Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Page 28
28
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989.
Andlát
Áskell S.O. Kjerulf, Bogahlíð 11, lést
í gjörgæsludeild Landakotsspítala 17.
júlí.
Jaröarfarir
Jóhann Guðmundsson, Höfðagötu
13, Hólmavík, andaðist á Landa-
kotsspítala þann 15. júlí. Útfórin fer
fram frá Hólmavíkurkirkju laugar-
daginn 22. júlí kl. 14.
Samúel Jóhannsson prentari verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju
iimmtudaginn 20. júli kl. 13.30.
Sigurjón Hallbjörnsson símvirkja-
meistari, Sörlaskjóli 82, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 20. júlí kl. 15.
Ingimunda Þorbjörg Gestsdóttir,
Austurtúni 2, Hólmavík, verður jarð-
sungin fimmtudaginn 20. júlí kl. 10.30
frá Fossvogskapellu.
Ólafur M. Olafsson lést 7. júlí. Hann
fæddist í Reykjavík 16. júní 1916, son-
ur Ólafs Magnússonar og Þrúðar
Guðrúnar Magnúsdóttur. Ólafur
brautskráðist úr Verslunarskóla ís-
lands 1935 og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1941.
Hann var lengst af kennari í íslensku
og þýsku í Menntaskólanum í
Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona Ól-
afs er Anna Christine Hansen. Þau
hjónin eignuðust tvö böm. Útför Ól-
afs verður gerð frá Fossvogskirkju í
dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Opið hús í Norræna húsinu
Fimmtudaginn 20. júlí kl. 20.30 verður
næsti fyrirlesturinn í sumardagskrá Nor-
ræna hússins. Ragnheiður Þorsteins-
dóttir, forstöðumaöur Árbæjarsafns ís-
lands, talar um „Sögu Reykjavíkur í 200
ár“. Fyrirlesturinn verður haldinn á
norsku. Eftir stutt kaffihlé verður sýnd
kvikmyndin „Þtjú andlit íslands" með
norsku tali. Kaffistofa hússins býður upp
á veitingar og bókasafnið er opið þessi
kvöld til kl. 22. Þar liggja frammi þýðing-
ar íslenskra bókmennta á öðrum nor-
rænum málum og bækur um ísland. Að-
gangur er ókeypis og ailir velkomnir.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 19. júli kl. 20.
Nátthagavatn-Selvatn. Létt kvöldganga
milli fallegra vatna á Miðdalsheiöi. Verð
600 kr. Ferð í Strompahella er frestað til
miðvikudagskvölds 2. ágúst. Brottför kl.
8 að morgni. Tilboðsverð á sumardvöl.
Dvalartími að eigin vali. Helgarferðir
21.-23. júli
1. Þórsmörk-Goðaland. Gist í Útivistar-
skálunum Másum á miðju Goðalandi.
Hressandi gönguferðir við allra hæfi.
2. Veiðivötn-Útilegumannahreysið.
Kynnist þessari perlu öræfanna. Hugað
að Qallagrösum. Tjöld.
Ferðir um verslunarmannahelgina:
4.-7. ágúst.
1. Homstrandir-Homvík.
2. Þórsmörk.
3. Núpsstaðarskógar.
4. Langisjór-Sveinstindur-Lakagigar-
Fjallabaksleið syðri. Ath: nauðsynlegt er
að panta tjaldstæði á umsjónarsvæði Úti-
vistar á Goðalandi (Þórsmörk) um versl-
unarmannahelgina vegna fjöldatak-
markana. Uppl. og farm. á skrifst. Gróf-
inni 1, við Vesturgötu 4. Opið kl. 9.30-
17.30. Sjáumst.
Fjölbreyttar sumarleyfisferðir innan-
lands.
1. 20.-25. júlí, Homstrandir.
2. 22.-29. júlí, Nýr hálendishringur.
3. 28. júlí - 2. ágúst, Eldgjá-Þórsmörk.
4. og 5. 3.-8. ágúst og 3.-11. ágúst, Hom-
strandir.
6. 3.-8. ágúst, Laugar-Þórsmörk.
7. 18.-27. ágúst, Noregsferð.
Tapað fundið
Kettlingur fannst í Hafnarfirði
Svartur kettlingur í hvítum sokkum og
með hvítt á nefi fannst í Miðvangi í Hafn-
arfirði. Upplýsingar í síma 22243.
Læða týnd úr Þingholtunum
Fjórlit læða, svört, hvít, rauðbrún og
brún, mjög smávaxin týndist frá heimili
sínu í Þingholtunum 1. júlí sl. Hún er
ekki með hálsól. Sá sem hefúr orðið var
við hana vinsamlegast hringi í Helgu í
s. 24091.
