Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Page 10
10
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
HJÓLSAGIR
fyrir iðnaðarmenn
MH-165, MH-182
1200 W, 1400 W
0 180 mm, 0 215 mm
Skeifunni 11 d - simi 686466
Famulus
MEIRIHÁTTAR
RYKSUGA
Tilboð þessa viku
20% afsl.
HANDHÆG,
VÖNDUÐ OG
NÝTÍSKULEG.
Rafbraut
Suðurlandsbraut 6,
105 - Reykjavík.
Slmar 681440 og 681447.
30'S
PAXAX 6IISEK6
EXTRACTUM
CAPSULES
cíMrsiœc#?.i»waæ.
PANAX GINSENG EXTRAXTUM
(rautt gínseng) flYtjum við millí-
iiðalaust beint frá Kina.
Kinverjar hafa sótt orku og lifs-
þrótt til GINSENG rótarinnar
mörgum öldum fyrr en Islend-
ingasögurnar voru skráðar. Þús-
undir bóka hafa verið skrífaðar
j um rótina og eiginleika hennar -
bæði af leikum og Iærðum. Lof
manna og hrós um GINGSENG
rótina i gegnum aldírnar er Iiklega
meira en um nokkra aðra Iækn-
ingajurt. Þegar þú velur þér
GINGSENG þá veldu þér það
besta -
ÞAÐ BORGAR SIG.
SMÁSALA - HEILDSALA
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
Laugavegi 25
Simi: 10263 Fax: 621901
Uflönd
Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, ásamt Shimon Peres, leiðtoga ísraelska Verkamannaflokksins, i Jerúsalem
í gær. Carter kom við i ísrael í gær þar sem hann bar leiðtogum landsins boð frá Assad, forseta Sýrlands, um
viðræður þjóðanna. Simamynd Reuter
Stj órnarmyndunartilraunir Verkamannaílokksins í ísrael:
Snurða hlaup
á þráðinn
Bakslag hefur komið í tilraunir
Shimonar Peres, leiðtoga ísraelska
Verkamannaflokksins, til stjórnar-
myndunar. Leiðtogar eins fjögurra
smærri trúarflokka á þingi í ísrael,
Shas-flokksins, lýstu því yfir að þeir
myndu styðja myndun samsteypu-
stjórnar Likud-flokksins og Verka-
mannaflokksins, undir forsæti þess
fyrrnefnda, svo fremi sem Likud-
menn lýstu yfir stuðningi við tillögur
Bandaríkjanna um viðræður ísraela
og Palestínumanna um fyrirhugaðar
kosningar á herteknu svæðunum.
Þingfulltrúar Shas-flokksins studdu
vantrauststillögu Verkamanna-
flokksins á bráðabirgðastjórn
Likud-flokksins í síöustu viku og því
kemur þessi stefnubreyting leiðtoga
hans Verkamannaflokknum í opna
skjöldu.
Samsteypustjóm Verkamanna-
flokksins og Likud, undir forsæti
Shamirs forsætisráðherra, féll í síð-
ustu viku í kjölfar þess að ráðherrar
Verkamannaflokksins shtu stjórnar-
samstarfi. Það var afstaða til fyrr-
néfndra tillagna Bandaríkjanna sem
varð stjórninni að falli. Tveimur dög-
um síðar féll bráöabirgðastjórn
Shamirs eftir að vantraustsillaga á
hana var lögð fram og samþykkt á
þingi. Fimm af sex þingfulltrúum
Shas-flokksins mættu ekki þegar
gengið var til atkvæða um tillöguna
og því var hún samþykkt. Bæði leið-
togar Verkamannaflokksins og
Likud-hafa fariö fram á umboð til
stjórnarmyndunar og vonast til að
fá stuöning þeirra fjögurra smærri
trúarflokka sem sæti eiga á þingi og
hafa úrslitavaldið um myndun
stjórnar í hendi sér þar sem þeir
halda alls átján sætum á þingi.
Fréttaskýrendur búast við að Peres
fái fyrstur formlegt umboð til stjórn-
armyndunar. Fastlega má búast við
að myndun stjórnar taki langan
tíma, til dæmis má geta þess að það
tók 52 daga að mynda síðustu stjórn
sem svo sat í fimmtán mánuði.
Heimildarmenn innan Verka-
mannaflokksins segja að Likud-
menn geti ekki fallist á skilyrði Shas
nú um að flokkurinn lýsi yfir stuðn-
ingi við tillögur Bandaríkjanna um
friðarviðræður ísraela og Palestínu-
manna. Segja heimildarmennimir að
til þess sé þrýstingur harðlínumanna
innan flokksins of mikill.
Þrátt fyrir að Shas setji skilyrði
fyrir stuðningi við Likud-flokkinn og
stjórnarmyndunartilraunir af hans
hálfu er afstaða Shas-manna áfall
fyrir Peres sem vonaðist til að ná
samþykki þeirra fyrir stjóm undir
forsæti Verkamannaflokksins í
næStU VÍku. Reuter
íhaldsmenn í Bretlandi:
Vara við leiðtogadeilum
Gagrýnendur Margaretar Thatc-
her, forsætisráðherra Bretiands og
leiðtoga íhaldsflokksins, vara við að
til mótframboðs gegn henni í leiö-
togaembættið kunni að koma í haust
þegar íhaldsmenn ganga að nýju til
atkvæða um leiðtoga sinn. Viðvömn
þessi kom aðeins örfáum klukku-
stundum eftir að Thatcher hóf her-
ferð gegn gagnrýnendum sínum og
hét því að láta leiðtogaembættið ekki
af hendi fyrir næstu almennu kosn-
ingar.
