Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1989, Side 39
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1989. 51 Fólk í fréttum Olafur Bjömsson Ólafur Björnsson, fyrrv. prófessor við viðskiptafræöideild HÍ, fyrrv. alþingismaður og einn ötuiasti mál- svari frjálsari viðskiptahátta hér á landi um árabii, heldur því fram í DV sl. miðvikudag að skattlagning vaxtatekna sé ótímabær um þessar mundir. Ólafur fæddist í Hjarðarholti í Laxárdal í Dalasýslu 2.2.1912. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1931, prófi í heimspekilegum forspjalls- visinþum við HÍ1932 og kandidats- prófi í hagfræöi frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1938. Ólafur var aðstoðarmaöur og síð- ar fulltrúi á Hagstofu íslands 1938-42, dósent við laga- og hag- fræðideild HÍ 1942^48 og prófessor 1948-82. Hann var varaborgarfuli- trúi í Reykjavík 1950-58, landskjör- inn alþingismaður 1956-59, þing- maður Reykvíkinga 1959-71, for- maður BSRB1948-56, formaöur bankaráðs Útvegsbankans 1968-80, formaður íslandsdeildar norrænu menningarmálanefndarinnar 1954-71 og formaður stjómar Að- stoðar íslands við þróunarlöndin 1971-81. Auk þess hefur Ólafur setið í íjölda opinberra nefnda um ýmis málefni og samið álitsgerðir fyrir ríkisstjórnir. Hann var ásamt Benjamín Eiríkssyni helsti efna- hagsráðgjafi viðreisnarstjómarinn- ar er hún stóð fyrir mjög róttækri nýskipan efnahags- og atvinnumála íupphafiferils síns. Ólafur hefur skrifað aragrúa blaðagreina um efnahags- og þjóð- félagsmál en meðal ritverka hans eru Hagfræði, Rvík 1951; Þjóðarbú- skapur íslendinga, Rvík 1952 og 64; Tekjuöflun hins opinbera, Alþingi og fjárhagsmálin 1845-1944, Rvík 1953; Haftastefna eða kjarabóta- stefna, 1953; Hagfræði, Alfræði Menningarsjóðs, 1975; Frjálshyggja og alræðishyggja, Rvík 1978 og Ein- staklingsfrelsi og hagskipulag, rit- gerðasafn 1982. Ólafur er félagi í Vísindafélagi ís- lendinga frá 1949; heiðursfélagi Fé- lags viðskiptafræðinga og hagfræð- inga frá 1985; heiðursdoktor við HÍ frá 1986; riddari dannebrogsorðunn- ar 1. stigs frá 1956 og stórriddari ís- lensku fálkaoröunnar með stjömu frá 1984. Kona Ólafs er Guðrún Aradóttir húsfreyja, f. 29.6.1917, dóttir Ara Helga Jóhannessonar, kennara og b. á Ytra-Lóni í Sauðaneshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu, og konu hans, Ásu Aðalmundardóttur hús- móður. Ólafur og Guðrún eiga þrjá syni: Þeir eru Ari Helgi, f. 10.12.1946, læknir á Akureyri, kvæntur Þor- björgu Þórisdóttur hjúkrunarfræð- ingi; Björn Gunnar, f. 25.5.1949, þjóðfélagsfræðingur í Reykjavík, kvæntur Helgu Finnsdóttur, og Örnólfur Jónas, f. 20.2.1951, kerfis- fræðingur í Reykjavík. Alsystur Ólafs: Ingibjörg, f. 20.9. 