Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990.
Utlönd
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, handtók í gær fyrrum embættismaim
í bandaríska hemura fyrir raeintar njósnir. Grunur leikur á aö raaöurmn
hafi stundað njósnir fyrir Varsjárbandalagsríkin á meðan hann var við
störf í Vestur-Þýskalandi. Alríkislögreglan segir aö maöurinn hafi verið
í njósnahring sem stundaði það aö smygla varnaráætlmium Vesturlanda
tál Varsjárbandalagsins í rúma tvo áratugi.
James Ramsey, 28 ára gamall, var handtekinn í Flórída í Bandaríkjun-
um og gefið að sök sérstaklega að hafa gefið leyniþjónstunni í Ungverja-
landi og Tékkóslóvakíu upplýsingar um varnarkerfi Atlantshafsbanda-
lagsins. Ramsey hafði yfimmsjón með leynilegum skjölum í herstöö
banóaríska hersíns í Brad Kreuznach í Vestm-Þýskalandi en þar var
hann frá árinu 1983 til ársins 1985. Bandaríska dómsmálaráðuneytið seg-
ir að meintur ieiðtogi njósnahringsins, Clyde Lee Comad, hafi greitt Raras-
ey tuttugu þúsund dollara fyrir leynileg skjöl, þar á meðal skjöl sem inni-
héldu upplýsingar um vamir á landi í Mið-Evrópu ef sovéski herinn gerði
innrás. Comad, sem er fyrrum liðþjálfi, var fundinn sekur um landráð
í vestur-þýskum réttarsal i gær og dærndur til ævilangrar fangavistunar
fyrir að selja hemaðaríeyndarmál til Tékkóslóvakíu og Ungverjariands.
Talið er að hann hafi alls fengið tvær milljónir dollara<fyrir að selja hern-
aðarieyndarmál.
Innflutningsbanni verður aflétt
Landbúnaðarráðherra Frakka, Henri Naliet, raeðir við blaðamenn að
loknum fundi landbúnaðarráðherra aöildarríkja Evrópubandalagsins þar
sem Frakkar, ítatir og Vestur-Þjóðverjar samþykktu að falla frá innflutn-
ingsbanni á breskt nautakjöt. Simamynd Reuter
Landbúnaðaráðherrar aðildarrikja Evrópubandalagsins náðu í gær
samkomulagi um harðar aðgerðir til að hefta útbreiðslu veiki sem fund-
ist hefur i breskum nautgrípum og svipar til riðuveiki í sauðfé. Samkomu-
lag ráðherranna gerir ráð fýrir að Bretar tryggi að útfiutt, úrbeinað nauta-
kjöt innihaldi ekki þá hluta skepnunnar sem em hvað viðkvæmastir fyr-
ir smiti.
Vestur-Þjóðverjar, ítalir og Frakkar, sem settu innfiutningsbann á
breskt nautakjöt, hafa fáliist á aö afnema það bann tafariaust. Alvariegar
deilur upphófust milli Breta og fyrrnefndra þjóða vegna faannsins en að
sögn sfjórnarerindreka þýðir samkomulagið að allir geti hrósað sigri.
Nasser sakaður um morð
Khaleb Abdel Nasser, elsti sonur
fyrrum forseta Egyptalands,
kvaðst í gær saklaus af ákæmm
um aðild að morðum á ísraelskum
stjórnarerindrekum. Nasser gaf sig
fram við lögreglu í gær en var lát-
inn laus eför að hafa greitt trygg-
ingu.
Nasser, sem verið hefur í sjálf-
skipaðri útlegð í Júgóslaviu, er
einn tuttugu sakbominga í máli
sem varðar memtar morðtilraunir
og morð á bandarískum og ísra-
elskum stjórnarerindrekum á ár-
unum 1984 til 1987. Ellefu af þessum
tuttugu, þar á meðal Nasser, geta
átt yfir sér dauöadóm veröi þeir
fundnir sekír. Mennimir voru
ákærðir og leiddir fyrir rétt í nóv-
ember áríð 1988. Réttaö hefur verið
ytlr N'asserað honum tjarvnrandj.
