Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SÍMI (91 )27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
SÍS á krossgötum
Sögulegur aðalfundur Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga er hafinn. Fyrir fundinum liggja tillögur
stjórnar um gjörbyltingu á rekstri Sambandsins. Þar
er gert ráð fyrir að horfið sé frá samyinnufélagsforminu
og tekinn upp hlutafélagarekstur. í rauninni er verið
að leggja til að SÍS sé lagt niður og í staðinn stofnuð
mörg fyrirtæki í breyttu rekstrarformi. Sambandið
verður hér eftir eins og hvert annað félag án beinnar
þátttöku í almennum rekstri. í stað þess hafi stjórn SÍS
það hlutverk að móta heildarstefnu fyrir samvinnu-
hreyfmguna og kaupfélögin en beri ekki ábyrgð né held-
ur hafi bein afskipti eða eignaraðild að einstökum
rekstrareiningum.
Fjölmiðlar hafa mjög beint athygli sinni að stjórnar-
kjöri og frambjóðendum til stjórnarformennsku en sú
kosning skiptir ekki miklu máh nema að því leyti að
kandídatarnir eru fuhtrúar þeirra hópa innan Sam-
bandsins sem vilja ganga misjafnlega langt í breytingum
á starfsemi SÍS. Aðalatriðið er þó hitt að samvinnuhreyf-
ingin í landinu hefur játað sig sigraða og stærsta fyrir-
tæki landsins er í rauninni að leggja upp laupana.
Þetta eru auðvitað meiriháttar tíðindi með hhðsjón
af þeim geysimiklu umsvifum sem Sambandið hefur
haft í íslensku viðskiptalífi. Margur mun eflaust gráta
krókódílstárum yfir þessum sviptingum hjá SÍS enda
hefur því verið haldið fram með réttu að samvinnurekst-
urinn hafi notið skjóls og stuðnings stjórnmáíánna, lög-
gjafarinnar og fjármagnsfyrirgreiðslu langt umfram það
sem einkareksturinn hefur búið við. Sambandið hefur
verið risi í viðskiptalífinu sem á stundum hefur beitt
óvönduðum meðulum í samkeppninni og haft shka yfir-
burði að jaðrað hefur við einokun.
Engu að síður er óþarfi og ástæðulaust að hlakka
yfir óförum Sambandsins og skipbroti samvinnuhreyf-
ingarinnar. Hún hefur vissulega gegnt mikilvægu hlut-
verki 1 verslunar- og sjálfstæðisbaráttu íslendinga og
það er fæstum til góðs þegar shk samsteypa riðar til
fahs. Það hriktir í fleiru en Sambandinu þegar svo erf-
iðlega árar. Sambandið teygir anga sína svo víða að
rekstur þess hefur víðtæk áhrif á efnahag annarra fyrir-
tækja, einstakhnga og jafnvel heiha byggðarlaga.
Það þarf kjark th að ganga til þeirrar uppstokkunar
sem þeir sambandsmenn eru nú að leggja til og sam-
þykkja. Það er áreiðanlega erfiður biti að kyngja þegar
sjálf samvinnuhreyfmgin þarf að horfast í augu við þá
staðreynd að sú góða hugsjón sem samvinnan er byggð
á gengur ekki lengur.
En sá lífróður, sem nú er róinn innan Sambandsins,
er ekki að ástæðulausu. Mihjarður í fyrra, átta hundruð
mihjónir í ár. Tap á tap ofan ár eftir ár, slíkt þolir ekk-
ert fyrirtæki hversu voldugt sem það er og hversu göfug
sú hugsjón er sem að baki býr. Liðnir eru þeir dagar
þegar SÍS naut góðs af ótakmörkuðum aðgangi að láns-
fé. Liðin er sú tíð að fyrirgreiðslan skapi forréttindi.
Skuldadagarnir eru runnir upp.
Þess er óskandi að forráðamenn Sambands íslenskra
samvinnufélaga beri gæfu th að bjarga SÍS frá uppgjöf
og gjaldþroti. Vonandi verða breytingamar til góðs fyr-
ir þá atvinnustarfsemi og þá þjónustu sem Sambands-
fyrirtækin veita. Með því að laga sig að nýjum tímum
og öðrum viðhorfum má vel takast að snúa blaðinu við.
í hinum harðnandi og miskunnarlausa heimi viðskipt-
anna lifa þeir einir sem kunna fótum sínum forráð.
Ehert B. Schram
Síonismi og
Sovétríkin
Það þótti tíðindum sæta og kom
á óvart að þeir Bush og Gorbatsjov
skyldu semja mn aukin viðskipti á
fundi sínum í Washington, við því
hafði tæpast verið búist. En samn-
ingurinn er svo mörgum skilyrðum
háður að óvíst er að hve miklu leyti
hann kemst til framkvæmda, og
helsta skilyrðið varðar sovéska
gyöinga.
