Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Blaðsíða 24
NPÁKUBA'G'tK 19.'ítA'Ká'Y99ö!
32
Sviðsljós
x>v
Meðal hljómsveita, sem komu fram, var
Bootlegs. Hér sjást tveir meðlimir
hljómsveitarinnar.
Rósa kynnir á
Smekkleysu-
kvöldi
Síðastliðið fimmtudagskvöld
efndi Smekkleysa til hátíðar í
Tunglinu við Lækjargötu. Komu
þar fram hljómsveitir sem leika
á safnplötu sem er að koma á
markaðinn um næstu mánaða-
mót. Nefnist platan World Dom-
ination or Death og kemur út á
mörgum stöðum í heiminum.
Meðal hljómsveita, sem komu
fram á fimmtudagskvöldið og
leika á plötunni, eru Risaeðlan,
Langi Seli og Skuggarnir, Bless,
Ham og Bootlegs. Sykurmolarnir
eiga einnig lag á plötunni. En þar
sem þeir eru á hljómleikaferð um
Bandaríkin voru þeir íjarri góðu
gamni.
Til að kynna dagskrána höfðu
Smekkleysumenn fengið til liðs
viö sig Rósu Ingólfsdóttur og var
hún ekki í vandræðum með að
halda gestunum við efnið.
Opinn fundur Opinn fundur
Atvinnulíf á krossgötum
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til opins fundar um atvinnumál á Holiday
Inn miðvikudaginn 21. mars nk. kl. 16
Málshefjendur:
Þorsteinn Pálsson,
form. Sjálfstæðisflokksins
Arnar Sigurmundsson,
form. Samtaka fiskvinnslustöðva
Haraldur Haraldsson,
form. Fél. ísl. stórkaupmanna
Víglundur Þorsteinsson,
form. Félags ísl. iðnrekenda
Setning fundar:
Eggert Hauksson,
form. Iðnaðarnefndar
Fundarstjóri:
María E. Yngvadóttir,
form. Viðskiptanefndar
íslenskt atvinnulíf gengur nú í gegnum mikið breytingaskeið: -fjár-
magnskostnaður hefur stórhækkað - eigið fé fyrirtækja rýrnað -
samdráttur tekið við af miklu góðæri - gjaldþrotum stórfjölgað -
fyrirtæki ganga kaupum og sölum - vaxandi atvinnuleysi - brott-
flutningur fólks frá landinu - erlend samkeppni harðnar. - Á móti
kemur: - hækkað raungengi - hóflegir kjarasamningar - minni verð-
bólga - almenningur festir fé í fyrirtækjarekstri - nýtt álver - ný fisk-
veiðistefna - Evrópumarkaðurinn á bak við næsta leiti.
• Hvernig vinnum við okkur út úr vandanum?
• Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins?
• Hver eru viðhorf forystumanna í atvinnulífinu?
Fundurinn er öllum opinn.
Allt áhugafólk um atvinnumál er hvatt til að koma.
sífl Atvinnumálanefndir Sjálfstæðisflokksins
Rósa Ingólfsdóttir kynnti hljómsveitirnar og var ekki í vandræðum með
að halda athygli gestanna. DV-myndir BG
Sveitarstjóri
fertugur
Sigurður Valur Ásbjarnarson og eiginkona hans, Hulda Stefánsdóttir.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
sveitarstjóri í Bessastaðahreppi,
varð fertugur síðastliðinn þriðjudag.
Sigurður er lærður tæknifræöingur
og starfaði áður sem slíkur hjá Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Frá
1984 hefur hann verið starfsmaður
Bessastaðahrepps og varð sveitar-
stjóri sama ár. Sigurður tók ásamt
eiginkonu sinni á móti gestum í
veislusal Bessastaðahrepps og létu
margir sveitungar hans sjá sig sem
og ættingjar og vinir.
Páll Stefánsson og Hjálmar Kjart-
ansson skemmta sér greinilega vel.
Asgeir Sigurgestsson og Þorsteinn
S. Jónsson, tveir íbúar i Bessa-
staðahreppi, ræða málin á léttu nót-
unum.