Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
UÚönd
Kosningamar 1 Austur-Þýskalandi:
Stórsigur hægri flokka
Lothar de Maiziere, leiðtogi kristilegra demókrata, (lengst til hægri) skálar í kampavini ásamt stuðningsmönnum
i Austur-Þýskalandi í gær. Símamynd Reuter
Kosningabandalag hægri flokka,
Bandalag fyrir Þýskaiand, var ótví-
ræöur sigurvegari kosninganna í
Austur-Þýskalandi sem fram fóru í
gær. Þær kosningar voru þær fyrstu
frjálsu í sögu iandsins og ef tii viil
þær síöustu fyrir fyrirhugaða sam-
einingu þýsku ríkjanna. Bandalagið,
sem í eiga sæti Kristilegir demó-
kratar, Lýöræðisvakningin og Þýska
sósíalsambandið, hlaut alis 48,1 pró-
sent atkvæða og hlýtur samanlagt
193 sæti á þingi.
Þessi úrslit kosninganna þykja
mikill sigur fyrir Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, sem
hefur barist fyrir að sameining eigi
sér staö eins fljótt og hægt er. Kansl-
arinn og flokkur hans, kristilegir
demókratar, studdu dyggilega við
bakið á bandalaginu og tóku virkan
þátt í kosningabaráttunni austan
megin. Úrslit kosninganna í gær
þykja hafa aukið mjög sigurlíkur
kansiarans og flokks hans í fyrir-
huguöum kosningum i Vestur-
Þýskalandi í desember.
Kohl hefur sætt mikilli og harðri
gagnrýni fyrir sameiningaráætlun
sína, bæði heima fyrir og erlendis.
Hann kvaðst í gær mundu halda
áfram á sömu braut og sagði stórsig-
ur Bandalags fyrir Þýskaland til
marks um að Austur-Þjóðverjar
vildu ganga til liðs viö Vestur-Þjóð-
verja á leiö þeirra til sameiningar.
Samsteypustjórn líkleg
Leiðtogi bandalagsins, Lothar de
Maiziere, leiðtogi flokks kristilegra
demókrata, sagði í gær að brýnasta
verkefni nýrra valdhafa í Austur-
Þýskalandi væri aö setja á laggirnar
samsteypustjórn á sem breiðustum
grundvelli og sameina bágborinn
efnahag Austur-Þýskalands og hinn
öfluga og rika efnahag Vestur-
Þýskjalands. „Sameining gjaldmiðla
ríkjanna er næsta stóra skrefið,"
sagði þessi hægláti maður sem að
öllum líkindum verður næsti og ef
til vill síðasti forsætisráðherra Aust-
ur-Þýskalands fyrir sameiningu.
Maiziere sagði að myntsameiningu
yrði að leiða til lykta eins fljótt og
aúðið væri. Svo kann að fara að vest-
ur-þýska markið veröi gjaldgengt í
Austur-Þýskalandi í júní næstkom-
andi, sagði Maiziere.
Kohl kanslari var að vonum
ánægður með úrslit kosninganna.
„Þetta eru frábærar niðurstöður,"
sagöi vestur-þýski kanslarinn sem
tók þátt í sex kosningafundum fyrir
hönd sigurvegaranna. Hann getur
nú vonast til að verða fyrsti kanslari
sameinaðs Þýskalands.
Sigur hægri aflanna
Kristilegir demókratar unnu alls
40,9 prósent atkvæða og voru at-
kvæðamestir allra þriggja flokka
bandalags hægri manna. Þeir fá alls
164 menn kjörna. Þýska sósíalsam-
bandið fékk alls 6,32 prósent og 25
menn á þing, Lýðræðisvakningin
0,92 prósent og fjóra menn á þing.
Jafnaðarmenn fengu rúm 21 prósent
og 87 menn kjörna, Lýðræðislegi
jafnaðarmannaflokkurinn (gamli
kommúnistaflokkurinn) fékk 16,3
prósent og 65 menn kjörna og Banda-
lag frjálsra demókrata 5,28 prósent
og 21 mann kjörinn. Sambandið ’90,
sem er bandalag þriggja umbóta-
hópa, fékk aðeins 2,9 prósent at-
kvæða og tólf menn kjörna á þing.
Kosningaþátttaka var góö í Aust-
ur-Þýskalandi, alls 93 prósent. Tólf
milljón manns var á kjörskrá en alls
eru íbúar Austur-Þýskalands rúmar
sextán milljónir.
