þurfi ekki að leggja fram
bankaábyrgð núna.
Það segir Lárus að sé misskiln-
ingur: „Reglur okkar núna lúta að
því að það sé ekkert annað sem
frestar innheimtuaðgerðum en
greiðsla eða bankaábyrgð. Við höf-
um lögtaksheimildir í lögunum og
þurfum ekki að semja um þær. Við
höfum lokunarheimildir i lögunum
og semjum ekki um þær. Það sem
við segjum er að við föllumst á
bankaábyrgð því að bankaábyrgð
er nánast ígildi greiðslu," sagði
Lárus. Kjartan Þorkelsson, fulltrúi
sýslumanns, hefur tekið undir
þennan skilning Lárusar.
Eins og fram kemur hér að fram-
an haföi innheimtuaðili, sem er í
þessu tifelli sýslumaður Rangár-
vallsýslu, lögtaksheimild þegar
farið var út í að innsigla skrifstofur
Hagvirkis. Ástæða þess að svo var
gert sagði Lárus vera þá að inn-
heimtumaðurinn, sem ræður inn-
heimtunni, hefur metið það svo að
eignir stæðu ekki fyrir kröfunni.
Þá er tahð að lokun starfsemi sé
áhrifarík aðferð til að fá skuldara
til aö greiða eins og reyndar hefur
víða sannast.
Fulltrúi sýslumanns hefur sagt
að það sé fjármálaráðuneytisins að
ákveða hvort það sættir sig við veð
af hálfu Hagvirkis fyrir 108 millj-
óna króna söluskattsskuld fyrir-
tækisins ef fyrirtækið kýs að benda
á ný veð.
Lárus taldi að ekki kæmi til
greina að sætta sig við slík veð. „Ef
fyrirtækið gefiu' lagt fram slík veð
þá ætti það að geta fengið banka-
ábyrgð út á þessi sömu veð,“ sagði
Lárus.
-SMJ
Forsætisráðherra Grænhöfðaeyja í heimsókn:
Þróunaraðstoð íslend-
inga hefur nýst vel
Pedro Pires, forsætisráðherra Græn-
höfðaeyja, var staddur hér á landi í
gær til að ræða við ráðamenn þjóðar-
innar um áframhaldandi þróunarað-
stoð íslands við Grænhöföaeyjar.
Grænhöföaeyjar eru eitt fátækasta
ríki veraldar, þjóðarframleiðsla
þeirra er aðeins um 600 dollarar á
mann en hér á landi er hún tæplega
20.000 dollarar. Eyjabúar hafa því
mikið leitað aðstoðar hjá öðrum
þjóðum.
Á blaðamannafundi, sem haldinn
var í tilefni komu Pires, sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra að áþreifanlegur árangur heföi
náðst á síðustu tíu árum í aðstoð ís-
lands við Grænhöföaeyjar - sérstak-
lega á sviði sjávarútvegs. Það hefði
verið mjög skynsamleg ákvörðun að
veita Grænhöföaeyjum þróunarað-
stoð því þannig kæmi okkar litla
framlag best að notum, einhver spor
væru skihn eftir í sandinum.
Sagði Steingrímur að hann heföi
Pedro Pires, forsætisráðherra Grænhöfðaeyja, á blaöamannafundi með
Steingrimi Hermannssyni forsætisráðherra. DV-mynd JAK
boðið áframhaldandi aðstoð. Græn- hannboðiðaðþeirsendumennhing-
höfðaeyingar heföu sýnt því áhuga á að til að kynnast íslenska kerfinu.
að fá aö kynnast íslenskri stjórn- Einnig hefur íslenskur sérfræðingur
sýslu, t.d. skattheimtunni, og heföi athugað jarðhitamöguleika á eyjun-
um en mikill áhugi er fyrir hendi hjá
heimamönnum að finna leiðir til að
nýta jarðhitann. Þeir hafa þó ekki
sömu not fyrir hann og við því með-
alhiti yfir vetrarmánuðina er tæp-
lega 21 stig.
Pires sagði að Grænhöföaeyjabúar
teldu samstarf smáþjóða mjög mikil-
vægt. Árangur þróunaraðstoðar ís-
lendinga við þjóðina heföi verið já-
kvæður og hann vonaði að samstarf-
ið væri framlag til uppbyggingar eyj-
anna.
Hann sagði að eitt af vandamálum
þróunarlandanna væri stjómsýslan.
Grænhöföaeyjabúar ynnu nú að úr-
bótum í þeim efnum og væru þeir
að afla sér upplýsinga um reynslu
ólíkra landa á því sviði. Þó ísland og
Grænhöföaeyjar byggju við ólíkar
aðstæður hvað varðar veðurfar og
vistkerfi þá væri íbúafjöldinn svipaö-
ur og það væri það sem máh skipti.
