Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 14. JÚLl 1990.
9
ÐV Sviðsljós
Richard Gere á heimavelli.
Richard Gere:
Allt er
fertugum fært
Kvikmyndaleikarinn Richard Gere
nýtur nú fádæma vinsælda og um
þessar mundir geta bíógeggjarar í
Reykjavík valiö á milli þriggja
mynda með honum í aðalhlutverki.
Þær eru Stórkostleg stúlka, Siða-
nefnd lögreglunnar og Föðurarfur.
Hlutverk Gere í þessum þremur
kvikmyndum eru afar ólík, allt frá
gamanhlutverkum yfir í hádramat-
ísk. Myndarlegi og kynþokkafulli
maðurinn Gere í Stórkostlegri stúlku
breytist í andstyggilegt fúlmenni í
Siðanefnd lögreglunnar en sú per-
sóna kemur aðdáendum kyntáknsins
Gere töluvert á óvart. Reyndar var
hann lengi í vafa hvort hann ætti að
voga frama sínum með þvi að taka
að sér hlutverk þvílíkrar andstyggð-
arpersónu. En eftir að hafa lesið hlut-
verkið var hann friðlaus og kallaði
það síðar persónulega uppgötvun að
takast á við þennan erfiða karakter.
Gengi Richards Gere hefur verið
upp og ofan síðustu áratugi. Hann
byijaði ungur að leika og nýlega lét
hann hafa eftir sér í viðtali við blað-
ið US að fyrirmyndirnar hafi verið
Marlon Brando (sem ungur maður)
og James Dean. Öfugt við jafnaldra
sína smitaðist hann ekki af hippa-
menningu sjöunda áratugarins held-
ur leitaöi tÓ uppreisnargjömu ung-
menna sjötta áratugarins, svo sem
Brando, Dean og fleiri.
Framan af þótti hann bara mynd-
arlegur á hvíta tjaldinu en lélegur
leikari þótt honum tækist einstaka
sinum ágætlega upp. Steininn tók þó
úr með kvikmyndinni Davíð kon-
ungur (1985) sem þótti afpyrnuléleg
og eftir það átti hann sér vart við-
reisnar von. En hann var ekki að
baki dottinn og nú vegnar honum
betur en nokkru sinni fyrr.
Richard Tiffany Gere er fæddur 31.
ágúst 1949. Faðir hans var trygginga-
sali í Philadelphiu en afinn var
bóndi. Lengi vel hefur hann þurft að
leiðrétta misskilning varðandi at-
vinnu fóðurins því flestir hafa talið
hann vera bóndason. Sem stendur
er hann ógiftur en um tveggja ára
skeið hefur hann verið í föstu sam-
bandi við 24 ára gamla velþekkta fyr-
irsætu, Cindy Crawford.
Richard Gere hefur um árahil verið
hallur undir austurlenska speki og
er búddatrúar. Hann er stuðnings-
maður hins útlæga leiðtoga í Tíbet,
Dalai Lama, og er varaformaður
stuðningssamtaka í New York sem
kallast Tibet House sem hafa það að
markmiði að vernda og kynna tíb-
eskan menningararf. Hann hefur
einnig ferðast um Mið-Ameríku til
að kynna sér af eigin raun ástandið
þar um slóðir. Að hans sögn finnur
hann mikinn stuðning í búddatrúnni
og kynnin við Dalai Lama hafa gert
hann aö betri manni.
Með Dalai Lama i París áriö 1988.
NORPMENDE
SJONVARPSTÆKI
I SERFLOKKI...
Galaxy 36 14" vandaö sjónvarp, með
skörpum, litsterkum skjá, 40 stöðva
minni, tenginau fyrir gervihnatta-
sjónvarp, þráolausri fjarstýringu,
möauleika á NTSC/Secam móttöku,
sjáílvirkum stöðvaleitara, Scart-tengi og
ýmsu fleira.
Verð aðeins: 32.990,- kr. eða
29.800,-
Hæat að fá spanspenni, sem breytir 12V í 220V,
tilvalið í hjólhýsið, bílinn, bátinn eða sumarbústaðinn.
Verð aðeins 8.500,- Yfir 2 ára reynsla !
* Nýju myndlamparnir frá Nordmende (sá neðri) eru nánast
alveg flatir, með beinum hliðum og hornum. Þeir eru líka með
möttu gleri, sem gerir það að verkum að Ijós endurspealast ekki
eða glampar í sk|ánum, líkt og þeir hefðbundnu (sá efri). Black
Matrix er ný tækni, sem gefur meiri skerpu og nákvæmari liti.
Nordmende sjónvarpstækin, sem eru Vestur-Þýsk háaæðavara,
eru löngu landsþekkt fyrir langa endingu og frábær gæði
greiöslukjör til allt aö 12 mán.
eöa allt aö 3 ára greiöslukjör
Við
tökum
vel á
móti
þér !