Sýningar
Listsýning í Ólafsvík
Fimmtudaginn 20. júli opnar Gallerí Borg
sýningu í samvirmu við Lista- og menn-
ingarmálanefnd Ólafsvíkur í grunnskól-
anum í Ólafsvík. Á sýningunni, sem er
sölusýning, em grafíkmyndir, vatnslita-,
krítar- og pastelmyndir, olíumálverk og
Menning
Austurríki virðist hafa alið fleiri
einfara og sérvitringa í myndlist
heldur en nokkurt annað land í
Evrópu. Nútímalistin hélt til dæm-
is ekki innreið sína í austurríska
menningu með kúbisma og afstrakt
hst eins og annars staðar heldur
fyrir tilstilh ýmissa arftaka síð-
impressjónismans, til að mynda
Gustavs Klimt, Egons Schiele og
Oskars Kokoschka en þeir tóku
mið af Van Gogh, Touloise-Lautrec
og Munch, ekki Cézanne eða Seurat
eins og ahir aðrir.
List þeirra varð til í því andrúms-
lofti upplausnar og lausungar sem
setti mark sitt á síðustu daga hins
austurrísk-ungverska keisara-
dæmis þegar menn sveifluðust
mhli munaðar og meinlætastefnu.
Austurrískt menningarlíf varð á
þessum tíma sérkennilega inn-
hverft, menn voru með dauðann á
heilanum, eltust við fáfengilegustu
smáatriði í fræðum sínum, iðkuðu
dulspeki og lögðu rækt við furður
og fjarstæður.
Þetta á ekki aðeins við myndlist-
armennina. Meðai samtímamanna
þeirra í Vínarborg voru hugsuðim-
ir Wittgenstein og Freud, tónskáld-
in Mahler og Schönberg, háðfugl-
inn og þjóðfélagsgagnrýnandinn
Karl Kraus og rithöfundarnir
Trakl og Musil.
En þrátt fyrir gróskuna var þetta
menningarhf, svo notuð séu orð
safnamannsins Rudi Fuchs „staðn-
að, vondauft og gersneytt stórum
hugsjónum, í senn dómhart og aga-
laust, gjamt á að nota tilflnningar
einstakhngsins sem ahsherjar-
mæhkvarða á lífið og hstina.“
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Hlaupa út undan sér
Þetta er í stórum dráttum sú
menning sem austurrískir hsta-
menn hafa fengið í arf og æð.
Því skal engan undra þótt þeir
hafi rekist iha í hópi nútímahsta-
manna - hafi verið gjamir á að
hlaupa út undan sér með margvís-
legum hætti.
Líkast til var það engin tilvhjun
að Rudolf Schwartzkogler, sá sem
framdi þann óhugnanlega geming
að skera undan sér og deyja fýrir
framan myndavélar árið 1969, var
einmitt austurrískur.
Við íslendingar kynntumst fyrir
nokkmm ámm einum þessara
austurrísku einfara, Friedenreich
Hundertwasser. Aðrir em ef th vhl
minna þekktir hér á landi en hafa
gert garðinn frægan úti í heimi, til
dæmis Giinter Bms og Amulf Ra-
iner.
Sérstaklega hefur Rainer verið í
sviðsljósinu á undanfömum árum
eða allt frá því að hann var fuhtrúi
lands síns á Biennalinum í Feneyj-
um árið 1978.
Einhverjir íslendingar vita
eflaust af honum frá því hann vann
samvinnuverk með Dieter Roth um
miðjan áttunda áratuginn.
Nú er yfirlitssýning á verkum
hans á róh milli margra helstu
safna í heimi, byijaði í Guggen-
heim-safninu í New York í maí, þar
Nokkur orð um Amulf Rainer:
Listin og lífsháskinn
Arnulf Rainer: Nafnlaus mynd, olía á Ijósmyndadúk, 1974.
sem undirritaður sá hana, er í þann
mund að opna í Samtímahstasafn-
inu í Chicago (29. júh nk.), verður
th húsa í Sögusafni Vínarborgar í
árslok og loks í Listasafni Haag-
borgar á fyrstu mánuðum næsta
árs.
Niðurbæld orka
Orðstír sinn á Rainer fyrst og
fremst að þakka ljósmyndum þeim
sem hann hefur látið taka af sjálf-
um sér í ýktum eða afkáralegum
stellingum. Þessar myndir teiknaði
Rainer síðan í eða málaði yfir að
hluta, annað hvort með pentskúf
eða guðsgöfflunum.