Khaleb Abdel Nasser, elsti sonur
Gamal Abdel Nasser heitins, hefur
verið sakaður um aðild að morði
á ísraelskum stjórnarerindreka.
Simamynd Reuter
Kosið í Búlgaríu á sunnudag
Um hálf milljón manna kom saman í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, í gær
til að setjaendapunktinn á kosningabaráttu fyrir komandi þingkosningar
á sunnudag. Mannfjöldinn sem kom þama saman lýsti yfir stuöningi við
stjómarandstöðuna sem berst fyrir því aö koma stjóm kommúnista frá.
Kommúnistar, sem taldir em sigurstranglegir í kosningunum, héldu eig-
in kosningafund en hann sóttu mun færrl
Talið er að fimm hundmö til sjö hundrað þúsund manns hafi komið
saman á fundi sfiómarandstæðinga í gær. Fundurinn var haldinn að til-
stuðlan Bandalags lýðræðlsafla en það var sett á laggirnar fyrir aðeins
sjö mánuðum. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur bandalagiö mests
stuðnings í stærri borgum og bæjum en kommúnistar njóta enn mikils
stuðnings meðal íbúa dreifbýlisins. Kosningamar í Búlgaríu á sunnudag
verða þ£er fyrstu ftjálsu í landinu í áratugi.
mr ....
m imtmnwmn* r
' *« • 1*1 S •••*>* 8 í
Námsmenn safnast saman á torginu í Frunze í Kirgísíu þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Símamynd Reuter
Varar við stríði
Sovéski innanríkisráðherrann,
Vadim Bakatin, varaði við því í þing-
ræðu í gær að óeirðimar í Mið-
Asíulýðveldum Sovétríkjanna gætu
þróast í bein átök milli Kirgísíu og
Úzbekistan. Nær áttatíu manns hafa
látið lífið í átökunum undanfarna
daga umhverfis borgina Osh.
Hvatti innanríkisráðherrann til að
yfirvöld og fulltrúar borgara kæmu
þegar í staö saman til ráðstefnu. Ba-
katin sagði að gefa þyrfti út sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem hvert lýð-
veldi tryggði öllum þegnum sínum
borgaraleg réttindi og sérstaklega
þeim sem tilheyrðu minnihlutahópi.
í ræðunni, sem þótti nánast vera
neyðaróp, sagði Bakatin að sjötíu og
átta hefðu látið lífið og yfir þrjú
hundruð særst frá því á mánudag-
inn. Um fjörutíu hermenn og lög-
reglumenn em meöal þeirra særðu.
Lögreglan getur ekki ráðiö við
þjóðernisróstur, að sögn innanríkis-
ráðherrans, og sagði að um þrjú þús-
und lögreglumenn, hermenn lýö-
veldisins og innanríkisráöuneytisins
• hefðu tekiö sér stöðu milh Kirgísa
og Úzbeka á svæðinu kringum borg-
ina Osh. Þar hafa mörg þúsund vopn-
aöir Úzbekar safnast saman.
Frá höfuðborg Úzbekistan berast
þær fregnir að allar leiðir til Kirgísíu
hafi verið lokaðar til að koma í veg
fyrir að Úzbekar flykkist þangað til
að berjast. Reuter
Kosið 1 Tékkóslóvakíu:
Umbótasinnum spáð stórsigri
Fastlega er búlst við að Vettvangur
borgaranna, umbótafylkingin sem
átti stóran þátt í að velta kommúnist-
um af vaddastóh í byltingunni í
Tékkóslóvakíu á síðasta ári, fái umb-
un erfiðis síns þegar Tékkar ganga
að kjörborðinu í dag og á morgun.
Fréttaskýrendur spá hreyfingunni,
sem er undir forystu Vaclavs Havel
forseta, yfirburðasigri. Samkvæmt
skoðanakönnunum er hreyfingunni,
ásamt systurflokki sínum, samtök-
unum Almenningur gegn ofbeldi,
spáð allt að fjörutíu prósentum at-
kvæöa í þessum fyrstu frjálsu þing-
kosningum í landinu í fiörutíu og
fiögur ár. Samkvæmt sömu skoðana-
könnunum fær Bandalag kristilegra
demókrata fimmtán prósent at-
kvæöa en kommúnistaflokkurinn
einungis tíu prósent.
