Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1989, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989.
Gistinætur í Reykjavík:
Gloppóttar
- bókanir
- í júlí og ágúst
„Því er ekki að neita að það eru
gloppur í bókunum á nokkrum stóru
hótelanna í Reykjavík, bæði í júlí og
ágúst. Við höfum heyrt talsverðar
kvartanir þar að lútandi," sagði Erna
Hauksdóttir hjá Sambandi veitinga-
og gistihúsa er DV ræddi við hana.
Erna sagði að júnímánuður hefði
verið ákaflega góður og nýtingin á
hótelunum vel viðunandi. En síðan
hefði aftur dregið úr bókunum í júlí.
Skýringarnar væru liklega þær að
mikið væri um tjaldfólk í þessum
mánuði og það kæmi vitanlega ekk-
ert inn á hótehn. Þá hefði verið leit-
^ast við að flytja ráðstefnurnar af
þessum mánuði en það virtist ekki
hafa skilað sér varöandi almenna
ferðamenn. Hins vegar væru bókan-
irnar góðar á hótelum úti á lands-
byggöinni á þessum umræddu mán-
uðum þannig að það virtust einkum
sum stærri hótelanna í Reykjavík
semværuekkifullbókuð. -JSS
Broadway
* fór á
118 milljónir
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um í gær samning sem Reykjavíkur-
borg hafði gert við Ólaf Laufdal um
kaup á skemmtistaðnum Broadway.
Nemur kaupverðið um 118 milljón-
um króna. Þar af fellir borgin niður
4,5 milljóna skuld Ólafs vegna van-
greiddra fasteignagjalda. 100 milljón-
ir verða greiddar með skuldabréfi til
12 ára og loks fær Ólafur tvær lóðir
upp í kaupverðið, en andvirði þeirra
nemur 13,5 milljónum króna. Lóðirn-
ar tvær eru við Aðalstræti og Tún-
«*götu.
Á fundinum í gær lét minnihlutinn
gera sérstaka bókun vegna óánægju
með þau vinnubrögð sem Davíð
Oddsson borgarstjóri viðhafði er
hann undirritaði kaupsamninginn
með fyrirvara, án þess að hafa sam-
ráð við borgarráð.
Þá var á fundinum samþykkt til-
laga Katrínar Fjeldsted borgarfull-
trúa þess efnis að efnt yrði til sam-
keppni meðal unghnga um nýtt nafn
á staðinn.
Húsið verður afhent Reykjavíkur-
borg 1. nóvember næstkomandi og
verður það þá þegar tekið í notkun.
Er fyrirhugað aö reka áfengislausan
skemmtistað fyrir unghnga í Broad-
^way en einnig verður þar aðstaða
^ fyrir félagsmiðstöö unghnga í Selja-
hverfi, svo og félagsstarf aldraðra.
-JSS
LOKI
Þetta hafa þá verið pústrar
í bókstaflegri merkingu!
Barátta ökumanns og hestamanna um veginn:
Kona ökklabrotnaði er
knBiiiiitf M*mMM**é
nesiur nenner Tseicnsi
- bílstjórinn þandi pústkerfi og flautu í hrossahópnum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Baráttu ökumanns sendiferða-
bifreiðar og hóps hestamanna um
veginn skammt frá bænum Stokka-
hlöðum í Hrafnagilshreppi sl.
föstudagskvöld lauk á þann veg að
hestamir fældust hávaða frá bif-
reiðinni, ein kona i hópnum féh af
hesti sínum og tvíbrotnaði á ökkla
auk þess að hljóta fleiri meiðsli.
Hópur hestamanna var að reka
hesta eftir veginum er sendiferða-
bifreiðina bar að. Ökumanni bif-
reiðarinnar fannst hestamennirnir
ekki sýna sér þá kurteisi að hleypa
sér fram úr nægilega fljótt. Hami
svaraði með því að þenja pústkerfi
bifreiðarinnar og flautu um leið og
hann komst fram úr og varð af
mikill hávaði. Þetta varð til þess
að hestarnir fældust og kona, sem
var á einum hestanna, datt af baki
og hlaut mikil meiðsli eins og sagði
hér að framan.