Forsenda Bandaríkjamanna fyrir
eölOegum viðskiptum á almennum
kjörum er að gyðingum í Sovétríkj-
unum verði gefið ferðafrelsi og
þeim sem vilja leyft að flytja úr
landi, til ísraels eða annaö. Sjálfir
taka Bandaríkjamenn ekki við
nema mjög takmörkuðum fiölda.
ísrael aftur á móti vill taka við öll-
um þeim gyöingum sem þangað
vilja koma. Sovétmenn hafa stöð-
ugt verið að auka ferðafrelsi og í
fyrra var ákveðið að leyfa sovésk-
um gyðingum að flytja nær að vild
til ísraels. Drög voru lögð að því
að koma á beinum flugsamgöngum
milli Sovétríkjanna og ísraels.
En þá komu upp efasemdir.
Shamir, forsætisráðherra ísraels,
og skoðanabræður hans fóru að
boða þá kenningu að þessi væntan-
legi innflutningur væri enn ein
röksemdin fyrir því að innhma
hemumdu svæðin endanlega í
ísrael, þar væri landsvæði sem
vantaði. Palestínumenn og leið-
togar arabaríkjanna bmgðust við
af mikilli hörku. Mubarak Egypta-
landsforseti fór til fundar við Gor-
batsjov í Moskvu til að reyna að fá
hann til að stöðva þennan stór-
fellda útflutning.
Arabaríkin héldu leiðtogafund i
síöasta mánuði þar sem sameining
þeirra í baráttunni gegn ísrael var
áréttuð sem aldrei fyrr. Því fór svo
að Gorbatsjov sá sig tilneyddan til
þess á fundinum með Bush að gefa
í skyn að fiöldaútflutningur sov-
éskra gyðinga væri undir því kom-
inn að Israelsstjóm fyndi þeim bú-
setu annars staðar en á hemumdu
svæðunum. Ef svo fer að takmörk-
un verður sett á þessa fólksflutn-
inga mun það síðan bitna á viö-
skiptasamningum Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna í samræmi við
Jackson-Vanik-lögin frá 1976. -
Þannig hefur ástandið í Miðaust-
urlöndum bein áhrif á samskipti
risaveldanna en fólksflutningamir
frá Sovétríkjunum munu á sinn
hátt raska mjög því ástandi sem
þar er fyrir.
Síonisminn
Síonisminn, sem er sá gmnnur
sem Ísraelsríki er reist á, byggist á
því að gyðingar séu sérstök þjóð
og eigi heima í Erets Israel, hinu
foma heimalandi Gyðinga, sem er
Palestína, og reynar meira til að
áhti sumra sem grannt lesa Bibl-
íuna. - Síonisminn hefur ætið verið
umdeildur meðal gyðinga og er
enn. Margir gyðingar hafa ævin-
lega verið sáttir við að vera gyðing-
legir borgarar og þegnar í öðmm
ríkjum. í Israel sjálfu eru hka fiarri
því allir sáttir við kenningar síon-
ismans, margir vilja að trúarbrögð-
KjaUarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
in ein skilgreini gyðinga, ekki bú-
seta í námunda við Síonsfiall; hvað
sem því líður er sú grundvallar-
stefna að allir gyðingar eigi heima
í ísrael hornsteinn ríkisins.
Gyðingur er hver sá sem á gyðing
fyrir móður, sá hinn sami á sjálf-
krafa borgararétt í ísrael. Á sínum
tíma óttuöust gyðingar að síonism-
inn mundi aðeins auka á gyðinga-
hatur í Evrópu og víst er þaö að
kenningamar um Guðs útvöldu
þjóð, sem ætti forgangsrétt aö Pal-
estínu, urðu ekki til að auka þeim
vinsældir. Þótt ísrael sé byggt á
þessari kenningu hefur aðeins lítill
hluti gyðinga í heiminum stutt
hana í verki.
í ísrael búa innan við fiórar mihj-
ónir gyðinga, utan ísraels búa að
minnsta kosti 14 mihjónir. Lang-
flestir búa í Bandaríkjunum en ut-
an þeirra era flestir gyðingar í Sov-
étríkjunum. Nú er komið mikið
fararsnið á þessa sovésku gyðinga
og að sögn Chaims Herzog, forseta
ísraels, er væntanlegur fiöldainn-
flutningur gyðinga þaðan sá mikh-
vægasti stuðningur sem síonism-
anum hefur verið sýndur síöan á
fyrstu dögum ríkisins. - Þetta telja
Palestínumenn og aörir arabar hka
og era uggandi um sinn hag.
