Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1989, Síða 22
22 M( LAUfflARÐAGUR SOjDESEMBER 1989. Kvikmyndir Dj öfullinn í kvenmannslíki Roseanne Barr er ein vinsælasta sjónvarpsstjaman í Bandaríkjun- um í dag. Þessi þéttvaxna leikkona sló svo sannarlega í gegn í sjón- varpsþáttaröðinni Roseanne sem meðal annars hefur verið sýndur hérlendis. Þátturinn er svo vinsæll að hann slær jafnvel við sjálfum Bill Cosby. Nýlega efndi kvik- myndatímaritið American Film til könnunar meðal bandarískra kvik- myndagagnrýnenda á því hvaða einstaklingar og myndir hefðu skarað fram úr á sl. áratug. Þegar komið var að því að velja bestu leikkonuna virtust flestir sammála um að engin önnur kæmi til greina en Meryl Streep. Þær sem næstar komu voru þær Glenn Close og Kathleen Tumer sem fengu mun færri atkvæði. Þegar litið er á myndir eins og French Lieutenants Woman, Sophiess Choice, Out of Africa, Silkwood og A Cry in the Dark, þar sem Meryl Streep fer með stór hlutverk, er ekki hægt að segja annað en að hún sé vel að titlinum komin. Blöndun En hvað gerist þá þegar þessar ólíku leikkonur em látnar leiða saman hesta sína. Það geta áhorf- endur séð ef þeir skella sér á nýja mynd sem ber heitið Shedevil og var frumsýnd í Bandaríkjunum í nóvember sl. Samkvæmt blaða- fregnum virðist myndin hafa slegið í gegn, enda lögðu þessar ágætu leikkonur töluvert á sig til aö geta unnið saman. Méryl Streep varð að afneita boði um að vinna að nýju með Kevin Kline, sem lék á móti henni í Sóphies Choice. Þetta var nýjasta mynd leikstjórans Lawrence Kasdan og heitir I Love You to Death. Fyrir Roseanne Barr er þetta einnig mikilvægur áfangi því að þetta er í fyrsta sinn sem hún leikur í kvikmynd í fullri lengd. Það að hverfa frá sjónvarps- skerminum yfir á hvíta tjaldið er meira átak en margan gmnar. Allt sjónvarpsefni er unnið miklu hrað- ar við þrengri fjárhag en flestar kvikmyndir enda er hér um tvo til- tölulega ólíka fjölmiðla að ræða þótt báðir byggi á myndrænni út- færslu. Söguþráður En um hvað er Shedevil? Myndin er byggð á bók Fay Weldon sem ber heitið The Life and Loves of a Shedevil. Hún fjallar um tvær kon- ur og baráttu þeirra um sama manninn. Roseanne leikur Ruth, konu sem er bæði lágvaxin, feitlag- in og frekar subbuleg í eðli sínu. Ekki bætir það heldur upp á útlitið að hún er einnig með stóra vörtu á efri vörinni. En hún hefur þó marga kosti, er t.d. heiðarleg, þol- inmóð, hjálpsöm og með stórt hjarta en til að kynnast þessum eiginleikum Ruthar verður fólk að kynnast persónunni en dæma hana ekki strax eftir útlitinu einu sam- an. Vandamál Ruthar er að eigin- maður hennar, Bob, sem leikinn er af Ed Begley yngri, hefur misst áhugann á hjónabandinu og sam- bandi þeirra. Hann hafði gifst henni þegar hann komst að raun um að hún var ófrísk. Ruth hefur alla tíð reynt að gera Bob allt til geðs sem reynist erfitt á köflum. Bob er ákaflega veikur fyrir hinu kyninu, sérlega þegar um er að ræða hávaxnar, grannar og glys- gjamar konur, sem eru alger and- stæða við Ruth. Ást og hatur En þá gerist það. Bob hittir einn góðan veðurdag forríkan rithöfund sem sérhæfir sig í ástarsögum og er allt þaö sem Bob getur óskað sér í fari konu. Hér er einmitt komin Mary Fisher, andstæða Ruthar, leikin af Meryl Streep. Hann fellur fyrir henni og ástin blómstrar. í fyrstu lætur Ruth sér fátt um finnast en þegar Bob ákveður að flytja til Mary Fisher og kveður hana háðskum orðum ákveður Ruth að nú sé mælirinn fullur. Hún Umsjón: Baldur Hjaltason útbýr lista yfir allt það sem fyrrver- andi eiginmaöur hennar hélt upp á og lýsir síðan yfir stríði. Eitt það fyrsta sem Ruth gerir er að sprengja í loft upp húsið