1914, gift Þórami Sigmundssyni á Selfossi; Þorbjörg, f. 18.11.1915, lengi bankastarfsmaður í Reykjavík, og Ásthildur Kristín, f. 4.6.1917, lengi starfsmaður á Hagstofunni í Reykjavík, ekkja Steins Steinarr skálds. Hálfsystur Ólafs, samfeðra: Guðrún Sigríður, f. 30.7.1930, gift Jóni Reyni Magnússyni, verkfræð- ingi í New York, og Ólöf Bima, f. 2.4.1934, gift Jóni Ölafssyni, verk- fræðingi í Reykjavík. Foreldrar Ólafs voru Bjöm Stef- ánsson, f. 13.3.1881, d. 9.11.1958, prófastur á Auðkúlu í Húnaþingi, og fyrri kona hans, Guðrún Sigríður Ólafsdóttir, f. 27.11.1890, d. 25.6. 1918, húsfreyja. Bróðir Björns var Hilmar, banka- stjóri Búnaðarbankans. Björn var sonur Stefáns, prests á Auökúlu, Jónssonar, bókara í Reykjavík, Ei- ríkssonar. Móðir Stefáns var Hólmfríður Bjarnadóttir Thorarensen, b. og stúdents á Stóra-Ósi í Miðfirði, Frið- rikssonar, prests á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þórarinssonar, sýslu- manns á Grund í Eyjafirði, Jónsson- ar, ættfóður Thorarensenættarinn- ar. Móðir Bjarna var Hólmfríður Jónsdóttir, varalögmanns í Víði- dalstungu, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jónssonar, ættfóður Eyrar- ættarinnar. Móðir Hólmfríðar Bjarnadóttur var Anna, dóttir Jóns, sýslumanns í Víðidalstungu, Jóns- sonar, og konu hans, Hólmfríðar Ólafsdóttur, systur Ingibjargar, langömmu Elísabetar, móöur Sveins forseta. Ingibjörg var einnig langamma Þorvalds, afa Vigdísar forseta. Móðir Björns í Auðkúlu var Þor- björg Halldórsdóttir, stúdents á Úlfsstöðum í Loðmundarfirði, Sig- urðssonar. Móðir Halldórs var Björg Halldórsdóttir Vídalín, klausturhaldara á Reynisstað, Bjarnasonar. Móðir Þorbjargar var Hildur, syst- ir Jóns bókara Eiríkssonar. Móðir Hildar var Þorbjörg Stefánsdóttir Scheving, prests á Presthólum, bróður Jórunnar, ömmu Jónasar Hallgrímssonar. Önnur systir Stef- áns var Margrét, langamma Katrín- ar, móður Einars Benediktssonar skálds. Guðrún, móðir Ólafs, var systir Kristínar læknis, móöur Þórhalls prófessors og ömmu Þorsteins heimspekings, Vilmundar ráðherra og Þorvalds prófessors. Önnur syst- ir Guðrúnar var Ásta, móðir Ólafs Ólafssonar landlæknis. Bróðir Guð- rúnar var Páll, faðir Ólafar mynd- höggvara. Guðrún var dóttir Ólafs, prófasts í Hjarðarholti í Dölum, bróður Lilju, ömmu Karls Kvaran listmálara. 01- afur var sonur Ólafs, kaupmanns í Hafnarfirði, Jónssonar, b. á Litla- Hálsi í Grafningi, Guðmundssonar. Móöir Ólafs prófasts var Metta Kristín, systir Maríu, langömmu Ólafur Björnsson. Guðrúnar Agnarsdóttur, Ástríðar, konu Davíðs borgarstjóra, pgPéturs Ormslev. Metta var dóttir Ólafs, hreppstjóra í Hafnarfiröi, Þorvalds- sonar. Móðir Guðrúnar var Ingibjörg Pálsdóttir Mathiesen, prests í Arn- arbæli, Jónssonar, prests í Arnar- bæli Matthíassoanr, stúdents á Eyri, Þórðarsonar, stúdents í Vigur, Ól- afssonar, lögsagnara á Eyri, Jóns- sonar. Móðir Páls var Ingibjörg, systir Gríms, langafa Ásgeirs As- geirssonar forseta. Ingibjörg var einnig systir Margrétar, langömmu Margrétar, móður Ólafs Thors for- sætisráöherra. Ingibjörg var dóttir Páls, prests í Ofanleiti, Magnússon- ar og Guðleifar Þorsteinsdóttur, systur Agnesar, langömmu Eggerts Haukdal og Guðrúnar, móður Þór- hildar Þorleifsdóttur. Móðir