Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1990, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 19. MARS 1990.
35
Fréttir
Árnessýsla:
Sjúkrabíll í sérflokki
Kristján Emarsson, DV, Selfossi:
Fyrir áramótin fékk lögreglan í Ár-
nessýslu mjög vel útbúna sjúkrabif-
reiö til afnota. Lögreglan hefur í
mörg ár sinnt flutningum á sjúku
fólki í sýslunni.
Til umræðu kom hjá stjórnvöldum
að aðskilja þennan lið starfsins frá
lögreglunni og gera hann að sjálf-
stæðu starfi í samráði við sjúkrahús-
in. Menn hafa unnið gegn þessum
breytingum og var það svo fyrir ára-
mótin að dóms- og heilbrigðismála-
ráöuneytin staðfestu að halda því
fyrirkomulagi sem hefur verið, það
er að lögreglan annist þessa flutn-
inga.
Til að undirstrika ánægju heima-
manna ákváðu stjórnendur heilsu-
gæslustöðva í Árnessýslu aö leggja
lögreglunni til vel útbúna sjúkrabif-
reið við þessi tímamót. Bifreiðin hef-
ur verið í notkun hjá lögreglunni um
nokkurn tíma og reynst vel.
Nýja sjúkrabifreiðin er af gerðinni
Ford E-350 Econoline Super dísil.
Fullkominn búnaður er í bifreiðinni,
lyfiabúr, hjartastuðtæki, súrefnis-
búnaður, öndunarvél, skurðstofulýs-
ing inni og flóðlýsing í allar áttir úti,
talstöð, farsími, kallkerfi til stjórn-
unar á vettvangi og mjög fullkomin
karfa. Sjúkrakarfan reyndist vera
svo mikil breyting til batnaðar fyrir
lögreglumennina að Rauða kross
deildin hér hefur nú gefið þrjár körf-
ur til viðbótar og hefur þeim verið
komið fyrir í bíium embættisins.
Nýi sjúkrabillinn á Selfossi.
DV-mynd Kristján
Félag Ámeshreppsbúa 50 ára:
Glæsileg afmælishátíð
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Á sjötta hundrað manns fiölmenntu
á 50 ára afmælisfagnað Árneshrepps-
búa sem haldinn var í hinu glæsilega
samkomuhúsi Glymi 10. mars. Þar
var borðhald og heimatilbúin
skemmtiatriði sem burtfluttir Árnes-
hreppsbúar fluttu.
Lesið var kvæði eftir Jóhönnu
Thorarensen, Skagaströnd, einnig
las Torfi Guðbrandsson skólastjóri
upp kvæðiö Hákarlalegur eftir Jakob
Thorarensen. Unga fólkinu tókst
nokkuð vel upp með skemmtiatriðin,
sérstaklega Herði Jónssyni sem var
hreint frábær.
Maturinn var sæmilegur og mikill
en það vantaði þetta góða bragð að
lambasteikinni. Ég álykta að lærin,
hafi öll verið soðin í einum stórum
potti. Öll þjónusta var snjöll, bæði
við bari og í sal. Salurinn skreyttur
með alls konar lituöum ljósum enda
hef ég aldrei séð jafnmargt fólk fall-
egt og þarna. En það hefði þurft að
lækka hávaðann í hljómsveitinni.
Hann var óþolandi og ekki nokkur
leið að ræða saman vegna hans.
Fjórir stofnfélagar félags Árnes-
hreppsbúa voru hylltir, bræðurnir
Jón og Jóhann Guðlaugssynir frá
Steinstúni, Guðmundur Guðmunds-
son frá Melum og Ólína Þorvarðs-
dóttir frá Eyri sem jafnframt gaf fé-
laginu 10 þúsund krónur. Guðmund-
ur Hólm og ína Jensen eru heiðurs-
félagar. Guðmundur gat ekki mætt
en Ina var hyllt. Fólk var mætt frá
öllum bæjum í Árneshreppi, frá Kol-
beinsvík til Skjaldbjarnarvíkur við
Geirólfsgnúp, sem ekki hefur verið í
byggð síðustu áratugi, einnig mættu
burtfluttir Árneshreppsbúar úr flest-
um sýslum landsins.
Skúli Alexandersson var veislu-
stjóri, bráðskemmtilegur með rautt
og fallegt bindi, en á dansgólfinu setti
hann upp rósótt bindi. Innilegustu
þakkir til hinnar 8 manna stjórnar
félagsins sem lagði mikið á sig við
undirbúning skemmtunarinnar.
