Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989.
9
Utlönd
Verkfallsmenn í Prolopyevsk í Vestur-Síberíu. Námumennirnir í Siberíu hafa nú verið í verkfalli í rúma viku.
Símamynd Reuter
Aflýsa
mótmælum
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í
Myanmar, áður Burma, aflýstu mót-
mælaaðgerðum þeim sem áætlaðar
voru í dag. Var aðgerðunum aflýst
vegna þrýstings frá herstjórn lands-
ins en tugir hermanna tóku sér stöðu
á götum Rangoon, höfuðborgarinn-
ar, í gær. Var þeim ætlað að koma í
veg fyrir að stjómarandstaðan efndi
til minningarathafnar við graíhýsi
Aung San, þjóðhetju Myanmar, sem
myrtur var árið 1947, í dag, á degi
píslarvottanna. Fulltrúar stjórnar
buðu stjórnarandstæðingum að taka
þátt í opinberri minningarathöfn en
margir höfnuðu því.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
hafa hvatt fólk til að halda sig innan
dyra í dag. Að sögn vestrænna
stjómarerindreka eru hermenn grá-
ir fyrir jámum á götum Rangoon og
fregnir hafa borist af einhverjum
bardögum. Ekki hafa fleiri hermenn
safnast saman á götum höfuðborgar-
innar það sem af er árinu að sögn
stjórnarerindreka,
Mikil spenna ríki nú í landinu en
einn helsti leiðtogi stjómarandstæð-
inga, Aung San Suu Kyi, dóttir Aung
San, hefur haldið ræður þrátt fyrir
bann stjórnvalda.
Fréttamanni Reuter-fréttastofunn-
ar, David Storey, var vísað úr landi
í gær en hann var eini erlendi frétta-
maðurinn í landinu. Engum frétta-
mönnum verður hleypt inn í landið
að sögn yflrvalda.
Herstjórnin lét handtaka tvo leið-
toga námsmanna í gær og tilkynnti
um harðar refsiaðgerðir sem beitt
verður gegn andófsmönnum.
Reuter
Verkfallsmenn
gefast ekki upp
Námuverkamenn í tveimur af auð-
ugustu kolahéruðum Sovétríkjanna,
í Síberíu og i Úkraínu, létu í gær til-
mæli yflrvalda sem og margra leið-
toga sinna um að hætta verkföllum
sem vind um eyru þjóta. Verkfóll í
Sovétríkjunum héldu áfram að
breiðast út í gær og er talið að um
150 þúsund verkamenn hafl nú lagt
niður vinnu.
Verkfallsmenn fara fram á betri
aðbúnað, hærri laun og meiri pólit-
íska sem og efnahagslega sjálfs-
stjórn, þ.e. minni afskipti Moskvu á
stjóm kolanámanna.
Þessi verkfallsalda nú er sú versta
sem yflrvöld í Sovétríkjunum hafa
þurft að horfast í augu við síðan á
þriðja áratugnum.
Verkamenn í um fjörutíu námum
í Donbass héraði í lýðveldinu Úkra-
ínu, einu auðugasta kolasvæði Sovét-
ríkjanna, gengu til hðs við starfs-
bræður sína í Síberíu en þeir síðar-
nefndu hafa verið í verkfalli í rúma
viku. Segja embættismenn í Úkraínu
að enn breiðist verkfollin út. Nám-
urnar í Donbass sjá fyrir um einum
fjóröa kolaframleiðslu Sovétríkj-
anna.
Ljóst er að stjórnvöld líta þetta mál
alvarlegum augum. Tilkynnt var í
gær að sovéska þingið myndi fjalla
um tillögur að nýjum lögum um
verkfoll og yrði því máli hraðað.
í Propopyevsk í Vestur-Síberíu, þar
sem heita má að höfuðstöðvar verk-
fallsmanna sem og fulltrúa stjórn-
valda séu, ræddu fulltrúar Moskvu-
stjórnarinnar við fulltrúa verkfalls-
manna í gær. Allt kom fyrir ekki,
þeir neita að snúa til starfa á ný.