Ingi- bjargar Pálsdóttur var Guðlaug Þor- steinsdóttir í Núpakoti Magnússon- ar. Afmæli Stefán Ármann Þórdarson Til hamingju meö afmælið 1. október ----------------------------- Pétur S. Kristjánsson, 90 ára Smárahlíð7A,Akureyri. **' **_________________ Jón Kri8tinn Gunnarsson, Stefán Jóhannsson, SæVan^ ^3' Hafharfirði. Heiðargerði5,Reykjavík.Hann _________________ tekurámótigestumíSlysavama- , húsinuíSandgerðimillikl.l5og 50 ðtð 18áafmælisdaginn. ------------------------- _____________________________ Gunnar Már Pétursson, qc Ara Ásgarði23,Reykjavík. O___________________ GrétarÓlafsson, r „Alnito, Álfalandi 15, Reykjavík. glsmðæMöes.Reykjavfl, S^SSuKeS’ öS Guðmundur Þórðarson, Oldugötu 52, Reykjvik. Kilhrauni, Skeiðahreppi. ----------------------------- Edda Völva Eiriksdóttir, 80ára Haöalandi 7, Reykjavík. Stefán Ármann Þórðarson fiúl- trúi, Skólavöllum 6 Selfossi, er sex- tugurídag. Stefán er fæddur í Vík í Mýrdal og alinn þar upp. Gekk í unglinga- skóla í Vík í Mýrdal og bréfaskóla SÍS og lærði innanhússsímtenging- ar hjá Bæjarsíma Reykjavíkur. Hann vann hjá Landssíma íslands og Bæjarsíma Reykjavíkur 1946-’55, á skrifstofu hjá Kaupfélagi Skaft- felhnga Vík 1955-’67, þar af skrif- stofustjóri 1963-’67. Árið 1967 flytur hann á Selfoss og fer að vinna hjá Landsbanka íslands til ársins 1974, en þá kaupir hann jörðina Höfða- brekku í Mýrdal og býr þar til 1977. Ræðst þá sem skrifstofustjóri hjá Iðnaðarbanka íslands á Selfossi og var hann útibússtjóri þar 1982-’84, er hann fór að vinna hjá Sýslu- manninum í Árnessýslu. Einnig hefur Stefán veriö í yfirkjörstjóm Suðurlandskjördæmis og staifað í stjórn Selfossveitna. Eiginkona Stefáns er Sigrún Jóns- dóttir, húsmóðir og starfsstúlka á hjúkrunarheimili aldraðra, Ljós- heimum á Selfossi. Hún er fædd 27.2. 1935, dóttir Jóns Gíslasonar, fyrrum alþingismanns og bónda, Norður- hjáleigu, og Þórunnar Pálsdóttur. Böm Stefáns og Sigrúnar eru: Ing- unn, f. 18.8.1956, gift Þorfinni Snorrasyni, flugkennara á Selfossi, og eiga þau tvö börn. Frá fyrra hjónabandi á Ingunn eitt bam; Þórður, f. 7.1.1958, trésmíðameistari á Selfossi, og á hann eitt barn; Brynjar Jón, trésmiður á Selfossi, f. 9.7.1960, giftur Elínu Ámadóttur og eiga þau eitt bam; Páll, f. 15.12. 1961, dýralæknir og nú við fram- haldsnám í Þýskalandi. Hann er kvæntur Eddu Björk Ólafsdóttur og eiga þau eitt barn, en PáU átti eitt bam fyrir; Rut skrifstolustúlka, f. 15.1.1964, í sambúð með Leifi S. Helgasyni. Þau búa í Laugardælum ogeigaeittbam. Systkini Stefáns em: Vilborg Magnea, f. 9.6.1922, býr í Reykjavík; Jóna, f. 15.6.1923, býr í Reykjavík. Hún var gift Ingvari Sigurðssyni og á tvö böm; Unnur tannsnúður, f. 1.3.1926, býr í Reykjavík; Kristbjörg húsmóðir, f. 8.4.1928, gift Daníel D. Bergmann, bankafulltrúa í Reykja- vík, og eiga þau þijú böm; Sigríður Eygló, f. 5.8.1931, vinnur við af- Stefán Ármann Þóröarson. greiðslustörf. Hún var gift Jóni Gunnari Kristinssyni sem nú er lát- inn og áttu þau þrjú börn; Ólafur verkamaður, f. 1.11.1937, kvæntur Kolbrúnu Valdimarsdóttur. Eiga þau þijú börn og em búsett í Vík í Mýrdal. Foreldrar Stefáns vom: Þórður Stefánsson, verkamaður og bóka- vörður í Vík í Mýrdal, f. 25.7.1894, d. 7.4.1981, og Guðrún Ingibjörg Sig- urðardóttir húsmóðir, f. 7.1.1899, d. 9.111988. Lárus Jóhannsson, Einarsnesi 56, Reykjavík. 