Pogrom
Einn fylgifiskur aukins tjáning-
arfrelsis í Sovétríkjunum hefur
verið ný alda af gyöingahatri. Gyö-
ingahatur er gamalt og rótgróið í
Sovétríkjunum, orðið pogrom, um
ofbeldisverk gegn gyðingum, er
rússneskt og stór hluti bandarískra
gyðinga á ættir að rekja til fólks
sem flúði rússnesk pogrom í upp-
hafi þessarar aldar.
Nú er komiö los á margt í sovésku
samfélagi, þjóðemisstefna er víða
í uppgangi og þjóðemisstefnu fylgir
gjaman fiandskapur við fólk af
öðra þjóðemi. í Sovétríkjunum era
gyðingar skráðir sem sérstakt þjóð-
arbrot og þetta þjóðarbrot er líka
sérstakt eitur í beinum þjóöernis-
sinna. Gyðingar í Sovétríkjunum
óttast nfiög um sinn hag og sú er
ástæðan fyrir þeim mikla fiölda
sem nú hyggur á búferlaflutninga
til ísraels.
Menntamenn
Að sögn innflytjendayfirvalda í
ísrael má búast við, -að öllu
óbreyttu, aht að 250 þúsund sovésk-
um gyðingum á þessu ári og allt
að hálfri mhljón næsta ár. Nathan
Sharánsky, sem áður var frægur
sovéskur andófsmaður, segir að ein
mhljón, og hugsanlega tvær mihj-
ónir, gyöinga vhji flytja frá Sovét-
ríkjunum til ísraels á næstu áram.
Þetta setur ísraelssfiórn í mikinn
vanda. Gyðingar í ísrael eru ekki
nema tæpar fiórar mhljónir og
þessi fiöldi innflyfienda er yfirvöld-
um ofviða nema th komi stórfelld
aðstoð frá Bandaríkjamönnum.
Efnahagslíf í ísrael er hka í lægð
um þessar mundir og atvinnuleysi
það mesta í tvo áratugi. Iha hefur
gengið að koma þeim sovésku gyð-
ingum fyrir sem þegar hafa flutt.
Ein ástæðan er sú aö mikhl hluti
sovéskra gyðinga er menntamenn
sem hafa htinn hug á að gerast
verkamenn á samyrkjubúum. Th
dæmis hafa síðustu mánuði komið
allt að 200 sovéskir læknar til ísra-
els í hverjum mánuði en ísraelskir
læknaskólar útskrifa 260 lækna á
ári. Offramboð er á hvers kyns vís-
indamönnum og tæknimenntuðu
fólki. Þó hafa aðeins 30 þúsund sov-
éskir gyðingar komið th ísraels það
sem af er árinu. Von er á fleiri en
200 þúsund til viðbótar th áramóta.
Innlimun
Búseta þessa fólks á hemumdu
svæðunum hefur ekki verið vanda-
mál hingað th. Þrátt fyrir áróður
öfgamanna hefur aðeins um eitt
prósent innflyfienda sest að á
svæðum araba og þau svæði eru
flest í úthverfum Jerúsalem. Þrátt
fyrir ahan hávaðann era aðeins um
70 þúsund gyðingar búsettir á her-
numdu svæðunum, enn sem komið
er, innan um tvær mhljónir Palest-
ínumanna.
Samt sem áður er þessi væntan-
legi innflutningur sterk röksemd í
huga margra Stór-ísraelsmanna
fyrir því að innhma hemumdu
svæðin endanlega og byggja þau
gyðingum. Þessi viðbót mun líka
breyta hlutfohunum mhli gyðinga
og araba aröbum í óhag. Allt er
þetta heldur ófriðvænlegt.
Það er svo nýtt í þessum málum
að Gorbatsjov getur haft stór áhrif'
á hvemig máhn þróast en ef hann
reynir að draga úr útflutningnum
til að minnka ólguna meðal araba
mun þaö á móti bitna á samskipt-
unum við Bandaríkin. Bandaríkin
verða svo að ákveða hvort þau ætla
aö efla ísrael fiárhagslega th aö
taka við þessum innflyfiendafiölda.
Þetta er að sönnu mikill ávinning-
ur síonista en þótt réttur ísraels-
manna til að veita öllum gyðingum
viötöku sé viðurkenndur felst ekki
í því viöurkenning á rétti þeirra th
að fá þeim búsetu í landi ánnarrar
þjóðar. Gunnar Eyþórsson
Gyðingar í ísrael krefjast frelsis fyrir kynbræður sína í Sovétríkjunum.
- Forsenda Bandaríkjamanna fyrir eðlilegum viðskiptum viö Sovétmenn
á almennum kjörum er ferðafrelsi fyrir gyðinga frá Sovétríkjunum.
„Gyðingar 1 Israel eru ekki nema tæpar
Qórar milljónir og þessi fjöldi innflytj-
enda er yfirvöldum ofviða nema til
komi stórfelld aðstoð frá Bandaríkja-
mönnum.“