Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Page 3
\
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
Fréttir
Stangaveiöifélag Keflavíkur:
Dýrasti dagur-
inn í Fáskrúð
á 23.500
Stangaveiðifélag Keflavíkur er
þessa dagana að senda sínum félags-
mönnum veiðiglaðning fyrir sumar-
ið og er úrvalið fjölbreytt.
Þeir Keflvíkingar hafa handa fé-
lagsmönnum veiðileyfi í Vatnamót-
in, Geirlandsá, Seltjörn, Hömrum í
Grímsnesi, Flókadalsá, Krossá, Set-
bergsá, Fáskrúð, Langá á Mýrum,
Stóru-Laxá í Hreppum og Heiðar-
vatni.
Ef viö byrjum á að líta á laxveiði-
leyfln í Hömrum í Grímsnesi þá
kosta þau dýrustu 12.500 kr. og ódýr-
ustu 7.000 kr. í Flókadalsá í Borgar-
firði kosta dýrustu leyfin 16.800 kr.
og ódýrustu 5.700 kr. í Krossá á
Skarðsströnd eru þau dýrustu á
16.700 og ódýrustu 7.700 kr. í Set-
bergsá eru dýrustu leyfin á 16.500 og
ódýrustu 9.600 kr. í Fáskrúö eru þau
dýrustu á 23.500 kr. og ódýrustu á
18.000 kr.
í Geirlandsá er bæði lax og sjóbirt-
ingur, dýrustu leyfin þar eru á 5.900
kr. og ódýrustu á 2.400 kr. Vorveiði-
leyfi í Geirlandsá kostar 3.200 kr. í
Vatnamótum kostar dagurinn 3.200
kr. en í Seltjörn 700 kr.
-G.Bender
Veiðimaðurinn Gunnar Magnússon
með 6 punda lax úr Fáskrúð í Dölum
en dýrasti dagurinn þar kostar
23.500 kr. , DV-mynd AA
Línusjómenn:
Mótmæla ger-
ræði ráðherra
Áhafnir á nítján línubátum hafa ráðherrans sé gerræði og segja að
mótmælt banni sjávarútvegsráð- bannið sé aðfór að frjálsum fisk-
herra á útflutningi á flöttum fersk- mörkuðum. Þá segja þeir að reynsla
fiski. ' síðustu ára sýni að auka þurfi frelsi
Sjómennirnir segja að ákvörðun í viðskiptum með fisk. -sme
Fjárdráttur hjá
KEA í Hrísalundi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Ég vil ekki tjá mig neitt um þetta
mál og gef engar upplýsingar um
það,“ sagði Guðjón Ármannsson,
verslunarstjóri stórmarkaðs KEA í
Hrísalundi á Akureyri, um fjárdráít-
armál sem kom þar upp á dögunum.
Sömu svör var að hafa hjá Birni
Ingimarssyni, endurskoðanda KEA.
„Við gefum engar upplýsingar um
þetta mál. Það kom þarna upp mis-
ferli tveggja starfsmanna sem sagt
var upp störfum og annað vil ég ekki
segja um málið,“ sagði Björn.
Engar fréttir var að hafa af málinu
hjá rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri en þar á bæ eru menn í „frétta-
bindindi" eins og verið hefur að und-
anförnu og veita fjölmiölum ekki
upplýsingar um rannsókn mála.
3
er lokadagur pantana í næstu afgreiðslu á Macintosh-tölvubúnaði með
verulegum afslætti, samkvæmt ríkissamningi þeim, sem gerður var á
milli Innkaupastofnunar ríkisins og Radíóbúðarinnar hf.
Pantanir berist til Kára Halldórssonar, Innkaupastofnun ríkisins,
Borgartúni 7, sími 26844, fyrir 28. mars 1990.
Radíóbúðin hf.
Apple-umboðið
VIÐKOMUHAFNIR í
ENGLANDI OG Á
MEGINLANDI EVRÓPU:
- HULL.............alla mánudaga
- ANTWERPEN........alla þriðjudaga
- ROTTERDAM........alla þriðjudaga
- HAMBORG..........alla miðvikudaga
- BREMERHAVEN..annan hvern mánudag
(REYKJAVÍK þriðjudaga - miövikudaga)