Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Síða 11
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
11
Utlönd
Mótmæli fyrir utan breska sendiráð-
ið i Bagdad i írak á laugardaginn.
Simamynd Reuter
Útiloka
ekki
njósnir
Bazofts
Tveir þekktir breskir njósnasér-
fræðingar hafa ekki útilokað að
blaðamaðurinn Bazoft, sem tekinn
var af lífi í írak á fimmtudaginn,
hafi unnið fyrir ísraelsk eða bresk
yfirvöld. Bazoft var handtekinn í
september síðastliðnum er hann var
að kanna fregnir um sprengingu í
leynilegri herstöð suðvestur af
Bagdad og var hann fundinn sekur
um njósnir.
Annar njósnasérfræðinganna, sem
er þingmaður, sagði að Bazoft hefði
líklega heyrt eitthvað sem hefði getað
orðið bitastætt fyrir ísraela, reynt að
kanna málið og verið gripinn. Þing-
maðurinn sagði það vera vitað að
Bazoft hefði íjórum sinnum síðustu
tvö árin boðist til að njósna fyrir
bresku lögregluna. Þess vegna væri
það ekki ólíklegt að hann hefði boðið
ísraelum þjónustu sína. Það var Dou-
glas Hurd, utanríkisráðherra Breta,
sem greindi frá því á þingi að Bazoft
hefði boðið bresku lögreglunni upp-
lýsingar.
í forsíðufrétt breska vikublaðsins
Observer í gær sagði að háttsettir
menn innan bresku stjórnarinnar
hefðu staðfest að blaðamaðurinn
Farzad Bazoft hefði ekki verið njósn-
ari.
Hundruð þúsunda manna urðu við
tilmælum stjómarinnar í írak um
að efna til mótmæla vegna fordæm-
ingar breskra yfirvalda á aftöku Baz-
ofts og gengu fram hjá breska sendi-
ráðinu í Bagdad á laugardaginn.
Sungu þau slagorð og veifuðu borö-
um með áletrunum fjandsamlegum
Bretum. Sendiherra Bretlands hefur
yerið kallaður heim frá írak en enn
eru eftir um tuttugu starfsmenn í
sendiráðinu. Efnt var til mótmæla
víðs vegar um írak á laugardaginn.
Forseti íraks, Saddam Hussein,
kom óvænt í heimsókn til Fahd, kon-
ungs Saudi-Arabíu, á laugardaginn.
Ekki hefur verið greint frá í hvaða
tilgangi Hussein fór í þessa heimsókn
en búist var við að hann myndi fal-
ast eftir stuðningi Saudi-Araba
vegna ágreiningsins við bresk yfir-
völd. Saudi-Arabía studdi írak í
Persaflóastríðinu.
Málgagn yfirvalda í Sýrlandi hvatti
í gær til þess aö Hussein, forseta ír-
aks, yrði steypt. Sakaði blaðið forset-
ann um gróf mannréttindabrot en
aftaka Bazofts var ekki nefnd. í blað-
inu var sagt að íraska þjóðin hafnaði
stjórn Husseins og væri staðráðin í
aðsteypahenni. Reuter
n «*■
Vikulegt dagflug til Mallorca í sumar
4
d
%
Aldrei betra verð
'k'k
30 daga ferð 22. apnj
Verð ftá 38.000
staógreiðstuverö, 2 fuðoróuir og 2 Mru,
cðst 56.000,-
* staðgreiðsluverð 2 í íbúó
2ja-16 ára,
\ \
Þ vikna ferðir 22 maí/n ■■
. Verö frá 44 S m/4-
sept.
°g 2 börn, 2ja~ll
eöa 66.100-
ara,
Geröu kröfur um gott og öruggt sumurleyfí
- þaö gera okkar farþegar.
Miðaó vió gæói
(WtdMm
Hallveigarstíg 1 - sími 28388
^ERÉcÍroRYOU^cXr ^ ( hljómtæki, 25% afsláttur
EjyJ hljómtæki, 25% afsláttur
mmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^^mmi^mmmmmmmmmmmmmmmi^^m
Goodmans hljómtækjasamstæður, 30% afsláttur
Mikiö úrval geisladiska, 50% afsláttur
Ármúla 17, símar 68 88 40 - 68 51 49 - 83176
\