Lögreglumenn munu hafa skoð-
að umrædda bifr eiö eftir atburöinn
og kom í ljós við þá skoðun að púst-
kerfi bifreiöarinnar mun vera
ónýtt svo eitthvaö hefur gengið á.
Ekki er óalgengt að (ólk hafi hund eða kött sem gæludýr, en heldur hetur verið minna um að minkahvolpar taki að
sér hlutverk besta vinar mannsins. í Vorsabæ á Skeiðum hefur Emilía Guðrún kaupakona þó tekið ástfóstri við
hann Snúlla sem er lítill villiminkur. Ekki er annað að sjá en hann uni hag sinum vel.
DV-mynd EJ
Skaftá að ná
hámarki
Talsvert óx í Skaftá í nótt og telja
menn að hún muni ná hámarki sínu
í dag. Hefur vatnsborð í ánni hækkað
um tvo metra og er hlaupið því frem-
ur stórt.
Ástand vega er enn gott miðað við
aðstæður en hætta er á að vegurinn
upp í Skaftárdal hafi grafist í sund-
ur, að sögn Gylfa Júlíussonar, vega-
verkstjóra í Vík.
Einnig sagði Eiríkur Björnsson í
Svínadal í morgun að farið væri að
flæða yfir veginn heim að bænum.
Ekki er þó talin mikil hætta á að
hann fari í sundur því að áin er ekki
mjögstraumhörðáþeimstað. -GHK
Hvalveiðum
lýkur I dag
Fastlega er búist við því að hval-
veiðum ljúki í dag. í morgun kom
hvalbátur að landi með tvær lang-
reyðar og átti þá aðeins eftir að veiða
eina.
Hvalveiðarnar í ár hafa gengið
mjög vel og lýkur fyrr en búist var
við ef miðað er við veður en þoka
hefur verið á miðunum. Leyfilegt var
að veiða 68 langreyðar að þessu sinni.
-GHK
Fjórum sinnum fleiri á atvinnuleysisskrá
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Rúmlega fjórum sinnum fleiri eru
á atvinnuleysisskrá á Akranesi nú
en var á sama tíma í fyrra. Það sem
af eru árinu hefur verið greidd jafnhá
upphæð til atvinnulausra Skaga-
manna og greidd var allt árið í fyrra.
Konur eru sem fyrr í meirihluta
atvinnulausra á Akranesi. Um síð-
ustu mánaðamót voru 148 skráðir
atvinnulausir, þar af 114 konur. Á
sama tíma í fyrra voru 34 á atvinnu-
leyisskrá, 31 kona og 3 karlar. 52
nemar eru meðal atvinnulausra nú
en annars eru iðnverkakonur íjöl-
mennasti hópurinn. 44 iðnverkakon-
ur eru án atvinnu.
Atvinnuleysi hefur verið jafnt og
mikið þaö sem af er árinu og hefur
tala atvinnulausra verið á bilinu
100-200 manns. Gjaldþrot Hennes,
útibús Henson, og uppsagnir hjá
Akrapijóni eiga verulegan þátt í við-
varandi atvinnuleysi kvenna á Akra-
nesi.
Veðrið á morgun:
Meiri
rigning
Suðlægu áttirnir halda áfram að
hrella íbúa sunnan- og vestanverðs
landsins. í þeim landshlutum er
sjpáð rigningu eða súld á morgun.
Á Norður- og Austurlandi verður
áfram þurrt og bjart. Hitastig verð-
ur á svipuðum nótum og undanfar-
ið, frá 10 gráðum fyrir sunnan upp
í 17 fyrir norðan og austan.
GÆÐI -
GLÆSILEIKI