Hún fór í alla staði mjög vel fram og
hefði verið óaðfinnanleg hefði ekki
komið til þessi hávaði í hljómsveit-
inni. Þá bárust ýmsar kveðjur og
skeyti, þar á meöal frá kaupfélags-
hjónunum Margréti og Gunnsteini
Gíslasyni á Ströndum. Ég óska Ár-
neshreppsbúum í heimabyggð sinni
og burtfluttum allra heilla í nútíð og
framtíð og vonast til að Árneshrepp-
ur verði alltaf í byggö því þaðan kem-
ur eitt mesta kjarnafólk þjóðarinnar.
Hveragerði:
10 ár að greiða
upp skuldirnar
Þau leiðu mistök urðu við vinnslu
greinar um 20 verst stæöu bæjarsjóö-
ina á íslandi að Hveragerði féll út
úr texta þó bærinn hefði verið merkt-
ur inn á kort ásamt upplýsingum um
hreinar skuldir og framlegð. Hreinar
skuldir Hveragerðis voru 98 þúsund
krónur á núvirði á hvern íbúa í árs-
lok 1988. Þessi skuld er 24 prósent
hærri en árstekjur bæjarins. Fram-
legö bæjarsjóðs, það er tekjuafgang-
ur fyrir greiðslu á fiármagnskostn-
aði, var um 13,9 prósent. Miðað við
óbreyttan rekstur tæki það bæinn
um 9 ár og 10 mánuði að greiða upp
skuldir sínar. Greiðslustaða Hvera-
gerðis var bág en veltufiárhlutfallið
var 0,73. Skammtímaskuldir voru því
rúmlega fiórðungi hærri en veltuféð
í árslok 1988.
Sænskir vísindamenn:
Boruðu niður á tólf
þúsund ára vatnaset
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Leiðanguijsmenn frá Lundi í Sví-
þjóð fóru ékki erindisleysu á Skag-
ann fyrri hluta mars. Þeir ætluðu
sér 10 daga í töku borkjarna af
vatnaseti en höiðu strax á þriðja
degi náö svo góðum gögnum að
ekki þótti ástæða til að dvelja við
lengur. M.a. höfðu vísindamenn-
irnir í fórum sinum 12 metra lang-
an borkjarna og töldu sig hafa bor-
að niður á allt aö 12-14000 ár.
Leiöangursmenn voru því nokk-
uð góðir með sig þegar þeir voru
komnir um borð í Flugleiðaþotu á
leið til Svíþjóðar. Handfarangur
þeirra var nokkuö óvenjulegur,
metralangir strangar með forvitni-
legustu borkjörnum. Að sögn Ólafs
Ingólfssonar leiðangursstjóra var
ekki þorandi að setja alla kjarnana
í frakt enda afrakstur leíðangurs-
ins 3ja ára vinna fyrir dijúgan hóp
vísindamanna.
Kjarnarnir voru teknir úr fiórum
vötnum á Skaganum, við Tjörn og
Hraun. í lengsta kjarnanum mátti
sjá drjúgt öskulag sem vísinda-
mennirnir skutu á að væri úr vel
þekktu gosi fyrir um 7700 árum.
Mjög liklega munu vísindamenn
koma aftur á Skagann í sama til-
gangi innan margra ára.
|)étiirs
felauðíur
Hádegisti Iboð
alla daga
Súpa og fiskur
dagsins kr. 490,-
Laugavegi 73, sími 23433
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verð-
ur haldinn mánudaginn 19. mars kl. 20.30 að Hótel
Sögu - Átthagasal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG - SÍMI
13010
Opið laugardaga
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Barónsstíg 47
HEILSUVERNADARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
óskar að ráða eftirtaiið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga, m.a. við heilsugæslu í skólum
og til sumarafleysinga á barnadeild, húð- og kynsjúk-
dómadeild og við heimahjúkrun.
Ljósmæður á mæðradeild til sumarafleysinga.
Sjúkraliða við heimahjúkrun til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400
(milli kl. 9 og 10 f.h.).
Umsóknum skal skila til skrifstofa Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur fyrir kl. 16.00 mánudaginn 26.
mars 1990.
Umsóknareyðblöð liggja frammi í afgreiðslu Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur og í Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16, Reykjavík.
GÆÐASÓL í W0RLD CLASS HÚSINU
Skeifunni 19, 2. hæð
Þá er GæðasóHn komin upp. Ein glæsileg-
asta sólbaðsstofa landsins hefur opnað I
World Class húsinu, Skeifunni 19:
Við bjóðum upp á:
1. Stærstu sólarbekki landsins
2. 43 pera bekki (3 andlitsljós)
3. Sérkælingu í bekkjum
4. Fyrsta flokks loftræstingu
5. Fyrsta flokks sturtur
6. Fyrsta flokks hreinlæti
7. Góða þjónustu
8. Afslappandi umhverfi
Takið vorið með stæl og verið brún um hæl
Pantið tíma í síma 679099
Verið velkomin. Gæðasól skilar árangri
GÆÐASOL
-gse