Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Side 3
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1989.
8
Fréttir
Landað úr Snæfugli við bryggju á Reyðarfirði um miðjan október. Togarinn
hélt á veiðar 15. október. DV-mynd Sigrún
Hæstur á
Austfjörðum
Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstööum;
Snæfugl, Reyðarfirði, er nú aflahæst-
ur austfirskra togara, með 2580 tonn
frá áramótum. Verðmæti aflans er
171 milljón króna. Snæfugl var á salt-
fisksveiðum tfl sautjánda maí en fór
þá yflr í frystingu.
Upptaka virðisaukaskattsins:
Hækkar tekjur
ríkissjóðs um 3,1
milljarð króna
- þegar tillit hefur verið tekið til hliðarráðstafana
Upptaka virðisaukaskatts og til-
færslur á niðurgreiðslum í tengslum
við hana munu gefa ríkissjóði um 3,1
milljarð í auknar tekjur á næsta ári.
Þetta er niðurstaðan þegar tólf mán-
aða tímabil söluskatts, núgildandi
jöfnunargjalds og niðurgreiðslna
ásamt framlagi í jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga er borið saman við hvernig
ríkisstjórnin ætlar að haga þessu á
næsta ári.
Samhhða upptöku 26 prósent virð-
isaukaskatts um áramótin ætlar rík-
isstjórnin að greiða niður kindakjöt,
nýmjólk, fisk og íslenskt grænmeti í
gegnum skattkerfið. Á móti þessu
lækkar hún hefðbundnar niður-
greiðsiur um 650 miUjónir að raun-
virði. Þá lækkar hún einnig jöfnun-
argjald á iðnaðarvörur um helming.
Framlag ríkissjóðs í jöfnunarsjóð
sveitarfélaga fellur sömuleiðis út úr
söluskattskerfinu og breytist í fram-
lag á gjaldahlið. Við það lækkar það
að raungildi um 270 milijónir.
Ef þetta nýja kerfi er borið saman
við óbreytt söluskattslög, óbreyttar
niðurgreiðslur að raungildi, og
óbreytt lög um jöfnunargjald og jöfn-
unarsjóð sveitarfélaga er niðurstað-
an sú aö nýja kerfið gefur ríkissjóði
um 3,1 milljarð í auknar tekjur.
Þannig eru heiidartekjur af virðis-
auka um 2,6 milljarði hærri en af
söluskattinum þegar endurgreiðslur
úr söluskattinum hafa verið dregnar
frá. Á móti þessari hækkun kemur
um 470 milljón króna lækkun á jöfn-
unargjaldi sem lækkar þessa upp-
hæð í 2,1 milljarð. Þegar framlag í
jöfnunarsjóð sveitarfélaga hefur ver-
ið tekiö inn í dæmið hækkar upp-
hæðin aftur í 2,4 milljarða. Og enn
hækkar hún þegar tillit hefur verið
tekið til um 650 milljón króna niður-
skurðar á framlagi ríkissjóðs til hefð-
bundinna niðurgreiðslna. Að lokum
aukast tekjur ríkissjóðs því um 3,1
milljarð af þeim skatta- og útgjalda-
breytingum sem fylgja upptöku sölu-
skattsins. -gse
Skagaíjörður:
Bati hjá
kaup-
félaginu
ÞórhaDur Ásmundsson, ÐV, Sauöárkröld:
Hvorki meira né minna en 75 millj-
óna króna bati hefur orðið á rekstri
Kaupfélags Skagfirðinga ef bomir
eru saman fyrstu átta mánuðir þessa
árs og sami tími í fyrra. Þar af eru
26 milljónir fyrir utan fjármagnsliöi
og segir Þórólfur Gíslason kaupfé-
lagsstjóri að sparnaður og hagræðing
í verslunarrekstrinum geri þar gæfu-
muninn. „Við erum vongóðir um að
halda okkur réttum megin við strikið
út árið. Yfirleitt hefur seinni hluti
ársins verið léttari í rekstrinum,“
sagði Þórólfur.
Átta mánaða uppgjöriö sýnir fjög-
urra milljóna hagnað á rekstri KS
og er mjólkursamlagið þar inn í. „Við
erum mjög ánægðir með að ná þess-
ari útkomu þrátt fyrir að brúttóá-
lagning hafi lækkað. Við teljum að
sameining verslana hér á Sauðár-
króki hafi skilað okkur fyllilega því
sem við vonuðumst eftir. Einnig er
útkoman á útibúinu í Varmahlíð
mun betri en í fyrra, verulegur
sparnaður hefur náðst í rekstri úti-
búsins á Ketilási en verslunin á Hofs-
ósi veldur okkur erfiðleikum.
Ytri aðstæður hafa verið hagstæð-
ari í ár en í fyrra. Þá er engin vafi á
því að við gerðum rétt á síðasta
hausti þegar rekstri félagsins var
skipt niður í einingar. Þannig náðum
við betur utan um rekstur einstakra
deilda og samstarf milfi stjórnenda
og starfsfólks hefur verið mjög gott.
Þar er ómetanlegur þáttur,“ sagði
Þórólfur kaupfélagsstjóri.
Nýi Bessi
á heimleið
Siguijón J. Sigurösson, DV, fsafiröi:
Bessi ÍS, hinn nýi togari Súðvík-
inga, var afhentur eigendum sínum
í Flekkefjord í Noregi sl. laugardag.
Togarinn fór á þriðjudag til Stavang-
er þar sem gerðar voru á honum tog-
kraftsprófanir og daginn eftir hélt
hann áleiðis til íslands. Að sögn Hall-
dórs Jónssonar, skrifstofustjóra hjá
Frosta hf. í Súðavík, er reiknað með
aö Bessi komi til Súðavíkur eftir
hádegi á sunnudag að öllu forfalla-
lausu.
ÖRYGGI - ENDING - ÁREIÐANLEIKI
Tvær staðreyndir:
- Frá 1974 hefur Volvo fengið hvorki meira né minna en 15 alþjóðlegar
viðurkenningar fyrir öryggi í bifreiðum sínum-
- Af hverjum 10 Volvo bifreiðum framleiddum frá upphafi eru 7 enn í notkun.
E/in spurning:
- Hvað er dýrmætara en öryggi fjölskyldunnar?
Þú átt nú kost á því að eignast þá bifreið sem áunnið hefur sér hvað mest
afgerandi orðstýr fyrir öryggi, endingu og áreiðanleika
- á hreint frábæru verði.
Kr. 1.253.000 stgr. á götuna
Volvo - þar sem fjölskyldan fær það sem borgað er fyrir
VOLVO
Öryggi - ending - áreiðanleiki
Brimborg hf.
Faxafeni 8 • sími 91-685870