Forystumenn Vettvangsins segja
að gangi þessar spár eftir muni þeir
reyna að mynda samsteypustjórn
með aðild kristilegra demókrata.
Fari svo yrði í raun um sömu stjórn
að ræða og nú er við völd að því
undanskildu að kommúnistar fá án
efa reisupassann. Kommúnistar
halda um þriðjungi ráöherraemb-
ætta í bráðbirgðastjórninni sem nú
situr.
Alls keppa rúmlega tuttugu stjórn-
málaflokkar og hópar um völdin í
Tékkóslóvakíu. Af þeim em aöeins
fimm sem taldir eru sigurstranglegir
en einn þeirra, Vettvangur borgar-
anna er langstærstur og vinsælastur.
Flokkurinn var settur á laggirnar
sem hreyfing lýöræðisafla í fyrra og
var í fararbroddi byltingarinnar í
nóvember síðastliðnum þegar
Ungur Tékki skoðar í búðarglugga
í Prag og tekur lítt eftir kosning-
aspjöldunum sem hanga í gluggan-
um. Kosið verður í Tékkóslóvakiu í
dag og á morgun.
Simamynd Reuter
kommúnistum var steypt af stóli.
Helstu forystumenn Vettvangsins,
þar á meðal tékkneski forsetinn,
Vaclav Havel, vom allir andófsmenn
á tímum alræðisstjórnar kommún-
ista. Systurflokkur Vettvangs borg-
aranna í Slóvakíu er Almenningur
gegn ofbeldi.
Auk Vettvangsins em fiórir aðrir
flokkar hklegir til að fá stóran hluta
atkvæða. Þessir flokkar era banda-
lag kristilegra demókrata, kommún-
istaflokkurinn, flokkur jafnaðar-
manna og.flokkur græningja. Þeim
síðastnefnda, sem byggður er á vest-
rænum . umhverfisverndarflokkum,
var spáð tíu prósentum atkvæða fyr-
ir tveimur mánuðum en síðustu
kannanir sýna að stuðningur við
hann hefur farið minnkandi. Ef
marka má þær kannanir fá græn-
ingjar ekki nema fiögur prósent at-
kvæða en það nægir ekki til að fá
mann kjörinn á þing.
Tékkóslóvakía er fimmta af sex
þjóöum Austur-Evrópu sem heldur
fijálsar og lýðræðislegar eða að
minnsta kosti að mestu lýðræðisleg-
ar kosningar á síðustu tólf mánuð-
um. Allar fyrri kosningar hafa leitt
til sömu niöurstöðu, þ.e. að fyrrum
valdhöfum hefur verið steypt. I Búlg-
aríu, þar sem kosiö verður á sirnnu-
dag, er þó líklegt að úrslitin verði
kommúnistum í hag, að því er frétta-
skýrendur telja.
í Tékkóslóvakíu em ellefu milljón
manns á kjörskrá. Kosning er frjáls
en fréttaskýrendur búast við allt að
áttatíu prósent þátttöku. Kosið er um
þijú hundmö þingmenn á sam-
bandsþingiö en alls eru 3.600 fram-
bjóðendur sem bjóða sig fram. Hvor
deild um sig á sambandsþinginu,
fulltrúadeildin og þjóðardeildin, hef-
ur 150 fulltrúa. Að auki er kosið um
tvö hundruð fulltrúa á tékkneska
þjóðarþingiö, þing tékkneska lýð-
veldisins, og 150 á slóvakíska þjóðar-
þingið eða þing slóvakíska lýðveldis-
ins. Til að fá mann kjörinn á þing
þarf fimm prósent atkvæða. Fyrstu
tölur munu liggja fyrir á sunnudag
en lokaúrslit verða Mklega ekki kunn
fyrr en á fimmtudag í næstu viku.
Reuter