Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Page 8
/
8
.eser aa8M3T933 .08 flUOAOHADUAJ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1989.
Sigurvegari Ford Models '89:
Með samning
upp a
ydsdnn
- Lillí Karen Wdowiak á leid til Noregs
Lilli Karen Wdowiak, sigurveg-
ari Ford-keppninnar ’89, er á leið
til Noregs þar sem hún hefur feng-
iö samning um fyrirsætustörf
næstu mánuði. Lillí Karen fékk
starfið í gegnum Ford-Models skrif-
stofuna í New York. „Konan, sem
rekur umboösskrifstofuna í Osló,
var einn af dómurum í keppninni
Face of the 80’s, sem ég tók þátt í
og sýndi hún strax áhuga á að fá
mig til Noregs. Eileen Ford sendi
síöan bréf til nokkurra staöa, Nor-
egs, Parísar, London og Mílanó, þar
sem hún benti á mig og þá kom í
ijós að norska skrifstofan vildi fá
mig strax. Ég fer því nú á þriöju-
dagmn,” sagði Lillí Karen.
Hún reiknar með að vera í
nokkra mánuöi 1 Osló og fara síðan
til annarra staða. „Helstlangar mig
til London því ég hef heyrt aö mjög
mikið sé að gera þar,“ sagði Lillí
Karen ennfremur.
Fékkþjálfun
í Hollandi
Keppnin, Face of the 8Q’s, fór
fram í Los Angeles í lok ágúst. Lillí
Karen höf ferð sína í Hollandi þar
sem hún heimsótti frænku sína,
Helgu Melsteð, fyrrverandi Ford-
sigurvegara, til aö fá holl ráð fyrir
keppnina.
„Það var mjög vel tekið á móti
mér þegar ég kom til Los Angeles.
Reyndar byijuðu ljósmyndaramir
að smella af um leið og maður steig
út úr vélinni,” sagði Lillí Karen.
Við bjuggum á mjög góðu hóteli og
ég lenti f herbergi með stúlkum frá
Hong Kong og Hollandi. Starfsfólk
hótelsins sýndi okkur ekkert nema
elskuiegheit og fannst greinilega
mikið tíl þess koma aö hafa okkur.
Við fórum bæði í hádegis- og
kvöldverðarboð daglega. Hittum
margt frægt fólk, sem var mjög
skemmtilegt, og á daginn vorum
við í sjónvarpsupptökum. Reyndar
fengum viö ekki mikinn tíma til aö
skoða borgina en fengum þó að sjá
kvUunyndastúdíóið hjá Universal
og sáum upptöku á Miami Vice. Þar
var mikið að gerast.”
Borðuðu með
Alexander Godunov
„Frægur leikari og ballettdans-
ari, Alexander Godunov, bauð okk-
ur út aö borða þar sem við hittum
ftdlt af frægu fólki," sagði LUlí
Karen. Þess má geta aö Alexander
Godunov er með frægustu ballett-
dönsurum í heimi og gat sér gott
orð fyrir leik í kvikmyndinni Vitn-
inu. Hann hefur verið sambýlis-
maður leikkonunnar Jacqueline
Bisset í mörg ár.
LUli Karen sagöi aö kynni sin af
EUeen Ford hefðu verið á aUan
hátt mjög góð. „Ég hélt hún væri
ströng og frek en þaö var hún alls
ekki." Lillí Karen sagði að þrír dag-
ar hefðu fariö í stanslausar æfingar
og sjónvarpsupptökur. „Við feng-
um einn dag frí tíl að versla en þaö
var í nálægri götu þar sem dýr fót
voru tíl sölu. „Mér fannst ekkert
ódýrara þar en hér heima. Við gát-
um ekki fariö í miðbæinn tU aö
versla. Keppnin sjálf fór fram á
fóstudagskvöldi og Uktist einna
helst sjónvarpsþætti. Sum atriöi í
þættinum höföu verið tekin upp
tveimur til þremur dögum áður.
Skemmtiatriðin voru mjög glæsUeg
og mikið lagt í keppnina. Mest
fannst mér gaman að kynnast öUu
þessu fóUd.
Reyndar var þetta ferðalag miklu
erfiðara en ég bjóst viö og maöur
var dauðþreyttur á kvöldin en um
leið var þetta þroskandi. Á úrsUta-
kvöldinu þurftum við að koma
fram í stuttum kjólum og síöum.
Við fengum öU föt sem við áttum
að klæðast viö myndatökur og á
lokakvöldinu þannig að ég þurfti
ekki að hafa áhyggjur af þeim máf-
um.“
Sigurvegari
fráNoregi
LUU Kaxen komst ekki í úrsht í
keppninni. Sigurvegarinn, Sinna,
er frá Noregi og stúlkan i öðru
sæti frá Svíþjóð.
LiUi Karen hlakkar til aö komast
tU Noregs, þar sem hún hefur aldr-
ei komið fyrr, og takast á við ný
verkefni. Hún sagði aö starfið væri
vel launað og umboðsmaðurinn
myndi útvega henni íbúð. „Þetta
starf hefur aUtaf heiUaö mig,“ sagöi
hún.
Fra því LilU Karen kom heim frá
Los Angeles hefur hún haft nóg að
gera í sambandi við tískusýningar
og fengiö góða þjálfun. Þær stúikur
sem þátt tóku í Ford-keppninni sl.
vetur hafa haldið góðu sambandi
síðan. Ein stúlknanna, Anna Lára
Magnúsdóttir, er nú stödd erlendis
þar sem hún tekur þátt í keppninni
um titilinn Miss Europe.
-ELA