Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Madonna
á góöa möguleika á að komast í
kvikmynd með Sylvester Stallone
en að vísu hefur hún ekki fengið
formlegt boð. Stallone hyggur nú
á gerð kvikmyndar um líf hafnar-
boltastjörnunnar Joe DiMaggio.
Stallone ætlar sér náttúrulega
hlutverk söguhetjunnar og leyfið
var auðsótt. En Joe vildi vita
hveijum Stallone ætlaði hlutverk
elskulegrar eiginkonu sinnar,
Marilyn Monroe. Madonna leik-
ur Marilyn, svaraði Stallone án
þess að hika. Madonna verður
líklegast að lita hárið einu sinni
enn.
Jóhanna syngur fyrir aldraða á
Hrafnistu.
DV-myndir S
Að undanförnu hefur Jóhanna Möller sungið fyrir aldraða á dvalarheimilum og viðar. í dag og á morgun mun
hún syngja i Hveragerði. Jóhanna hefur undanfarin átta ár verið búsett á Ítalíu og er formaður Ítalíufélagsins. í
október verður hún fararstjóri hjá Evrópuferðum þegar hópur aldraðra farþega leggur upp'í ferðir á suðlægar slóðir.
Barbra
Streisand
brá skjótt við þegar lífi htlu fisk-
anna hennar var ógnað. í vinnu
hjá henni voru nokkrir iönaðar-
menn og tókst einum þeirra að
reka járnstiga í risastórt fiskabúr
þar sem í syntu hundruð fiska.
Glerið sprakk og út runnu falleg-
ir fiskar í hundraðatali. Barbra
var ekkert að tvínóna við hlutina,
fyhti baðkarið af vatni og tíndi
fiskana á örskammri stundu upp
í það. Allir fiskamir komust lífs
af úr þessum hremmingum en
Barbra hefur engar áhyggjur af
skemmdunum sem mörg þúsund
lítrar af vatni ollu.
Michael
Jackson
er mikill aðdáandi og vinur Liz
Taylor. Nýlega bauð hann henni
hlutverk í myndbandi sem stend-
ur til að gera í tengslum við eitt
laga þans. Þar á Liz að leika sitt
þekktasta hlutverk, nefnilega
sjálfa Cleopötru. Hugmyndin er
að Liz Uggi værðarlega á bekk og
litfi börn verði aUt í kring blak-
andi pálmablöðum. Hún mun
hafá glaðst við boðið og svarað
þyí játandi. Illar tungur benda á
að mikið vatn hafi runnið til sjáv-
ar síðan Liz-Cleopatra var upp á
sitt besta en hverju er ekki hægt
að redda með góðri fórðun?
er á leiðinni
Arnold Schwarzenegger og eigin-
kona hans, bandarísk sjónvarps-
kona af Kennedy-slektinu, Maria
Shriver, lentu í heljarinnar rifrildi
fyrir nokkru út af bameignum.
Eftir ósköpin sáu þau svo mikið
eftir öUu að þau sóm þess dýran
eíð að rífast aldrei aftur. í beinu
framhaldi af því áttu þau eldheita
ástamótt, og bingó!
Hjónakomin áttu í erfiðleikum
fyrir nokkrum árum, leituðu til
sérfræðinga og voru meira að segja
farin að velta fyrir sér glasabarni.
En svo var rifist og þá dugði gamla
góða aðferðin vel. Hver segir að
hjónarifrildi geti ekki leitt eitthvað
gott af sér.
Zsa Zsa Gabor
fyrir rétti
Zsa Zsa Gabor, leikkona í Hollywood, mætti fyrir rétti á dögunum og
lýsti sig saklausa af áburði um að hafa löðrungað lögregluþjón sem
stöðvaði hana fyrir umferðarlagabrot fyrir nokkrum vikum. Greinilegt
er að fjölskylda og vinir leikkonunnar standa með henni því þeir fjöl-
menntu fyrir utan dómsalinn og kröfðust þess að málið yrði látið niður
falla. Zsa Zsa er fyrir miðjum hópnum en til vinstri á myndinni er dótt-
ir hennar, Francesca Hamilton.
Julio bálskot-
inn í Brooke
Julio Iglesias, söngvarinn meö
hunangsröddina, er svo skotinn í
leikkonunni Brooke Shields að hann
hefur- sent henni blóm upp á nær
hvem dag í marga mánuði. Að auki
hefur hann ósp^rt notað símann í
tilraunum sínum til aff heilla
' draumadisina.
„Brooke er akkúrat konan sem ég
þarf,“ segir hinn 45 ára gamh glaum-
gosi um stúlkuna, sem ekki er nema
23 ára. „Hún er falleg, rík, gáfuð og
ung,“ heldur hann áfram/Allt þetta
finnst honum ómótstæðilegt.
Sagt er að Brooke sé afskaplega
spennt fyrir súkkulaðidrengnum,
finnist hann eins og ómótstæðilegur
segull. Mamma hennar er þó á öðru
máli, enda alkunn fyrir stifni. „Mér
.finnst hann vera- eins og stóri vondi
úlfttrinn sem er að búa sig undir aff
borða hanaRauöhettuna mína,“ seg-
ir mamma. Hún er miklu hrifnari af
Egypta nokkrum, 33 ára og flugrík-
um, sem hefur verið fylgisveinn
þeirra mæðgna um nokkurt skeið.