Vinstri flokkum ýtttil hliðar
Vinstri flokkum, sem varað hafa
við of hraðri sameiningu þýsku ríkj-
anna, var eiginlega ýtt til hliðar í
þessum kosningum. Jafnaðarmenn
fóru vel af stað í kosningabaráttunni
og var spáð þrjátíu og fimm prósent
atkvæða í skoðanakönnunum
nokkrum dögum fyrir kosningar. En
þeir urðu að sætta sig við aðeins rúm
21 prósent og 87 þingsæti.
Lýðræöislegi jafnaðarmannaflokk-
urinn, sem reistur var á rústum
gamla kommúnistaflokksins, stóð sig
mun betur en búist var við. Hann
hlaut alls 16,3 prósent og 65 sæti á
þingi.
Umbótasamtökin tapa
Samtök umbótasinna, Sambandið
’90, fékk ekki nema 2,9 prósent at-
kvæða og tólf menn kjörna á hið fjög-
ur hundruð sæta þing. í þessu banda-
lagi þriggja umbótahópa eiga sæti
þau samtök sem urðu kveikjan að
uppreisn fólksins í fyrra, Nýr Vett-
vangur, Lýðræði Strax og Friðar- og
mannréttindafrumkvæðið. Fulltrúar
þessara samtaka eru þó ekki á þeim
skónum að leggja upp laupana. „Það
var mikið afrek af hendi umbótasam-
takanna að frjálsar kosningar fóru
yfirleitt fram,“ sagði Konrad Weiss,
einn félaga í Lýðræði strax.
Sambandið '90 og jafnaðarmenn,
með samanlagt níutíu sæti á þingi,
ætla að nota þingstyrk sinn til að
vernda félagskerfi Austur-Þjóðverja
við sameiningu þýsku ríkjanna.
Kosningastemming
Það ríkti fjör í Austur-Berlín í gær-
kvöldi þegar íbúarnir fögnuðu úrslit-
um kosninganna. Ljós umvafði þessa
borg sem alla jafna er óhrein og
dimm. Austur-Þjóöverjar skáluðu í
kampavíni þar sem þeir gengu í ró-
legheitum um götur borgarinnar í
góðu veðri í gærkvöldi.
Vestrænir eftirlitsmenn með fyrstu
frjálsu kosningunum í Austur-
Þýskalandi sögðu í gær að svo virtist
sem þær hefðu farið heiðarlega fram.
Um þrjátíu eftirlitsmenn frá austri
og vestri ferðuðust vítt og breitt um
Austur-Þýskaland til að fylgjast meö
atkvæðagreiðslunni og atkvæðataln-
ingunni.
Einu mótmælin gegn kosningafyr-
irkomulaginu komu frá Mongólíu
þar sem hundrað og fimmtiu Aust-
ur-Þjóðverjar gátu ekki greitt at-
kvæði þar sem kjörskírteini þeirra
höfðu ekki borist í tæka tíð til Ulan
Bator. ADN-fréttastofan austur-
þýska greindi frá þessu í gær.
Reuter
Bráöabirgöaniöurstööur kosninganna
Fjöldi Prósentu- Þingsæti
atkvæða hlutfall
1. Bandalag fyrir Þýskaland 5.524.647 48,15 193
2. Jafnaðarmannaílokkurinn 2.506.151 21,84 87
3. Lýðræðislegijafnaðarmannafl. 1.873.666 16,33 65
(gamli kommúnistafl.)
4. Bandalag frjálsra demókrata 606.283 5,28 21
5. Sambandið '90 333.005 2,90 12
(bandal. þriggja umbótahreyfinga)
6. Aðrirflokkar 631.601 5,5 22
Samtals: 11.475.353 100 400
„Síðasti“ forsætisráðherrann
Leiðtogi kristilegra demókrata,
Lothar de Maiziere, fagnar sigri i
gær. Simamynd Reuter
„Litlaus og næstum því fráhverfur
pólitík.“ Þannig er Lothar de Maizi-'
ere, sigurvegara þingkosninganna í
Austur-Þýskalandi í gær, lýst. Flokk-
ur hans, Kristilegi demókrataflokk-
urinn, vann sannfærandi sigur í
kosningunum.