Fréttaskýrendur telja að verkföll-
in, auk blóðugra rósta í Abkhazia-
héraði í Georgíu, gætu reynst alvar-
legasta ógnun við stjórn Mikhails
Gorbatsjovs Sovétforseta síðan hann
kom til valda árið 1985. í Abkhazía-
héraði, sem er sjálfstjórnarhérað í
Georgíu, hafa sautján látist í átökum
milli Georgíubúa og Abkhazíubúa.
Fréttaskýrendur segja að verkföll-
in sem og rósturnar séu m.a. við-
brögð almennings við slæmu efna-
hagsástandi í Sovétríkjunum. Átökin
í Abkhazíu hófust á laugafdagskvöld
í höfuðborg héraðsins, Sukhumi.
Neyðarástandi sem og útgöngubanni
var lýst yfir í borginni í gær. Átök
milli þjóðarbrota í Sovétríkjunum
hafa kostað meira en tvö hundruð
lífið síðustu átján mánuði.
Gorbatsjov sagði í óvæntri ræðu á
fundi sovéska þingsins í morgun að
verkfall námamannanna hefði skap-
að alvarlegt ástand í landinu og að
það gæti ógnað umbótastefnu sinni.
Sagði hann að framleiðslutap væri
þegar eitt tonn kola.
Reuter
Lítil geislun mældist
Örlítið af geislavirku joði fannst í
þeim sýnum sem tekin voru í Bar-
entshafi þar sem sovéskur kafbátur
lenti í vandræðum á sunnudag, að
því er norsk yfirvöld skýrðu frá í
gær. Magnið er hins vegar svo lítið
að það er ekki áhtið hættulegt.
Geislunin getur stafað frá sovéska
kafbátnum en ekki þykir hægt að slá
því fóstu.
Einnig voru tekin sýni af yfirborði
þeirrar flugvélar sem fréttamenn
flugu í til staðarins þar sem óhappiö
átti sér stað. Geislun reyndist ekki
mælanleg.
Norsk yfirvöld skýrðu frá því á
sunnudag að eldur hefði orðið laus í
sovéskum kafbáti. Hafði norskt eftir-
htsskip séð reyk leggja frá kafbátn-
um. Aðspurð sögðu sovésk yflrvöld
á sunnudagskvöld að um æfingu
hefði verið að ræða en á mánudags-
morgun að bflun hefði orðið í kjarna-
ofni bátsins. Reykurinn hefði stafað
af gangsetningu dísilvélar bátsins. Sovéski kafbáturinn sem Norömenn fullyrtu að kviknað hefði í á Barentshafi.
NJB Símamynd Reuter
Spicer hjöruliðakrossar • Viðgerðasett fyrir radialhjólbarða • DrifhlutfölI
• Fjórhjólaspil • Driflokur • Felgur • Blæjur • Brettakantar •
Loftmælar (1-20 Ibs.) • Rafmagnsviftur • Demparar • Downey fjaörir
• Trail Master • Upphækkunarsett • Warn spii, 3,4, 5 og 6 tonn, 12 v. og 24 v.
BFGoodrich
AWRT
Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188
ATH.
Eigum fyrirliggjandi drifhlutföll og læsingar í Suzuki Fox 410/413
Ennþá
á gamla verðinu
• Ath. Einnig til með fínna' munstri.
• Takmarkað magn. Greiðslukjör.
• Útborgun 1/4, eftirstöðvar ð 4-6 mánuðum.
Betra grip en áður
Hreinsa sig betur í torfærum
”Plana“ síður — vatn rennur betur út úr munstrinu
Meira yfirborð — aukin ending
Hljóðlátust allra Mudder jeppadekkja
3 lög í belg — engir aðrir jeppahjólbarðar bjóða upp
á slíkt, nema þeir sem eru hannaðir fyrir keppni.
5 lög í bana þar af 2 stálbelti sem gefa aukna rás-
festu
Kodak
Express
6 MÍIVÚTUR
Opnumkl. 8.30.
t
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
LAUGAVEGI 178 • SÍMI 68 58 11