Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Blaðsíða 8
Hmhliðin Jólatrésskemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miðaverð fyrir börn kr. 500 og fyrir fullorðna kr. 200. Miðar eru seldir á skrifstofu VR, Húsi verslunarinn- ar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur rt• • •íi r. GLEÐILEGT NÝÁR! Lo SMMUGLYSINGADEILD verður opín um áramótín: föstudag 29. des. kl. 9-22 laugard. 30. des. kl. 9-14 sunnud. 31. des. lokað mánud. 1. jan. lokað þríðjud. 2. jan. kl. 9-22 ATHUGIÐ! Síðasta blað fýrir áramót kemur út laugardagínn 30. desember. Fyrsta blað eftir áramót kemur út þriðjudagínn 2. jan- úar. .•V O ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► Við viljum vekja athygli verslunarfólks og allra þeirra sem taka við tékkum sem greiðslu á eftirfarandi: íslandsbanki ábyrgist alla tékka sem gefnir eru út af reikningseiganda, allt aö 10.000 kr., án þess að bankakorti sé framvísað. Viðtakendur tékka eru eindregið hvattir til að biðja útgefanda um að framvísa persónuskilríkjum og að skrá sjálfir kennitölu undir nafnritun hans. Þannig getur viðtakandi best gengið úr skugga um að tékkinn sé útgefinn af reikningseiganda, en þaö er skilyrði fyrir ofangreindri ábyrgð. ISLAN DSBANKI - í takt við nýja tíma! | < ' LAt'ÖXá'öibUR áo.,ÐÉ'SlÉKtBER- Í989. „Ríkisstjórnin er yfirþyrmandi," segir leikkonan góðkunna, Edda Björgvinsdóttir. Ek á mínum raðherrabil - segir Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir leikkona Guöbjörg Edda Björgvinsdóttir er landsmönnum að góðu kunn, bæöi sem Bibba á Arnarnesinu og ekki síöur sem fremsta grínleik- kona landsins. Edda hefur komiö víða við á undanfomum árura, meðal annars verið með í leiksýn- ingum Gríniðjunnar. Hún segir að framtíð þeirra Gríniðjumanna sé nokkuð óráðin, sérstaklega á með- an húsnæðisskorturinn blasir við þeim eins og verið hefur. Þó liggja nokkur sjónvarps- og útvarpsverk- efhi fyrir. Edda tók sér í fyrsta sinn jólafrí í ár og sagðist hafa átt yndis- legar stundir heima við. „Eg hef slappaö af, spilað við börnin og les- ið og haft það óskaplega notalegt. Ég stefni .að þvi á næstu árum að taka mér alltaf jólafrí," segir þessi bráösnjalla leikkona. Það er Edda Björgvinsdóttir sem sýnir hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn: Guðbjörg Edda Björg- vinsdóttir. Fæðingardagur og ár: 13. septemb- er 1952. Maki: Gísli Rúnar Jónsson. Böm: Eva, 19 ára, Margrét, 16 ára, og Björgvin, 12 ára. Bifreið: Citroen braggi, árgerð 1988 ' (ráðherrabíll). Starf: Leikari. Laun: Óviss. Áhugamál: Sund. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur i lottóinu? Eg hef aldrei feng- ið neina rétta tölu enda spila ég sjaldan. Hvað fínnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst skemmtilegast að vera með allri fjölskyldunni hér heima hjá okkur. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vinna í leiðinlegu andrúms- lofti. Uppáhaldsmatur: Heimatilbúin pitsa - mín. Uppáhaldsdrykkur: Ég er búin að venja mig af kókinu svo ætli það sé ekki mjólkurhristingur. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur i dag að þínu mati? Ég hata íþróttir og þekki engan íþróttamann. Uppáhaldstimarit: Ég held bara ekki neitt. Ég er ekki áskrifandi að neinu tímariti og sé þau ekki oft. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan eiginmanninn? Peter O’Toole. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóm- inni? Mér finnst hún yfirþyrmandi. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Mig hefur lengi langað að hitta Shirley MacLaine. Uppáhaldsleikari: Við skulum segja Alan Bates en þeir er u miklu fleiri. Uppáhaldsleikkona: Maggie Smith. Uppáhaldssöngvari: Frank Sinatra. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Grettir. Uppáhaldssjónvarpsefni: Allar væmnar, gamlar, svarthvítar bíó- myndir. Ertu hlynnt eða andvig veru varn- arliðsins hér á landi? Andvíg. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ríkisútvarpið. Uppáhaidsútvarpsmaður: Enginn. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ætli þaö sé ekki nokkuð jafnt skipt niður. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng- inn. Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn hér á landi. Það væru helst leik- húsin í útlöndum. Uppáhaldsíþróttafélag: Ekkert, ég held ég hafi ofnæmi fyrir íþróttum. Stefnir þú að einhverju sérstöku i framtíðinni? Já, ég stefni aö því að verða þolinmóðari en ég er og betri manneskja. Hvað gerðir þú í sumarfriinu? Ég dvaldi á heilsuhæli -litla sumarbú- staðnum okkar í Kjósinni í and- legri og líkamlegri afslöppun. Hvað er þér minnistseðast frá þessu ári sem er að líða? Ég held ég verði aö segja að sumarið sé mér minnis- stæðast með tilliti tii þess sem ég svaraði spurningunni á undan. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.