De Maiziere, sem var atvinnutón-
listarmaður og síðan lögfræðingur
sem tók að sér mannréttindamál,
varð fyrst leiðtogi kristilegra demó-
krata í byrjun nóvember 1989 eftir
að breytingarnar hófust fyrir alvöru
í Austur-Þýskalandi. Hlutverk De
Maizieres var að breyta þeirri leiðin-
legu ímynd sem flokkurinn hafði
meðal þjóöarinnar eftir fjörutíu ára
samvinnu við stjórn kommúnista.
De Maiziere sjálfur er sagður vera
svo litlaus að menn hrósa happi yfir
því að Helmut Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýskalands, skuli hafi tekið þátt í
kosningabaráttunni í Austur-Þýska-
landi af lífi og sál. Með loforðum um
skjóta sameiningu og samræmingu
gjaldmiðla þýsku ríkjanna tókst
Kohl að koma í veg fyrir að flokkur-
inn yrði látinn gjalda fyrir það að
hafa átt samvinnu við kommúnista
fortíðarinnar.
Eftir kosningasigurinn er De Ma-
iziere nú kominn í fremstu víglínu.
Þó að hann hafi ekki viljað í gær-
kvöldi segja beinum orðum hvort
hann myndi vilja taka að sér embætt-
i forsætisráðherra Austur-Þýska-
lands þá þykir það sennilegt að þessi
lágvaxni leiðtogi hins öfluga flokks
kristilegra demókrata veröi sá sem
verður fulltrúi sextán milljóna Aust-
ur-Þjóðverja í sameiningarviðræð-
unum við Vestur-Þjóöverja.
RYMINGARSALA - ALLT AÐ 50% AFSLATTUR
* CB AM/FM heimatalstöðvar * Straumbreytar úr 220 V í 12 V
* CB FM handstöðvar * Rafstöðvar
* CB bilaloftnet * VHF bílaloftnet
* CB húsloftnet * Höfuðnuddtæki
SENDUM í PÓSTKRÖFU
TITA\ hf. - (áður Benco)
LÁOMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 91-84077
De Maiziere er fæddur 2. mars 1940
og varð félagi í Kristilega demókrata-
flokknum 1956. Af trúarástæöum
sóttist hann ekki eftir háum embætt-
um innan flokksins á tímum stjórnar
kommúnista en þau hefðu getað
komið í veg fyrir að hann yrði forsæt-
isráðherra nú og þá jafnframt síðasti
forsætisráðherra Austur-Þýska-
lands. De Maiziere læröi á fiðlu og
varð atvinnutónlistarmaður. Vegna
taugabólgu í handlegg varð hann aö
hverfa frá þeirri braut og fór þá í
laganám. De Maiziere er virkur í
málefnum kirkjunnar. Hann er
kvæntur og á þrjár dætur.
Sameinað Þýskaland
- kröftugasta slagorðið
f leiðara austur-þýska dagblaðs-
ins Der Morgen, sem er málgagn
Frjálslynda demókrataflokksins,
stendur í morgun aö krafan um
sameinað Þýskaland hafi verið
slagorðið sem féll kjósendum best
í geð.
Fleiri blöö taka í sama streng. I
þeim segir einnig aö hvorki De
Maziere, leiðtogi kristilegra demó-
krata, né félagar hans í Vestur-
Þýskalandi hafi gert ráð fyrir jafn-
ótvíræðum sigri. Og það sé eigin-
lega í Vestur-Þýskalandi sem sigur-
vegarann sé aö flnna. í Berliner
Zeitung segir að það muni koma í
fjós strax á næstu vikurn hvort lof-
orðin um skjóta samræmingu
gjaldmiðla og efnahags hafi bara
veriö orðin tóm.
í Neues Ðeutschland, málgagni
kommúnista, segir í morgun að nú'
sé eftir að sjá hvernig hinir fjögur
hundruð þingmenn, sem kjörnir
hafa verið í lýðræöislegum kosn-
ingum, muni rækja starf sitt. Þeir
séu ábyrgir bæði gagnvart sinni
eigin þjóð og öðrum Evrópuþjóð-
um.
Þaö er skoðun Bandaríkjasfjórn-
ar að sigur kristilegra demókrata í
kosningunum i Austur-Þýskalandi
muni styrkja þá sem vilja aö sam-
einaö Þýskaland verði áfram í Atl-
antshafsbandalaginu. Þetta er haft
eftir bandarískum embættismanni.
Vestur-þýsk yfirvöld og Banda-
ríkjastjórn vilja að sameinað
Þýskaland verði í Atlantshafs-
bandalaginu en Sovétríkin viija að
þaö veröi hlutlaust.
TT