-GHK
Akureyrarbær:
Ársskýrsla
1988 komin út
Gyifi KrÍ3tján33on, DV, Akureyrt
Ársskýrsla Akureyrarbæjar
fyrir árið 1988 er korain út en í
henni er að finna yfirlit yfir starf-
semi bæjarfélagsins á síðasta ári
ásamt reikningum bæjarins, upp-
lýsingum um nefndir bæjarins og
ýmislegt fleira.
í ávarpi Sigfusar Jónssonar
bæjarstjóra í skýrslunni kemur
fram að slik ársskýrsla er nú gef-
in út í annað skiptí, sú venja hafi
tiökast meðal stórfyrirtækja um
nokkurt skeið og nokkur bæjar-
félög hafi tekið upp þennan sið á
síðustu árum.
Sigfús getur um nokkra þættí í
starfsemi bæjarins á síöasta ári
en segir síðan í lok ávarps síns:
„Til þess aö góður árangur náist
í stjóm bæjarfélagsins þarf sam-
henta og ábyrga bæjarfulltrúa,
og einnig duglegt, samhent og
áhugasamt starfsfólk. Þessu var
hvom tveggja öl að dreiía á árinu
1988.
Leyfi ég mér hér með að þakka
bæjarfulltrúum, fulltrúum í
nefndum og starfsmönnum fyrir
mjög ánægjulegt samstarf á árinu
og þátt þeirra f því að gera góðan
bæ betri.“
Húnaflói:
Þorskurinn
fyrr á
ferðinni
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Þorskurinn er kominn á grunn-
mið í Húnaflóa og er þaö óvenju
snemmt þvi mörg undanfarin ár
hefur hann ekki komið neitt að
ráði fyrr en í ágústmánuði. 17.
júlí vora fimm manns að vinna
við að ftytja þorsk í móttöku
Kaupfélags Strandamanna á
Noröurfirði.
Að sögn Gísla Agústssonar
komu 600 kíló af góðum þorski
úr fjórum trillum. Gunnsteinn
kaupfélagsstjóri er búinn að
koma á góðri smábátahöfn á
Noröurfiröi og hafa trillur frá
Djúpuvík og Gjögri flutt sig tíl
Norðurfjarðar en sjómennimir
fara svo á bílum sínum heim eför
löndun á Norðurfirði.
„Ég knékrýp ekki fyrir þessum körlum“
- segir Jón Valgeirsson, trúnaöarmaöur verkamanna hjá Siglufjarðarbæ, sem var sagt upp störfum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Jóni Valgeirssyni, trúnaðarmanni
félagsmanna í Verkalýðsfélaginu
Vöku á Siglufirði sem starfa hjá
Siglufjarðarbæ, var sagt upp um
mánaðamótín febrúar/mars sl. og
var ástæðan sögð vera samdráttur.
„Þetta er auðvitað ólögleg uppsögn
því að það má ekki segja trúnaðar-
manni upp störfum nema öllum þeim
sem starfa með honum sé sagt upp
um leið,“ sagði Jón er DV ræddi við
hann á dögunum. „Mér var reyndar
sagt upp árið 1985, strax eftir að ég
var orðinn trúnaðarmaður. Þá átti
að fækka mönnum en þeir áttuðu sig
á vitleysunni sem þeir voru að gera
með því að segja mér upp og drógu
uppsögnina til baka.“
Jón sagði að engar haldbærar
ástæður gætu verið fyrir uppsögn
hans. Hann heföi hins vegar gert at-
hugasemd við það að verkstjóri hjá
bænum heföi verið farinn að vinna
á tækjum því að það væri óheimilt.
Það mál fór fyrir tæknifræðing bæj-
arins sem var ekki ánægður með
þessa afskiptasemi Jóns en féllst þó
á sjónarmið hans. Þetta var í febrúar
og um næstu mánaðamót fékk Jón
uppsagnarbréfið. í því var ástæða
uppsagnarinnar sögð samdráttur og
það var ítrekað í bréfinu nokkrum
línum neðar. Jón lét síðan af störfum
16. júní og hefur verið án atvinnu
síöan.
„Fólki finnst þetta rotið,“ sagði El-
ísabet Matthíasdóttir, kona Jóns,
þegar þau voru spurð hvort þau
heföu orðið vör við afstöðu fólks í
bænum í þessu máh. „Ég veit ekki
hvað tekur við hjá mér, það er óþol-
andi hér í bænum vegna þessa máls.
Hér er enga vinnu að fá og sennilega
tekur ekkert annað við en að fara
héðan. Það er þó ekki hlaupið að
því, hús seljast ekki og það er erfitt
að skilja íbúðina okkar bara eftir
tóma. En það er alveg á hreinu að
ég knékrýp ekki fyrir þessum körl-
um, frekar fer ég úr bænum," sagði
Jón.
Jón Valgeirsson og Elísabet Matthíasdóttir.
DV-mynd gk