Fyrram ráðherra í bresku stjórn-
inni sagði í viðtali við breska frétta-
stofu að næsta óhjákvæmilegt væri
að barátta um leiðtogaembætti
flokksins kæmi í haust ef vandamál
stjórnarinnar minnkuðu ekki. Sam-
kvæmt reglum flokksins verða
flokksfélagar að greiða atkvæði um
leiðtoga sinn nokkrum vikum eftir
að breska löggjafarþingið er sett
Mikil mótmæli hafa verið í Bretlandi
vegna fyrirhugaðs nefskatts sem
leggst á um næstu mánaðamót.
Óvinsældir ihaldsmanna hafa end-
urspeglað óánægju almennings
með þennan skatt. Simamynd Reuter
haust hvert.
Thatcher og íhaldsflokkur hennar
eiga á brattann að sækja í skoðana-
könnunum, ekki síst vegna óvinsæls
nefskatts sem leggst á í Bretlandi og
Wales um næstu mánaðamót. Al-
menningur í Bretlandi hefur brugð-
ist illa við þessum fyrirhugaða nef-
skatti og mótmælt honum harölega.
Oftar en einu sinni hefur komið til
átaka lögreglu og mótmælenda.
Samkvæmt skoðanakönnunum um
helgina munu íhaldsmenn tapa í fyr-
irhuguðum aukakosningum í Staf-
fordshire á þriðjudaga en þar hefur
flokkurinn allajafna haft töluvert
fylgi. í könnun breska blaðsins Inde-
pendent hyggjast 56 prósent kjósenda
í Staffordshire kjósa Verkamanna-
flokkinn en aðeins 28 prósent íhalds-
flokkinn.
Reuter
Frakkland:
Flokksþingi franskra sósíal-
ista, flokks Mitterrands forseta,
lauk í hálfgerðri ringulreið í
gær og í fyrsta sinn frá árinu
1971 var ekki samþykkt ein-
hJjóða stefnuyfirlýsing að þingi
loknu. Ástæða þessa var ósam-
lyndi þeirra innan flokksins
sem vonast eftir að taka við af
Mitterrand þegar fram líða
stundir. Fréttaskýrendur segja
þetta ósætti flokksfélaga per-
sónulegt áfall fyrir forsetann
sem reyndi að miðla málum
milli andstæðra fylkinga innan
flokksins.
Allt aö sjö fiokksbrot áttu í
deilum á þinginu síðustu daga
en harðasti, og jafhframt djúp-
stæðasti, ágreiningurinn er
milli stuðningsmanna Laurent
Fabius, fyrram forsætisráð-
herra, og annars hóps flokks-
félaga undir forsæti Pierre
Mauroy og Lionel Jospin
kennslumálaráðherra.
Deiluaðilar áttu í samninga-
viðræðum aðfaranótt sunnu-
dags og í gærmorgun en þær
viöræður runnu út í sandinn.
Heimildarmenn innan flokks-
ms segja að þeir muni hittast
að nýju í París á morgun,
þriðjudag, og reyna að ná sátt-
um. Ef þeir ná samkomulagi
má búast við aö framkvæmda-
nefnd samþykki stefnuyfirlýs-
ingu flokksins fyrir hönd
flokksfélaga á miðvikudag.
Jospin og Fabius, sem báðir
vilja útnefningu flokksins til
forseta árið 1995 þegar Mitter-
rand mun að öllum líkindum
víkja úr embætti, hafa hvor um
sig stuöning tuttugu og níu pró-
sentflokksfélaga. Rcutcr
Newsweek:
Áætlun um
árás á Rabta
Bandarísk yflrvöld höfðu gert
áætlun um hemaðaraðgerð
gegn efnaverksmiðjunni í Rab-
ta í Líbýu sem grípa átti til ef
ekki tækist meö diplómatískum
leiöum að koma í veg fyrir að
starfsemin í verksmiðjunni
kæmist á fullan skrið. Þetta
kemur fram í nýjasta tölublaði
bandaríska tímaritsins News-
week.
Eldur kom upp i efnaverk-
smiöjunni í síðustu viku og hef-
ur Bush Bandaríkjaforseti sagt
að eldsvoðinn hafi augljóslega
lamað starfsemina. Newsweek
hefur það eftir heimildarmönn-
um innan Bandaríkjastjórnar
aö áður en eldurinn kom upp
hefði Bush þegar ákveðið að
láta stöðva starfsemi efnaverk-
smiðjunnar. Líbýumenn full-
yrða að í verksmiðjunni hafi
einungis veriö framleidd lyf og
halda því fram að um íkveikju
i henni hafl verið að ræða.
Bandaríkjastjórn hefur vísað
því á bug að hún hafi átt aðild.
að brunanum.
Nákvæm staðarákvörðun
verksmiðjunnar í Rabta og ann-
arra mikilvægra mannvirkja í
Miöausturlöndum er til í tölvu
í Bandaríkjunum aö því er segir
í Newsweek. Hægt er að mata
þá tölvu með skipunun um
stýriflaugaárás á viðkomandi
staði. Er sagt að Reagan, fyrr-
um Bandaríkjaforseti, hafi látiö
setja slíkar upplýsingar í tölv-
ur.
í Newsweek sagði að starf-
semin i Rabta hefði fariö fram
nógu lengi til að hægt heföi ver-
ið að framleiða birgðir af sinn-
epsgasi og taugagasi og að svo
virtist sem þessar birgðir hefðu
ekki skemmst í eldsvoðanum.
Reuter