„Með því að teikna ofan í ljós-
myndimar var ég alls ekki að ret-
ússera" segir Rainer „heldur taldi
ég mig vera að hnykkja á því sem
var að gerast í myndunum, leysa
úr læðingi niðurbælda orku hins
frosna augnabliks. Því skarast
gerningar og málaralist í verkum
mínum.“
í þessum verkum Rainers skarast
einnig þeir hststraumar sem mest
áhrif höfðu á hann við upphaf fer-
ils hans, það er expressjónisminn,
miðili óheftra tilfinninga, og tass-
isminn, línurit undirvitundar.
Tassisminn var svo aftur tengi-
hður Rainers við súrrealismann,
sem hann ánetjaðist strax á ungl-
ingsárum, fór meira aö segja th
Parísar rétt eftir stríð að hitta sjálf-
an páfa súrreahsta, André Breton,
og sýna honum teikningar eftir sig.
Breton var þegi hrifmn af þeim.
Hjúpuð málverk
Tassisminn var svo aftur leið út
úr þeim hstrænu ógöngum sem
Rainer lenti í eftir að súrreahstar
höfnuöu honum. í meðförum hans
fékk tassisminn samt á sig aht ann-
að yfirbragð en í Frans.
Þar í landi voru drættir
pentskúfsins notaðir th að kveikja
líf á yfirborði strigans. Rainer
drepur þetta sama yfirborð í dróma
með þéttum, möttum og dökkum
htum, sem notaðir eru th að „fela“
það sem undir er, þaö er málverk
eftir hann sjálfan eða aöra hsta-
menn sem gáfu honum verk eftir
sig th að mála yfir.
Þetta voru hin svokölluðu „hjúp-
uðu málverk" Rainers, (ubermal-
ungen), ískyggheg verk og dulúðug
eins og nútíma helgimyndir.
Rainer var raunar á kafi í mystík
á þessu tímabih sem skýrir að ein-
hveiju leyti „krossmörkin“ sem
hann málaði aftur og aftur, eins og
í leiðslu, seinni hluta sjötta ára-
tugarins.
Næsta skref Rainers var að mála
„hjúpuð krossmörk" og eftir að
ljósmyndaverkin komu til sögunn-
ar kom oftsinnis fyrir að hann
„hjúpaði" krosslaga ljósmyndir af
sjálfum sér.
Blæðandi hendur
Það er fremur óþægileg upplifun
að skoða stóra (140 mynda) yfirhts-
sýningu á verkum Rainers, svo
nærri gengur hann sjálfum sér og
viðteknum hugmyndum okkar um
eiginlegan og hugmyndalegan að-
skilnaö hstsköpunar og hsta-
manns. Lífsháskanum hefur nefni-
lega verið úthýst úr nútímalistinni.
Nú fjahar hún mestmegnis um
sjálfa sig.
í nokkrum verkum mátti til
dæmis sjá slóðir eftir blæðandi
hendur hans, afleiðingu af margra
klukkustunda fingurmaleríi og
lamstri verkanna að utan með ber-
um höndum.
Samt er tæplega hægt annað en
bera virðingu fyrir þráhyggju Ra-
iners sem virðist reiðubúinn að
leggja allt í sölumar fyrir snefh af
andlegum sannindum. -ai
Arnulf Rainer: Greftrun listamannsins eóa Pína Krists/Gleði Krists, olía
á Ijósmynd á fleka, 1969-75
verk unnin í leir. Eftirtaldir menn eiga
verk á sýningunni: Bryndís Jónsdóttir,
Daði Harðarson, Daði Guðbjömsson,
Guðný Magnúsdóttir, Jón Reykdal, Jó-
hannes Geir, Hringur Jóhannesson,
Kjartan Guöjónsson, Sigrún Eldjám og
Þórður Hall. Sýningin opnar fimmtudag-
inn 20. júlí kl. 21. Hún verður opin föstu-
daginn 21. júlí kl. 16-22, laugardaginn 22.
júlí kl. 14-22 og sunnudaginn 23. júlí kl.
12-16. Aðgangur að sýningunni er ókeyp-
is.
Jógamiðstöð opnuð
Jógamiðstöð verður opnuð í Ing-
ólfsstræti 8 í kvöld kl. 19. Er það
Hare Krishna sem stendur að mið-
stöðinni. Verður hún fyrst um sinn
aðeins opin yfir sumarmánuöina en
ef fólk hefur áhuga getur svo farið
aö hún verði opin aht árið. í jógamið-
stöðinni verður svokahaður
Bhaktijógi kenndur sem er sjálfs-
þroskatækni.
Við opnun miðstöðvarinnar verður
leikin tónhst og boðið verður upp á
skuggamyndasýningu og indverska
grænmetisrétti. Aðgangur er ókeypis
ogalhremvelkomnir. -GHK