Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990. ðl' „Upphafið að þessari starfsemi má rekja til lesendabréfs í DV en þar kom fram fyrirspurn um megr- unarklúbbinn Línuna sem reyndar hafði verið lagður niður. Ég hafði um nokkurt skeið haldið úti óform- legum megrunarklúbbi fyrir vini og kunningja og ákvað að víkka út starfsemina enda þörfin fyrir hendi," segir Guðbjörg Theodórs- dóttir sem rekur megrunarklúbb- inn Hjálp úr álögum á heimili sínu í Geitlandi í Reykjavík. Skjólstæð- ingar Guðbjargar hafa nú skilað af sér einu tonni af umframþunga síðan í janúar. Það er mjög misjafnt hvað hver og einn hefur misst mikið en ekki er óalgengt að tuttugu til þijátíu kíló hafi fokið án þess að nokkur sakni þeirra. Kúrinn sem Guðbjörg notar hefur hún að mestu leyti sett saman sjálf. Fyrsta dag vikunnar er einungis drukkið vatn en síðan eykst fæðumagnið dag frá degi og um helgar má boröa töluvert. Auð- vitað má ekki borða hvað sem er því aðaláherslan er lögð á græn- meti, tómatsafa, magurt kjöt, fisk og ávexti. „Þessi umskipti frá mat yfir í fóstu keyra brennsluna áfram og ■ ■ Gréta og Guðbjörg skoða vigtarkortið hennar Grétu sem sýnir að hún hefur skilað af sér 25 kílóum frá því íjanúar. DV-myndJAK. leið og besta ráöið við leiðindunum var að fá sér gott að borða. Þegar maður er kominn í slíkan vítahring er fátt annað til ráða en að taka hlutina föstum tökum í stað þess að hjakka í sama farinu öllum til ama og leiðinda.“ Stuðningur mikils virði En til þess að standa sig í svona átaki þarf að fá stuðning vina og vandamanna og hann skorti ekki á heimili Grétu því eiginmaður og börn studdu vel við bakiö á henni. „Ég hefði ekki komist í gegnum þetta án þeirra. En ég fékk stuðning frá fleirum því vinnufélagar mínir á Hagstofunni og viöskiptamenn hvöttu mig áfram.“ Eiginmaður hennar bauð henni út að borða þegar hver fimm kíló voru á bak og burt til að verðlauna hana. Nú þegar Gréta hefur náð þeirri þyngd sem hún ætlaði sér brosir lífið við henni. „Ég hef gaman af því að kaupa mér ný föt sem var kvöl áður fyrr. Ég hafði ekki farið í fataverslanir um lengri tíma og Eitt tonn af aukakílóum horfið - og enginn saknar þess blekkja magasekkinn töluvert," segir Guðbjörg. „Ég bið þó fólk allt- af um að hafa samráð við lækni sinn, sérstaklega ef það hefur átt viö einhveija sjúkdóma að stríða. Enn sem komið er hefur enginn læknir bannaö sjúklingi sínum að fara í kúrinn.“ Fjölskylduvandamál Offita er algeng og taldi Guðbjörg að um 75% þjóðarinnar berðust við aukakílóin. „Það er algengt að fleiri en einn fjölskyldumeðlimur sé of feitur og hingað hafa leitað til mín fjölskyldur," segir Guðbjörg og tek- ur dæmi af þriggja manna fjöl- skyldu sem saman léttist um 18,8 kíló á 3 vikum. Guðbjörg er líka í símasambandi viö nokkra einstakl- inga og hjón úti á landi sem hringja til hennar vikulega, gefa upp þyngd sína og fá hvatningu til að halda áfram. Ekki einkamál Eins og gefur að skilja er mjög misjafnt hvað fólki gengur vel að losa sig við aukakílóin. Einn skjól- stæðinga Guðbjargar er Gréta Guðráðsdóttir en hún hefur lést um 25 kíló síðan í janúar. „Ég var 85 kíló þegar ég byijaði og var að shgast undan þessu svo og aðrir fjölskyldumeðlimir. Dóttir mín las um Hjálp í álögum á les- endasíðu DV og hvatti mig til að koma hingað. í fyrstu var ég afar tortrygginn í garð Guðbjargar og hennar aðferðar en lét slag standa. Ég held því fram að hún hafi heila- þvegið mig á nokkrum kvöldum og þess vegna gekk þetta vel,“ segir Gréta hlæjandi og lítur kankvís- lega á Guðbjörgu. Reyndar hafa víst fleiri sömu sögu að segja um áhrif Guðbjargar á þankagang sinn og telju hana gædda einhveijum sérstökum hæfileikum til að láta fólk gleyma erfiðinu við megrun- ina. Sjálf hefur Guðbjörg átt við offituvandamál að stríða og veit því vel hvað um er að ræða. „Það má ekki gleyma þeirri sér- stöku stemmningu sem ríkir hér á fundunum. Við gleðjumst með þeim sem missa eitthvaö milli vikna, alveg sama þó aðeins fari nokkur hundruö grömm því margt smátt gerir eitt stórt," segir Gréta. Kílóasöfnun í nokkur ár Ákveöin ástæða varð til þess að Gréta hóf kílóasöfnun sína. Fyrir sex árum fékk hún heilablóðfall og var lengi að ná sér. Henni var ráð- lagt að borð hollan og góðan mat til aö flýta fyrir batanum. „En ég vildi bara góða matinn en ekki þann holla. Mér fannst engu máh skipta þó ég safnaði nokkrum kíló- um og taldi þaö bara hraustleika- merki. Auk þess vhdi ég vera góð við sjálfa mig þar sem ég haföi átt erfitt í veikindunum og notaði það sem afsökun," segir Gréta. „Þegar í óefni var komið og ég oröin 85 kíló fóru aörar hhðarverkanir að gera vart við sig. Nú var ég feit og keypti mín föt frá útlöndum í gegn- um pöntunarhsta. Reyndin var sú að þau pössuðu aldrei þegar þau komu því ég bætti stöðugt á mig.“ Nú hugsa margir sem standa í sporum Grétu að þetta sé einstakt afrek en Guðbjörg leggur áherslu á að öllum takist að grennast. „Allir verða að trúa því að þeir geti áork- »að öllu svo framarlega sem þeir trúa á mátt sinn og megin,“ segir Guðbjörg. „Það er líka nauðsynlegt að tala við fólk sem á við sama vandamál að stríða því enginn skil- ur það betur en sá sem reynsluna hefur. Vikulegir fundir með hvatn- ingu og samkennd hjálpa fólki að yfirstíga þennan hjall sem offitan er.“ -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.