75 ára Hólmfríður Sigurðardóttir, Hólmgarði 9, Reykjavík. 70ára Helga Þorvaldsdóttir, Suðurgötu 7, Vatnsleysustrandar- hreppi. Sigriður Pálmadóttir, Hölöahlíð 17, Akureyri. 60ára Þorvaldur Sigurjónsson, Núpakoti, Austur-Eyjafiafiahreppi. 40ára_______________________ Jórunn Árnadóttir, Ásgeirsbrekku, Viðvíkurhreppi. Vlbnundur Jónsson, Stelkshólum 12, Reykjavík. Þorleifiir Sigurðsson, Víöivangi 20, Hafiiarfirði. Jón Vignir Hálfddnarson, Holtabrún 12, Bolungarvík. Guðjón Bjarnason, Svíþjóð. Sólrún G. Poulsen, Færeyjum. Jónina Garðarsdóttir, Daltúni 22, Kópavogi. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Mávahlíö 30, Reykjavík. Vilhjálmur Antonsson, Hafraholti 14, ísafirði. Sigrún Rakel Tryggvadóttir Sigrún Rakel Tryggvadóttir hús- móðir, Ásgarði 31, Reykjavík, verð- ur75áraámorgun. Sigrún er fædd á Víkurbakka á Árskógsströnd en fluttist 12 ára gömul út í Hrísey. Um 1935 fluttist hún svo til Reykjavíkur þar sem hún hefur búið síðan. Auk þess að vera húsmóðir hefur hún starfað við ýmislegt í gegnum árin. Maki Sigrúnar er Þorsteinn Dag- bjartsson, verkamaður og bílstjóri, f. 23.7.1910. Foreldrar hans vom Dagbjartur Einarsson og Sigurbjörg Ketilsdóttir. Böm Sigrúnar og Þorsteins eru: Unnur Bryndís hjúkmnarfræðing- ur, f. 14.4.1942 og á hún þrjú börn; Þóra Björk, f. 16.10.1948, b. á Ystamó í Haganeshreppi, Skagafirði, gift Sigurði Steingrímssyni og eiga þau tvö börn; Tryggvi Eyfjörð, f. 6.12. 1950 og á hann tvö böm. Systkini Sigrúnar: Marta, f. 1907, d. 1973, húsmóðir í Reykjavík, gift Jóhanni Þorsteinssyni, efnaverk- fræðingi og stofnanda Hörpu; Gísli f. 1909, d. 1971, ógiftur; Jónas, f. 1911; Sigmann, f. 1917, sjómaður og verka- maður, kvæntur Lilju Sigurðardótt- ur frá Dalvík; Árni leikari, f. 1924, kvæntur Kristínu Nikulásdóttur. Foreldrar Sigrúnar voru Tryggvi Á. Jóhannsson, f. 1879, sjómaður og verkamaður, ogMargrét Gísladóttir húsmóðir, f. 1886. Þau bjuggu lengst af á Árskógsströnd í Eyjafirði. Sigrún Rakel Tryggvadóttir. Brúðkaups- og starfsafmæli Ákveðið hefurverið að birta á afmaelis- og ættfraeðisíðu DV grein- ar um einstaklinga sem eiga merkis brúðkaups- eða starfsafmæli. Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á sambærilegum upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðsins en eyðublöð fyrir upþlýsingar afmælisbarna liggja frammi á afgreiðslu DV. Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli verða að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrirvara. Það ereinkarmikilvægt að skýrar, nýlegarandlitsmyndirfylgi upp- lýsingunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.