þeirra ásamt því að senda bömin til foður síns með þeim skilaboðum að mamma þeirra sé að fara út úr bænum og ekki sé vitað hvenær hún nái í þau. Þetta setur allt á annan endann hjá þeim Fisher og Bob sem enn em að ganga í gegnum rómantíkina sem fylgir fyrstu ást- inni. Smátt og smátt fer Ruth að fá meira sjálfstraust og átta sig á því að hún getur einnig látið eitthvað gott af sér leiða. Hún stofnar at- vinnumiðlun fyrir ómenntaðar og einmana konur sem hafa orðið út- undan í éfnahagskapphlaupinu. Ruth hefur öðlast nýja lífsfylhngu og lært að meta það að vera hún sjálf en ekki alltaf að reyna að geðj- ast öðrum. Annar tónn Það má segja að Shedevil sé mynd um konur því fyrir utan Streep og Burr er leikstjórinn einnig kven- kyns, að nafni Susan Seidelman. Hún sló í gegn 1985 með myndinni Desperately Seeking Susan þar sem Madonna fór með eitt aðal- hlutverkið. Síðan hefur hún átt frekar erfitt uppdráttar þangað til nú með Shedevil. Seidelman hefði ekki getað fengið betri leikara í aðalhlutverkin en þær Streep og Barr. Þær fara á kostúm hver með sínum stíl. Meryl Streep sýnir hér og sannar að hún er einnig ágætisgamanleikari. Barr hefur hins vegar tekist að færa yfir á hvíta tjaldið sömu frjálslegu framkomuna og hún hafði tamið sér fyrir sjónvarpið án þess að virka nokkuð tilgerðarleg. En hvað um eiginmann Ruthar sem leikinn er af Ed Begley yngri. Hann komst fijótlega að því að hann yrði að búa við ákveðið kvennaveldi meðan á gerð mynd- arinnar stóð. í einu atriði Shedevil sést þegar Ruth kemur skyndilega óbeðin með börnin til þeirra Bob og Mary sem eru í afslöppun í nýja Jacuzzi froðubaðinu sínu. Bob verður öskureiður þegar Ruth ryðst svona skyndilega inn í frið- helgi hans og eltir hana að leigu- bílnum með handklæði vafið utan um sig eitt klæða. Jafnrétti kynjanna í nýlegu viðtah við kvikmynda- tímaritið Premier lýsti Begley yngri atriðinu á eftirfarandi máta: „Samkvæmt handritinu átti ég að henda steini á eftir leigubflnum þegar hann lagði af stað og öskra: „Komdu aftur". En allt í einu kom fram tillaga, sem ekki hafði verið reiknað með í handritinu, um að ég skildi einnig missa af mér hand- klæöið. Ég lét í ljós mikla undrun mína yfir þessari ósk en stúikurnar voru ekki á sama máli. „Hvað með það, þetta er konumynd. Við viljum aö þú látir handklæðið falla.“ Hvaö gat ég sagt? Okkur karlmönnunum tækist aldrei að nálgast það hve oft kvenfólk hefur verið beðið um að fækka fötum fyrir framan kvik- myndatökuvélina. Svo ég lét hand- klæðið falla með glöðu geði. Það er kannski of mikið sagt að ég hafi látið það falla með glöðu geði. Ég lét það alla vega falla í atriðinu.“ Ný stefna Þaö er frekar óvanalegt að láta aðalsöguhetjuna vera eins óaðlað- andi og Ruth er gerð í Shedevil. í upphafi myndarinnar virðist hún sá'tt við húsmóðurhlutverkið og hafa litla þörf fyrir að ná frægð og frama í viðskiptum eða finnast hún verða að vera gift hinum fullkomna eiginmanni. Þótt raunveruleikinn sé svona oft á tíðum þá hefur þetta aldrei átt upp á pallborðið í Holly- wood. Myndir á borð við Working Girl eða Broadcast News sýna kon- una í allt öðru Ijósi og jákvæðara, að mati Hollywood-manna. Þetta eru konur sem berjast um völd, peninga og frægð líkt og karlmenn- imir. Shedevil hefur sýnt að það getur stundum borgað sig að taka áhættu og leiða saman eins ólíka persónu- leika og Meryl Streep og Roxeanne Barr. En það þarf fleira til. Ekki má gleyma handritahöfundunum Barry Strugatz og Mark R. Bums eða kvikmyndatöku Olivers Staple- ton og klippingu Craigs McKay. Allt þetta hjálpast til að gera Shedevfl að hinni ágætustu skemmtun. B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.