Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 7
VJS / NViSnNQfdVWISA-IQOV ® (:6§i H3ÖMHHHQ .08iflUi)AtI3Aí)UAJ. 9 LAUGÁRDAGUR 30.' DESEMBER1989. 7 VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI: Samaverð stundum lægra! Nýmjólk, G-mjólk, undanrennaog léttmjólk lækka í verði vegna endurgreiðslunnar. Þessi lækkun áað skilasérbeint í vöruverðinu strax eftiráramótin. Neyslufiskuráað lækka í verði. Endurgreiðslan miðast við ferskan óunninn neyslufisk í heildsölu. Álagningin erfrjáls, og ermikilvægt að fisksalar og neytendurtaki höndumsaman til að skattalækkunin skili sér í vöruverðinu. Tegundirnar sem lækkaeru: Ýsa, þorskur, ufsi, steinbítur, karfi, langa, keila, lúða, koli, skata, skötuselur, rauðmagi og grásleppa. Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir söluskatt af hólmi nú um árámótin. Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við. Meö virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin að leiða til lækkunar á almennu vöruverði. Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk, ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5% á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9% strax eftir áramótin. vskw FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ Kindakjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkar í veröi frá afurðastöövunum nú strax eftir áramótin vegna endurgreiðslunnar. Verölækkun átil dæmis lambalærum, lærissneiöum, hrygg, kótilettum og súpukjöti er háö aðgæslu kjötkaupmanna og aöhaldi neytenda þvífrjáls álagning er á unninni kjötvöru. f 0/ Allt innlent "" grænmeti lækkar í verði.tildæmis kartöflur, sveppir, baunaspírur, gulrófurog gulrætur. Álagning er frjáls á þessari matvöru. Þess vegna er þaö ekki sístkomið undir árvekni neytenda og aögæslu verslunarmanna aö endurgreiðslan skili séraöfullu í vöruverðinu. FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekur til. Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum, skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum. mm . ■ |i||»a| '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.